Fleiri fréttir

Nýtt boð styrkir stöðu Íslandsbank

Íslandsbanki hefur hækkað boð sitt til hluthafa Bolig og Næringsbankans í Noregi. Íslandsbanki bauð upprunalega 320 krónur á hlut í bankanum, en hækkaði í gær boð sitt í 340 krónur á hlut. Með hærra boði tryggði Íslandsbanki sér stuðning 14 prósent hlutahafa í viðbót við þau 46 prósent sem þegar höfðu samþykkt.

Jón stjórnarformaður Magasin du N.

Jón Ásgeir Jóhannesson verður nýr formaður stjórnar dönsku verslunarkeðjunnar Magasin du Nord. Tillaga um nýja stjórn fyrirtækisins var kynnt í dönskum fjölmiðlum í morgun. Samkvæmt henni taka fimm Íslendingar sæti í stjórn þessarar rótgrónu 136 ára gömlu dönsku verslunarkeðju.

Kaupin á Kredittbanken samþykkt

Norska fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup Íslandsbanka á norska bankanum Kredittbanken og á Íslandsbanki nú tæplega hundrað prósent í honum. Kredittbanken er ekki stór banki í Noregi en eins og fram er komið er Íslandsbanki líka að reyna að eignast BN bankann í Noregi sem er fjórði stærsti viðskiptabanki þar í landi.

Tilboði Baugs verði tekið

Stjórn bresku verslunarkeðjunnar Big Food Group ætlar að leggja til að tilboði Baugs í keðjuna verði tekið, jafnvel þótt það hafi verið lækkað umtalsvert frá upphaflega tilboðinu. Baugur bauð upphaflega 110 pens á hlut en eftir að hafa skoðað bókhald keðjunnar nánar var tilboðið lækkað niður í 95 pens á hlut.

Verðhugmyndir upp á 40 milljarða

Baugur komst skrefinu nær því að eignast breska stórfyrirtækið Big Food Group í dag. Stjórn fyrirtækisins lýsti því yfir opinberlega að kæmi tilboð upp á 95 pens á hlut yrði mælt með því og er Baugi gefinn frestur til 17. desember til að gera formlegt tilboð. Verðhugmyndirnar eru sem sagt rúmlega 40 milljarðar króna.

Ríkið eignast Landsvirkjun

Ríkið eignast hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun á næsta ári gangi áætlanir sérstakrar eigendanefndar eftir. Hlutur Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun er að minnsta kosti þrjátíu milljarða króna virði. Samkvæmt heimildum fréttastofu gera áætlanir ráð fyrir því að Landsvirkjun verði að fullu komin í eigu ríkisins um þarnæstu áramót. 

Óvissa háir útveginum

Óvissa um pólitísk afdrif kvótakerfisins eru meðal ástæðna þess að sjávarútvegsfyrirtækjum í Kauphöll Íslands hefur fækkað hratt á síðustu árum. Þetta segja sérfræðingar sem ávörpuðu ráðstefnu Kauphallarinnar í gær.

Gengið sterkt

Gengi íslensku krónunnar hefur ekki verið sterkara síðan í lok ársins 2000. Gengisvísitala krónunnar var 118 við lokun markaða í gær. Þetta er lægsta gildið frá því 6. nóvember árið 2000.

Bankarnir höfðu samráð

Viðskiptabankarnir höfðu samráð í fyrra um að hámarkslán til íbúðakaupa mætti ekki fara yfir 12 milljónir króna, annars væri hætta á verulegri ofþenslu. Þeir sammæltust einnig um gjaldskrá. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur óeðlilegt að fjórir bankastjórar viðskiptabankanna sitji saman í stjórn Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.

