Fleiri fréttir

ESB ákveður leyfilegan heildarafla

Þorvarður Kjerulf Sigurjónsson skrifar

Ef til inngöngu Íslands í Evrópusambandið kæmi yrði sú meginbreyting á umhverfi íslenska kvótakerfisins að ákvarðanir um leyfilegan heildarafla íslenskra útgerða yrðu teknar af ráði landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ESB-ríkjanna í Brussel. Í þessu fælist framsal á valdi sem íslenska ríkið fer með í dag.

Tvöfaldur trúnaðarbrestur

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambandið (ASÍ) ræða nú saman um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hvort til greina komi að segja þeim upp í janúar, eins og heimilt er að gera. Fyrir liggur að ýmsar forsendur kjarasamninganna hafa ekki staðizt. Kaupmáttur hefur aukizt lítillega en forsendur um verðbólgu, gengi krónunnar og fjárfestingar í atvinnulífinu hafa ekki haldið.

Já, þú varst að vekja mig

Ég lærði nýtt hugtak í dag, póstfeminískt „móðurhlutverksblæti“. Ég er 36 ára og er að ljúka mínu þriðja, og vonandi síðasta, fæðingarorlofi. Eftir að dóttir mín fæddist í maí á þessu ári hafa tilfinningar og hugsanir um samfélagslegar væntingar til móðurhlutverksins orðið sífellt ásæknari.

Vei kirkja, svei kirkja

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar

Heimsóknir leikskóla- og grunnskólabarna í kirkjur hafa verið nokkuð til umræðu í fjölmiðlum á þessari aðventu. Því ber að fagna. Sátt um sambúð ólíkra hefða í samfélaginu hefst með hreinskiptinni umræðu. Það á sérstaklega við ef við sem tökum til máls erum vel upplýst og sýnum hvert öðru þá virðingu að fara með rétt mál. Vissulega getur það verið vandasamt því eins og við vitum vill veruleikinn gjarnan vera flókinn. Þá hættir okkur til að opinbera eigin fordóma þegar við tjáum okkur um eigin menningu og annarra, sér í lagi þá þætti menningar sem þykja á hverjum tíma viðkvæmir. Hvað vill djákninn upp á dekk?

Er Reykjavík ljót, döpur, leiðinleg og vanþroskuð?

Arkitektúrinn í Reykjavík er víða hryllilega ljótur og þunglyndislega fráhrindandi. Og skipulagið morandi í óafturkræfum byggingarslysum sem bera vitni um aumkunarverðan skort á fagurfræðilegu skynbragði. Og nú stendur til að bæta enn fleiri forljótum slysum á listann.

Loftslagsvandinn kallar á þátttöku kvenna

Áhrif loftslagsbreytinga koma misjafnt niður á samfélögum og þjóðfélagshópum. Loftslagsbreytingar hafa líka ólík áhrif á kynin. Þetta á sérstaklega við í fátækari ríkjum, þar sem konur bera meginábyrgð á því að afla eldiviðar og drykkjarvatns fyrir heimilin og sinna bústörfum í meiri mæli en karlar. Þetta eru verk sem loftslagsbreytingar gera þyngri.

Fræðsla á milli menningarheima

Aðgengi að þekkingu er í dag orðið auðveldara en nokkru sinni áður og allt virðist í nokkurra smella fjarlægð. Innihaldsríkasta leiðin til að kynnast öðrum menningarheimum og læra ný tungumál er þó að mínu mati enn í gegnum eigin upplifun. Þá einstæðu upplifun hefur AFS á Íslandi boðið upp á í 55 ár.

Dýravelferð, við hvað er átt?

Á Alþingi eru til umfjöllunar ný lög um dýravelferð. Upphafsgrein þeirra hljóðar svona: „Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“

Jólabón til Jóns Gnarr

Jón Gnarr borgarstjóri ritaði harðorða færslu á Facebook-síðu sína um helgina þar sem hann lýsir andúð sinni á fordómum í garð samkynhneigðra. "Við ættum að hætta að líta á homma-fóbíu sem fóbíu. Er til eitthvað sem heitir svertingja-fóbía? Nei, það kallast rasismi ... Hommafóbía er ekki ótti heldur hatur. Sá sem haldinn er homma-fóbíu er ekki fórnarlambið heldur gerandinn."

