Dregið í aðra umferð deildarbikarsins í Englandi Dregið var í aðra umferð deildarbikarsins í kvöld. Tólf úrvalsdeildarlið koma inn í keppnina núna, en engin úrvalsdeildarlið drógust þó saman. Áhugavert verður að fylgjast með leik Portsmouth og Leeds en eins og margir vita þá féll Leeds niður í þriðju efstu deild Englands síðastliðið vor. Íslendingaliðið West Ham heimsækir Bristol Rovers. Leikirnir verða spilaðir 27. ágúst. Enski boltinn 16. ágúst 2007 21:51
Curbishley ósáttur með ummæli Konchesky Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, íhugar málsókn gegn fyrrverandi leikmanni West Ham, Paul Konchesky. Konchesky, sem yfirgaf West Ham í sumar, gagnrýndi Curbishley harkalega í viðtali sem birtist um helgina. Konchesky gagnrýndi meðal annars stjórnunarhæfileika stjórans og sagði að West Ham kæmist ekkert áfram með Curbishley í brúnni. Enski boltinn 16. ágúst 2007 18:17
Mido skrifar undir hjá Middlesbrough Egypski framherjinn Mido hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Middlesbrough. Middlesbrough borgar Tottenham sex milljónir punda fyrir þennan 24 ára gamla leikmann. Mido gæti þreytt frumraun sína með félaginu gegn Fulham um helgina. Enski boltinn 16. ágúst 2007 17:10
Steven Gerrard er tábrotinn Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að fyrirliði liðsins, Steven Gerrard, hafi tábrotnað í leiknum gegn Toulouse í gær. Gerrard þurfti að yfirgefa völlinn á 64. mínútu vegna meiðslanna og í læknisskoðun kom í ljós að táin væri brotin. Gerrard mun samt spila gegn Chelsea á sunnudaginn en mun svo hvíla í 2-3 vikur. Enski boltinn 16. ágúst 2007 14:27
“Ég ætlaði ekki að fiska Ronaldo útaf Leikmaðurinn sem Cristiano Ronaldo skallaði í gærkvöld, og fékk rautt spjald fyrir, hefur tjáð sig um atvikið. Richard Hughes segir það ekki hafa verið ætlun sína að fiska Ronaldo út af eins og Alex Ferguson gaf í skyn eftir leikinn í gær. Enski boltinn 16. ágúst 2007 13:59
Dyer kominn til West Ham West Ham hefur gengið frá kaupum á enska landsliðsmanninum Kieran Dyer frá Newcastle fyrir tæpar 7 milljónir punda. Talið var að kaupin yrðu að engu eftir að Newcastle snarhækkaði verðmat sitt á leikmanninum fyrir skömmu en liðin hafa nú náð samkomulagi um sanngjarnt verð fyrir Dyer. Enski boltinn 16. ágúst 2007 13:30
Bellamy og Ljungberg vilja Eið Smára Samkvæmt heimildum Vísis úr innsta hring knattspyrnuklúbbsins West Ham eru tveir af bestu leikmönnum liðsins, Craig Bellamy og Freddie Ljungberg, æstir í að fá Íslendinginn Eið Smára Guðjohnsen til liðsins. Þeir telja Eið kjörinn til að koma bitlausum sóknarleik liðsins í lag Enski boltinn 16. ágúst 2007 13:13
Myndaveisla úr 2. umferð enska boltans Vísir heldur áfram að safna saman bestu ljósmyndunum úr enska boltanum. Nú getur þú séð nokkrar af skemmtilegustu myndunum úr 2. umferð. Smelltu á myndaalbúmið hér fyrir neðan til að skoða myndirnar. Enski boltinn 16. ágúst 2007 13:11
Ætla í mál við Eggert og Björgólf Talsmaður Sheffield United tilkynnti áðan að liðið hyggist höfða skaðabótamál gegn West Ham og krefjist að Eggert, Björgólfur og félagar bæti þeim fjárhagstjónið sem Sheffield varð fyrir við það að falla niður um deild. Enski boltinn 16. ágúst 2007 10:06
Enski: Öll mörk gærkvöldsins á Vísi Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni i gærkvöld. Eins og við var að búast var skoraður fjöldinn allur af glæsilegum mörkum af öllum gerðum. Eins og venjulega getur þú séð öll mörkin hér á Vísi. Enski boltinn 16. ágúst 2007 09:49
Abramovich sagði nei Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur neitað að samþykkja kaup félagsins á brasilíska bakverðinum Daniel Alves frá Sevilla fyrir 24,5 milljónir punda. Hann hefur sent Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu þau skilaboð að drífa sig aftur til Spánar og kaupa Alves fyrir lægra verð. Enski boltinn 16. ágúst 2007 08:43