Samið um verð á Big Food Group

Samstaða hefur náðst milli Baugs og stjórnar Big Food Group um verð fyrir breska fyrirtækið. Baugur náði að lækka verðið umtalsvert. Helstu hindrunum sem stóðu í vegi kaupa Baugs hefur með samkomulaginu verið rutt úr vegi. </font /></b />

Eignast meirihluta í BN-bankanum

Íslandsbanki hefur hækkað tilboð sitt í BN-bankann í Noregi og virðist hafa tryggt sér meirihluta hlutafjár, samkvæmt tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér í morgun. Þar segir að bankinn hafi nú þegar tryggt sér 46% hlutafjár og að hluthafar, sem ráði yfir 14% til viðbótar, ætli að samþykkja tilboð Íslandsbanka.

Fastir vextir LSR-lána lækka

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga hafa lækkað fasta vexti LSR-lána í 4,15%, frá og með deginum í dag. Eftir sem áður er ekki gerð krafa um fyrsta veðrétt, ekki er krafist uppgreiðslugjalds þó lán sé greitt upp að hluta eða öllu leyti fyrir umsamda gjalddaga og vaxtakjör lánanna eru ótengd öðrum viðskiptum.

Verðbólgan enn yfir markmiði SÍ

Verðbólga er nú meiri hér á landi en í helstu viðskiptalöndum og hefur frá því í maí verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, að því er fram kemur í markaðsyfirliti greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólgan mælist nú 3,8% samanborið við 2,5% á sama tíma í fyrra.

Lánin verða að hækka

Fasteignasalar búast við að útlánaþak Íbúðalánasjóðs hækki í minnst 13 milljónir króna um næstu áramót um leið og nýtt lánshlutfall upp á 90 prósent tekur gildi.

Samstarf vegna ljósleiðaravæðingar

Og Vodafone og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um samstarf vegna ljósleiðaravæðingar heimila og fyrirtækja í landinu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að samningurinn feli í sér að Og Vodafone kaupi 67,76% hlut Orkuveitunnar í Línu.Neti en á sama tíma kaupir Orkuveitan ljósleiðaralagnir Og Vodafone.

Latibær greiði í hlutabréfum

Latibær ehf. var í dag dæmdur til að greiða Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins hlutabréf í fyrirtækinu að nafnvirði rúmlega 300 þúsund krónur. Sjóðurinn byggði kröfu sína á 20 milljóna króna láni til Latabæjarverkefnisins en í lánssamningnum voru ákvæði um að sjóðurinn hefði heimild til að krefjast hlutafjár í stað endurgreiðslu lánsins.

Hollywood vill HD-DVD

Barátta stendur nú milli tæknifyrirtækja um hvað tækni skuli notuð við miðlun bíómynda. Tvær aðferðir hafa verið þróðaðar en talið er víst að aðeins önnur þeirra nái verulegri fótfestu.

Dalurinn fellur enn

Gengi Bandarikjadals heldur áfram að veikjast. Efnahagssérfræðingar telja að verðgildi dalsins kunni að halda áfram að veikjast á næstu misserum sökum þess að Bandaríkin búa við háan og viðvarandi viðskiptahalla.

Vodafone og OR í samstarfi

Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone, móðurfélag Norðurljósa og Fréttar, hefur keypt hlut Orkuveitu Reykjavíkur í Línu.neti og Orkuveitan hefur keypt ljósleiðarakerfi Og Vodafone.

VÍS kaupir Vörð

Vátryggingafélag Íslands hefur keypt Vörð Vátryggingafélag hf. og tekur við rekstri þess í dag. Kaupsamningar voru undirritaðir í gær og er kaupverðið trúnaðarmál. Seljandi Varðar er Hringur hf. en aðaleigandi þess félags er Baugur Group.

...eina litla teskeið pipar

Í dag voru bökuð og skreytt 2000 piparkökuhjörtu í Kringlunni af útskriftarnemum Hótel- og matvælaskólans. Tilefnið var Piparkökuhúsaleikur Kötlu sem nú er haldinn 12. árið í röð. Til mikils að vinna og börnin sérstaklega hvött til þess að taka þátt.

Hætta við sameiningu

Formenn stjórna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hugmyndum um sameiningu sjóðanna hefði verið frestað.

