Milljarðalán til sparisjóðanna 6. júlí 2005 00:01
Íbúðalánasjóður hefur lánað bönkum og sparisjóðum allt að áttatíu milljarða króna. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur stærsti hluti lánanna farið til sparisjóðanna til að fjármagna íbúðalán þeirra til viðskiptavina. Íbúðalánasjóður fær svo veð í íbúðalánunum en sparisjóðirnir, og í einhverjum tilvikum viðskiptabankarnir, sjá um innheimtu lánanna og þjónustu. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að þessir lánasamningar hefðu ekki verið neitt leyndarmál og kæmu fram í ársreikningi 2004. Það hafi þurft að bregðast við miklum uppgreiðslum íbúðalána með því að finna ný verkefni fyrir peningana. Þeir verði ekki geymdir undir koddanum. "Við höldum áfram að safna peningum, sem við komum ekki út í ný útlán þótt útlánin hjá okkur séu líka mjög mikil," segir Guðmundur. Aðspurður hvort Íbúðalánasjóður sé að fara út fyrir verksvið sitt með þessu segir Guðmundur svo ekki vera. "Við höldum áfram að gegna okkar hlutverki sem lánveitandi eins og lög og reglugerðir kveða á um," svarar hann. Sjóðurinn sé bundinn af hámarkslánum og öðru sem tilgreint sé í lögum. Þó sé engin óskastaða uppi í ljósi mikilla uppgreiðslna. "Við lendum í því að verja stöðu sjóðsins, eiginfjárhlutfall og passa uppá að fjárstreymi milli inn- og útlána sé í jafnvægi. Við verðum að finna því einhvern farveg. Það er hluti sem fellur undir þau lagaákvæði sjóðsins sem fjalla um fjárhag og áhættustýringu." Guðmundur segir þetta því tvö aðskilin hlutverk; annað er að vera í útlánastarfsemi og hitt er að verja stöðu sjóðsins svo ekki reyni á ríkisábyrgðina. Þeir sem Markaðurinn talaði við innan viðskiptabankanna í gær voru ekki sáttir við þessa stefnu Íbúðalánasjóðs. Í máli þeirra kom fram að sjóðurinn væri að auka hlutdeild sína í íbúðalánum á markaðnum, í gegnum sparisjóðina, í skjóli ríkisábyrgðar. Slíka ábyrgð hefðu bankarnir ekki, sem væru í samkeppni við Íbúðalánasjóð. Fannst þeim eins og sjóðurinn væri kominn út fyrir verksvið sitt.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira