

Formúla 1
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Vettel langfljótastur á lokaæfingunni
Sebastian Vettel á Red Bull var líðlega 0.7 sekúndum lfljótari en keppinautarnir á lokaæfingu keppnisliða fí Barcelona í dag yrir tímatökuna sem er í beinni útsendingu á Sttöð 2 Sport kl. 11.45 í dag.

Vettel og Webber fremstir í flokki
Sebastian Vettel á Red Bull reyndist manna fljótstur eftir tvær æfingar á Barcelona brautinni í dag. Hann varð á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á seinni æfingunni og bestu tímar dagsins litu dagsins ljós á henni.

Hamilton og Button á undan Schumacher
Bílar með Mercedes vélar röðuðu sér í þrjú efstu sætin á fyrstu æfingu keppnisliða í Barcelona í morgun. Lewis Hamilton var hálfri sekúndu fljótari en Jenson Button á McLaren Mercedes bílum sem báðir aka. Michael Schumacher náði þriðja sæti á Mercedes, en næstir komu Mark Webber og Sebastian Vettel á Red Bull. Heimamaðurinn Fernando Alonso á Ferrari var áttundi.

Reynsla úr titilslagnum hjálpar meistaranum
Forystumaður stigamótsins, Jenson Button mundi frekar kjósa að fá þurra keppni í Barcelona en rigningu, en spáð er að rigng geti á mótssvæðinu um helgina.

Schumacher rólegur þrátt fyrir erfiða byrjun
Michael Schumacher er ekkert að stressa sig á umræðunni um að hann hafi ekki náð tilætluðum árangri í Formúlu 1. Hann keppir á Spáni um helgina.

Webber: Stigataflan lýgur ekki um árangur
Ástralinn Mark Webber hjá Red Bull telur stöðu sína í Formúlu 1 vera eins og við er að búast, eftir fyrstu fjögur mótin. Hann segir ökumenn og lið skapa sér gæfu.

Briatore: Betra skipulag Formúlu 1 nauðsynlegt
Flavio Briatore, fyrrum framkvæmdarstjóri Renault liðsins telur að betur megi ef duga skal hvað varðar mótshald í Formúlu 1. Hann var rekinn frá Renault fyrir að svindla í Singapúr og dæmdur í ævilangt bann, en því var hnekkt fyrir nokkrum vikum. Þrátt fyrir þetta hyggst Briatore ekkert mæta aftur í slaginn í Formúlu 1 að eigin sögn.

Mót nærri miðborg New York í skoðun
Yfrmaður ferðamála í Jersey City, í 15 mínúta fjarlægð frá miðborg New York hefur lagt fram hugmyndir um Formúlu 1 mót á sínu heimasvæði árið 2012.

Alonso heillaður af Ferrari og spáir titli
Fernando Alonso telur að brotthvarf Michael Schumachers frá Ferrari til Mercedes bjóði honum upp á meira frjálsræði í herbúðum Ferrari. Allt snerist um Schumacher þegar hann var hjá liðinu.

Hamilton vill brúa bilið í þá fljótustu
Formúlu 1 ökumenn fengu kærkomna hvíld í vikunni eftir nokkuð annasamar vikur frá upphafi tímabilsins í mars. Þeir keppa í næstu viku í Barcelona á Spáni og Lewis Hamilton býst við framförum hjá McLaren liðinu.

Webber: Red Bull þarf að gera betur
Ástralinn Mark Webber telur að Red Bull liðið sem hann ekur hjá þurfi að taka til hendinnni í mótum sem framundan eru. Hann var meðal gesta á opnun breyttrar Silverstone brautar í gær.

Breytt Silverstone braut vígð í dag
Damon Hill, fyrrum meistari í Formúlu 1 og forseti breska kappakstursklúbbsins var meðal þeirra sem vígðu breytta og bætta Silverstone braut í Bretlandi í dag. Þá mætti hertoginn af York, Andrew prins en hann var gerður að heiðursfélaga í félagi breskra kappakstursökumanna, en akstursíþróttastarfsemi er mikilvægur þáttur í bresku efnahagslífi. Talið er að um 50.000 starfi beint á akstursíþróttum í Bretlandi.

Moss telur Schmacher búinn með það besta
Bretinn Stirling Moss, fyrrum Formúlu 1 ökumaður telur að Michael Schumacher hafi gert mistök í því að mæta aftur í Formúlu 1 og hann hafi ekki sömu brennandi þörf á sigri og áður. Moss vann sjálfur 16 Formúlu 1 mótum á meðan hann keppti og ók m.a. með Mercedes á sínum tíma sem Schumacher keppir með í dag.

Button lærði til meistara með Brawn
Jenson Button telur að sú staðreynd að hann hefur landað sigrum með McLaren eftir að hljóma vel þegar fram líða stundir, en hann telur að vera hans hjá Honda og Brawn hafi lagt grunninn að persónuleika hans og aksturstækni.

