

Eurovision
Fréttir af framlagi Íslendinga og annarra þjóða í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Er tilbúinn fyrir Eurovision sviðið en leynd hvílir yfir laginu
„Ég er mjög spenntur. Ég er náttúrlega búinn að vita af þessu núna í smá stund og búinn að undirbúa dálítið og þetta er að verða tilbúið,“ segir tónlistarmaðurinn Daði Freyr sem fær loksins stíga á Eurovision sviðið þann 13. maí næstkomandi.

„Hefur þetta je ne sais quoi sem þú þarft til þess að vinna Eurovision“
Íslenskir ofuraðdáendur Eurovision söngvakeppninnar í FÁSES eru hrifnari af finnska framlaginu í ár og möguleikum þess í keppninni heldur en því sænska. FÁSES kvaddi Diljá Pétursdóttur í gær á Kex Hostel og formaðurinn hefur fulla trú á góðu gengi Íslands.

Eurovision draumur sem breyttist í martröð: „Leið eins og ég hefði brugðist öllum“
Söngkonuna Maríu Ólafsdóttur hafði alla tíð dreymt um að keppa í Eurovision. Þegar sá draumur rættist árið 2015 breyttist draumurinn þó fljótt í hreina martröð. Átta árum síðar er María enn að vinna úr áfallinu og vekur hún athygli á því hve djúpstæð áhrif neikvæð orðræða á netinu getur haft á einstaklinga.

Daði Freyr fær loksins að stíga á Eurovision sviðið í beinni útsendingu
Tónlistarmaðurinn og Eurovision-farinn Daði Freyr mun stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision í ár. Þetta tilkynnti Daði á Facebook síðu sinni rétt í þessu.

Fluttu saman Eurovision lög hvor annars og allt varð vitlaust
Kvöldstund með Eyþóri Inga hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 í gærkvöld.

Loreen mætt á Íslenska listann
Sænska tónlistarkonan Loreen er komin inn á Íslenska listann á FM957 með lagið sitt Tattoo. Er um að ræða framlag hennar til Eurovision í ár þar sem hún keppir í annað sinn fyrir hönd Svíþjóðar.

Diljá númer sjö í Eurovision
Diljá Pétursdóttir verður sú sjöunda sem stígur á svið á síðara undankvöldi Eurovision söngvakeppninnar, sem haldin verður í Liverpool á Bretlandi í ár.

Diljá komin á toppinn
Eurovision stjarnan Diljá trónir á toppi Íslenska listans á FM aðra vikuna í röð með lagið sitt Power, sem bar eftirminnilega sigur úr býtum í Söngvakeppninni á dögunum.

Brotlenti svolítið eftir Söngvakeppnina
Tónlistarmaðurinn Stefán Óli vakti athygli þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Hann elskar að flytja sína eigin tónlist upp á sviði og stefnir á að gefa út plötu á komandi tímum. Stefán Óli er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Hittu hann á djamminu í Dublin og Mel Gibson bauð Siggu með sér upp á hótelherbergi
Á fimmtudaginn fóru þau Sigga Beinteins og Eyjólfur Kristjánsson yfir fréttir síðustu viku en rifjuðu einnig upp stórkostlega sögu.

Loreen keppir fyrir hönd Svía í Eurovision
Söngkonan Loreen vann undankeppni Svía í Eurovision, Melodifestivalen, í kvöld. Hún er sem fyrr talin langsigurstranglegust í keppninni sem haldin verður í Liverpool í ár.

Uppáhalds Eurovision lög Íslendinga
Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi var farið yfir fréttir vikunnar og Eurovision með kempunum Eyjólfi Kristjánssyni og Sigríði Beinteinsdóttur.

Seldist upp á 36 mínútum
Miðar á lokakvöld Eurovision í Liverpool í maí seldust upp á 36 mínútum í dag. Klukkutíma síðar hafði selst upp á undankeppnirnar og allar æfingarnar fyrir keppnina.

Diljá spáð áfram í úrslitin
Íslenska framlaginu í Eurovision er nú spáð 24. sæti í keppninni. Afar líklegt er að Diljá komist í gegnum undankeppnina þar sem einungis sex löndum í okkar riðli er spáð betra gengi í keppninni.

Stjörnulífið: Söngvakeppnin, bónorð og tvöföld gleðitíðindi
Um helgina völdu Íslendingar fulltrúa sinn í Eurovision. Söngvakeppnin setti því mikinn svip á síðustu viku og hefur keppnin líklega aldrei verið glæsilegri en í ár.

Lokatölur atkvæðagreiðslu Söngvakeppninnar afhjúpaðar
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2023 hefur nú birt niðurstöður kosninga frá undankeppnunum og lokakvöldinu. Diljá sigraði á öruggan hátt fyrir lagið Power með samtals 164.003 heildaratkvæði á úrslitakvöldinu þann 4. mars en lag Langa Sela og Skugganna, OK, hafnaði í öðru sæti með 95.851 atkvæði.