Staðreyndir um löggæslu á Íslandi

Ríkið heldur úti starfsemi lögreglunnar segir í 1. gr. lögreglulaga, til þess að tryggja öryggi borgaranna, segir í 2. gr. Það þarf fjárveitingar og lagaleg úrræði til þess að tryggja þessa lagaskyldu.

Félag ábyrgra hundaeigenda

Ég fluttist til Íslands í byrjun árs 2009 eftir að hafa búið erlendis í næstum tíu ár, annars vegar í Kaupmannahöfn og hins vegar í Brighton, Englandi. Ég elska Reykjavík og hef svo sannarlega ekki séð eftir því að flytja heim þrátt fyrir kreppu. En það er eitt við þessa yndislegu borg sem ég hef átt erfitt með að sætta mig við.

Kirkjan kostar lítið

Samanburðurinn milli Nesklúbbsins og Nessóknar sem rakinn var í systurgrein þessarar sýnir í raun hvað kirkjan er ódýr í rekstri og skilar miklu til þjóðfélagsins.

Ferðasjóður íþróttafélaganna

Á fundi ríkisstjórnar Íslands í mars 2006 var samþykkt að koma á fót Ferðasjóði íþróttafélaga, sem ætlað var að jafna aðstöðumun og efla íþrótta- og forvarnarstarf. Íþróttahreyfingin hafði þá í áratug barist fyrir því að slíkur sjóður yrði stofnaður, ekki síst með tilliti til bætts öryggis iðkenda á ferðalögum á vegum íþróttafélaga. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var falin umsjón og umsýsla sjóðsins.

Lokasenna að Landsbankamáli

Þegar þar var komið sögu, að klíkumenn Framsóknar bjuggust um rammlega í Landsbankanum vegna fyrirhugaðrar einkavæðingar hans, þótti þeim fýsilegt að Halldór Guðbjarnason yrði einn bankastjóri við einkavæðinguna. Þessu var honum lofað, en seinna svikið. Honum var bætt tjónið með því að gera hann að framkvæmdastjóra Visa-Ísland. Þar tókst honum svo vel upp að fyrirtækið var sektað um kr. 385 milljónir. Fyrir þá upphæð hefði mátt kaupa veiðileyfi í Hrútafjarðará í 400 – fjögur hundruð – ár, á verðlagi sem gilti þegar þau kaup fóru fram af hálfu bankans.

Kjósendur axli ábyrgð

Næstu alþingiskosningar munu skipta sköpum varðandi áframhaldandi uppbyggingu íslensks samfélags. Ábyrgð á því hvernig til tekst er alfarið í höndum kjósenda, því það eru þeir sem velja með atkvæði sínu þá sem sitja á Alþingi.

Sorgarsaga

Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Íslenskt skólakerfi má á margan hátt bæta. Það fag sem ég vil hér ræða er mér hugleikið eftir þriggja ára veru mína í Óslóarborg þar sem ég nem hin ýmsu fræði, en læri þó fremur öðru um mannlífið. Þetta fag er sagnfræðin.

Poki og Íslandssagan

Svavar Hávarðsson skrifar

Fyrst ætlaði ég að byrja við ártalið þúsund en hikaði. Trúmál eru alltaf viðkvæm, svo að kristnitakan gerði mig afhuga þeirri hugmynd. Leifur var reyndar að leita fyrir sér í vestrinu en hví að rifja upp stór mistök?

Aldrei í leikjum

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Íslenskir stjórnmálamenn mættu taka Angelu Merkel kanslara Þýskalands sér til fyrirmyndar, en þeir eru flestir miklu uppteknari af ásýnd en langtímalausnum.

Bráðdrepandi byssumenning

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Fjöldamorðin í Sandy Hook í Newtown í Bandaríkjunum á föstudag, þar sem tuttugu lítil börn og sex fullorðnir létu lífið, gætu orðið vendipunktur í umræðum um byssueign vestra.

