Fleiri fréttir

Taumlaus óráðsía skólabarna, unglinga, bókaorma, siglinga- og sundfólks

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Hvað eiga skátar skólabörn, unglingar, bókaormar, siglinga- og sundfólk sameiginlegt? Jú þetta lið er að ríða rekstri Reykjavíkurborgar á slig ef marka má sparnaðartillögur meirihluta borgarstjórnar. Þau eru hin breiðu bök sem hagræðingarsvipan er nú látin ganga á.

Húrra fyrir evrópskri kvik­mynda­gerð!

Hrönn Marinósdóttir skrifar

Það er mikið fagnaðarefni að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin séu haldin á Íslandi í ár og ástæða er til að hrósa stjórnvöldum fyrir að leggja í þá vinnu og fjármögnun. Verðlaunin eru stórviðburður og verða afhent, eins og kunnugt er, í Hörpu næsta laugardag að viðstöddu stórskotaliði evrópskrar kvikmyndaframleiðslu. Sýnt verður frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu á RÚV og um alla Evrópu.

Gráttu eins og karl­maður

Stefanía Arnardóttir skrifar

Í harðneskjulegri veröld bælast tilfinningar og í þessum bældu tilfinningum fær tilfinningaleysið að blómstra. Líf mannsins einkennist þá af þroskaleysi, minnimáttarkennd og þeirri innbyggðu reiði sem hóf mótun sína á barnæsku árunum.

Von­brigði fyrir starfs­stétt sauð­fjár­bænda

Þuríður Lillý Sigurðardóttir skrifar

Það sat þungt hugsi og mjög vonsvikinn ungur bóndi við morgunverðarboðið fyrr í vikunni eftir að hafa lesið grein matvælaráðherra í nýjasta tölublaði Bændablaðsins. Greinin bar fyrirsögnina „Bjartsýni í sauðfjárrækt“ en skyldi eftir fleiri spurningar en svör.

Villuljós í Vikulokum

Þórarinn Eyfjörð skrifar

Það var áhugavert að hlusta á kunnuglega orðræðu Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um launaþróunina í útvarpsþættinum Vikulokunum á Rás 1 sl. laugardag. Þar ræddi oddvitinn um hvernig hún vill skerða þjónustu Reykjavíkurborgar, skerða réttindi opinbers starfsfólks og ná þannig fram hagræðingu í fjármálum borgarinnar. 

Flótta­manna­hjálp í til­vistar­kreppu – Vafa­söm starf­semi UN­RWA

Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Það vakti nokkra athygli í fyrra þegar bæði Íran og Pakistan tóku sæti í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (e. The Commission on the Status of Women). Þessi ríki eru hreint ekki þekkt fyrir að virða kvenréttindi, sérstaklega ekki í ljósi langvarandi mótmæla í Íran að undanförnu. Útnefning þessara ríkja er því miður ekki einsdæmi.

Við erum marg­breyti­leikinn í eins­leitu sam­fé­lagi. Til hamingju með al­þjóða­dag fatlaðs fólks!

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar

Í dag, á alþjóðadegi fatlaðs fólks, fögnuðum við tilnefndum einstaklingum og veittum Hvatningarverðlaun ÖBÍ til verkefnis sem stuðlar að einu samfélagi fyrir öll og endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. Þessi dagur er okkur öllum hvatning til að gera samfélag okkar betra, aðgengilegra og skilningsríkara, að skapa samfélag þar sem við öll njótum jöfnuðar og réttlætis.

Brjótum niður múra – alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks í dag

Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar

Alþjóðadagur fatlaðs fólk verður haldinn hátíðlegur um allan heim í dag 3. desesember. Yfirskrift dagsins í ár eru Umbreytandi lausnir í inngildandi þróun: hlutverk nýsköpunar í átt til aðgengilegs og jafns heims.

Er skilningur á mikil­vægi réttinda­gæslu fatlaðs fólks?

Anna Kristín Jensdóttir skrifar

Árið 1938 voru lög um stéttarfélög samþykkt. Það var talinn mikil lyftistöng fyrir vinnumarkaðinn þar sem nú fékk launafólk talsmenn sína til að tala hagsmunum sínum, þjónustu og réttindum í tengslum við vinnu.

Hundrað tonna hamingjusprengja

Birna Guðný Björnsdóttir skrifar

Ég ákvað að fara mjög markvissa leið í leit minni að tilgangi lífsins og hamingjunni. Ég ákvað að huga vel að líkama, hug og sál. Mig grunaði alltaf að hamingja mín yrði ekki eingöngu staðsett innan kassans, í fyrirfram skilgreiningum annarra á því hvar hamingjuna mætti finna.

Aukið aðgengi fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Í dag höldum við hátíðlegan alþjóðlegan dag fatlaðs fólks sem ætlað er að stuðla að aukinni þekkingu og skilningi á málefnum fatlaðs fólks. Í ár er sérstök áhersla á hlutverk nýsköpunar við að ýta undir aðgengilegan og sanngjarnan heim.

Á­róðurinn gegn Evrópu­sam­bandinu á Ís­landi

Jón Frímann Jónsson skrifar

Á Íslandi er rekinn skipulagður og vel fjármagnaður áróður gegn Evrópusambandinu. Þeir sem reka þennan áróður eru ríkir einstaklingar sem eru yst í hægri stjórnmálum.

