Fleiri fréttir

Stofnfjáreigendur vilja svör

Fundur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar verður haldinn 21. júlí næstkomandi. Fimm stofnfjáreigendur vilja að stjórnin upplýsi um hvort einhver áform séu uppi um breytingar á eignarhaldi og hvað brottrekstur sparisjóðsstjóra og fleiri kosti.

Leyndi eignatengslum

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður SÍF, greindi stjórninni ekki frá því að hann væri stór hluthafi í Sjóvík áður en ákvörðun var tekin um að selja dótturfélag SÍF í Bandaríkjunum til Sjóvíkur.

Fjárfestar draga sig í hlé

Af þeim tólf fjárfestahópum, sem hugðu á kaup á Símanum, eru sex sagðir hafa heltst úr lestinni. Einkavæðingarnefnd fékk upplýsingar um endanlega samsetningu hópanna í dag, en mun sitja á þeim þar til tilboðin verða opnuð í lok þessa mánaðar.

Íbúðalánasjóður gæti lækkað vexti

Íbúðalánasjóður gæti lækkað vexti niður í þrjú komma sjötíu og fimm prósent ef vaxtaálag yrði metið út frá reynslu undanfarinna ára og sjóðurinn nýtti sér lagaheimild til að taka uppgreiðslugjald, eins og bankarnir hafa gert.

Hækkaði vísitöluna um 0,06%

Kerfisbreyting stjórnvalda á sölu á gasolíu á bíla hækkaði ein og sér vísitölu neysluverðs um 0,06 prósent frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Vextir Íbúðalánasjóðs undir 4%?

Vextir Íbúðalánasjóðs gætu farið niður fyrir fjögur prósent, ef sjóðurinn nýtti sér lagaheimild til að taka uppgreiðslugjald eins og bankarnir hafa gert. 

500 milljarða fyrirtækjakaup

Á síðustu átján mánuðum hafa Íslendingar keypt stærri fyrirtæki erlendis fyrir um 450 milljarða og gera má ráð fyrir því að erlend fyrirtækjakaup nemi mun hærri upphæð ef óskráð fyrirtæki eru talin með. Þetta kemur fram í úttekt Markaðarins á erlendum fyrirtækjakaupum sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

800 milljóna lækkun á veltu

Þrátt fyrir að vísitala fasteignaverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu haldi áfram að hækka þá er farið að draga úr veltunni og kaupsamningum fer fækkandi. Veltan í nýliðinni viku var liðlega 4,2 milljarðar króna og hefur því lækkað um 300 milljónir síðan í apríl og um 800 milljónir síðan í desember.

Lána einungis fyrir brunabótamati

Nú er orðið mun erfiðara að kaupa gamlar íbúðir en verið hefur þar sem bankarnir eru almennt hættir að lána nema sem nemur brunabótamati. Það getur hins vegar verið svo langt undir markaðsverði að bilið getur orðið óbrúanlegt fyrir kaupandann. 

Burðarás kaupir í leikjafyrirtæki

Fjárfestingarfyrirtækið Burðarás, sem á sínum tíma var dótturfélag Eimskips, hefur keypt fjórðungs hlut í sænska getrauna- og leikjafyrirtækinu Cherry-företagen AB. Markaðsvirði hlutar Burðaráss í sænska félaginu er 2,3 milljarðar íslenskra króna, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun.

2,9% hagvöxtur á fyrsta fjórðungi

Hagvöxtur mældist 2,9% að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins að því er fram kemur í hálffimm fréttum KB banka. Bankinn segir minni vöxt landsframleiðslu ekki hægt að rekja til minni eftirspurnar því þjóðarútgjöld uxu alls um 11% að raunvirði.

Grípur ekki til aðgerða

Fjármálaeftirlitið ætlar ekki að grípa til aðgerða vegna sölu Íslandsbanka á tæplega 67 prósenta hlut í Sjóvá til eins af stjórnarmönnum bankans.

Engin stórviðskipti í hálft ár

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í viðtali við breska dagblaðið Sunday Times í gær að kaup á stórum breskum verslunarkeðjum verði látin bíða meðan nafn hans verði hreinsað. Hann muni þó áfram standa að minni kaupum sem ekki veki jafnmikla athygli og segist til að mynda vera að skoða tískuvöruverslunina Jane Norman um þessar mundir.