Slitnað gæti upp úr

Ekki er ólíklegt að stjórnendur Big Food Group slíti viðræðum um yfirtöku Baugs á félaginu. Mikill ágreiningur er um yfirtökuverð á félaginu en í kjölfar áreiðaneikakönnunar.

Vikuveltan 4,4 milljarðar

Íbúðarlán bankanna virðist hafa kynnt all hressilega undir fasteignamarkaðinn en veltan í viðskiptinum með húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur stóraukist. Samkvæmt morgunkorni greiningar Íslandsbanka var vikuveltan komin í 4,4 milljarða króna um miðjan mánuðinn en var um þrír milljarðar í lok ágúst.

Bók um hagfræði og tónlist

Ágúst Einarsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, hefur ritað bók um hagræn áhrif tónlistar á Íslandi.

Vilja nýjan úrskurð

Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) hafa áfrýjað úrskurði Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að fyrirhuguð níutíu prósenta lán á vegum sjóðsins standist samkeppnisreglur á Evrópska efnahagssvæðinu. Bankarnir draga í efa að ákvörðunin hafi verið rétt og benda á að staða Íbúðalánasjóðs sé einsdæmi miðað við nágrannalöndin.

Hagnaður Samherja 1,7 milljarðar

Hagnaður Samherja á þriðja ársfjórðungi nam 577 milljónum króna og það sem af er ári hefur félagið hagnast um 1,7 milljarða. Umfang félagsins hefur aukist mkið á milli ára meðal annars vegna kaupanna Cuxhavener Reederei í Þýskalandi.

Burðarás kaupir í Carnegie

Burðarás keypti í gær 10,4 prósent hlutafjár í sænska fjárfestingarbankanum Carnegie fyrir um sjö milljarða króna. Burðarás á eftir kaupin ríflega þrettán prósenta hlut í Carnegie og er orðinn stærsti einstaki hluthafi félagsins. Carnegie hefur áður komið við sögu íslenskra fjárfesta. Singer and Friedlander var stærsti einstaki hluthafi Carnegie með um 35 prósent. Sá hlutur var seldur skömmu eftir að KB banki keypti fimmtungshlut í Singer and Friedlander.

Engin áhrif á Kárahnjúkavirkjun

Forstjóri Landsvirkjunar segir ásakanir á hendur Impregilo á Ítalíu og verðfall hlutabréfa fyrirtækisins engin áhrif hafa á framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.

Mikill vöxtur gengisbundinna lán

Gengisbundin lán til heimila í landinu hafa vaxið með ógnarhraða síðastliðin tvö ár og er nú svo komið að erlend fjármögnun til bílakaupa er orðin ein af vinsælustu aðferðunum til að eignast nýjan bíl. Sömuleiðis hafa erlend lán til húsnæðiskaupa rutt sér til rúms, segja fjármálasérfræðingar KB banka.

Eimskip keypti upp HSH

Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutaféi í vöruflutningafyrirtækinu HSH í Vestmannaeyjum. Gert er ráð fyrir að rekstur félaganna verði sameinaður á næstu vikum og að starfsemi HSH í Vestmannaeyjum verði flutt í húsnæði Eimskips við Friðarhöfn í Vestmannaeyjum fyrir lok þessa árs. 

Ánægja með vaxtalækkunina

Bankarnir hafa lækkað vexti á íbúðalánum í 4,15 prósent. KB banki reið á vaðið í gær og lækkaði sína vexti og hinir bankarnir fylgdu í kjölfarið. Þetta gerðist eftir að Íbúðalánasjóður lækkaði vexti í 4,15 prósent á mánudaginn í samræmi við niðurstöður í útboði ríkisbréfa fyrir helgina.

Svikamylla í Skagafirði

Fyrrum stjórnarmaður Sparisjóðs Hólahrepps talar um svikamyllu, en nafni sjóðsins hefur verið breytt í Sparisjóður Skagfirðinga um leið og stofnfé var aukið í 88 milljónir og ný stjórn kosin. Minnihlutinn telur um yfirtöku tveggja peningavelda að ræða. </font /></b />

Vel heppnað útboð SÍF

SÍF hefur lokið sölu á nýju hlutafé að andvirði 20,2 milljarðar króna. Stærstur hluti nýja hlutafjárins var seldur til stærstu hluthafa félagsins sem höfðu skuldbundið sig til kaupa áður en til útboðsins kom.

