Fleiri fréttir

Óþarfa skortur á sjálfstrausti

Íslenskir bændur eiga skilið meira traust en ráðamenn þessa lands sýna þeim. Sú verndarstefna, sem hefur verið rekin hér af hverri ríkisstjórn á fætur annarri, ber vott um ákveðinn skort á sjálfstrausti fyrir hönd íslensks landbúnaðar.

Önnur nálgun

Ratsjárstofnun hefur í tvo áratugi annast einn þátt loftvarnareftirlits með mjög öflugu ratsjárkerfi. Starfsemin hefur verið snar þáttur í vörnum landsins. Bandaríkjamenn hafa greitt rekstrarkostnaðinn. Um miðjan næsta mánuð heyrir kostun þeirra á verkefninu hins vegar sögunni til.

Þrífast börnin best á misjöfnu?

Á misjöfnu þrífast börnin best,“ segir í gömlu íslensku máltæki sem enn á 21. öldinni virðist lifa góðu lífi. Þetta gamla máltæki lýsir enda nokkuð vel viðhorfi íslensku þjóðarsálarinnar til barna, eða í það minnsta viðhorfi sem hefur verið í fullu gildi til skamms tíma.

Fortíðin er geymd

Suður-Afríka ein stendur á bak við meira en þriðjung allrar framleiðslu Afríkulanda sunnan Saharaeyðimerkurinnar. Hlutfallið hefur haldizt stöðugt síðan 1960, en það hefur þó farið heldur lækkandi síðan 1985.

Aðstæður geta breyst

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Íslenskt hagkerfi er örugglega betur í stakk búið nú til að takast á við neikvæða umræðu á borð við þá sem fór af stað á fyrri hluta síðasta árs.

Áfengi og vextir

Pólitísk umræðuhefð á Íslandi kallar ekki á að orðum fylgi ábyrgð. Meira er um vert að þau veki athygli. Hún er oftar en ekki sett skör hærra en ábyrgðin sem að baki býr. Tvö nýleg dæmi segja sína sögu um þetta.

Ómetanleg saga af litlum hundi

Jón Kaldal skrifar

Hlín Agnarsdóttir leikskáld og Haraldur Ólafsson veðurfræðingur voru í bráðskemmtilegu spjalli í Fréttablaðinu í gær. Meðal þess sem bar á góma var fréttaflutningur af kjölturakkanum Lúkasi, sem er orðinn þjóðþekktur fyrir meintan skelfilegan dauðdaga, upprisu og almennar píslir sem mál hans hefur leitt yfir alla sem koma við sögu.

Strákur sem galdrar börn að bókum

Síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter kemur út í dag. Þar með er endahnútur bundinn á sögu þessa óvenjulega drengs sem kynntur var í fyrstu bókinni fyrir tíu árum, drengsins sem með töframætti sínum fékk milljónir barna til að hverfa inn í ævintýraheim bókarinnar sem mörg þeirra hefðu líklega ekki kynnst ella.

Þegar Einar Oddur er allur

Við heilsuðumst kurteislega og kankvíslega í vor, þegar sumarþingið tók til starfa. Það var alltaf blik í augunum á honum Einari Oddi, prakkaraskapur, glettni. Bros.

Slæm samheldni

Umræður um nýja eigendur Hitaveitu Suðurnesja hafa kallað fram ólíkt pólitískt tungutak. Hugtakið einkavæðing er helsta bitbeinið. Í ljósi þess að hér er að stærstum hluta til um einokunarrekstur að ræða er eðlilegt að spurningarmerki séu sett um einkavæðingu.

Sparisjóðirnir þurfa að breytast

Óli Kristján Ármannsson skrifar

SPRON hefur upplýst um fyrstu skref stjórnar sjóðsins í þá átt að breyta honum í hlutafélag. Stórfelldar breytingar hafa átt sér stað á bankamarkaði hér á örfáum árum þar sem smábankar hafa breyst í alþjóðlegar fjármálastofnanir.

Sjúkraflutningar í ólestri úti á landi

Líf og heilsa getur beinlínis oltið á því hvar á landinu maður er staddur þegar hann veikist eða verður fyrir slysi. Ljóst er að mikill misbrestur er á sjúkraflutningaþjónustu sums staðar á landinu.

Eftir hverju er verið að bíða?

Nú í júlí eru rétt tvö ár liðin frá því að skattheimta af dísilolíu var einfölduð. Þungaskattur var felldur niður og í hans stað var olíugjaldið hækkað. Eitt af yfirlýstum markmiðum breytinganna var að fjölga dísilbílum í fólksbílaflota þjóðarinnar. Fyrir vikið átti bílaflotinn að gefa frá sér minna magn gróðurhúsalofttegunda og þar með verða umhverfisvænni.

Bréf til Einars Más

Kæri Einar Már Jónsson! Þar sem þú situr úti í París, hefur þú skrifað bók gegn frjálshyggju, Bréf til Maríu. Þú hefur augljóslega hugsað þér að skrifa nýtt Bréf til Láru. En þú ert enginn Þórbergur.

Hungraðir fuglar

Mikill uppgangur máva hefur verið í höfuðborginni og víðar um landið þetta sumar og árið í fyrra. Sést hefur til þeirra á ótrúlegustu stöðum, jafnvel uppi við Heklu þar sem mikið er af ormi í mosanum. Má rekja ferðir þeirra til þess að lítið er af sandsíli í sjónum sem er helsta fæða mávanna sem að öllu jöfnu halda sig niðri við sjóinn, enda er mávurinn strandfugl.

Þrefaldur skaði

Fólk er ólíkt að upplagi, það blasir við. Um hitt geta menn deilt, hvort þjóðir eru einnig ólíkar að eðlisfari. Sumir hallast að þeirri skoðun, að skyldar þjóðir hljóti allar að vera eins inn við beinið samkvæmt einfaldri meðaltalsreglu.

Róttæk hugsun

Eftirspil sölu ríkisins á hlut í Hitaveitu Suðurnesja hefur opnað áhugaverða umræðu. Annars vegar hefur verið á það bent að brýnast sé að verja almannahagsmuni að því er varðar öflun og dreifingu á rafmagni og hita. Staðhæft er að opinber rekstur tryggi bæði þjónustu­öryggi og lægsta mögulega verð.

Blönduóslögreglan vísar veginn

Lögreglan á Blönduósi hefur um árabil mátt þola illt umtal vegna rösklegrar framgöngu við vegaeftirlit. Þó vill svo til að þeir sem hafa horn í síðu þessara samviskusömu laganna varða eru fyrst og fremst bílstjórar sem aka yfir löglegum hámarkshraða.

Tökum okkur tak

Sú áherzla á efld tengsl Íslands við Afríku, sem kom fram í nýafstaðinni Afríkuferð utanríkisráðherra, er rétt og æskileg. Í Afríku eru mörg af fátækustu og vanþróuðustu löndum heims, sem þurfa mest á því að halda að hinar aflögufærari þjóðir heims leggi þeim lið í að komast á framfarabraut.

Er þögn sama og samþykki?

Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir naugðun á stúlku á Hótel Sögu olli talsverðum titringi þar sem mörgum þótti sannað að naugðun hefði átt sér stað. Atli Gíslason lögmaður var meðal þeirra sem sýndi viðbrögð við dómnum og sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudagskvöldið að dómurinn væri skelfilegt afturhvarf til fortíðar.

Rétt

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið heildarafla næsta fiskveiðiárs. Athugasemdir um þá ákvörðun geta í sjálfu sér falist í því eina orði sem gjarnan er ritað á villulausar prófúrlausnir: Rétt.

Ef maður getur haldið sér vakandi

Það þarf þrekmenni til að sitja ráðstefnur. Sérstaklega ef þær eru stórar og langvarandi. Ég var nærri búinn að gleyma þessari lífsreynslu minni, þangað til að ég var sendur sem fulltrúi Alþingis á þing Evrópuráðsins í Strassbourg ásamt með alþingismönnunum Guðfinnu Bjarnadóttur og Steingrími J. Sigfússyni.

Hefur áhrif á væntingarnar

Staðreyndin er sú og það hefur komið fram í gagnrýni Seðlabankans og alþjóðastofnana að það er fordæmi ríkisins og inngrip á húsnæðismarkaði sem hvetur hann áfram og kyndir undir hækkun fasteignaverðs með tilheyrandi hækkunum.

Ráðherra kominn úr fríi

Þeir sem vinna í heilbrigðisgeiranum kunna sínum nánustu hollráð: ekki veikjast að sumri til, og alls ekki á föstudögum eða um helgar. Sjúkrastofnanir um allt land eru þá fáliðaðar af vönu fólki, margir í fríi, bekkurinn þunnskipaður af vönum höndum og þjálfuðum huga.

Börn engin fyrirstaða

Einn munurinn á ríkum þjóðum og fátækum er sá, að ríku þjóðirnar hafa meiri fjárráð. Fleira hangir þó á spýtunni en fjárráðin ein. Annar munur á ríkidæmi og fátækt er sá, að fólk í ríkum löndum lifir jafnan lengi í litlum fjölskyldum og fólk í fátækum löndum lifir stutt í stórum fjölskyldum.

Þróun eða stöðnun

Sú var tíð að það var talið ýmsum stjórnmálamönnum til vegsauka og virðingar að gefa sérfræðingum fyrir sunnan langt nef. Sérstaklega gaf þetta góða raun þegar fiskifræðingar áttu í hlut. Af yfirlýsingum sjávarútvegsráðherra verður ekki ráðið að hann ætli að láta ímyndarvanda af þessu tagi rugla sig í ríminu við ákvörðun heildarafla enda þunnur þrettándi í nútímapólitík.

Risaveldi í kreppu

Bandaríkjamenn, voldugasta þjóð heims, halda upp á þjóðhátíð sína á morgun, 4. júlí, er rétt 231 ár verða liðin frá því Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði.

Lastaskattar í þágu góðra mála

Það eru iðjuleysingjar sem spila póker upp á pening. Hinir sem þiggja peningaverðlaun eða verðmæta vinninga fyrir góðan árangur í bridds eða skák eru taldir afreksmenn og njóta velþóknunar.

Sjá næstu 50 greinar