Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagnaður Danske bank eykst Danske bank skilaði hagnaði upp á tæpa 5,3 milljarða danskra króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 62,5 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu sem er 21 prósenti meiri hagnaður en bankinn skilaði á sama tíma í fyrra. Þá er afkoman nokkuð yfir væntingum greinenda í Danmörku. 1.5.2007 10:15
Gallaðar rafhlöður í MacBook Bandaríski tækniframleiðandinn Apple tilkynnti á föstudaginn að rafhlöður í sumum MacBook og MacBook Pro fartölvum sínum væru gallaðar. Þeir segja þó að engin hætta stafi að því að nota rafhlöðurnar áfram. Einn af göllunum sem að um ræðir er að rafhlaðan hleðst ekki þegar að tölvunni er stungið í samband. 1.5.2007 10:00
Hillary Clinton á MySpace Hillary Clinton er komin á MySpace. Þetta vinsæla netsamfélag stefnir á sýndarkosningar snemma á næsta ári og vonast til að niðurstöður gefi til kynna hver verði næsti forseti Bandaríkjanna. Aðeins meðlimir búsettir í Bandaríkjunum fá að taka þátt í sýndarkosningunum sem fara fram á netinu snemma á næsta ári. 30.4.2007 18:00
Forrit sem drepur farsímann þinn Með „Killpill“ getur þú eytt myndum og SMS skilaboðum ef símanum þínum er stolið. Ef símanum þínum er stolið vilt þú ekki að þjófurinn skoði myndirnar sem þú og kærastan tókuð á „góðri stundu“, eða SMS-skilaboðin þar sem þú ert minntur á tímann á Húð og hitt. 30.4.2007 16:00
Stærsta þráðlausa net Evrópu Fjármálahverfi London er orðið að stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu. 350.000 Lundúnabúar sækja vinnu í „The Square Mile“ fjármálahverfinu í Lundúnum dag hvern. Þeir geta nú verið í netsambandi hvar sem er innan hverfisins því í vikunni vígðu yfirvöld og Cloud information stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu. 30.4.2007 14:35
Fall á tyrkneskum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa í kauphöll Tyrklands féll um 8 prósent við opnun markaða í dag eftir að orðrómur fór á kreik að herinn muni koma í veg fyrir val á nýjum forseta landsins. Líran, gjaldmiðill Tyrklands, hefur sömuleiðis lækkað um 4 prósent í dag. 30.4.2007 09:33
Google gert að færa smáþorp Chile Ríkisstjórn Chile hefur farið þess á leit við forsvarsmenn Google að þeir geri lagfæringar á landafræðileitarvél sinni, Google Earth, vegna þess að chileskur bær er í Argentínu í kerfinu. 30.4.2007 03:00
Dow Jones í toppi - hagvöxtur undir væntingum Dow Jones vísitalan sló enn eitt metið í gær og hefur ekki verið hærri frá því fyrir árið 2001 þegar samdráttur varð í bandarísku efnahagslífi. Hagvaxtartölur sem kynntar voru í Bandaríkjunum í gær voru hins vegar töluvert lægri en gert var ráð fyrir, eða 1,3 prósent í stað tveggja. Þetta er þó nokkur lækkun frá fyrra ársfjórðungi þegar var hagvöxtur 2,5 prósent. 28.4.2007 17:45
Zunepartý skemmir fyrir Xbox 360 Microsoft hefur gefið út árshlutauppgjör fyrir þriðja hluta viðskiptaársins. Afþreyingar og tækjadeild fyrirtækisins hefur ekki gengið nógu vel þrátt fyrir að búið sé að afgreiða yfir 11 miljón eintök af Xbox 360. 28.4.2007 11:00
Hagvöxtur í Bandaíkjunum langt undir spám Hagvöxtur jókst um 1,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum hagstofu Bandaríkjanna. Hagvöxtur hefur ekki verið jafn lítill í fjögur ár. Fréttirnar ollu því að gengi bandaríkjadals lækkaði á markaði og hefur aldrei verið jafn lágur gagnvart evru. 27.4.2007 13:12
2.200 prósenta verðbólga í Zimbabve Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve jókst um 500 prósent á milli mánaða og mældist 2.200 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur aldrei nokkru sinni í sögu nokkurs lands mælst hærri. Ríkisstjórn landsins vann að því í lengstu lög að fresta birtingu verðbólgutalna mánaðarins á meðan landsmenn fögnuðu 27 ára sjálfstæðisafmæli. 27.4.2007 10:01
