Donald Trump

Donald Trump

Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Með lista yfir góða og slæma banda­menn

Innan Hvíta hússins hefur hafa verið samdir listar um bandamenn sem forsvarsmönnum ríkisstjórnar Donalds Trump finnast vera góðir bandamenn annars vegar og slæmir bandamenn hins vegar. Til stendur að leita leiða til að refsa þeim bandamönnum Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins og sérstaklega þeim sem hafa ekki viljað standa við bak Bandaríkjamanna vegna stríðsins gegn Íran.

Erlent
Fréttamynd

Tóku tvö skip og réðust á það þriðja

Hermenn úr byltingarverði Íran tóku í dag yfir stjórn á tveimur skipum á Hormússundi og fylgdu þeim til hafnar í Íran. Þá varð þriðja skipið fyrir árás en Írönum tókst ekki að taka stjórn á því. Bandaríkjamenn meina enn öllum skipum að sigla til og frá Íran og Hormússundi er enn lokað.

Erlent
Fréttamynd

Vill þrjá­tíu milljarða vegna fyllerísfréttar

Kash Patel, umdeildur yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), hefur höfðað mál gegn fjölmiðlinum Atlantic og blaðamanni miðilsins, vegna fréttar um meint vandræði hans í starfi og einkalífi. Í nýlegri grein Atlantic er meðal haft eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Patel eigi við áfengisvanda að stríða og hafi jafnvel verið ölvaður í vinnunni.

Erlent
Fréttamynd

„Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“

Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga.

Erlent
Fréttamynd

Funduðu með for­stjóranum þrátt fyrir lög­sókn

Fulltrúar Hvíta hússins funduðu með forstjóra gervigreindarfyrirtækisins Anthropic sem hefur lögsótt ákvörðun varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Anthropic hefur birt nýja gervigreind sem er umtalsvert öflugri en núverandi tækni.

Erlent
Fréttamynd

Brot­hætt vopna­hlé í Líbanon hefur tekið gildi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. 

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu.

Erlent
Fréttamynd

Segist ekki munu biðja páfa af­sökunar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir ekki koma til greina að biðja Leó páfa afsökunar á því að hafa gagnrýnt hann harðlega fyrir afstöðu hans til stríðsins í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Öllum írönskum skipum út­rýmt nálgist þau her­kví

Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt.

Erlent
Fréttamynd

Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump

Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar.

Erlent
Fréttamynd

Trump hjólar í páfa

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn.

Erlent
Fréttamynd

Friðar­við­ræður runnu út í sandinn

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Aug­liti til aug­litis í fyrsta sinn frá ís­lömsku byltingunni

J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979.

Erlent
Fréttamynd

„Arc de Trump“ rísi í Washington

Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta birti teikningar af sigurboga sem til stendur að reisa við Arlington-kirkjugarðinn í Washington. Boginn hefur víða verið kallaður „Arc de Trump“.

Erlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Hótaði Rutte hefndarað­gerðum í reiði­lestri í Hvíta húsinu

Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran.

Erlent