Fleiri fréttir

Réttilega lagðar undirstöður

Í lagaumhverfi orkubúskaparins eru slæmir brestir. Úrskurður sérstakrar matsnefndar um verðmæti vatnsréttinda sem nýta þarf vegna Kárahnjúkavirkjunar varpar nokkuð skýru ljósi þar á.

Var verið að skemmta sér?

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Rætt hefur verið fram og aftur um það hvort téður vínkælir kunni að eiga sök á uppivöðslusemi róna í miðbænum – og er þá væntanlega hugmyndin sú að kældur bjór geri rónana illskeyttari en til dæmis kardímommudropar eða Pierre Roberts í appelsíni.

Vatnsréttindin of lágt metin

Ekki kom á óvart að mat nefndar vegna eignaréttar á rennandi vatni, sem knýja skal virkjanir kenndar við Kárahnjúka og álver á Reyðarfirði, færi talsvert hærra en forstöðumenn Landsvirkjunar töldu sæmilegt að greiða. Þeirra hugmyndir um verðmæti vatnsréttinda sem þeir vilja komast yfir eru spaugsamar í meira lagi og hljóta að vekja almennan aulahlátur á stjórnarfundum Landsvirkjunar: Bjóðum bara túkall ha ha ha.

Öllum í hag

Í mannlífinu keppir fólk í margvíslegum leikjum, ekki nauðsynlega hvert við annað, heldur að einhverjum markmiðum. Leikjafræði (e. game theory) bregður þess vegna skæru ljósi á sum viðfangsefni okkar.

Blikkbeljan tamin

Fyrstu fríkortin í strætó voru afhent námsmönnum í gær. Má segja að þar með sé hafin alvöru tilraun til þess að draga Íslendinga út úr einkabílunum og koma þeim upp á lagið með að notfæra sér almenningssamgöngur.

Bankaskjálfti í Ameríku

Atkvæðisréttur í þingkosningum var í öndverðu bundinn við eignir manna og fór sums staðar eftir fjölda glugga á húsum þeirra. Hugsunin var þá sú, að eignamönnum einum væri treystandi fyrir stjórnmálum. Framsókn lýðræðisins í okkar heimshluta rauf þessi tengsl milli lýðréttar og auðs með því að veita eignaleysingjum atkvæðisrétt og önnur réttindi til jafns við auðmenn.

Menningarnótt og miðborgarótti

Menningarnótt hefur verið fastur liður um árabil og lífgað upp á líf íbúa og gesta höfuðborgarinnar. Í ár virðist hátíðin hafa tekist einstaklega vel og er það mikið fagnaðarefni.

Svona ætti að vera …

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Við ákváðum að skilja bílinn eftir í Hlíðunum og labba niður í bæ – taka svo strætó til baka. Við vorum hluti af innrásarhernum; fótgönguliðarnir úr nágrenni borgarinnar; komin í heimsókn til Reykjavíkur, og brýndum fyrir sjálfum okkur að fara nú ekki að spræna á neinar útihurðir …

Góðkynja vandi í miðborginni

Ef miðborgin er hjarta Reykjavíkur, þá er Reykjavík hjartveik; það er menningarslys ef húsin við Laugaveg 4 og 6 eru rifin; ástæða er til að óttast um líf sitt og limi að nóttu til um helgar í miðbænum.

Góðan dag Reykvíkingar

Hugmyndin um menningarnótt var innflutt eins og margt annað, reyndar dönsk. Hugmyndin var góð og hún hefur á liðnum árum veitt Reykvíkingum og nærsveitamönnum gleymda vissu sem var þarna undir að þeir búi í borgarsamfélagi, eigi miðbæ, eitthvert hjarta í byggðinni milli holta, mela og hálsa.

Öldurót lífs og dauða

Ég sit á veröndinni og horfi á öldurnar gjálfra í fjörunni. Ein af annarri velta þær upp í sandinn og svo fjara þær út. Eins og lífið. Eins og við manneskjurnar.

Ekki benda á mig

Frækileg framganga lögreglustjórans í langri grein í Mogganum hefur hleypt skyndilegu lífi í umræðuna um djöfulganginn í miðborg Reykjavíkur um helgar. Hefur lögreglustjórinn víða komið fram síðan og vitnar jafnan í grein sína í stað þess að hafa yfir hollráð sín um hvernig bæta megi bæjarbraginn í Kvosinni langar nætur helganna.

