Jón Arnór spilaði bara fyrstu fimm mínúturnar í tapi Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði CAI Zaragoza þegar liðið tapaði með níu stigum á útivelli á móti Laboral Kutxa, 83-92, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Körfubolti 19. janúar 2014 13:07
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 78-77 | Grindavík í undanúrslit Grindavík er komið áfram í undanúrslit Powerade-bikars karla í körfubolta eftir eins stiga sigur á Njarðvík, 78-77, í spennandi og skemmtilegum leik í Röstinni í Grindavík í kvöld. Körfubolti 19. janúar 2014 12:50
Mark Cuban sektaður enn á ný Hinn skrautlegi eigandi Dallas Mavericks, Mark Cuban var í gær sektaður um 100.000$ eða rúmlega 11,5 milljónir íslenskra króna fyrir hegðun sína eftir tap gegn Los Angeles Clippers. Cuban hellti sér yfir dómara leiksins í lok leiksins eftir að Dallas glutraði niður sautján stiga forskoti í fjórða leikhluta. Körfubolti 19. janúar 2014 11:30
Hildur með þrefalda tvennu þegar Snæfell komst í undanúrslit Snæfellskonur eru komnar í undanúrslit Powerade-bikars kvenna í körfubolta eftir fjórtán stiga sigur á Val, 86-72, í Vodfone-höllinni í gær. KR hafði áður komist í undanúrslitin en hinir tveir leikir átta liða úrslitanna fara fram í kvöld og á morgun. Körfubolti 19. janúar 2014 11:13
NBA: Auðvelt hjá Portland og Chicago Portland Trailblazers átti ekki í erfiðleikum með Dallas Mavericks í nótt. Leikmenn Trailblazers náðu mest 38 stiga forskoti í þriðja leikhluta og hvíldu lykilleikmenn liðsins í upphafi fjórða leikhluta. Körfubolti 19. janúar 2014 11:00
NBA í nótt: Loksins sigur hjá Miami | Durant með 54 stig Meistarar Miami Heat komst aftur á sigurbraut í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en liðið vann þá Philadelphai 76ers, 101-86. Körfubolti 18. janúar 2014 11:00
Hún hefur algjörlega helgað körfuboltanum líf sitt Hildur Sigurðardóttir hefur spilað frábærlega með toppliði Snæfells í Dominos-deild kvenna í körfubolta í vetur og komst í vikunni í fámennan hóp kvenna sem hafa skorað yfir 4.000 stig í efstu deild. Hildur tók líka toppsæti af Jóni Arnari Ingvarssyni en engn hefur nú gefið fleiri stoðsendingar í efstu deild á Íslandi. Körfubolti 18. janúar 2014 08:00
KR-konur fyrstar inn í undanúrslitin KR er komið áfram í undanúrslit Powerade-bikars kvenna í körfubolta eftir tólf stiga sigur á Grindavík, 73-61, í Röstinni í kvöld. Vesturbæjarliðið komst síðast svona langt í bikarnum árið 2011. Körfubolti 17. janúar 2014 21:05
Keflvíkingar áfram með hundrað prósent árangur á útivelli Keflvíkingar komust upp að hlið KR á toppi Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 18 stiga sigur á KFÍ á Ísafirði í kvöld, 93-75, í lokaleik þrettándu umferðar úrvalsdeildar karla. Körfubolti 17. janúar 2014 19:00
NBA í nótt: Brooklyn Nets vann í London Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í gær og í nótt en einn þeirra fór fram í London. Ákveðin hefð hefur myndast í NBA-deildinni að leika nokkra leiki í borginni á hverju ári. Körfubolti 17. janúar 2014 09:45
Helena klikkaði á öllum þrettán skotunum sínum Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í ungverska liðinu Aluinvent Miskolc eru svo gott sem úr leik í EuroCup kvenna eftir 32 stiga tap í fyrri leiknum á móti tyrkneska liðinu Istanbul Universitesi, 55-87, í sextán liða úrslitum keppninnar. Körfubolti 17. janúar 2014 00:00
Páll Axel jafnar met Guðjóns með næsta þristi Páll Axel Vilbergsson skoraði sjö þriggja stiga körfur í sigri Skallagríms á Snæfelli í Stykkishólmi í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 16. janúar 2014 23:53
Stjarnan endaði sigurgöngu Þórsara - úrslit kvöldsins í karlakörfunni Fjögurra leikja sigurganga Þórsara úr Þorlákshöfn endaði í Garðbænum í kvöld þegar lærisveinar Benedikts Guðmundssonar þurftu að sætta sig við tveggja stiga tap á móti Stjörnunni, 95-97, eftir æsispennandi leik í 13. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta. Körfubolti 16. janúar 2014 21:06
Páll Axel og Smith sjóðheitir í Stykkishólmi Páll Axel Vilbergsson og Benjamin Curtis Smith fóru á kostum í fjórtán stiga sigri Skallagríms á Snæfelli, 98-84, í Stykkishólmi í kvöld í 13. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta. Körfubolti 16. janúar 2014 21:01
