Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Innanlandsflug einnig undir merkjum Icelandair Innanlands- og millilandaflug Icelandair verður samþætt undir merkjum Icelandair. Frá þessu segir í tilkynningu frá Icelandair, en leiðakerfi og sölu- og markaðsstarf Air Iceland Connect og Icelandair mun sameinast undir vörumerki Icelandair frá þriðjudeginum næsta, 16. mars. 9.3.2021 07:49
Frá Vinstri grænum og til Bændasamtakanna Kári Gautason hefur verið ráðinn til Bændasamtaka Íslands þar sem hann mun koma að úrvinnslu og greiningu hagtalna landbúnaðarins, ásamt því að koma að hagrænum greiningum sem tengjast umhverfis-, loftlagsmálum, fæðuöryggi og tryggingamálum. 8.3.2021 13:58
MacKenzie Scott giftist kennara við skóla barna sinna MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur gifst kennaranum Dan Jewett sem kennir við skóla barna Scott og Amazon-stofnandans Jeffs Bezos. 8.3.2021 11:17
Bein útsending: Hringir opnunarbjöllu í Kauphöllinni fyrir jafnrétti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun hringja opnunarbjöllu markaða fyrir jafnrétti klukkan 9:15 í dag. 8.3.2021 08:45
Stjórnvöld þyrftu að koma að ákvörðun um að hætta útburði bréfa Íslandspóstur getur ekki tekið einhliða ákvörðun um að hætta að bera út bréfpóst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti sem barst upp úr hádegi í dag þar sem segir að Íslandspóstur sé ekki að íhuga að hætta að bera út bréfpóst líkt og ráða mátti af fréttum í morgun. 6.3.2021 13:38
Íslandspóstur íhugar að hætta að bera út bréf Ein leiðin sem hægt væri að fara ef ganga á lengra í hagræðingu hjá Íslandspósti kæmi til greina að hætta að bera bréf inn um hverja lúgu. Þetta segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspóst, í Morgunblaðinu í dag. 6.3.2021 09:36
„Maður eiginlega móðgast þetta er svo léleg útskýring“ Innanhúshönnuðurinn Rut Káradóttir sakar hönnuð Slippfélagsins um að hafa tekið litakort sitt ófrjálsri hendi og gert að sínu eigin. Hún segir málið vonbrigði og greinilegt að höfundaverk séu ekki metin að verðleikum á Íslandi. Forsvarsmaður Slippfélagsins og hönnuður kortsins hafna ásökununum og vísa til eldri litakorta. 6.3.2021 08:00
Níu í framboði til stjórnar Icelandair Group Tilkynnt hefur verið um þá níu frambjóðendur sem sækjast eftir sæti í stjórn Icelandair Group á aðalfundi félagsins sem fer fram eftir viku. 5.3.2021 18:33
Samningur upp á 1,7 milljarð um smíði fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslan hefur samið við vélsmiðjuna Héðin um smíði á 380 tonna fiskimjölsverksmiðju sem sett verður upp í Neskaupstað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni. 5.3.2021 15:32
Viðsnúningur í rekstri Íslandspósts sem skilaði 104 milljóna króna hagnaði Viðsnúningur var á rekstri Íslandspósts í fyrra sem hagnaðist um 104 milljónir króna samanborið við 511 milljóna króna tap árið 2019. Jókst afkoma félagsins þar með um 615 milljónir króna milli ára en á sama tíma drógust rekstrartekjur saman um 288 milljónir frá 2019 og námu í fyrra 7.457 milljónum króna í fyrra. 5.3.2021 15:08
Ráða STJ sem ráðgjafa vegna útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins hefur ráðið STJ Advisors Group Limited sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa vegna alþjóðlegs frumútboðs á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka. Alls gáfu sjö aðilar kost á sér með áhugayfirlýsingum til að verða sjálfstæður fjármálaráðgjafi en að lokum var STJ valið og hefur fyrirtækið þegar hafið störf. 5.3.2021 13:32
Óskar eftir fólki til að útbúa skemmtilegan þjóðhagfræðitölvuleik Svanhildur Hólm Valsdóttir kallar eftir því að frumkvöðlar útbúi sérstakan efnahagshermi svo stjórnvöld og almenningur geti betur áttað sig á áhrifum skattabreytinga. Hún hætti í fyrra sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra og tók við sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Hún telur að það hafi verið til bóta að fjölga aðstoðarmönnum ráðherra og segir að starfið sé á við tvær háskólagráður. 5.3.2021 12:36
Lét heimsfaraldur ekki á sig fá og lætur drauminn rætast eftir grænt ljós frá konunni Síðar í mánuðinum bætist við nýr staður í veitingaflóru Reykjavíkur þegar skyndibitastaðurinn 2Guys opnar á Klapparstíg. Einn eigenda segir langþráðan draum nú loks verða að veruleika og að hann sé bjartsýnn á gengi staðarins þó sumir hafi veigrað sér við að hefja veitingarekstur í miðjum heimsfaraldri. 5.3.2021 09:01
