Fleiri fréttir

KB banki býður íbúðarlán

KB banki býður nú lán til íbúðarkaupa eða endurfjármögnunar eldri lána. Íbúðalán KB banka bera 4,4 prósent fasta vexti og er lánshlutfall á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri áttatíu prósent af verðmæti hinnar veðsettu eignar en sextíu prósent annars staðar á landinu. Lánin eru verðtryggð og bjóðast til 25 eða 40 ára.

Meira virði en General Motors

Þrátt fyrir tómt klúður í aðdraganda þess að viðskipti hófust með hlutabréf bandarísku netleitarvélarinnar Google, var fyrirtækið meira virði en General Motors að loknum fyrsta degi viðskipta.

Góður hagnaður VÍS

Hagnaður samstæðu VÍS eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2004 nam 1.358 milljónum króna. Samstæða VÍS samanstendur af Vátryggingafélagi Íslands hf, Líftryggingafélagi Íslands hf , Áskaupum ehf, Flutningum ehf og Traustfangi ehf.

Vísitala byggingakostnaðar

Vísitala byggingakostnaðar hefur hækkað um 5,7 % á einu ári. Um miðjan ágúst var hún 302,1 stig og hækkar því um 0,13 % frá fyrra mánuði. Þessi vísitala gildir fyrir september.

Mun færri kjaramál til VR

Málum til meðferðar í kjaramáladeild VR fækkaði um 30% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Verslunarfélags Reykjavíkur. Á árunum 2001-2003 komu að meðaltali 600 mál til meðferðar í kjaramáladeild VR fyrri hluta árs en á þessu ári voru þau 422 eða 30% færri.

302 milljón hagnaður Síldarvinnslu

Hagnaður Síldarvinnslunnar hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2004 eru 302 milljónir króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er 1.299 milljónir króna eða 27,6% af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri nam 1.063 milljónum króna og handbært fé frá rekstri nam 679 milljónum króna.

Tetra einskis virði

Ný skýrsla frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kemst að þeirri niðurstöðu að fjarskiptafyrirtækið Tetra Ísland sé einskis virði og fyrirtækið í raun gjaldþrota. Tetra hefur átt í miklum greiðsluerfiðleikum en félagið rekur fjarskiptakerfi sem neyðarþjónusturnar á Íslandi notast við.

Áhyggjur af hagvexti í Evrópu

Hátt olíuverð gæti orðið til þess að hagvöxtur í Evrópu á næstu árum verði mun minni en spár gera ráð fyrir. Hagfræðingar telja að þótt Evrópa sé ekki eins viðkvæm fyrir hækkun á olíuverði og áður þá kunni mikil hækkun engu að síður að hafa neikvæð áhrif.

Verðbólgan hefur tvöfaldast

Verðbólga hér á landi mælist nú 2,8% og hefur hún nær tvöfaldast frá áramótum samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í morgun.

Spáð hækkandi bensínverði

Áhrifa hærra olíuverðs gætir hér á landi sem annars staðar og er spáð hækkun bensínverðs á næstunni, auknum viðskiptahalla og verðbólgu. Bensín og olía hefur ekki verið dýrari hér í meira en áratug.

Lífeyrissjóðir breyta ekki vöxtum

Vextir á lífeyrissjóðslánum eru að minnsta kosti 0,2 prósentustigum hærri en eðlilegt væri ef sjóðirnir hefðu tekið tillit til breytinga á húsnæðislánakerfinu 1. júlí síðastliðinn. Þetta þýðir að vaxtatekjur lífeyrissjóðanna eru allt að 180 milljónum krónum hærri á ári en ef miðað væri við nýju íbúðabréfin.

Hefur áhrif á íslenskt efnahagslíf

Stöðugt hækkandi olíuverð á heimsmarkaði hefur neikvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Það bæði dregur úr hagvexti og eykur verðbólgu. Engin verðlækkun er fyrirsjáanleg.

Með kjölfestu í Opnum kerfum

<font face="Helv">Hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hefur keypt ríflega þriðjungs hlut í Opnum kerfum Group. Seljendur eru Straumur fjárfestingarbanki, sem átti 27 prósent í Opnum kerfum, og Lífeyrissjóður sjómanna. Straumur er stærsti eigandi Kögunar. Gengið í viðskiptunum var 26,5.</font>

Þriðjungur tryggður

Íslandsbanki hefur keypt rúma eina milljón hluta í norska bankanum KredittBanken til viðbótar við það sem bankinn hafði áður keypt.  Eignarhlutur Íslandsbanka í KredittBanken er því nú um rúm níu prósent.

