Fleiri fréttir

Lyf og heilsa kaupir Garðs apótek
Haukur Ingason, eigandi Garðs apóteks, og Lyf og heilsa hafa undirritað með sér samning þess efnis að Lyf og heilsa taki yfir rekstur Garðs apóteks sem mun þó áfram verða rekið undir því nafni.

Forstjórinn seldi allan hlut sinn í Skeljungi
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, seldi í morgun hlutabréf í Skeljungi fyrir 20 milljónir króna. Hann átti 2,25 milljónir hluta og seldi á genginu 8,78 í gegnum félag sitt Hái klettur.

Ráðin nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise
Inga Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise.

Allar plastflöskur Coca-Cola á Íslandi úr endurunnu plasti á fyrsta ársfjórðungi
Frá og með fyrsta ársfjórðungi 2021 verða allar plastflöskur, sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir, úr 100% endurunnu plasti en við breytinguna mun notkun á nýju plasti á Íslandi minnka um 530 tonn. Forstjórinn segir fátt fara meira í taugarnar á honum en að sjá drykkjarumbúðir sem hann framleiðir úti á götu eða í fjörunni.

66 starfsmenn Hertz endurráðnir
66 starfsmenn bílaleigunnar Hertz á Íslandi, sem sagt var upp störfum í haust, verða endurráðnir.

Landsbankahúsið á Ísafirði til sölu
Landsbankinn hefur sett hús sitt við Pólgötu 1 á Ísafirði á sölu. Bankinn seldi á dögunum hús sitt á Selfossi á 350 milljónir. Óskað er eftir tilboðum í eignina í höfuðstað Vestfjarða.

Ungur Flateyringur fullvinnur matvæli úr vestfirsku fiskeldi
Liðlega tvítug kona á Flateyri hefur stofnað matvælavinnslu sem fullvinnur vörur úr vestfirskum eldisfiski, eins og grafinn lax úr Dýrafirði og reyktan regnbogasilung úr Önundarfirði. Starfsmenn eru orðnir þrír.

Fögnuðu óvæntum sigri í máli sem gæti kostað ríkið milljarða
Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. Dómurinn sé sigur fyrir lántakendur.

Hlutdeildarlán: Sótt um að byggja 2.333 íbúðir, búið að samþykkja 468
Alls hafa 78 byggingaraðilar skráð sig í samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að byggja hagkvæmar íbúðir sem fjármagna má með hlutdeildarláni.

Sitja uppi með tífaldan málskostnað eftir að hafa neitað að greiða 80 þúsund króna skuld
Eignarhaldsfélagið Summus hefur verið dæmt til að greiða tryggingarfélaginu Verði 80 þúsund króna skuld sem félögin tókust á um fyrir dómi. Summus þarf einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað, tífalda þá upphæð sem deilt var um.

Grillhúsinu skellt í lás eftir tæpa þrjá áratugi
Veitingastaðnum Grillhúsinu á Tryggvagötu, sem staðið hefur við götuna í hartnær þrjá áratugi, hefur verið lokað. Þetta staðfestir Þórður Bachmann eigandi Grillhússins í samtali við Fréttablaðið í dag.

„Í dag er fallinn tímamótadómur“
Ríkissjóður gæti þurft að greiða lántakendum hjá Íbúðalánasjóði (nú ÍL-sjóðs) á annan tug milljarða eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi uppgreiðsluþóknun sjóðsins ólögmæta í dag. Lögmaður segir þetta tímamótadóm og mikinn sigur fyrir lántakendur.

Ekki hægt að nota inneignarnótu úr einni verslun í annarri
Samkvæmt nýlega uppfærðum skilareglum Pennans Eymundssonar geta neytendur eingöngu notað inneignarnótur í þeirri verslun sem þær eru gefnar út. Þetta þýðir að ef vöru er skilað í verslun í Kringlunni, er ekki hægt að nota inneignarnótuna í Smáralind.

Hreyfill og BSR missa öll einkastæðin sín
Hreyfill og BSR missa sérmerkt leigubifreiðastæði sem þau hafa haft til umráða um áratugaskeið í Reykjavíkurborg um helgina og verður nú öllum þeim sem stunda leigubílaakstur leyft að nota þau. Samgönguráðuneytið synjaði kröfu Hreyfils um að fella ákvörðun borgarinnar úr gildi.