Drogba er leikmaður 2. umferðar í úrvalsdeildinni Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea er leikmaður 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Drogba kom inn í lið Chelsea eftir meiðsli gegn Reading í kvöld og átti stóran þátt í sigri síns liðs, 2-1. Drogba lagði upp fyrra mark Chelsea og skoraði það síðara með glæsilegu skoti. Enski boltinn 15. ágúst 2007 23:45
Heiðar skoraði gegn sínum gömlu félögum Heiðar Helguson nýtti tækifærið vel að vera í byrjunarliði Bolton í kvöld því að það tók hann aðeins 12 mínútur að koma sínu liði yfir. Mark Heiðars dugði þó ekki til sigurs því að Fulham svaraði með tveimur mörkum fyrir leikhlé og þar við sat. Heiðari var svo skipt út af á 72. mínútu fyrir Daniel Braaten. Enski boltinn 15. ágúst 2007 20:57
Úrslit leikja úr ensku úrvalsdeildinni Sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United náði aðeins jafntefli gegn Portsmouth á meðan erkifjendurnir í Chelsea sigruðu Reading eftir að hafa lent undir. Heiðar Helguson skoraði fyrir Bolton í tapleik gegn Fulham. Sunderland náði jafntefli gegn Birmingham með marki á síðustu andartökum leiksins. Enski boltinn 15. ágúst 2007 18:35
Portsmouth náði jafntefli gegn Manchester Unied Portsmouth náði jafntefli á heimavelli gegn Manchester United í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. United var einu marki yfir í hálfleik eftir að Paul Scholes skoraði fallegt mark á 15. mínútu. Benjamin Mwaruwari jafnaði leikinn fyrir Portsmouth á 53. mínútu. Cristiano Ronaldo og Sulley Muntari fengu rautt spjald í leiknum. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Portsmouth. Enski boltinn 15. ágúst 2007 18:26
Carragher segir Liverpool eiga erfitt verkefni framundan Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að liðið eigi erfitt verkefni fyrir höndum þegar þeir spila seinni leikinn gegn Toulouse á Anfield. Liverpool vann í dag, 0-1. Útimarkið setur Liverpool í sterka stöðu fyrir seinni leikinn en Carragher segir verkið aðeins hálfnað. Enski boltinn 15. ágúst 2007 17:34
Video: Fáránlegt mark í SuperLiga Dwayne De Rosario, leikmaður Houston Dynamo, skoraði eitt fáránlegasta mark sem sést hefur í undanúrslitaleik SuperLiga, bandarísku bikarkeppninnar, á milli Pachucha og Houston Dynamo. Á einhvern furðulegan hátt tókst honum að sparka boltanum í andlitið á sér og þaðan í markið. Mark De Rosario var fyrsta mark leiksins sem endaði 2-2 og fór í vítaspyrnukeppni. Sjón er sögu ríkari. Sjáðu markið hér Enski boltinn 15. ágúst 2007 16:33
Levante hafnar Luque vegna of hárra launakrafna Spænska liðið Levante hefur slitið á allar samningsviðræður við framherjann Albert Luque hjá Newcastle vegna of hárra launakrafna leikmannsins. Luque dreymir um að komast frá Englandi áður en leikmannaglugginn lokar til að enda martröð sína hjá Newcastle, en framherjinn hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann var keyptur til Newcastle. Enski boltinn 15. ágúst 2007 16:25
Bandaríkjadvölin hefur ekki áhrif á landsliðsferil Beckham Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, segir að sú staðreynd að David Beckham skuli spila með LA Galaxy í Bandaríkjunum muni ekki hafa áhrif á stöðu hans í landsliðinu. McClaren flaug til Bandaríkjanna í síðustu viku til að til að ræða við Beckham um ástand hans og til að sjá leik í bandarísku deildinni með eigin augum. Enski boltinn 15. ágúst 2007 15:15
Liverpool sigraði Toulouse Nú rétt í þessu lauk fyrri leik Toulouse og Liverpool í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leiknum lauk með 0-1 sigri Liverpool. Eina mark leiksins skorði Andriy Voronin með góðu skoti á 42. mínútu leiksins. Enski boltinn 15. ágúst 2007 14:34
