Íslenski boltinn

Fram samdi við Bretana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Allan Lowing. Mynd/fram.is
Allan Lowing. Mynd/fram.is
Pepsi-deildarlið Fram tilkynnti í dag að það hefði samið við Bretana Allan Lowing og Mark Redshaw út þessa leiktíð.

Lowing er 22 ára varnarmaður og kemur frá Skotlandi. Hann var í röðum Glasgow Rangers og hefur leikið tvo leiki fyrir aðallið félagsins og nokkra leiki fyrir yngri landsliðs Skotlands. Hann lék með East Fife í skosku 2. deildinni í fyrra.

Redshaw er aftur á móti 26 ára sóknarmaður sem var í unglingastarfi Man. Utd. Hann hefur leikið í Grikklandi og á Spáni síðustu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×