Vallarstjóri Kópavogsvallar: Kom ekki til greina að moka völlinn Ómar Stefánsson, vallarstjóri Kópavogsvallar, segir lítið annað hafa verið í stöðunni en að fresta leik Breiðabliks og KR í kvöld. Einhverjar óánægjuraddir hafa heyrst þar sem ekki sé búið að moka völlinn og síðan vona það besta. Íslenski boltinn 1. maí 2011 12:23
Búið að fresta leik Breiðabliks og KR - fleiri leikir í hættu KSÍ staðfesti nú rétt fyrir hádegi að búið sé að fresta leik Breiðabliks og KR sem átti að fara fram á Kópavogsvelli í kvöld. Leikurinn hefur verið færður fram á þriðjudag. Íslenski boltinn 1. maí 2011 11:52
Leik Breiðabliks og KR verður líklega frestað Það verður líklega ekkert af því að Íslandsmótið í knattspyrnu hefjist á tilsettum tíma í kvöld. KSÍ mun funda um málið fljótlega og taka ákvörðun í kjölfarið. Íslenski boltinn 1. maí 2011 11:17
Fram samdi við Bretana Pepsi-deildarlið Fram tilkynnti í dag að það hefði samið við Bretana Allan Lowing og Mark Redshaw út þessa leiktíð. Íslenski boltinn 30. apríl 2011 17:09
Þórsurum er spáð neðsta sætinu í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Við ætlum að skemmta okkur og ná í fullt af stigum. Það er mjög eðlilegt að liðum sem koma upp sé spáð falli – nema að einhverjar stórkostlegar breytingar hafi átt sér stað. Að mínu mati erum við sterkari en í fyrra og við höfum fengið til okkar sterka leikmenn á borð við Gunnar Már Guðmundsson,“ sagði Páll Gíslason þjálfari nýliða Þórs í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 22:00
Víkingum er spáð ellefta sætinu í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Þetta er spá þeirra sem standa fyrir utan liðið en alls ekki okkar spá, við ætlum ekki að láta hana rætast,“ sagði Andri Marteinsson þjálfari Víkings í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Víkingum er spáð falli af sérfræðingum Stöðvar 2 sport en liðið endar í 11. sæti af alls 12 liðum ef spáin gengur upp. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 21:00
Grindvíkingum er spáð tíunda sætinu í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Okkur er eflaust spáð þessu sæti þar sem mikil óvissa er um leikmennina sem við fengum en við misstum þrjá til fjóra vel þekkta leikmenn úr liðinu,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 20:00
Stjörnunni er spáð níunda sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Oft hefur okkur verið spáð falli en okkur hefur tekist að afsanna það. Það verður vonandi einnig í ár að við forðumst fallið og verjum sæti okkar í deildinni,“ sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 19:00
Hundrað ára sögu Íslandsmótsins gerð skil Hundraðasta Íslandsmótið í knattspyrnu fer senn í hönd. Gefin hefur verið út saga Íslandsmótsins og hélt KKÍ hóf í tilefni af því nú síðdegis. Þar var öllum elstu núlifandi Íslandsmeisturum afhent eintak af bókinni. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 18:31
Fylki er spáð áttunda sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Miðað við gengið í fyrra þá er spáin um áttunda sætið raunhæf en miðað við gengið í vor hjá okkur þá er þetta kannski ekki alveg það sem maður myndi halda,“ sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Fylki er spáð 8. sætinu af sérfræðingum Stöðvar 2 sport. „Ég tel að leikmannahópurinn sé mun breiðari en í fyrra,“ bætti Ólafur við en hann telur að FH, KR og Valur séu líklegust til afreka í sumar. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 18:00
Keflavík er spáð sjöunda sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport „Við erum ekkert síður sterkari en í fyrra, við erum með öðruvísi lið. Það eru að koma inn yngri leikmenn í okkar lið og við erum að fara í gegnum umbreytingar og byggja upp nýtt lið. Það er mikil áskorun fyrir mig og alla sem koma að fótboltanum í Keflavík,“ sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Keflavíkur í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 17:00
Fram er spáð sjötta sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Hópurinn okkar hefur þroskast í vetur en það verður spennandi fyrir okkur að sjá. Ég þekki Arnar Gunnlaugsson afar vel en ég hefði viljað fá hann aðeins yngri, en Arnar er góður drengur og þokkalegur í fótbolta,“ sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram m.a. í Keflavíkur í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 16:00
Valsmönnum er spáð fimmta sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Það er bara eðlilegt að þeim liðum sem gekk vel í fyrra sé spáð góðu gengi. Ef maður lítur yfir leikmannahópana hjá hverju liði fyrir sig þá lítur leikmannahópur FH hrikalega vel út. Þeir geta stillt upp nánast tveimur jafnsterkum liðum,“ sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Val m.a. í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 15:00
Leikur Fylkis og Grindavíkur fer fram í Kórnum Nýr kafli verður skrifaður í íslenska knattspyrnusögu á mánudaginn þegar leikur í efstu deild karla fer í fyrsta skipti fram innan dyra. KSÍ hefur ákveðið að færa leik Fylkis og Grindavíkur inn í knatthúsið Kórinn í Kópavogi. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 14:30
Meistaraliðinu er spáð fjórða sætinu í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Ég geri ráð fyrir að þær forsendur sem liggja að baki þessari spá sé undirbúningstímabilið og hvernig hin liðin eru að spila. Ég veit ekki hvort þetta sé raunhæf spá eða ekki – en spár eru skemmtilegar og þær gefa vísbendingar,“ sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks sem er spáð fjórða sætinu í Pepsi-deild karla af sérfræðingum Stöðvar 2 sport. Rætt var við Ólaf í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport sem sýndur var í gær og er umfjöllunin um liðið í heild sinni í myndbandinu. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 14:00