Yobo vill fá Yakubu Varnarmaðurinn sterki, Joseph Yobo, vill fá Yakubu til liðs við Everton frá Middlesbrough. Everton hefur verið á eftir leikmanninum í nokkra stund núna og gert tilraunir til að fá sóknarmanninn sterka. Yobo segir Yakubu vera heimsklassaleikmann, en þeir eru saman í nígeríska landsliðinu. Enski boltinn 15. ágúst 2007 14:23
Lampard með eigin sjónvarpsstöð Miðjumaðurinn sterki hjá Chelsea, Frank Lampard, hefur skrifað undir samning við breska símafélagið Orange um stofnun Frank TV. Frank TV er sjónvarpsstöð, algjörlega helguð Lampard, sem viðskiptavinir Orange hafa einir aðgang að en þar verður sjónvarpað áður óséðu efni sem Lampard hefur verið að taka upp undanfarin tvö tímabil. Enski boltinn 15. ágúst 2007 13:29
11 flottustu fótboltaeiginkonurnar Í Englandi njóta konur kanttspyrnukappa litlu minni athygli en makarnir. Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland hefur gagnrýnt þetta harðlega og segir að enska úrvalsdeildin eigi að snúast um fótbolta, ekki flotta bíla og skemmtanalíf. Þó að við á Vísi séum þessu alveg sammála gátum við ekki setið á okkur og tókum því saman lista yfir ellefu flottustu konur knattspyrnukappa í enska boltanum. Enski boltinn 15. ágúst 2007 12:47
JOLasveinn á botninum eftir 13 milljarða innkaup Martin Jol hefur keypt leikmenn fyrir rúmlega 100 milljón pund, eða um 13 milljarða króna. Samt sem áður situr lið hans, Tottenham, í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0 stig. Sjáðu 10 dýrustu leikmannakaup Martin Jol hér fyrir neðan. Enski boltinn 15. ágúst 2007 11:52
McClaren grátbað Carragher um að snúa aftur Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, fór í gær á æfingasvæði Liverpool til að ræða við Jamie Carragher. Hann grátbað leikmanninn um að endurskoða ákvörðun sína um að gefa ekki kost á sér í landsliðið og sagði honum að byrjunarliðssæti væri víst í fjarveru John Terry. Carragher neitaði. Carragher lagði sem kunnugt er landsliðskóna á hilluna í fyrra og sagði því um að kenna að hann ætti ekki möguleika á byrjunarliðssæti. Enski boltinn 15. ágúst 2007 11:23
Mörkin úr leik Tottenham og Everton Eins og venjulega geta lesendur Vísis séð mörkin úr öllum leikjum ensku úrvalsdeildarinnar. Í gær léku Tottenham og Everton á White Hart Lane og lyktaði leiknum með 1-3 sigri Everton. Enski boltinn 15. ágúst 2007 11:09
Spáð í spilin: Margir spennandi leikir í kvöld Það eru ekki bara leikir Chelsea og Manchester United sem eru áhugaverðir í kvöld. Sýn býður upp á þrjá leiki til viðbótar sem verða án efa gríðarlega spennandi. Vísir renndi yfir liðin og skoðaði hvaða breytingar verða gerðar frá því um helgina. Enski boltinn 15. ágúst 2007 10:30
Spáð í spilin: Reading - Chelsea Það er alls óvíst hvort Michael Essien nái að verða heill fyrir leikinn í kvöld. Hann er tæpur á hné eftir samstuð í leiknum gegn Birmingham um helgina. Paulo Ferreira byrjaði að æfa aftur með liðinu í vikunni en Glen Johnson heldur þó líklega sæti sínu í einn leik í viðbót þrátt fyrir að bera ábyrgð á öðru marki Birmingham á sunnudaginn. Leikurinn er klukkan 18:55 og er sýndur í beinni á Sýn Extra. Enski boltinn 15. ágúst 2007 09:42
Spáð í spilin: Portsmouth - Man Utd Sol Campell og Pedro Mendes verða að standast skoðun hjá sjúkraþjálfara Portsmouth til þess að komast í hópinn gegn Manchester United í kvöld. Þeir eru báðir meiddir á nára. Hermann Hreiðarsson mun að öllum líkindum halda sínu sæti í byrjunarliðinu. Leikurinn hefst klukkan 18:35 og er í beinni á Sýn2 Enski boltinn 15. ágúst 2007 09:18
Chelsea búið að ná samkomulagi við Sevilla um Alves Fjölmiðlar á Spáni halda því fram að Chelsea hafi náð samkomulagi við Sevilla um kaupverð á bakverðinum Daniel Alves. Greint er frá því að Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, hafi verið staddur í Madrid í vikunni til að ræða við forráðamenn Sevilla og náðst hafi samkomulag um að Chelsea myndi borga 25 milljónir punda fyrir leikmanninn. Enski boltinn 14. ágúst 2007 21:06