Tíu milljarða hagnaður

Samanlagður hagnaður KB banka og danska bankans FIH sem KB banki hefur tryggt sér kaup nam tæpum tíu milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Sá danski á hagnaðist um 3,8 milljarða íslenskra króna fyrstu sex mánuði ársins.

Atvinnuleysi lækkar lítið

Greiningardeild KB banka er undrandi á því hve lítið atvinnuleysi minnkaði á síðustu misserum þrátt fyrir kröftugan hagvöxt. Atvinnuleysi hefur haldist í um þremur prósentum þótt hagvöxtur sé á bilinu fjögur til fimm prósent.

Metur Actavis á 107 milljarða

Greiningardeild Landsbankans sendi í gær frá sér nýtt verðmat á lyfjafyrirtækinu Actavis. Landsbankinn mælir áfram með sölu á bréfum í Actavis og verðmæti félagsins á 107 milljarða króna.

Egilshöll seld

Fasteignafélagið Nýsir hefur keypt öll hlutabréf í Borgarhöllinni hf. sem á og rekur Egilshöll í Grafarvogi. Kaupverð er ekki gefið upp en eigendur Borgarhallarinnar fá meðal annars greitt í hlutafé og taka sæti í stjórn nýs félags sem mun sjá um reksturinn.

Enn óvissa um Google

Ekki er víst hvenær fjármálaeftirlitið í Bandaríkjunum heimilar eigendum Google að hefja útboð á hlutabréfamarkaði. Nokkur mál eru enn til skoðunar.

Sameinað færeysku óskabarni

Skipafélag Færeyja hefur verið sameinað Eimskipafélagi Íslands. Eimskipafélagið greiddi eigendum færeyska félagsins 100 milljón danskar krónur, rúmlega milljarð íslenskra króna.

Eimskip sameinast Faroe Ship

Öflugasta fyrirtækjasamsteypa í flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi hefur orðið til með sameiningu Eimskips og stærsta skipafélags Færeyja. Tilgangurinn er að efla þjónustu Eimskips á Norður-Atlantshafi.

Tveir þriðju þjóðar á mánuði

Flugleiðir hafa aldrei flutt jafn marga farþega í einum mánuði og í nýliðnum júlí. Farþegar Flugleiða voru 183 þúsund í mánuðinum. Farþegum í júlí fjölgaði um 23 prósent milli ára, en þeir voru 148 þúsund í fyrra.

Áhyggjur af hryðjuverkum

Hryðjuverkaógnin er nú talin helsta hindrunin í vegi hagvaxtar í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í könnun hagfræðinga sem kynnt var í gær.

Meira drukkið í blíðunni

Sala á áfengi jókst um sautján prósent, á föstu verðlagi, á milli júlí 2003 og júlí 2004. Almennt var sala á dagvörum tæplega sjö prósentum hærri en í fyrra.

Leggur engar línur

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að nefnd sem skoðar umhverfi íslensks viðskiptalífs hafi frjálsar hendur í starfi sínu og henni séu ekki lagðar neinar línur.

Burðarás of dýr

Greiningardeild Íslandsbanka telur að hlutabréf í Burðarási séu of hátt verðlögð um þessar mundir. Í nýju verðmati kemur fram að greiningardeildin telji félagið ríflega fjörutíu milljarða króna virði.

Hagnaður í samkeppni

<font face="Helv">Hagnaður Flugleiða, það sem af er ári var talsvert betri en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður annars ársfjórðungs nam rúmum 900 milljónum króna. </font>

Vísitala framleiðsluverðs hækkar

Vísitala framleiðsluverðs er 100 stig á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 1,9% á milli fjórðunga að því er greiningardeild Landsbankans greinir frá. Verðvísitala sjávarafurða hækkar um 1,1% á milli fjórðunga og önnur iðnaðarframleiðsla hækkar um 2,5%.

Hagnaður TM 208 milljónir

Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar á öðrum ársfjórðungi nam 208 milljónum króna samanborið við 173 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Greiningardeild KB banka gerði ráð fyrir 195 milljóna hagnaði á fjórðungnum og er hagnaðurinn því í góðu samræmi við væntingar.

Playboy viðtal veldur vanda

Enn virðist hlaupin ný snurða á þráðinn hjá netfyrirtækinu Google en hlutafjárútboð þess á bandarískum markaði hófst í gær. Félagið sat undir ámæli fyrir að hafa sniðgengið skráningarreglur vegna hlutafjáreignar starfsmanna fyrir skemmstu.

Bitnar á neytendum

Hækkun olíuverðs hefur minni bein áhrif á neytendur á Íslandi en víða annars staðar. Áhrifin á atvinnustarfsemi eru hins vegar svipuð. Kostnaðarauki lendir á endanum á neytendum.