Royal Bank of Scotland býður í ABN Amro Þrír stórir bankar undir forystu Royal Bank of Scotland hafa staðfest að þeir ætli að gera yfirtökutilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Bankarnir segja tilboð sitt mun betra en breski bankinn Barclays hefur lagt fram. Þrýsta þeir á stjórn ABN Amro að hún fjalli fljótlega um málið. 27.4.2007 09:45
Windows Vista jók hagnað Microsoft Hagnaður bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft jókst um 65 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi fyrirtækisins, sem lauk í enda marsmánaðar. Ástæðan liggur í tekjum af sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, og hugbúnaðarvöndlinum Office 2007, sem kom út í janúar. 26.4.2007 21:26
Dow Jones enn á uppleið Dow Jones hlutabréfavísitalan sló enn eitt metið í dag þegar hún endaði í 13.132,80 stigum nú undir kvöld. Vísitalan hefur verið á hraðri uppleið síðan í síðustu viku og hefur slegið hvert metið á fætur öðru. Greinendur sem breska ríkisútvarpið ræddu við í gær segja að menn bíði þess nú að vísitalan rjúfi 14.000 stiga múrinn. En aðrar vísitölur eru nálægt sínu hæsta gildi. 26.4.2007 21:07
Armbandsúr gert úr skipsskrokki Titanic Svissneski úrasmiðurinn Romain Jerome SA hefu kafað djúpt eftir innblæstri í nýjustu hönnun sína. Alla leiðina niður að braki Titanic. Hann hefur tryggt sér brot úr grotnandi skipsskrokknum til að búa til Titanic DNA armbandsúr. 26.4.2007 16:30
Ný ofurryksuga sem þjappar ryki í litla teninga LG mun setja nýja ofurryksugu á markað innan skamms. Ryksugan er pokalaus og notast þess í stað við háþrýstitækni sem pressar rykið saman í litla teninga. 26.4.2007 15:37
65 milljóna króna demantsfartölva Fartölvan frá Luvaglio mun kos ta 65 milljónir. Meira er vitað um útlit hennar en innviði. Fyrir nokkrum vikum sögðum við frá milljón dala fartölvu frá breska snobbfyrirtækinu Luvaglio. Meira er vitað um tölvuna núna, þó svo að innviðir hennar séu enn leyndarmál. 26.4.2007 15:32
Ford ekur inn í betra ár Bandaríski bílaframleiðandinn Ford skilaði taprekstri á ný á fyrsta fjórðungi ársins. Fyrirtækið hefur skorið grimmt niður til að draga úr kostnaði. Það virðist hafa tekið því tapreksturinn í ár er talsvert minni en á sama tíma í fyrra. 26.4.2007 15:02
Dow Jones-vísitalan á ný í methæðum Dow Jones-vísitalan fór á ný í methæðir við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag. Vísitalan hækkaði um 29 punkta og fór í 13.118,58 stig og hefur aldrei verið hærri. Hún hefur dalað lítillega eftir því sem liðið hefur á daginn. 26.4.2007 14:46
Uppsagnir hjá Peugeot Líkur eru á að allt að 4.800 manns verði sagt upp störfum á árinu hjá franska bílaframleiðandanum Peugeot í sparnaðarskyni en sala á bílum fyrirtækisins hefur minnkað á sama tíma og efniskostnaður hefur hækkað. 26.4.2007 13:32
Hráolíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag og í gær eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því að olíubirgðir landsins hefðu dregist saman á milli vikna. Þetta er ellefta vikan í röð sem birgðirnar minnka vestanhafs. 26.4.2007 10:59
Nintendo skilaði metafkomu Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði hagnaði upp á 174,3 milljarða jena, jafnvirði rúmra 94,6 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Hagnaður fyrirtækisins hefur aldrei verið meiri enda er þetta rúmlega 77 prósentum meiri hagnaður hjá Nintendo en í fyrra. Afkoman skýrist að mestu af mikilli eftirspurn eftir Wii-leikjatölvunni sem kom á markað í nóvember í fyrra. 26.4.2007 10:36
Dow Jones vísitalan í sögulegu hámarki Bandaríska Dow Jones-vísitalan fór í sögulegar hæðir þegar hún rauf 13.000 stiga múrinn við lok viðskipta á bandaríska hlutabréfamarkaðnum í dag. Vísitalan hefur verið á hraðri uppleið, ekki síst eftir að uppgjörshrinan hófst vestanhafs í síðustu viku en afkoma fyrirtækja á fyrsta fjórðungi ársins er í mörgum tilvikum yfir væntingum. 25.4.2007 22:43