Lokaniðurstaðan 480 milljóna króna sekt Mjólkursamsölunnar Hæstiréttur hefur gert Mjólkursamsölunni (MS) að greiða samtals 480 milljóna króna sekt í ríkissjóð vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum. 4.3.2021 16:19
„Við verðum að hrista af okkur slenið“ Formaður Samtaka iðnaðarins segir að á næstu tólf mánuðum verði teknar ákvarðanir sem muni ráða miklu um efnahagslega endurreisn á Íslandi næstu árin. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag. 4.3.2021 13:41
Bein útsending: Iðnþing 2021 Hlaupum hraðar – slítum fjötrana og sækjum tækifærin er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem hefst í dag klukkan 13 og stendur til klukkan 15. 4.3.2021 12:16
Kristinn Árni í Northstack formaður stjórnar Kríu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra nýsköpunarmála, hefur skipað fyrstu stjórn Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs og sett reglugerð svo sjóðurinn geti hafið störf. Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi vefritsins Northstack og ráðgjafi, hefur verið skipaður formaður stjórnarinnar. 4.3.2021 11:29
Ekki komið fleiri nýjar íbúðir á markaðinn frá árinu 2007 Mun meira var byggt af nýju húsnæði á síðasta ári en bráðabirgðatölur og spár gerðu ráð fyrir. Tæplega fjögur þúsund fullbúnar íbúðir skiluðu sér á fasteignamarkaðinn í fyrra samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands sem er mesti fjöldi á stöku ári síðan 2007. 3.3.2021 13:54
Varar við netsvindli Pósturinn hefur aftur varað við að óprúttnir aðilar séu að senda tölvupósta í nafni Póstsins í þeim tilgangi að komast yfir kortaupplýsingar. 3.3.2021 13:06
Bein útsending: Opnun Heimstorgs Íslandsstofu Heimstorg Íslandsstofu verður opnað í dag klukkan 13:30, en því er ætlað að vera upplýsinga- og samskiptagátt fyrirtækja sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum og víðar. 3.3.2021 13:01
Hafna því að til standi að selja hlutinn í Alvogen Stjórn CVC Capital Partners hafnar því að fjárfestingarfélagið ætli sér að selja um helmingshlut sinn í Alvogen líkt og fram kom í frétt Markaðarins, fylgiriti Fréttablaðsins í morgun. 3.3.2021 11:43
Nýr 8,3 milljarða vísisjóður hyggst fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum Brunnur Ventures hefur lokið fjármögnun á 8,3 milljarða króna vísisjóði (e. venture capital fund) sem ber nafnið Brunnur vaxtarsjóður II. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum og er fjármagnaður af tíu lífeyrissjóðum auk Landsbankans. 3.3.2021 10:24
Framtíð ferðaþjónustunnar: Sigurður Ingi ræðir stöðu og horfur Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er næsti gestur í þættinum „Samtal við stjórnmálin“ sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að. Á næstu vikum munu SAF bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu. 3.3.2021 08:47
Segja CVC vilja selja ráðandi hlut sinn í Alvogen Alþjóðlega fjárfestingarfélagið CVC Capital Partners, sem er stærsti einstaki hluthafinn í Alvogen, vinnur nú að því selja um helmingshlut sinn í félaginu samkvæmt heimildum Markaðarins. 3.3.2021 08:40
Íslenskum aðalverktökum úthýst á Kirkjusandi Verktakafyrirtækið Íslenskir Aðalverktakar mun ekki ljúka uppbyggingu svæðisins við Kirkjusand þar sem tvö stór fjölbýlishús og 7000 fermetra skrifstofubygging er að rísa. 3.3.2021 06:47
Takmarka fjárfestingarstarfsemi viðskiptabanka Viðskiptabönkum og sparisjóðum sem taldir eru kerfislega mikilvægir eru settar þrengri skorður í viðskiptum með fjármálagerninga og hrávörur með nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi í dag. 2.3.2021 18:19
Arion banki innheimti lán sem var búið að greiða upp Einhverja viðskiptavini Arion banka rak í rogastans á dögunum þegar þeir fengu röð greiðsluítrekana í bréfpósti sem voru ýmist vegna greiddra reikninga eða lána sem voru í skilum. 2.3.2021 15:27
Ráðinn nýr forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst Dr. Stefan Wendt hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. 2.3.2021 14:58
Tilkynnt um tvær hópuppsagnir í febrúar Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar þar sem 287 starfsmönnum var sagt upp störfum í verslun og flutningum. Þar af var 259 sagt upp á höfuðborgarsvæðinu og 28 á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar en uppsagnirnar taka flestar gildi í júní. 2.3.2021 12:44