Tap á rekstri Morgunblaðsins

Tap Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, nam 303 milljónum króna á síðasta ári samanborið við tæplega 50 milljóna króna hagnað árið áður, samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi félagsins fyrir árið 2003. Tap fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 217 milljónum króna, sem er 450 milljónum króna lakari afkoma en árið áður.

Grunur um bókhaldssvik

Hlutabréf ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo, sem er aðalverktaki Landsvirkjunar við Kárahnjúka, féllu um 37,5 prósent í gær í kjölfar rannsóknar yfirvalda á meintum bókhaldsbrotum fyrirtækisins. Impregilo er sakað um að hafa rangfært 296 milljón evra lán, 26 milljarða króna, til dótturfélags síns Imprepar sem er í gjaldþrotameðferð.

Íbúðalánasjóður af lánamarkaði

Samtök banka og verðbréfafyrirtækja eru ákveðin í að koma Íbúðalánasjóði af lánamarkaði og hafa kært þátttöku ríkisins á markaðnum til EFTA-dómstólsins í Brussel.

Bensín lækkar

Stóru olíufélögin lækkuðu verð á lítra af 95 oktana bensíni um eina krónu fyrir og um helgina.</font />

Íslandsbanki fylgir Íbúðalánasjóði

Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka vexti verðtryggðra húsnæðislána úr 4,2% í 4,15%. Ákvörðun er tekin í kjölfar þess að Íbúðalánasjóður lækkaði vexti á sínum lánum eftir síðasta útboð.

Stór samningur hjá Atlanta

Flugfélagið Air Atlanta hefur nýverið gengið frá samningum sem tryggja félaginu 165 milljón dala tekjur. Það samsvarar um ellefu milljörðum íslenskra króna.

Roche og deCode þróa lyf

Íslensk erfðagreining hefur tilkynnt um samstarf við lyfjafyrirtækið Roche til þriggja ára um þróun og markaðssetningu á lyfjum til að koma í veg fyrir og meðhöndla heilablóðfall og aðra æðasjúkdóma.

Tekjur minnka

Hagnaður HB Granda á þriðja ársfjórðungi nam rúmum 78 milljónum króna. Tap var af rekstri fyrirtækisins fyrstu níu mánuði ársins nam 29 milljónum króna. Rekstartekjur HB Granda námu 6,7 milljörðum króna, en tekjur forveranna HB og Granda voru samanlagt 7,4 milljarðar árið áður.

Hörð samkeppni

Hagnaður easyJet nam 60,8 milljónum punda eða 7, 5 milljörðum króna á tímabilinu apríl til september í ár. Þetta er minna en fyrir sama tímabil í fyrra, en þá nam hagnaðurinn tæpum tíu milljörðum fyrir sama tímabil. Afkoman var lítillega undir spám. Vaxandi samkeppni er markaðir lággjaldaflugfélaga og hefur þeim fjölgað verulega.

Vextirnir niður í 4,15%

Vextir af húsnæðislánum Íbúðalánasjóðs lækka í dag niður í 4,15% og eru vextirnir því komnir niður fyrir það sem bankarnir bjóða. Hallur Magnússon, hjá Íbúðalánasjóði, greindi frá þessu í þættinum Íslandi í bítið í morgun. Þá verður hámarks lánsupphæð hækkuð úr 11,5 milljónum upp í 13 milljonir um áramót og jafnvel meira.

Barist um íbúðalánin

Íbúðalánasjóður tilkynnti í gær um lækkun vaxta úr 4,30 í 4,15 prósent. Þar með eru íbúðalán á ný orðin ódýrari hjá Íbúðalánasjóði heldur en hjá bönkunum en þeir bjóða nú flestir 4,2 prósent vexti.

Sjá næstu 50 fréttir