Hraðamet internetsins slegið Hópur rannsóknarmanna undir stjórn Háskólans í Tókýo hafa slegið hraðamet internetsins, tvisvar á tveimur dögum. Stjórnendur háhraða Internet2 netsins tilkynntu á þriðjudaginn að þeir hefðu hinn 30. desember sent gögn á hraðanum 7.67 gígabit á sekúndu, með venjulegum samskiptareglum. 25.4.2007 18:44
Dow Jones-vísitalan í methæðum Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,4 prósent við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag og fór í fyrsta sinn í sögunni yfir 13.000 stiga múrinn. Ástæðan fyrir hækkununum eru góðar afkomutölur fyrirtækja í Bandaríkjunum á fyrsta fjórðungi ársins og væntingar fjárfesta um góða afkomu þeirra fyrirtækja sem enn eiga eftir að skila uppgjörum í hús. 25.4.2007 13:46
Hagnaður Pepsi jókst um 16 prósent Bandaríski gosdrykkjarisinn PepsiCo skilaði 1,1 milljarða dala hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta jafngildir rúmlega 71 milljarði íslenskra króna, sem er 16 prósentum meira en félagið skilaði á sama tíma fyrir ári og nokkuð yfir væntingum greinenda. Sala á Frito Lay snakki á stóran hlut af auknum hagnaði fyrirtækisins. 25.4.2007 11:59
Orðrómur á ný um yfirtöku á Sainsbury Gengi hlutabréfa í Sainsbury, þriðju stærstu stórmarkaðakeðju Bretlands, hækkaði um 8,5 prósent fyrir opnun markaða í Bretlandi dag eftir að 15 prósent hlutabréfa í keðjunni skiptu um eigendur fyrir 1,4 milljarð punda, jafnvirði tæplega 181 milljarðs íslenskra króna.Greinendur segja viðskiptin benda til að hópur fjárfesta hafi í hyggju að gera yfirtökutilboð í keðjuna á ný. 25.4.2007 11:45
Olíuverðið hækkar eftir lækkanir Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag. Helsta ástæðan er sú að talið er að olíubirgðir í Bandaríkjunum hafi minnkað á milli vikna. Verði það raunin hafa olíubirgðirnar minnkað ellefu vikur í röð. 25.4.2007 09:44
Lofar lægri verðbólgu í Bretlandi Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, segir að bankinn ætli að grípa til aðgerða til að draga úr verðbólgu og muni Bretar sjá skarpa lækkun á næstu fjórum til sex mánuðum. Verðbólga mældist 3,1 prósent í mars sem kom flestu, ekki síst bankastjórn Englandsbanka, á óvart og varð King venju samkvæmt, að skrifa stjórnvöldum bréf þar sem hann gerði grein fyrir hækkuninni. 25.4.2007 09:02
Royal Bank of Scotland vill ABN Amro Royal Bank of Scotland er í forsvari fyrir þrjá evrópskra banka sem hafa formlega lýst yfir áhuga á því að leggja fram kauptilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Tilboðið er sagt hljóða upp á 72 milljarða evrur, rúmlega 6.300 milljarða íslenskra króna. Verði gengið að tilboðinu spillir það kaupum Barclays á hollenska bankanum, sem sögð eru stærstu fyrirtækjakaup í evrópski bankasögu. 25.4.2007 08:42
Afkomuviðvörun í kjölfar Íslandssölu Norska útgerðarfyrirtækið Aker Seafoods sendi frá sér jákvæða afkomuviðvörun til Kauphallarinnar í Osló eftir að félagið seldi frystitogarann Vesttind til Brims hf. fyrir tvo milljarða króna. Hagnaður af sölu togarans nam rúmum fjörutíu milljónum norskra króna sem gera um 434 milljónir króna. 25.4.2007 05:30
Besti ársfjórðungur í sögu Ticket Hagnaður félagsins jókst um 30 prósent á milli ára og velta um nærri helming. Samtök sænskra fjárfesta hrósuðu félaginu og stjórnendum á aðalfundi í Stokkhólmi. 25.4.2007 04:00
Tesco skilar metári Breska verslanakeðjan Tesco skilaði hagnaði upp á 2,55 milljarða punda, jafnvirði rúmra 332 milljarða íslenskra króna fyrir skatta og gjöld á síðasta ári. Þetta er 13 prósenta aukning á milli ára og enn ein metafkoman fyrir þessa stærstu stórmarkaðakeðju Bretlandseyja. 25.4.2007 03:15