Fyrsta Boeing 737 MAX flug Icelandair til Kaupmannahafnar Icelandair tekur tvær Boeing 737 MAX vélar í rekstur á ný í þessum mánuði. Gert er ráð fyrir að TF-ICN sem ber nafnið Mývatn verði nýtt í áætlunarflugi til Kaupmannahafnar mánudaginn 8. mars. 2.3.2021 12:36
Landsvirkjun og Norðurál birta orkusamninga Norðurál og Landsvirkjun hafa aflétt trúnaði af raforkusamningum fyrirtækjanna. Báðir aðilar segjast vonast til að birtingin styðji við og auki upplýsta umræðu um orkumál á Íslandi. 2.3.2021 11:54
Afgangur á viðskiptajöfnuði stórjókst milli fjórðunga Á fjórða ársfjórðungi 2020 var 22,1 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd samanborið við 2,9 milljarða króna ársfjórðunginn á undan. Halli á vöruskiptajöfnuði var 15,5 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 26,4 milljarðar króna. 2.3.2021 10:00
Nærri 90 prósent sölu tónlistar í gegnum Spotify Söluandvirði hljóðrita frá útgefendum og dreifendum jókst um 18 prósent á milli áranna 2018 og 2019. Er það fjórða árið í röð sem söluandvirðið hækkar að raunvirði eftir nær samfelldan samdrátt frá því um aldamót. Nærri níutíu prósent allrar tónlistarsölu á árinu 2019 fór í gegnum tónlistarveituna Spotify. 2.3.2021 09:44
Wise og Netheimur í eina sæng Hugbúnaðarfyrirtækið Wise og upplýsingatæknifyrirtækið Netheimur hafa sameinast um að klára samruna fyrirtækjanna undir merkjum Wise. 2.3.2021 08:47
Undirbýr framleiðslu á íslenskri haframjólk Eitt stærsta nautgripabú landsins er að byggjast upp í Meðallandi, á jörð sem áður var í eyði. Þar eru bændur jafnframt óhræddir við að þróa nýjar og framandi afurðir, eins og bygg fyrir viskí og íslenska haframjólk. 1.3.2021 23:49
Hefur áhyggjur af Bitcoin-kaupum Íslendinga og líkir rafmyntinni við píramídasvindl Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við kaupum á rafmyntum á borð við Bitcoin og líkir kapphlaupinu við þátttöku í píramídasvindli. Íslendingar versluðu með Bitcoin fyrir um 600 milljónir króna í janúar samkvæmt úttekt Rafmyntaráðs. Virði Bitcoin fór yfir 50 þúsund Bandaríkjadali um miðjan febrúar og kostar nú hver mynt rúmlega 6,2 milljónir króna. 1.3.2021 17:21
Valgeir frá VÍS yfir til Terra Valgeir M. Baldursson hefur verið ráðinn forstjóri Terra. Valgeir hefur undanfarin ár starfað sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri hjá VÍS. Þar áður var Valgeir forstjóri Skeljungs en hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa hjá ýmsum fyrirtækjum og félögum. 1.3.2021 15:18
Bálkakeðjan spili lykilhlutverk í bólusetningarvottorðum sem Íslendingar þróa í samstarfi við WHO Íslenskir sérfræðingar aðstoða nú Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) við þróun alþjóðlegs bólusetningarvottorðs. Guðjón Vilhjálmsson, forstöðumaður heilbrigðislausna hjá Origo, vonar að lausnin verði til á næstu tveimur til þremur mánuðum. Það velti þó á því hvenær ríki komi sér saman um útfærsluna. 1.3.2021 14:00
Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Kviku, TM og Lykils Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á samruna Kviku banka, tryggingafélagsins TM og Lykils fjármögnunar. Er það mat eftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni, leiði til myndunar á markaðsráðandi stöðu eða raski samkeppni með umtalsverðum hætti. 1.3.2021 12:49
Telma og Unnur til Sendiráðsins Tveir sérfræðingar hafa bæst í hópinn hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Sendiráðinu, á sviði notendaupplifunar annars vegar en verkefnastýringar hins vegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sendiráðinu. 1.3.2021 11:51
Hrefna Sigurjónsdóttir nýr verkefnastjóri forvarna Hrefna Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá. Hrefna hefur starfað sem framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landsamtaka foreldra síðustu tíu árin, þar til hún hóf störf hjá Sjóvá nú um miðjan febrúar. Áður var hún verkefnastjóri hjá samtökunum og SAFT-verkefninu. 1.3.2021 10:20
Guðbjörg Sæunn ný forstöðukona framtíðarsýnar Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin forstöðukona framtíðarsýnar og reksturs hjá Veitum. Guðbjörg Sæunn var ráðin forstöðumaður fráveitu Veitna árið 2019 en tekur nú við nýju sviði í breyttu skipulagi fyrirtækisins. 1.3.2021 09:35