Viðskipti innlent

Tap hjá Medcare

Medcare Flaga tapaði 558 þúsund Bandaríkjadölum á öðrum ársfjórðungi. Það samsvarar tæpum fjörutíu milljónum íslenskra króna. Á fyrsta ársfjórðungi var tapið tæplega milljón dalir. Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir að reksturinn fari að skila hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Í gær var einnig tilkynnt um breytingar á stjórn félagsins. Lýður og Ágúst Guðmundssynir, oftast kenndir við Bakkavör, gengu í stjórnina. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að eftir þessar breytingar sé öll stjórnin skipuð fólki sem ekki er starfsmenn félagsins, í samræmi við stefnu Medcare um stjórnarhætti.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×