Horft í aðra átt Breska tímaritið Economist segir allt stefna í stórfelldan samruna á bankamarkaði í Evrópu. Sé samruni breska bankans Barclays og hollenska bankans ABN Amro einungis forsmekkurinn að því sem koma skal. Bankarnir hafa átt í samrunaviðræðum í nokkrar vikur en lyktir náðust í málinu á mánudag þegar skrifað var undir samkomulag þess efnis að Barclays kaupi hollenska banka. 25.4.2007 03:00
Hagnaður Amazon tvöfaldast á milli ára Amazon.com, stærsta netverslun í heimi, skilaði ríflega tvöfalt meiri hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Nam hagnaðurinn rúmum sjö milljörðum íslenskra króna en hann var um 3,3 milljarðar í fyrra. 24.4.2007 23:19
Sinclair ZX Spectrum 25 ára Heimilistölva Sir Clive Sinclair, ZX Spectrum, er 25 ára. Fyrsta eintakið var selt í London þann 23. apríl árið 1982. 24.4.2007 16:55
Mikill samdráttur á bandarískum fasteignamarkaði Sala á íbúðum öðrum en nýjum dróst saman um 8,4 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum í mars. Samdrátturinn á íbúðamarkaði í Bandaríkjunum hefur ekki verið meiri í einum mánuði í 18 ár.Á sama tíma hefur sala á nýjum íbúðum ekki verið minni í tæp fjögur ár. Greinendur segja samdráttinn merki um veika stöðu fasteignamarkaðarins vestra. 24.4.2007 15:31
Nokia kynnir gullsíma Finnski símaframleiðandinn Nokia kynnti á dögunum nýjan síma í eðalsímalínunni 8800 Sirocco. Síminn ber nafnið Nokia 8800 Sirocco Gold og er húðaður með 18 karata gulli og skreyttur með hvítagulli. Honum fylgir Bluetooth headset í svipuðu útliti. Sirocco er nafnið á lúxus símalínunni frá Nokia. 24.4.2007 13:38
Metafkoma hjá OMX Kauphallarsamstæðan OMX, sem rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, meðal annars hér, og í Eystrasaltslöndunum, skilaði hagnaði upp á 257 milljónir sænskra króna, jafnvirði 2,4 milljarða íslenskra króna, eftir skatta og gjöld á fyrstu þremur mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður samstæðunnar á fyrsta árfjórðungi hefur aldrei verið betri í sögu OMX. 24.4.2007 12:47
Toyota umsvifamesti bílaframleiðandi heims Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur tekið fram úr bandaríska bílaframleiðandanum General Motors og flaggar nú titlinum umsvifamesti bílaframleiðandi í heimi. Þessu heldur talsmaður Toyota fram en fyrirtækið seldi tæplega 2,35 milljónir bíla á fyrstu þremur mánuðum ársins á meðan General Motors seldi 2,26 milljónir bíla á sama tíma. 24.4.2007 09:11
Óvænt verðbólga Verðbólga jókst um hálft prósent á milli mánaða í Bretlandi í síðasta mánuði og hefur ekki verið meiri í áratug, 3,1 prósent. Þetta er rúmu prósenti yfir verðbólgumarkmiði Englandsbanka. 24.4.2007 06:00
Lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum Hlutabréf á mörkuðum í Bandaríkjunum lækkuðu í dag eftir að hlutabréfavísitölur náðu miklum hæðum í lok síðustu viku. Dow Jones fór hæst í 12.984 stig í dag en tókst ekki að rjúfa 13 þúsund stiga múrinn. 23.4.2007 20:40
Spider-Man bætir afkomuna Bandaríski leikfangaframleiðandinn Hasbro skilaði hagnaði upp á 32,9 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 2,1 milljarðs króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er nokkur viðsnúningur fá taprekstri fyrirtækisins í fyrra. Helsta ástæðan fyrir hagnaðinum er góð sala á leikföngum sem tengjast útgáfu þriðju kvikmyndarinnar um ævintýri Köngurlóarmannsins, sem kemur á hvíta tjaldið eftir tvo mánuði. 23.4.2007 19:26
Fyrsta indverska fraktgeimflaugin Indverjar sendu í morgun geimflaug á loft sem flutti 352 kílóa ítalskan gervihnött sem á að kanna upphaf alheimsins. 23.4.2007 14:12
Olíuverð hækkar vegna forsetakosninga Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði í dag vegna hættu á að olíuframleiðsla í Nígeríu skerðist vegna forsetakosninga þar í landi sem nú standa yfir. Nokkur spilling er sögð einkenna forsetakosningarnar og hefur stjórnarandstaðan farið fram á að þær verði ógiltar og kosið að nýju. 23.4.2007 11:31