Grænt ljós frá ESA á 90% lán

Eftirlitsstofnun EFTA gerir ekki athugasemd við íslenska húsnæðislánakerfið og gefur grænt ljós á 90 prósenta lán. Árni Magnússon gerir ráð fyrir að leggja fram frumvarp strax í haust. </font /></b />

Gerir tilboð í norskan banka

Íslandsbanki hefur gert tilboð í nítján prósent hlutafjár í norska smábankanum Kreditbanken sem þjónustar lítil og meðalstór fyrirtæki í Álasundi og nágrenni. Síðan stendur til að gera yfirtökutilboð en bankinn er metinn á þrjá og hálfan milljarð króna. Bankinn, sem er skráður í Kauphöllinni í Ósló, er tólf ára gamall og þar vinna 25 manns.

Og Vodafone kaupir Margmiðlun

Og Vodafone hefur gert samning um kaup á Margmiðlun fyrir 310 milljónir króna. Þar af er um helmingur greiddur með peningum en eftirstöðvarnar greiðir símafyrirtækið með því að gefa út nýja hluti til seljenda sem þeir mega selja Og Vodafone aftur eftir tvö ár.

TM hagnast um 208 milljónir

Tryggingamiðstöðin hagnaðist um 208 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Það sem af er ári hefur félagið hagnast um 1.301 milljón en á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 333 milljónir króna.

Tap hjá Medcare

Medcare Flaga tapaði 558 þúsund Bandaríkjadölum á öðrum ársfjórðungi. Það samsvarar tæpum fjörutíu milljónum íslenskra króna. Á fyrsta ársfjórðungi var tapið tæplega milljón dalir.

41 milljónar hagnaður

Opin kerfi group hagnaðist um 41 milljón á öðrum árfsjórðungi í ár. Afkoman er í samræmi við væntingar greiningardeilda þó tæplega 50 milljón króna afskriftir á eign í öðrum félögum sé hærri en þær gerðu ráð fyrir.

Gengi krónunnar lækkar

Gengi krónunnar hefur lækkað um hálft prósent frá upphafi mánaðarins að því er Íslandsbanki greinir frá. Mest af lækkuninni átti sér stað í gær en þá lækkaði gengið um 0,3%. Lækkunin kemur í kjölfar hækkunarhrinu sem stóð nær sleitulaust allan síðastliðinn mánuð eða frá því að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína í upphafi mánaðarins.

Torg ehf. kaupir Fróða

Torg ehf., fyrirtæki í eigu Prentsmiðjunnar Odda hf., hefur keypt öll hlutabréf í útgáfufyrirtækinu Fróða hf. og mun taka við rekstri Fróða hf. frá og með deginum í dag. Aðaleigandi Fróða hf., Magnús Hreggviðsson, hefur ákveðið að draga sig út úr útgáfurekstri.

Hagnaðist um 2,5 milljónir evra

Hagnaður Marels á öðrum ársfjórðungi nam 2,53 milljónum evra að því er greiningardeild KB banka greinir frá og er það töluvert yfir væntingum bankans. Hann gerði ráð fyrir 1,88 milljóna evra hagnaði á fjórðungnum sem er 34,6% undir réttri tölu.

Gamlir seldir sem nýir

Nokkuð er um að bílar sem seldir eru á Íslandi sem nýir séu í raun gamlir bílar sem staðið hafa óseldir erlendis jafnvel í nokkur ár. Þetta getur haft í för með sér vandamál þar sem bílar geta skemmst ef þeir standa óhreyfðir.

Gott gengi Marels

Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljón evra.

Landsbankinn blæs til sóknar

Landsbankinn blæs til sóknar í samkeppninni um viðskipti einstaklinga með því að bjóða upp á nýja leið til að tryggja afkomu fjölskyldunnar lendi hún í áföllum. Fréttastofan kynnti sér þetta útspil bankans í dag en í því felst meðal annars að möguleikar viðbótarlífeyrissparnaðar eru nýttir til fulls.

Aukið flug austur

Gríðarleg aukning hefur orðið á innanlandsflugi í sumar og segir Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, að enn sé búist við frekari flugumferð. "Við sjáum 15-18 % vöxt frá því á sama tíma í fyrra og aukningin er mest austur á landið."

Kaup KB banka á FIH tryggð

Eigendur 96,38% hlutafjár í KB banka tóku þátt í hlutafjárútboði bankans en því lauk á föstudag. Í boði voru 110.137.128 nýir hlutir á genginu 360 krónur (37,30 sænskar krónur). Söluverð þessara hluta nemur samtals tæplega 39,7 milljörðum króna. Forgangsréttarhafar skráðu sig fyrir mun fleiri hlutum en í boði voru.

Sjá næstu 50 fréttir