„Markmiðið er að vinna Eurovision“
Nýkrýndur sigurvegari Söngvakeppni sjónvarpsins, sem keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í Liverpool í vor, segir ólýsanlegt að draumurinn sé orðinn að veruleika. Þrátt fyrir mikla spennu á úrslitakvöldinu hafi gleði verið það eina sem komst að.

Landsmenn í skýjunum með sigur Diljár
Landsmenn, allavega þeir sem hafa tjáð sig á netinu, virðast almennt vera hæstánægðir með sigur Diljár Pétursdóttur í Söngvakeppni sjónvarpsins. Meðal þeirra sem óska henni til hamingu er Háskóli Íslands, sem minnir hana á að hægt er að taka fjarpróf alls staðar í heiminum.

Diljá fer til Liverpool
Diljá Pétursdóttir vann Söngvakeppni sjónvarpsins, sem haldin var í kvöld. Hún verður fulltrúi Íslands í Eurovision sem haldið verður í Liverpool í maí.

Lesendur Vísis telja Diljá líklegasta í kvöld
Lesendur Vísis telja að Diljá Pétursdóttir muni sigra Söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld og þar með keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision í Liverpool í maí. Næstlíklegasta atriðið er frá Langa Sela & Skuggunum.

Þessi eru í dómnefnd Söngvakeppninnar í kvöld
Tíu manna dómnefnd mun hafa helmingsvægi gegn atkvæðum þjóðarinnar í fyrri umferð úrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld. Nefndin er skipuð af fjórum Íslendingum og sex erlendum fagaðilum.

Reynir að komast í Eurovision og útilokar ekki að spila í Bestu-deildinni í sumar
Bragi Bergsson sem keppir í úrslitum Söngvakeppninnar í kvöld hefur leikið fótbolta alla sína tíð. Hann útilokar ekki að spila í Bestu deild karla í sumar.

Könnun: Hver sigrar í Söngvakeppni sjónvarpsins?
Úrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins fer fram annað kvöld í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi í Reykjavík. Fimm atriði taka þátt og virðast þau öll eiga mikinn séns á að vinna keppnina. Siguratriðið keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í Liverpool í maí.

„Öll þessi lög eiga möguleika á að vinna“
Eurovision-sérfræðingar eru á því að úrslit Söngvakeppni sjónvarpsins séu alls ekki ráðin. Þau segja öll lögin eiga möguleika á að verða framlag Íslands í Eurovision.

Ódýrustu miðarnir á Eurovision kosta fimm þúsund krónur
Miðar á undanúrslitakvöld Eurovision í Liverpool kosta á bilinu þrjátíu til 290 pund, fimm þúsund til fimmtíu þúsund krónur. Miðar á úrslitin eru aðeins dýrari, fjórtán til 64 þúsund krónur.

Veðbankar hallast að Diljá og Langa Sela
Úrslit Söngvakeppni sjónvarpsins fara fram næstkomandi laugardagskvöld. Veðbankar eru á sama máli, Diljá og Langi Seli & Skuggarnir eru líklegust til að keppa í Eurovision fyrir Íslands hönd.

Thomas Lundin telur einungis tvö laganna eiga möguleika að komast á úrslitakvöldið
Álit finnska söngvarans og Eurovision-sérfræðingsins Thomas Lundin er að einungis tvö lög af þeim fimm sem keppa til úrslita í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardag, eigi möguleika að komast upp úr undanúrslitum Eurovision í Liverpool í maí. Hann segir sömuleiðis að það sé hans tilfinning að gæði laganna sem keppa í Söngvakeppninni hafi almennt hrakað síðustu ár.

Hugmyndin of góð til þess að framkvæma hana ekki
Fyrsti þáttur hlaðvarpsins Powergang Podcast kom út í gær. Þar fara Diljá Pétursdóttir og Pálmi Ragnar Ásgeirsson yfir hvernig lagið Power sem Diljá syngur í Söngvakeppninni varð til. Diljá segist vilja leyfa fólki að kynnast sér og Pálma betur.

Stjörnulífið: Skvísuferð, bræður á skíðum og óléttutilkynning
Síðasta vika var afar viðburðarrík. Seinni undankeppni Söngvakeppninnar fór fram, tískuvikan var haldin hátíðleg í London og fóru fjölmargir á árshátíðir.

Fjórðungslíkur á sigri Svía í Eurovision
Veðbankar eru á einu máli um að Svíar muni bera sigur úr býtum í Eurovision í ár, þrátt fyrir að framlag þeirra hafi ekki enn verið valið. Ísland situr í 33. sæti yfir sigurstranglegustu liðin.