Viðskipti innlent

Landsbankahúsið á Ísafirði til sölu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Landsbankinn fékk 350 milljónir fyrir húsið á Selfossi. Húsið á Ísafirði er töluvert minna og fróðlegt verður að sjá hvað fæst fyrir það.
Landsbankinn fékk 350 milljónir fyrir húsið á Selfossi. Húsið á Ísafirði er töluvert minna og fróðlegt verður að sjá hvað fæst fyrir það. Landsbankinn

Landsbankinn hefur sett hús sitt við Pólgötu 1 á Ísafirði á sölu. Bankinn seldi á dögunum hús sitt á Selfossi á 350 milljónir. Óskað er eftir tilboðum í eignina í höfuðstað Vestfjarða.

Húsið, sem var reist á árunum 1956-1958, setur sterkan svip á umhverfi sitt og er almennt talið eitt af fallegustu húsum miðbæjarins. Útibú Landsbankans hefur verið rekið í húsinu en til stendur að útibúið verið flutt yfir götuna í Hafnarstræti 19 þar sem Sparisjóður Vestfirðinga var áður til húsa.

„Þar er betri aðstaða og aðgengi fyrir viðskiptavini og starfsfólk, auk þess sem húsnæðið er hagkvæmara og hentar starfseminni betur,“ segir í auglýsingu Landsbankans.

Bankinn þurfi ekki svo stórt húsnæði

Landsbankahúsið á Ísafirði er á fjórum hæðum, að kjallara og rishæð meðtöldum. Grunnflötur hússins er um 220 fermetrar en alls er húsið um 830 fermetrar. Til samanburðar var húsið á Selfossi um 1200 fermetrar.

„Breytingar á bankaþjónustu valda því að útibúið þarf nú mun minna húsnæði undir starfsemi sína. Þegar húsið var tekið í notkun voru í kjallara m.a. fjárhirslur, geymsluhólf og kaffistofa starfsfólks.“

Afgreiðslusalur og aðstaða fyrir viðskiptavini var á 1. hæð en á 2. hæð var m.a. íbúð fyrir útibússtjóra og gestaherbergi fyrir viðskiptavini og starfsfólk bankans sem dvaldi um stundarsakir á Ísafirði. Rishæðin var leigð út til að byrja með. Bárður Ísleifsson er arkitekt hússins en byggt var á teikningum Guðjóns Samúelssonar.

Húsið stendur á rúmlega 730 m2 eignarlóð og því fylgir 57 m2 bílskúr. Fasteignasala Vestfjarða og Fasteignamiðstöðin annast sölu á húsinu. Landsbankinn áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum í húsið.

Hvatti bankann til að flytja höfuðstöðvarnar á Selfoss

Landsbankinn tók tilboði þróunarfélagsins Sigtúns í Landsbankahúsið á Selfossi en tilboðið hljómaði upp á 352 milljónir króna. Fjögur tilboð bárust og var því hæsta tekið. Sigtún Þróunarfélag er í eigu Leó Árnasonar og Kristjáns Vilhelmssonar, stærsta einstaka eiganda í útgerðarfélaginu Samherja undanfarin ár. Eiga þeir hvor fyrir sig 44 prósenta hlut í Sigtúni þróunarfélagi.

Landsbankahúsið á Selfossi þykir eitt af glæsilegustu húsum á Suðurlandi og er eitt af einkennistáknum fyrir Selfoss.Vísir/Magnús Hlynur

Kristján tilkynnti á árinu að börn hans væru orðnir eigendur að hans hlut í Samherja.

Bæjarfulltrúi Árborgar gagnrýndi Landsbankann fyrir að setja húsið á Selfossi á sölu. Miklu nær væri að bankinn myndi flytja höfuðstöðvar sínar í húsið í stað þess að vera að eyða milljörðum í byggingu nýrra höfuðstöðva í miðbæ Reykjavíkur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×