Baugur úr samningaviðræðunum

Baugur hefur dregið sig úr samstarfi um mögulega yfirtöku á bresku verslanakeðjunni Somerfield. Í tilkynningu frá félaginu segir að ákvörðunin hafi verið tekin í þágu fyrirtækjahópsins, aðila hans og hluthafa í Somerfield í kjölfar þess að ákærur voru birtar forstjóra Baugs og fimm öðrum einstaklingum.

Novator fjárfestir í Finnlandi

Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar verður stærsti hluthafi í Elisa, sem er næststærsta símafyrirtæki Finnlands. Novator hefur undanfarið fjárfest í símafyrirtækinu Saunalahti sem verður sameinað símafyrirtækinu Elisu. Markaðsverðmæti hins sameinaða félags verður um 165 milljarðar íslenskra króna.

Óljóst hvenær ákærur verða birtar

Óljóst er hvenær ákærurnar yfir Baugsmönnum verða birtar. Dagblöð í Englandi hafa haldið því fram að ákærurnar verði birtar fyrir helgina en í samtali við Fréttastofu nú rétt fyrir fréttir sagði Gestur Jónsson lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar stjórnarformanns Baugs Group að það væri ekki ljóst hvenær það yrði gert.

Yfirtökuskylda könnuð

Yfirtökunefnd hefur ákveðið að skoða hvort yfirtökuskylda hafi skapast í FL Group í kjölfar viðskipta með hlutabréf í félaginu í síðustu viku. Þrír hluthafar í félaginu ráða nú yfir rúmlega 65 prósenta hlut í því.

Baugur dregur sig út úr viðræðum

Samkvæmt áræðanlegum heimildum liggur ljóst fyrir að Baugur mun draga sig út úr samningaviðræðumum kaupin á Sommerfield. Ástæðan er ákæran á hendur Jóni Ásgeiri forstjóra og fimm öðrum. Baugur mun að öllum líkindum senda frá sér tilkynningu um málið nú í kvöld eða fyrramálið.

Íbúðalánsjóður - nýr ríkisbanki?

Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans, segir að alþjóðastofnanir hljóti að spyrja sig af hverju ríkisstofnun sé að fjármagna útlán hjá viðskiptabönkunum. Hann bendir jafnframt á að stjórnvöld beri ábyrgð á því ef Íbúðalánasjóður er að fjármagna neyslulán. Samtök atvinnulífsins telja að kominn sé fram á sjónarsviðið nýr ríkisbanki.

Baugur hættir við

Baugur er hættur þátttöku í fyrirtækjahópi sem vinnur að kaupum á bresku verslunarkeðjunni Somerfield. Í tilkynningu frá félaginu segir að ákvörðunin hafi verið tekin í þágu samstarfsaðilanna í kjölfar þess að Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og fimm öðrum einstaklingum voru birtar ákærur í Baugsmálinu svokallaða.

Líkur á að Baugur dragi sig út

Breska blaðið <em>The Guardian</em> segir í morgun að líkur séu á að Baugur dragi sig út úr tilboðshópnum í verslanakeðjuna Somerfield í dag. Aðrir í hópnum hafi þrýst á Baug að draga sig út allt frá því að Ríkislögreglustjóri ákærði Jón Ásgeir Jóhannesson og fimm aðra fyrir lögbrot í síðustu viku.

Hlutabréfamarkaðurinn lækkaði

Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði í dag í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bretlandi. Úrvalsvísitalan lækkaði mest um 2% innan dags en endaði daginn í 4154,18 stigum sem er 0,8% lækkun. Flest félög innan Úrvalsvísitölunnar lækkuðu mikið í kjölfar ódæðanna í morgun og lækkuðu mörg þeirra um 2-3% en lækkanirnar hafa svo að hluta til gengið til baka.

Stærstur í finnsku símafyrirtæki

Finnska símafyrirtækið Elisa Oyj vill sameinast Saunalahti Group Oyj, sem félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á stóran hlut í. Hefur félagið gert hluthöfum Saunalahti tilboð um að þeir fái einn hlut í Elisa fyrir 5,6 hluti í sínu félagi.