Eimskip og endurreisn Íslands

Margrét Hrafnsdóttir skrifar

Eimskipafélag Íslands, okkar elsta skipafélag, var stofnað 17. janúar 1914.. Var almennt álitið að með stofnun þess væri stigið eitt stærsta heillaspor í sögu og sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Mættu á fimmta hundrað manns í Fríkirkjuna í Reykjavík að fagna fæðingu þessa „óskabarns þjóðarinnar“ og hefur það nafn loðað við fyrirtækið síðan.

Lokasenna að Landsbankamáli

Sverrir Hermannsson skrifar

Þótt langt sé um liðið síðan síðara Landsbankafarganið reið yfir, býsnaveturinn 1998, er það fyrst um þessar mundir að öll kurl þess eru komin til grafar, svo öruggt megi telja.

Ja, mikið óskaplega ertu nú góð

Árný Guðmundsdóttir skrifar

„Ja, mikið óskaplega ertu nú góð að vera að vinna með þessu fólki,“ sagði eldra fólk stundum við mig þegar ég byrjaði að vinna fyrir 15 árum. Ekki fannst mér það, ég hafði valið mér eitt skemmtilegasta, fjölbreyttasta og mest spennandi starf að loknu sérnámi við Háskóla Íslands, starf sem krefst þess að ég komi víðar við í samfélaginu en flestir, ef ekki allir, aðrir gera í sínum störfum.

Listin að gera sig að fífli

Erla Hlynsdóttir skrifar

Ég mætti auðvitað í skólann, sex ára gömul, því ég vissi að það var það sem allir gerðu. En ég var hrædd, alveg dauðhrædd. Fyrstu tuttugu ár lífs míns einkenndust af tvennu: Feimni og óöryggi. Ég roðnaði og stamaði þegar ég átti að lesa upphátt fyrir bekkinn. Ekki því ég gæti illa lesið heldur því þá beindist athyglin að mér. Og það var vont. Ég vildi vera ósýnileg.

Þegar viðskipti verða fjárfesting

Nýjasta útspil Íbúðalánasjóðs er að koma fullnustueignum sínum í sértilgert leigufélag. Leigufélaginu er ætlað að leigja út fasteignir sem sjóðurinn hefur leyst til sín, eftir að lánþegar sjóðsins fóru í vanskil með lánin sem hvíldu á eignunum. Eignirnar sem flytjast af efnahagsreikningi Íbúðalánasjóðs yfir í þetta leigufélag eru um sjö hundruð samkvæmt fréttum.

Fjárfestingar á Íslandi

Arna Mathiesen skrifar

Fjöldi Íslendinga sem lengi hafa búið í útlöndum hefur keypt sér íbúðir á Íslandi á hagstæðum kjörum eftir hrunið. Þetta gerir fólk með íslenskum krónum sem það fær á enn lægra gengi en gengur og gerist hjá Seðlabankanum, sem með þessu trixi auðveldar erlenda fjárfestingu.

Að æfa sig í foreldrahlutverkinu

Hér í Brekkubæjarskóla á Akranesi höfum við undanfarin ár boðið nemendum í 10. bekk að taka þátt í forvarnarverkefninu „Hugsað um barn“.

Kirkja og kylfingar

Örn Bárður Jónsson skrifar

Ég leik golf mér til ánægju en sú íþrótt er sú kristilegasta sem ég þekki og líklega sú eina sem getur talist það og stenst það með guðfræðilegum rökum. Erindi þessara skrifa er samt ekki það að útskýra þennan leyndardóm en ég skal gera það síðar.