Á mannúð heima í stjórnmálum?

Gísli Rafn Ólafsson skrifar

Það að sýna mannúð er að sýna umhyggju fyrir öðrum, sér í lagi gagnvart þeim sem eru í erfiðum aðstæðum. Á hverjum degi sýnum við flest mannúð gagnvart fjölskyldumeðlimum okkar og stundum jafnvel gagnvart fólki sem við þekkjum ekki neitt.

Ræður raf­orku­kerfið við orku­skipti?

Haukur Ásberg Hilmarsson og Kristinn Arnar Ormsson skrifa

Hvernig borðarðu fíl? Með því að taka einn bita í einu. Það segir að minnsta kosti máltæki sem kennt er við Desmond Tutu. Spekin á vel við þegar kemur að flestum stórum verkefnum líkt og metnaðarfullum áætlunum um orkuskipti.

Lykillínur í orku­skiptunum

Steinunn Þorsteinsdóttir skrifar

Örugg afhending raforku er og hefur alltaf verið gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkur Íslendinga. Með lagningu byggðalínunnar fyrir fimmtíu árum batnaði aðgengi að raforku til muna en kerfið er nú undir sívaxandi álagi og margar af þeim línum sem tilheyra byggðalínuhringnum komnar á tíma.

Auðgandi við­skipta­módel

Harpa Júlíusdóttir skrifar

Um þessar mundir er náttúran að senda okkur skýr skilaboð um að yfirfærslan úr línulegu hagkerfi í öflugt hringrásarhagkerfi sé óumflýjanleg. Innan hringrásarhagkerfis höldum við auðlindum innan hringrásar bæði í framleiðslu og neyslu og stuðlum að tækniþróun og nýsköpun sem gera okkur kleift að nýta betur allar okkar auðlindir.

Getur þú ekki bara harkað þetta af þér?

Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar

Ánægjulegt og langþráð skref var stigið nú í vikunni þegar Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti samning sem Sjúkratryggingar Íslands hafa gert við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Samningurinn kveður á um að þær sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs að aðgerðum.

Gleði­legan full­veldis­dag

Kristrún Frostadóttir skrifar

Gleðilegan fullveldisdag! Ísland varð fullvalda ríki þann 1. desember árið 1918. Það var stór stund á hörðum vetri. Fundurinn sem fór fram við stjórnarráðshúsið á þessum degi hefur yfir sér goðsagnablæ í sögubókunum.

Full­veldið er hjá þjóðinni

Katrín Oddsdóttir skrifar

Góðir landsmenn. Til hamingju með fullveldisdaginn, 1. desember. Ísland varð fullvalda ríki 1918. Því hefur verið fagnað árlega ávallt síðan. Svo er það fullveldi þjóðarinnar, fullveldi fólksins í landinu.

Frelsið til þess að ráða eigin málum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Við minnumst þess í dag að 104 ár eru liðin frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Þann 1. desember 1918 endurheimtu Íslendingar loks frelsi sitt eftir að hafa lotið stjórn erlendra ríkja í rúmlega sex og hálfa öld. Þetta var uppskera frelsisbaráttu þjóðarinnar sem háð hafði verið áratugina á undan.

Lands­réttar­­málið tveimur árum seinna

Haukur Logi Karlsson skrifar

Á fullveldisdaginn, 1. desember, eru tvö ár liðin frá dómi yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu svokallaða. Í málinu var lagt mat á hvort við frumskipun dómara í Landsrétti hefði verið gætt að þeirri kröfu Mannréttindasáttmála Evrópu að skipan dómsvaldsins væri ákveðin með lögum.

Er Seðla­banka­stjórninni sjálf­rátt?

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Eins og þeir vita, sem lesa mínar greinar, hef ég undanfarna mánuði gagnrýnt Seðlabanka harðlega fyrir stefnu bankans í stýrivaxtamálum, sem ég hef talið vera út í hött; alvarlegan afleik í taflinu gegn verðbólgu og stórfellt óréttmæti gagnvart skuldurum landsins.

Brjálað að gera í des?

Friðrik Agni Árnason skrifar

Jólavísan um Jólastressið verður ekki of oft kveðin. „Já hittumst áður en allt verður svo brjálað í des!“ Hve oft hef ég heyrt eitthvað í þessum dúr undanfarið, nú eða sagt sjálfur. Ég velti því fyrir mér hvað þetta þýðir. Þetta er því skrifað til míns sjálfs og til ykkar sem tengja.

Orðum fylgir á­byrgð

Sigrún Arnardóttir skrifar

Undanfarið hefur persónuleikaröskunin Narsisimi mikið verið í umræðunni og er það af hinu góða. Röskunin er talin með þeim alvarlegri og einna mest eyðileggjandi sem fyrir finnst en afleiðingar þess að vera í nánum samskiptum við narsisista geta haft í för með sér mikinn sálrænan skaða.

Dýr­mætasta gjöfin

Unnur Arna Jónsdóttir,Hrafnhildur Sigurðardóttir og Ingrid Kuhlman skrifa

Í Brennu-Njálssögu sagði Gunnar á Hlíðarenda við Njál á Bergþórshvoli: „Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinna.“ Hamingjurannsóknir hafa einmitt sýnt að góð, nærandi og gefandi tengsl eru stærsti einstaki þátturinn þegar kemur að hamingjunni.

Sjá næstu 50 greinar