Kaupa meirihluta í ilmvatnssala

 L&H Group, móðurfélag Lyfja og heilsu, hefur ásamt samstarfsaðilum keypt ríflega 70 prósenta hlut í breska fyrirtækinu Per-Scent Group sem sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu ilmvatns. Kaupverðið er 42 milljónir punda eða tæpir fimm milljarðar króna

Methækkun á úrvalsvísitölunni

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 23 prósent fyrstu sex mánuði ársins sem er methækkun miðað við nágrannalöndin og á sama tímabili hefur heimsvísitalan lækkað. Annars skera Norðurlöndin sig úr varðandi hækkun því hún nam 20 prósentum í Danmörku, rúmlega 16 prósentum í Noregi og Finnlandi og tæpum 11 prósentum í Svíþjóð.

Milljarðalán til sparisjóðanna

Íbúðalánasjóður lánar bönkum og sparisjóðum milljarðana sem streyma inn vegna uppgreiðslna íbúðalána. </font /></b />

Kaupir 10% í norskum banka

Íslandsbanki hefur keypt tæplega tíu prósenta eignarhlut í Bank2 sem er nýstofnaður viðskiptabanki í Noregi. Bank2 mun sérhæfa sig í endurfjármögnun á skuldum einstaklinga og lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru í tímabundnum greiðsluerfiðleikum.

Nýtt blóðþrýstingslyf á markað

Actavis hefur sett nýtt samheitalyf á markað í Hollandi, Bretlandi og Svíþjóð samhliða því að einkaleyfi á lyfinu hefur runnið út. Lyfið sem um ræðir er blóðþrýstingslyfið Fosinopril sem framleitt er í tveimur styrkleikum í töfluformi.

Samskip kaupir Seawheel

Samskip hefur keypt breska skipafélagið Seawheel. Ársvelta sameinaðs fyrirtækis er 58 milljarðar króna, gámaflutningaskip eru 36 og starfsmannafjöldi 1550.

Óvíst með kaup á Somerfield

Í breskum fjölmiðlum í gær var sagt frá því að Baugur hafi boðist til að draga sig út úr viðræðum um kaup á bresku verslanakeðjunni Somerfield í kjölfarið á kæru Ríkislögreglustjóra. Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs segir þetta rangt.

Sögðu sig úr stjórn FL Group

Þrír stjórnarmenn í stjórn FL Group, sem rekur meðal annars Flugleiðir, sögðu sig úr stjórninni í gær vegna óánægju með störf Hannesar Smárasonar stjórnarformanns. Morgunblaðið greinir frá þessu og jafnframt að fjárfestingafélagið Saxsteinn hafi selt fjórðungshlut sinn í FL Group.

BNA komin niður í 4.-5. sætI

Bandaríkin eru komin niður í fjórða til fimmta sæti yfir þýðingarmestu útflutningsmarkaði Íslendinga, samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Bretland er þýðingarmesti markaður okkar með 18 prósent, Þýskaland næst með 16 prósent, Holland í þriðja sæti með 13 prósent og svo koma Norðurlönd og Bandaríkin næst með níu prósent hvort svæði.

Skipt um alla nema Hannes?

Búist er við að skipt verði um alla stjórnarmenn í FL Group, nema stjórnarformanninn, á væntanlegum hluthafafundi. Þrír stjórnarmenn sögðu sig úr stjórninni í gær, m.a. vegna ágreinings við stjórnarformanninn um reksturinn og hlutaféð á bakvið hina þrjá hefur verið selt.

Glannaskapur í rekstri FL Group

Glannaskapur í rekstri fyrirtækisins er ástæða þess að þrír stjórnarmenn FL Group sögðu sig úr stjórninni í gær. Deilt hefur verið um hvernig haga skuli rekstrinum en hluthafafundur hefur verið boðaður þann 9. júlí næstkomandi.

Finnskur banki í sigtinu

Kaupþing banki hefur keypt tæplega tveggja prósenta hlut í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo og er þar með þriðji til fjórði stærsti hluthafinn.

Nýtt lyf á markað í Þýskalandi

Actavis hefur sett nýtt samheitalyf á markað í Þýskalandi í gegnum dótturfélag sitt, Medis. Er það blóðþrýstingslyfið Benazepril Hydrochlorothiazide sem framleitt er í töfluformi. Er búist við að lyfið verði mikilvæg viðbót við lyfjasafn Actavis.

Sjá næstu 50 fréttir