Gjöf þings til þjóðar

Þegar ríkisstjórn vinstri flokkanna eftirlét þjóðinni stjórnarskrána komst loks skriður á málið. Stjórnlaganefnd var skipuð og blásið til þjóðfundar. Afraksturinn varð svo veganesti stjórnlagaráðs sem fullgerði frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Frumvarpið var afhent Alþingi síðsumars 2011 og sent stjórnlagaráði aftur til lokayfirferðar í mars 2012. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvarpið lá svo fyrir þann 21. október sl. Hún var ótvíræð: Þjóðin þáði hina nýju stjórnarskrá með þökkum. Valdastéttir

Persson og Skarphéðinsson

Ögmundur Jónasson skrifar

Enn reynir okkar ágæti utanríkisráðherra að sýna fram á hve hagstætt það yrði Íslendingum að ganga í Evrópusambandið. Í Fréttablaðinu er nú leiddur til vitnis sósíaldemókrat og fyrrum forsætisráðherra Svía, Göran Persson. Um þennan systurflokksmann sinn segir Össur Skarphéðinsson: "Persson benti á að eftir að Svíar gengu í Evrópusambandið árið 1994 hefðu þeir u.þ.b. tvöfaldað útflutning sinn. Síðustu 20 árin hefðu Svíar haft jákvæðan viðskipatjöfnuð við útlönd.“

Liðleskjur og aumingjar!

Um hátíðir minnumst við hinna látnu, ástvina og maka, fjölskyldumeðlima og vina. Heimsókn í kirkjugarðinn tilheyrir hátíðunum og það eru tregafull spor á stundum að ganga að leiði ástvinar. Það að missa einhvern náinn er sár sem aldrei grær að fullu, sérstaklega þegar sá sem frá hverfur er í blóma lífsins. Hvert okkar tekst á við slíkt á sinn eigin hátt, minningarnar eru margar og tilfinningarnar geta verið miklar, sveiflast mikið og varað lengi. Því þykir okkur flestum ákveðin huggun í því að votta hinum látnu virðingu okkar með heimsókn til þeirra og jafnvel kveikja á kerti og leggja niður skreytingu til marks um það að viðkomandi var hluti af lífi okkar sem við munum ekki gleyma.

Er of dýrt að skipta um peru?

Einar Guðmundsson skrifar

Ökumenn hafa eflaust tekið eftir því að ljósabúnaði bifreiða á höfuðborgarsvæðinu er oft ábótavant. Brautin – bindindisfélag ökumanna framkvæmdi nýlega athugun þar sem ljósabúnaður bifreiða var kannaður. Skoðað var ástand og notkun framljósa 2.200 bifreiða og afturljósa ríflega 2.000 bifreiða. Ekki var litið á stefnuljós eða hemlaljós.

Ranghugmyndir yfirvalda um rjúpnaveiði

Dúi J. Landmark. skrifar

Nú er rjúpnaveiðitímabili þessa árs lokið, og full ástæða er til að fjalla um þá afleitu stöðu sem komin er upp varðandi rjúpnaveiðar eftir að umhverfisráðherra setti á nýja reglugerð fyrir tveimur árum.

Alls konar skatta- og gjaldskrárhækkanir

Þórey Vilhjálmsdóttir skrifar

Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar boðaði í stefnuskrá, sem kynnt var í upphafi kjörtímabils, að velferð og þjónusta við íbúana nyti forgangs við ráðstöfun fjármuna borgarinnar.

Sjálfboðaliðar í náttúruvernd

René Biasone skrifar

Fjölbreyttur hópur tók þátt í Stóru grænu helginni (e. Big Green Weekend) í október sem er alþjóðlegur viðburður. Þar komu saman sjálfboðaliðar í náttúruvernd og létu gott af sér leiða.

Andvíg fjölskylduvænna samfélagi

Guðmundur D. Haraldsson skrifar

Fyrir skömmu kom fram fín tillaga á Alþingi. Ef tillagan yrði að lögum myndi það þýða að ef jóladag bæri upp um helgi myndi vinnandi fólk fá frídag næsta virka dag á eftir (sama gildir um annan í jólum, nýársdag, 17. júní og 1. maí).

Sanngjörn verðtrygging

Björn Valdimarsson skrifar

Skuldavanda heimilanna í dag er erfitt að leysa og það vantar hugmyndir um það hvað hægt er að gera. Þó ýmsir stjórnmálamenn staglist á því að leysa þurfi vandann benda þeir ekki á vænlegar leiðir til þess

Ramminn er málamiðlun

Ólína Þorvarðardóttir skrifar

Í svonefndri Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða fá ekki allir allt sem þeir vilja.<br />Stundum er sagt um málamiðlanir að þær geri alla álíka óánægða og því sé skynsamlegra að velja milli sjónarmiða. Nokkuð er til í því – en í jafn stóru máli og þessu getur ekki hjá því farið að reynt sé að teygja sig í átt til ólíkra sjónarmiða. Hér hefur það verið gert.