Já, já; nei, nei.

Smám saman berast fréttir af viðbrögðum sjávarútvegsfyrirtækja í kjölfar þorskverndunarinnar. Stærri fyrirtæki hafa um margt meira svigrúm til innbyrðis hagræðingar en þau minni. Þar koma vel í ljós kostir þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað liðna tvo áratugi.

Biluð sjónvörp

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Aðgerðir samtakanna í Kringlunni í sumar, þar sem meðlimir hoppuðu um í Hare-Krisna-fíling og einhver Ameríkani átaldi Kringlugesti fyrir neysluæði benda líka til þess að meðlimir samtakanna líti ekki á það fólk sem á Íslandi býr sem verðugt þeirrar stórbrotnu náttúru sem hér er. Markmið samtakanna virðist vera að bjarga Íslandi undan Íslendingum.

Frelsi og ábyrgð

Umræður um skrílmennsku hafa lengi verið hefðbundinn eftirleikur frídags verslunarmanna. Í mörg ár hefur slík umræða um Akureyri lýst lágreistum bæjarbrag um þessa hefðbundnu hátíðahelgi.

Stighækkandi tekjuskatt?

Helstu skattafræðingar stjórnarandstöðunnar, Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson, hafa nýlega birt okkur boðskap sinn, Indriði í opinberum fyrirlestri og Stefán í grein hér í blaðinu. Þeir gagnrýna báðir skattastefnuna frá 1991 og vilja stighækkandi tekjuskatt. Indriði segir það beint, en Stefán óbeint.

Akstur undir áhrifum er siðlaus

Akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna virðist illu heilli vera vaxandi vandamál í umferðinni. Aukinn fjölda þeirra sem teknir eru vegna fíkniefnaaksturs má að vísu að einhverju leyti skýra með nýjum aðferðum sem auðvelda lögreglumönnum að skera úr um brotin með tilkomu svokallaðra forprófa þar sem notuð eru svita- eða munnvatnssýni.

Smápústrar í miðbænum

Aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði þetta að segja í viðtali við DV 30. júlí: „Smápústrar sem þessir eru mjög algengir í miðbænum. ... Í dag linna menn ekki látum fyrr en fórnarlambið er annaðhvort meðvitundarlaust eða verulega illa farið.“

Hornsíli og hvalfiskar

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Óskhyggja frænda okkar í Danske Bank um efnahagshamfarir hér á landi og hrakspár þeirra í þá átt eru ólíklegar til að ganga eftir og þá tæpast nema í samhengi við kreppu á heimsvísu, en slíku hafa þeir ekki spáð.

Velkomnir í hópinn

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar Alþingis, eru boðnir velkomnir í hóp þeirra sem setja spurningarmerki við stöðu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði.

Velkomnir í hópinn

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar Alþingis, eru boðnir velkomnir í hóp þeirra sem setja spurningarmerki við stöðu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði. Um leið er þeim þakkað fyrir að halda lifandi umræðunni um þá ójöfnu stöðu sem sannarlega ríkir í samkeppni Ríkisútvarpsins við einkarekna fjölmiðla.

Perlum kastað fyrir svín

Hvað skyldi ég vera búinn að fara oft austur yfir Þjórsá? Þúsund sinnum? Eða oftar? Ég fór þangað í sveitina í Landeyjarnar forðum daga og í Þórsmörk og alla leið í Öræfin, ég fór með Ingólfi á Hellu í kosningaleiðangra austur fyrir fjall.

Orð sem féllu í skugga

Þegar iðnaðarráðherra talar er jafnan eftir því tekið. Nýlega lét hann þó orð falla um stjórnkerfi ríkisins sem minni athygli hafa vakið en þau verðskulda. Aldrei þessu vant er eins og orð hans um það efni hafi fallið í skugga annarra umræðuefna síðustu vikur.

Viðskiptatryggð kann að vera til trafala

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Skortur á samkeppni á bankamarkaði hér heima hefur verið viðvarandi stef í orðræðu bæði fræði- og stjórnmálamanna um alllangt skeið. Fjármálastofnanir hafa jafnan hafnað þessu og vilja meina að hér skorti ekkert á samkeppni, aukinheldur sem þjónustugjöld séu heldur lægri og þjónusta meiri en almennt gerist í bönkum á Norðurlöndum.

Sjá næstu 50 greinar