Brawn sá á eftir Button, en trúir á Schumacher
Ross Brawn hjá Mercedes segir Michael Schumacher staðaráðinn í að sigra í móti á þessu ári, en segist jafnframt sjá á eftir Jenson Button, sem leiðir nú meistaramótið í Formúlu 1. Button varð meistari með Brawn liðinu sem nú heitir Mercedes.

Þumalputtar Alonso tryggðir á 170 miljónir
Fernando Alonso er með verðmæta þumalputta að mati Santander, sem er spænskur bankarisi. Fyrirtækið tilkynnti í dag að þumalputtar hans hefðu verið tryggir á 10 miljón evrur, eða rúmar 170 miljónir.

Baráttan hefst fyrir alvöru á Spáni
Spánverjinn Fernando Alonso verður á heimavelli í næsta Formúlu 1 móti sem verður á Barcelona brautinni á Spáni um aðra helgi. Hann segir titilslaginn hefjast fyrir alvöru í fyrsta mótinu í Evrópu.

Nýjar reglur verðlauna klóka ökumenn
Pólverjinn Robert Kubica telur að nýjar reglur sem banna bensínáfyllingar launi klókum ökumönnum, sem þurfa að passa betur upp á endingu dekkja en áður.

Rosberg: Schumacher verður betri
Nico Rosberg hefur náð mun betri árangur en liðsfélaginn Michael Schumacher hjá Mercedes á árinu. Hann segir þó í samtali við Gazette dello Sport að Schumacher eigi eftir að verða betri.

Mosley: Ferrari var aldrei í uppáhaldi
Max Mosley þvertekur fyrir að Ferrrari hafi verið í uppáhaldi hjá honum eða innan FIA þegar hann var forseti sambandsins, eins og oft var rætt um á árum áður. Hann segir þetta í F1 Racing tímaritinu.

Hamilton harðskeyttur en sigrar ekki
Bretinn Lewis Hamilton hefur verið mjög harðskeyttur í þeim fjórum mótum sem hann hefur keppt í og hefur svifið framúr keppinautum sínum 32 sinnum.

Button: Besti tími lífs míns
Bretinn Jenson Button segir að upplifun sín í Formúlu 1 síðustu mánuði sé sannkallað blómaskeið í lífi hans og hann njóti sín enn betur en í fyrra, en þá varð hann meistari. Hann vann kínverska kappaksturinn um helgina.

Formúlu 1 ekki frestað vegna eldgoss
Bernie Ecclestone, segir að eldgosið á Íslandi og vandamál varðandi flug síðustu daga muni ekki hafa áhrif á spænska kappaksturinn í Barcelona í maí. Meirihluti starfsmanna Formúlu 1 liða eru strandaglóðpar í Kína vegna frestana á flugum í Evrópu.

Button: Besti sigurinn frá upphafi
Bretinn Jenson Button var kampakátur sigurvegari Formúlu 1 mótsins í Kína í dag, en var taugaspenntur um tíma þegar öryggisbíll var kallaður inn á brautina vegna óhapps. Hafði áhyggjur af stöðu sinni eftir að hafa náð forystu.

Button vann í stormasamri keppni
Bretinn Jenson Button á McLaren fagnaði sgri í kínverska Formúlu 1 kappakstrinum í Sjanghæ í dag.

Vettel hræðist ekki veðurspánna
Sebasstian Vettel var að vonum sáttur við að ná besta tíma í tímatökum í þriðja mótinu af fjórum í Formúlu 1 í Sjanghæ í morgun.

Vettel og Webber fremstir í tímatökum
Sebastian Vettel og Mark Webber tryggðu Red Bull tvo fremstu staðina á ráslínu á Sjanghæ brautinni í Kína í morgun, þegar tímataka fyrir kappaksturinn á sunnudag fór fram.

Webber fljótastur á lokaæfingunni
Ástralinn Mark Webber var fljótastur á lokaæfingu keppnisliðia á Sjanghæ brautinni í Kína í nótt á Red Bull bíl, en bestu tímarnir náðust á lokaspretti æfingarinnar. Æfingin var sú síðasta fyrir tímatökuna sem er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 05.45.

Tímatakan lykill að sigursókn Hamiltons
Lewis Hamilton var ánægður með dagsverkið eftir fyrstu tvær æfingar mótshelgarinnar í Sjanghæ í Kína.

McLaren í forystu á æfingum
McLaren liðið er til alls líklegt á Sjanghæ brautinn í Kína um helgina, en ökumenn liðsins náðu besta tíma á báðum æfingum í nótt. Lewis Hamiton náði besta tíma yfir heildina á æfingunum tveimur.