Fjögur ráðin til Stefnis
Theodór Sölvi Blöndal, Vigdís Hauksdóttir, Þorsteinn Andri Haraldsson og Eiríkur Ársælsson hafa öll verið ráðin til starfa hjá sjóðsstýringarfyrirtækinu Stefni að undanförnu.

Byggingarkostnaður muni hækka vegna gjaldskrárhækkana hjá Sorpu
Viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins segir að byggingarkostnaður muni hækka vegna boðaðra gjaldskrárhækkana hjá Sorpu sem gildi taka um áramót.

Búa til bætiefni fyrir búfé úr salti frá fiskvinnslum
Lítið fjölskyldufyrirtæki á Vestfjörðum endurnýtir salt frá fiskvinnslum og býr til saltsteina fyrir búfé. Eigendurnir segja fyrirtækið á fljúgandi siglingu því bændur vilji íslenska vöru.

Fagnar því að neytandinn hafi haft sigur
Formaður Neytendasamtakanna fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu, sem neitað var um að fá hægindastól afhentan sem hún greiddi að stærstum hluta fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Hann segir málið ódæmigert; flest mál sem tengist inneignarnótum og rati inn á borð samtakanna varði gildistíma.

Neytendasamtökin segja ósanngjarnt að neytendur borgi stuðning við bændur
Formaður Neytendasamtakanna segir ósanngjarnt að neytendur verði látnir borga stuðning við bændur með því að hækka álögur á innfluttar landbúnaðarvörur í skjóli kórónuveirufaraldursins. Nær væri að veita bændum beinan stuðning eins og örðum atvinnugreinum.

Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa.

Byggt yrði við hús Súfistans í Hafnarfirði og hann gerður að mathöll
Hugmyndir eru uppi um að byggja við Strandgötu 9 í Hafnarfirði, þar sem nú má finna kaffihúsið Súfistann, og breyta jarðhæðinni í litla mathöll. Þá yrði að finna níu smáíbúðir á efri hæðum viðbyggingarinnar.

Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo.

Vilja sameina kosti útsýnis, gróðurs og heita vatnsins úr göngunum í nýjum baðstað
Nýr baðstaður í Eyjafirði er í undirbúningi og er stefnt að opnun hans snemma árs 2022, gangi áætlanir eftir.

Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt
Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum.

Íslandsbanki lækkar vexti
Útlánavextir Íslandsbanka munu lækka um allt að 0,25 prósentustig á föstudag. Innlánsvextir vextir haldast að mestu leyti óbreyttir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs, sendir fyrir hönd bankans.

510 milljóna gjaldþrot Hópferðabifreiða Akureyrar
Skiptum á þrotabúi Hópferðabifreiða Akureyrar er lokið en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. Lýstar kröfur í þrotabúið námu samanlagt 510 milljónum króna og fengust greiddar um 26 milljónir.

Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion
Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air.

Ósanngjarnt að fá aðeins að taka á móti 10 manns í 3000 fm húsnæði
Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að það hafi verið erfitt að fá þær fréttir að tíu manna fjöldatakmarkanir verði áfram í gildi, þó þær hafi vissulega verið viðbúnar. Ósanngjarnt sé að mega ekki taka á móti fleirum en tíu í einu í þessu gríðarstóra húsnæði en að gert sé það besta úr hlutunum með hólfaskiptingum.

Vísuðu 2.500 manns frá eftir að ákvörðun ráðherra lá fyrir
Veitingamenn höfðu margir gert sér vonir um að geta tekið fleiri viðskiptavini inn á staði sína í aðdraganda jólanna. Eftir að heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína fyrr í dag að svo verður ekki er ljóst að áhrifin á rekstur þeirra verða talsverð.

Ríkið dæmt til að greiða Elko 18,7 milljónir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Elko hf, rekstraraðila raftækjaverslana Elko, 18,7 milljónir vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkisins í tengslum við innflutning á raftækjum.

Kjartan til Isavia
Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi.

Prentsmiðjur sameinast undir merkjum Litrófs
Prentsmiðjurnar Litróf, GuðjónÓ og Prenttækni hafa sameinast undir merki Litrófs.

FA sakar ráðherra um að láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum
Félag atvinnurekenda sakar landbúnaðarráðherra um láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum og fara gegn hagsmunum innflutningsfyrirtækja og neytenda. Það sé gert í nýju frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirkomulag útboðs tollkvóta fyrir búvörur.

Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2
Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu.