Viðskipti innlent

Hætta við sameiningu

Formenn stjórna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hugmyndum um sameiningu sjóðanna hefði verið frestað. Fram kemur í tilkynningunni að mikil vinna hafi verið lögð í viðræður um sameningu og að þær viðræður hafi verið báðum aðilum gagnlegar. Hins vegar hafi niðurstaðan orðið sú að slík sameining væri ekki tímabær. Síðan tilkynnt var um sameiningarviðræður hefur töluverð breyting orðið í eignarhaldi á stofnfé í SPRON þar sem starfræktur hefur verið markaður með bréfin. Þessar breytingar munu hafa flækt samningaviðræðurnar auk þess sem ekki var ljóst hversu mikið hagræði yrði af sameiningunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×