KR-ingar í miklum vandræðum í Seljaskóla KR-ingar byrja nýja árið ekki eins vel í karlakörfunni og þeir enduðu það gamla. KR-liðið vann ellefu fyrstu deildarleiki tímabilsins en tapaði fyrsta leik nýja ársins á heimavelli á móti Grindavík í fyrsta leik ársins 2014 og lenti síðan í miklu basli með ÍR-inga í Seljaskólanum í kvöld. Körfubolti 16. janúar 2014 20:55
Njarðvík og Grindavík fóru illa með nýliðana Njarðvík og Grindavík áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna nýliða Vals og Hauka í 13. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta í kvöld. Njarðvík vann Val með 37 stigum í Ljónagryfjunni og Grindavík vann óvæntan stórsigur á Haukum í Röstinni í Grindavík. Körfubolti 16. janúar 2014 20:51
Bulls með sigur á Magic eftir þríframlengdan leik Chicago Bulls vann frábæran sigur á Orlando Magic, 128-125, eftir þríframlengdan leik. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 101-101 og framlengja þurfti leikinn. Körfubolti 16. janúar 2014 09:45
Jón Arnór kominn aftur til baka - spilaði með CAI í kvöld Jón Arnór Stefánsson er kominn af stað á ný en hann lék með CAI Zaragoza í Evrópuleik í Tyrklandi í kvöld. Endurkoma Jóns Arnór dugði þó ekki spænska liðinu til sigurs en það er mikið fagnaðarefni að sjá okkar mann aftur á vellinum. Körfubolti 15. janúar 2014 21:26
Stórir sigrar hjá Haukum og Val - úrslit kvöldsins í kvennakörfunni Haukar og Valur unnu bæði stóra sigra í 18. umferð Domnios-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukakonur sóttu tvo stig til KR í DHL-höllinni í enn einum stórsigri Hafnarfjarðarliðsins á árinu 2014 og Valskonur unnu 33 stiga sigur á Grindavík á Hlíðarenda. Körfubolti 15. janúar 2014 20:57
Hálfleiksræða Andy fór vel í Keflavíkurstelpurnar Keflavíkurkonur sóttu tvö stig í Hveragerði í kvöld þegar liðið vann fjögurra stiga sigur á heimastúlkum í Hamar, 75-71. Keflavíkurliðið lagði grunninn að sigrinum með því að vinna þriðja leikhlutann 20-8. Körfubolti 15. janúar 2014 20:53
Snæfellskonur á svaka siglingu í kvennakörfunni Snæfellsliðið er á svaka siglingu í Domnios-deild kvenna í körfubolta en liðið fór í Ljónagryfjuna í kvöld og vann 35 stiga sigur á heimastúlkum í Njarðvík, 94-59. Þetta er sjötti deildarsigur Snæfells í röð og alla hefur liðið unnið með þrettán stigum eða meira. Körfubolti 15. janúar 2014 20:34
Hamfarir LA Lakers halda áfram Indiana Pacers heldur áfram á sigurbraut en liðið bar sigur úr býtum gegn Sacramento Kings, 115-92, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 15. janúar 2014 10:30
Kristófer Acox spilar ekki meira á tímabilinu Kristófer, sem leikur með liði Furman University í bandaríska Háskólaboltanum, mun ekki vera meira með á tímabilinu vegna meiðsla Körfubolti 14. janúar 2014 21:51
Elvar Már og Lele Hardy fengu flest atkvæði Byrjunarliðin í Stjörnuleikjum Körfuknattleikssambands Íslands eru nú klár en KKÍ og einfalt.is stóðu fyrir netkosningu í desember á byrjunarliðum karla og kvenna fyrir Stjörnuleikina 2014. Niðurstöður kosningarinnar eru birtar inn á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 14. janúar 2014 15:30
San Antonio Spurs á sigurbraut San Antonio Spurs vann sinn fimmta leik í röð gegn New Orleans Pelicans á útivelli, 101-95, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 14. janúar 2014 09:45
NBA í nótt: Spurs á toppi Vesturdeildarinnar Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en þar ber helst að nefna frábæran sigur San Antonio Spurs á Minnesota Timberwolves, 104-86, vestan megin. Körfubolti 13. janúar 2014 09:10
Kobe Bryant á ráðstefnu Bill Clinton Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna og Kobe Bryant ein stærsta stjarna NBA körfuboltans síðustu tvo áratugi munu stjórna umræðu um börn og íþróttir á heilsuráðstefnu Clinton í Bandaríkjunum mánudagskvöld. Körfubolti 12. janúar 2014 23:30
Botnlið Njarðvíkur lagði KR | Úrslit kvöldsins Óvænt úrslit urðu í Domino's-deild kvenna í kvöld en botnlið Njarðvíkur gerði þá góða ferð í vesturbæ Reykjavíkur og lagði KR-inga að velli, 72-62. Keflavík vann nauman sigur á Val en Haukar unnu öruggan sigur á Grindavík. Körfubolti 12. janúar 2014 21:13
Fimmti sigur Þórs í röð Þór frá Þorlákshöfn komst upp í þriðja sæti Domino's-deildar karla með átján stiga sigri á KFÍ í kvöld, 108-90. Körfubolti 12. janúar 2014 21:03
Risa tap hjá Herði og félögum í Valladolid Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Valladolid sáu aldrei til sólar gegn Unicaja í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Unicaja vann með 54 stiga mun 112-58. Körfubolti 12. janúar 2014 19:15