Gatslitið föðurland

Margrét Jónsdóttir skrifar

Síðsumars sá ég mjög svo góða heimildarmynd Herdísar Þorvaldsdóttur um bágborið ástand gróðurhulu landsins okkar. Efni myndarinnar kom mér svo sem ekkert á óvart því um þau mál vissi ég ósköp vel fyrir og hef oft skrifað um þau. Hins vegar kom það mér á óvart hvað myndin var vönduð í alla staði. Allt gekk upp frá a til ö, eins og maðurinn sagði. Handritið afbragð í alla staði og nýjar og gamlar myndatökur góðar, en átakanlegar. Þarna komu fram skoðanir margra okkar bestu sérfræðinga á þessu sviði svo og viðtöl við fjóra bændur og að sjálfsögðu skoðanir þeirra.

Ísland getur betur

Svandís Svavarsdóttir skrifar

Íslendingar losa 0,01% af gróðurhúsalofttegundum á heimsvísu. Við munum vart leysa loftslagsvandann ein, enda er viðurkennt í loftslagssamningi SÞ að það verði aðeins gert í samvinnu ríkja heims. Við getum heldur ekki hlaupist undan merkjum, því krafa er gerð í samningnum um að öll ríki vinni að takmörkun losunar eftir getu og efnahag. Auðugt ríki eins og Ísland á að leggja sitt af mörkum.

Barnamiðuð nálgun í barnaverndarstarfi

Anni G. Haugen og María Gunnarsdóttir skrifar

Hér á landi búum við við þau forréttindi að vera með gott barnaverndarkerfi sem er ætlað að styðja fjölskyldur og hlúa að börnum sem búa við vanrækslu eða ofbeldi. Barnaverndarstarfið er viðkvæmt og stundum flókið þar sem ætíð er um að ræða viðkvæm mál sem varða börn, foreldra þeirra og stundum aðra ættingja.

Þjónusta við Alzheimersjúklinga

Brynja Dadda Sverrisdóttir skrifar

Það að vera aðstandandi sjúklings með heilabilun er ekki hlutverk sem maður undirbýr sig undir. Það virðist einhvern veginn hafa læðst upp að okkur og allt í einu höfum við þetta óumbeðna stóra hlutverk á okkar herðum. Það eru til mörg afbrigði af heilabilun og trúlega eru engir tveir sjúklingar eins þótt allir hafi einhver grunneinkenni sem vísa okkur veginn. Þetta hefur ekki verið auðrataður vegur en við systkinin höfum verið að fikra okkur eftir honum undanfarin ár.

Var "fasteignasali“ leiddur út úr pókerklúbb í járnum?

Stjórn og framkvæmdastjóri FF skrifar

Fyrir skömmu birtust fjórar fréttir í fjölmiðlum um aðkomu fasteignasala að refsiverðri háttsemi. Fyrsta fréttin varðaði fasteignasala sem hafði verið handtekinn í spilavíti sem hann hafði rekið og verið leiddur út í járnum vegna mótþróa.

Sjálfsofnæmi þingræðisins

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Málþóf: þá tekur einhver til máls um tiltekið atriði en er í raun og veru ekkert að tala um það; þykist bara tala um það. Þykist í rauninni bara tala. Opnar munninn og lætur orð streyma út um hann, en þau eru ekki um neitt, ekki í neinu samhengi, ekki til þess að bera fram merkingu, hugsjónir, sýn heldur þvert á móti bara froða. Viðkomandi gæti allt eins staðið á fætur, gengið í ræðustól og sagt: Virðulegi forseti. Banani banani banani. Þess vegna eru umræður á Alþingi um þessar mundir eins og skrifaðar af Samuel Beckett.

Sjá næstu 50 greinar