Eyjamönnum er spáð þriðja sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Okkur var spáð 10. sætinu í fyrra en markmiðið er að gera betur, það er markmiðið í öllu námi og allri þjálfun,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV m.a. í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Eyjamönnum er spáð þriðja sætinu af sérfræðingum Stöðvar 2 sport en í myndbandinu má sjá hluta úr upphitunarþætti um Pepsi-deildarinnar frá því í gærkvöld þar sem fjallað var um ÍBV liðið. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 13:00
KR-ingum er spáð öðru sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Okkur hefur gengið mjög vel á undirbúningstímabilinu og ef menn eru að dæma út frá því þá er það kannski raunhæft að KR sé spáð öðru sætinu.KR er gamalreyndur klúbbur með flesta titla, og við eigum bara að setja stefnuna hátt, “ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR m.a. í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 12:00
FH-ingum er spáð sigri í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport "Það hefur verið markmið FH síðustu ár að keppa um þessa titla sem eru í boði þannig að það hlýtur að vera raunhæft að okkur sé spáð titlinum. Ef ég ætti að segja að eitthvað annað lið en FH verði Íslandsmeistarar þá held ég að ég ætti að snúa mér að einhverju öðru starfi,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH m.a. í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Íslenski boltinn 29. apríl 2011 11:00
Hallbera skaut Valskonum í úrslitaleikinn Hallbera Guðný Gísladóttir tryggði Val 2-1 sigur á Breiðabliki í undanúrslitaleik Lengjubikars kvenna á gervigrasinu á Hlíðarenda í kvöld en Valsliðið mætir annaðhvort Þór/KA eða Stjörnunni í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Valur hefur titil að verja eftir að hafa unnið Fylki í úrslitaleiknum í fyrra. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 21:16
Þórir: Alltaf til varaplön Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, er bjartsýnn á að allir leikir í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla geti farið fram á réttum tíma. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 18:45
Gunnar Rafn: Missum leikmenn á hverju ári Gunnar Rafn Borgþórsson er nýr þjálfari Vals en liðinu var í dag spáð sigri í Pepsi-deildar kvenna á árlegum kynningarfundi deildarinnar. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 18:15
Páll Viðar: Myndi líka spá okkur falli Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, segir eðlilegt að sínum mönnum hafi verið spáð falli úr Pepsi-deild karla á árlegum kynningarfundi deildarinnar í dag. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 18:00
Matthías: Enn staðráðnari í að vinna tvöfalt Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, segir að leikmenn liðsins séu lítið að hugsa um spár sérfræðinga síðustu dagana fyrir mót. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 17:44
FH og Valur verða Íslandsmeistarar í sumar FH-ingum er spáð sigri í Pepsi-deild karla í fótbolta og Valskonum er spáð sigri í Pepsi-deild kvenna í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna tólf í deildinni en þetta kom fram á kynningarfundi Pepsi-deilda karla og kvenna sem fór fram í Háskólabíói í dag. Nýliðum Víkings og Þór Akureyri er spáð falli hjá körlunum en Grindavík og Þróttur munu falla hjá konunum. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 16:30
Stjarnan fær danskan varnarmann Pepsi-deildarlið Stjörnunnar hefur fengið liðsstyrk því danski varnarmaðurinn Nikolaj Hagelskjær hefur samið við Garðbæinga út júní. Frá þessu er greint á danska vefnum bold.dk. Íslenski boltinn 26. apríl 2011 15:15
Valur vann báða titlana í vetur Valsmenn urðu í gær Lengjubikarmeistari í knattspyrnu eftir sigur á Fylki, 3-1, í framlengdum úrslitaleik. Valur varð einnig Reykjavíkurmeistari fyrr í vetur og vann því báða titlana á undirbúningstímabilinu. Íslenski boltinn 26. apríl 2011 08:00
KSÍ vill ekkert gefa upp Páskahretið stóð undir nafni þetta árið þó svo að páskarnir hafi verið eins seint á árinu og mögulegt er. Kuldi og mikil bleyta hafa verið einkennandi fyrir veðurfarið síðustu vikurnar sem eru slæm tíðindi fyrir knattspyrnuvelli landsins og sérstaklega þá sem á að nota í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla dagana 1. og 2. maí. Íslenski boltinn 26. apríl 2011 07:00
Arnar Sveinn: Vorum heppnir að hanga inni í leiknum „Þetta var frábær sigur en við vorum heppnir að hanga hreinlega inni í leiknum í fyrri hálfleik. Við erum alvöru lið og sættum okkur ekki við að vera undir. Við efldumst eftir því sem að leið á leikinn og áttum sigurinn skilinn,“ sagði Arnar Sveinn Geirsson eftir að Valur varð Lengjubikarmeistari karla í kvöld eftir 3-1 sigur á Fylki í framlengdum leik. Íslenski boltinn 25. apríl 2011 22:34
Ólafur Þórðar: Skandall hjá dómaranum „Það var klaufalegt að fá víti á okkur og hleypa þeim inn í leikinn. Við köstuðum þessu frá okkur,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis eftir tap liðsins gegn Val í úrslitum Lengjubikarsins, 3-1, í Kórnum í kvöld eftir framlengdan leik. Íslenski boltinn 25. apríl 2011 22:31
Valur Lengjubikarmeistari Valur varð Lengjubikarmeistari karla í knattspyrnu eftir sigur á Fylki í framlengdum úrslitaleik, 3-1, sem fór fram í Kórnum í Kópavogi. Valur varð Reykjavíkurmeistari fyrr í vetur. Íslenski boltinn 25. apríl 2011 18:36
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti