
Í beinni: Brentford - Tottenham | Lífið eftir Kane
Brentford tekur á móti Tottenham í fyrsta leik gestanna eftir að Harry Kane hélt til Þýskalands.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Brentford tekur á móti Tottenham í fyrsta leik gestanna eftir að Harry Kane hélt til Þýskalands.
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel er orðaður við bæði Chelsea og Nottingham Forest en dvöl hans hjá Nice í Frakklandi virðist vera á enda runnin.
NFL-stjarnan Tom Brady, fyrrum leikstjórnandi New England Patriots og Tampa Bay Buccaneers, var meðal áhorenda er Birmingham City hafði betur gegn Leeds United í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Hann heilsaði upp á stuðningsmenn félagsins á knæpu í aðdragandanum.
Burnley klófesti í gær ungan Frakka að nafni Wilson Odobert frá Troyes. Kynningarmyndband vegna stráksins hefur vakið athygli.
Vicente Guaita, markvörður Crystal Palace, setti áhugaverða færslu við Twitter-færslu félagsins. Hann hefur engan áhuga á að spila meira fyrir félagið.
Spænski markvörðurinn Kepa Arrizabalaga er sagður á leið til Real Madrid í heimalandinu á láni frá Chelsea. Hann hafði verið í viðræðum við Bayern Munchen í Þýskalandi en þurfti ekki langan umhugsunarfrest þegar kallið kom úr spænsku höfuðborginni.
Newcastle fór illa með Aston Villa í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þeir svarthvítu hefja leiktíðina á 5-1 sigri og tveir nýliðar komust á blað.
Bernd Leno var hetja Fulham í dag þegar liðið lagði Everton 0-1 í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Nýliðar Luton fengu fjögur mörk á sig í sínum fyrsta leik.
Arsenal-menn sluppu með skrekkinn gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag en gestirnir vöknuðu til lífsins undir lok leiks.
Arsenal tekur á móti Nottingham Forest í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir að hafa endað í 2. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Sögunni endalausu um möguleg félagaskipti Harry Kane frá Tottenham er loksins lokið en Bayern München kynntu hann sem leikmann sinn í morgun. Hann gæti unnið sinn fyrsta titil með liðinu strax í kvöld.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, var að vonum ánægður með 3-0 sigur sinna manna gegn Burnley í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Hann var hins vegar ekki jafn ánægður með meiðsli eins síns besta leikmanns, Kevin De Bruyne.
Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 3-0 útisigur er liðið heimsótti Burnley í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hélt uppteknum hætti frá síðasta tímabili og skoraði tvö fyrir gestina.
Manchester United hefur frestað ákvörðun sinni um framtíð hins 21 árs gamla Mason Greenwood sem ekki hefur æft eða spilað með liðinu frá því að hann var handtekinn í janúar í fyrra, grunaður um líkamsárás og tilraun til nauðgunar.
Enn ríkir algjör óvissa um að Mosies Caicedo gangi í raðir Liverpool frá Brighton, fyrir metfé í enskri knattspyrnu, þar sem að leikmaðurinn er sagður hafa fengið bakþanka.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að það sé ómögulegt fyrir hann og hans lið að endurtaka leikinn frá því á síðasta tímabili og vinna þrennuna annað árið í röð.
Harry Kane hefur fengið leyfi til að ferðast til Þýskalands þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá þýska liðinu Bayern München.
Moisés Caicedo verður væntanlega orðinn leikmaður Liverpool í dag og löng bið stuðningsmanna Liverpool eftir varnarsinnuðum miðjumanni endar því óvænt og snögglega.
Enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane, leikmaður Tottenham Hotspur, er sagður vera búinn að ná samkomulagi við þýska stórveldið Bayern München.
Einni stærstu félagaskiptasögu sumarsins í fótboltanum gæti verið að ljúka því enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur samþykkt tilboð í framherjann Harry Kane.
Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni, hélt upp á 76. afmælisdaginn sinn í gær. Aðeins fimm stjórar hafa stýrt liði í efstu deild á Englandi á áttræðisaldri.
Fyrsta umferð enska deildarbikarins, Carabao Cup, hélt áfram í kvöld og bar þar helst til tíðinda að 3. deildarlið Wimbledon sló 1. deildarlið Coventry út í dramatískum leik þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Reece James mun taka við fyrirliðabandinu hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en staða fyrirliða hefur verið laus síðan í vor þegar César Azpilicueta yfirgaf liðið og gekk í raðir Atlético Madrid.
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, tilkynnti um það á samfélagsmiðlum í dag að hún ætti von á sínu öðru barni.
Úlfarnir eru komnir með nýjan knattspyrnustjóra nú þegar aðeins fimm dagar eru þar til að þeir hefja keppnistímabil sitt í ensku úrvalsdeildinni með leik við Manchester United.
Arsenal vann á sunnudaginn fyrsta titil keppnistímabilsins þegar liðið vann Englandsmeistara Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley eða leikinn um að verða meistari meistaranna.
Enginn karlmaður í ensku úrvalsdeildinni náði jafnmiklum krafti í skot og mark og hetja enska kvennalandsliðsins í fyrstu umferð útsláttarkeppni HM í Ástralíu og Nýja Sjálandi.
West Ham hefur komist að samkomulagi við Manchester United um kaup á enska landsliðsmiðverðinum Harry Maguire.
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu rannsakar nú hvort Chelsea hafi brotið fjárhagsreglur deildarinnar. Meint brot áttu sér stað á meðan Roman Abramovich var eigandi félagsins.
Tottenham Hotspur hefur fengið argentínska framherjan Alejo Veliz frá Rosario Central í heimalandinu.