Viðskipti erlent

Yahoo ætlar að hafna tilboði Microsoft

Stjórn Yahoo ætlar sér að hafna tilboði Microsoft að því er segir í Wall Street Journal. Microsoft hafði í hyggju að greiða 44,6 milljarða dollara fyrir Yahoo eða sem svarar til nær 3.000 milljörðum króna.

Í Wall Street Journal segir að eftir nokkra fundi í vikunni hafi stjórn Yahoo komist að þeirri niðurstöðu að kauptilboð Microsoft upp á 31 dollar á hlut sé langt undir markaðsverði Yahoo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×