Fleiri fréttir Tími Jóhönnu Ólafur Stephensen skrifar Með boðuðu brotthvarfi Jóhönnu Sigurðardóttur úr stjórnmálum næsta vor lýkur merkilegum pólitískum ferli. Jóhanna hefur setið á þingi í 34 ár og á meira en fjörutíu ár að baki í stjórnmálum og starfi stéttarfélaga. 29.9.2012 06:00 Ástand löggæslumála á Suðurlandi Stjórn Lögreglufélags Suðurlands kom saman á fundi þann 19. september sl. til þess að ræða grafalvarlegt og versnandi ástand löggæslumála á Suðurlandi sem orsakast af áralöngu fjársvelti. Er svo komið að íbúum og lögreglumönnum er hætta búin vegna fækkunar lögreglumanna við embættin. Þá er samdráttar- og niðurskurðarkrafa innan lögreglu orðin svo að lögreglumenn geta vart sinnt eiðsvörnu og lögbundnu hlutverki sínu. 29.9.2012 06:00 Frelsi til að valda þjáningum og dauða? Eyjólfur Þorkelsson skrifar Dóttir mín er á leikskóla. Þaðan hefur hún komið heim með pestir. Þó er hún á góðum leikskóla, mjög góðum. Það breytir því ekki að hann, eins og allir aðrir leikskólar, er staður þar sem margt fólk finnst á litlu svæði og pestir smitast auðveldlega. Sama gildir um skóla, flugstöðvar, íþróttamiðstöðvar, jafnvel sjúkrahús. Væri rökrétt eða skynsamlegt að neita dóttur minni um menntun, ferðalög, líkamsrækt eða innlögn af ótta við að hún gæti fengið minniháttar pest? Eflaust hefði fólk áhyggjur (með réttu) af uppeldi barnsins. En af hverju mætum við þá af slíkri léttúð því þegar fólk neitar börnum sínum um bólusetningar af ótta við afar, afar óljósa áhættu? 29.9.2012 06:00 Íslendingar eru klikk Árið er fjögur eftir hrun. Öll Evrópa er komin undir einn hatt…, æ, afsakið öll. Ein lítil eyja á hjara veraldar unir enn farsæl, fróð og frjáls við ysta haf. Eyjarskeggjar eru eins misjafnir og þeir eru margir, eins og gerist með þjóðir en þeir búa yfir leynivopni sem gerir þá alveg ósigrandi. Þeir eru nefnilega klikk! 29.9.2012 06:00 Um rangfærslur Inga Sigrún Atladóttir skrifar Í Fréttablaðinu 21. september sl. birtist grein eftir Einar Þ. Magnússon, formann atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar. Þar telur Einar sig vera að hrekja það sem hann kallar rangfærslur af minni hálfu í grein sem birtist í Fréttablaðinu tveimur dögum fyrr. Inntak greinarinnar er spurningin um það hvort Reykjanesskaginn í núverandi mynd sé sjálfsagður og nauðsynlegur fórnarkostnaður fyrir álver í Helguvík. Einar segir það rangfærslur að tala um 8-16 jarðhitavirkjanir á Reykjanesskaga og að þeim fylgi brennisteinsmengun, borstæði, hitaveiturör, vegir, lón með affallsvatni og tvöföld röð af 30 metra háum stálmöstrum eftir endilöngum Reykjanesskaga ásamt tengivirkjum. 29.9.2012 06:00 Evru-horn Björns Þröstur Ólafsson skrifar Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, ritar greinarkorn í horni Fréttablaðsins 26.9.2012. Þar er hann að svara utanríkisráherra og andmæla þeirri fásinnu Össurar að honum hafi nokkurn tíma dottið í hug að evran gæti verið dugandi gjaldmiðill fyrir Ísland. 29.9.2012 06:00 Gamalt hafnarsvæði. Nýtt skipulag Hjálmar Sveinsson skrifar Á ljósmyndum sést að miðborg Reykjavíkur var hafnarborg lengst af á 20. öldinni. Þar áður hafnlaust sjávarpláss. Götur og sund teygja sig alveg að sjónum og húsin standa á hafnarbakkanum. Landfyllingar, plássfrek hafnsækin starfsemi og hönnun Geirsgötu sem hraðbrautar rufu þessi tengsl borgar og hafnar. 29.9.2012 06:00 Lokast báðar leiðir? Þorsteinn Pálsson skrifar Í stjórnmálum þurfa menn að hafa snotrar hugsjónir og kunna list hins mögulega. Fram undan eru ákvarðanir þar sem reynir á þessa jafnvægislist. Í húfi er val á leiðum úr efnahagskreppunni. 29.9.2012 06:00 Sextíu gráður og þeytivinda, takk Steinunn Stefánsdóttir skrifar Talið er að um þriðjungur þeirra um það bil 6.000 tungumála sem nú eru töluð í heiminum muni hverfa á næstu áratugum. Önnur tungumál munu áfram verða notuð að einhverju leyti til heimabrúks en ekki til dæmis í vísindum eða viðskiptum. 28.9.2012 16:13 Halldór 28.09.2012 28.9.2012 16:00 Samband við Samband úr sambandi Ingibjörg Kristleifsdóttir og Haraldur F Gíslason skrifar Félag leikskólakennara, foreldrasamfélagið og aðrir velunnarar leikskólans fögnuðu þann 1. júlí 2008 þegar ný lög um leikskóla og lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum tóku gildi. Áfanga var náð. Samfélagið var búið að staðfesta það með enn skýrari hætti en áður að leikskólinn væri hluti af menntakerfinu og að sömu kröfur skyldi gera til kennara á öllum skólastigum. Leikskólinn, vagga lýðræðisins, var viðurkenndur sem undirstaða skólakerfisins. 28.9.2012 13:45 230 lítrar af ógn Stígur Helgason skrifar Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evrópusambandið. Mér er alveg sama um myntsamstarf og álitaefni sem varða sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo spenntur að fylgjast með fólki rogast með sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurnar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpokunum í handfarangursrýminu á leið yfir hafið. 28.9.2012 06:00 Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Ég var að lesa grein þína sem birtist í dagblaði eiginkonu þinnar þann 1. september sl. Þar tekur þú undir þau sjónarmið Víglundar Þorsteinssonar að Arion banki hafi sett saman "aftökulista“. Af einhverjum ástæðum hafi bankinn ákveðið að "taka“ af þér og fjölskyldu þinni Haga-verslunarveldið og mismunað ykkur herfilega þar sem þið áttuð hæsta tilboð, eins og þú fullyrðir, og þið hafið verið algerlega sniðgengin. 28.9.2012 06:00 Íslandsbanki illa flæktur í hugmyndastuld? Jón Þorvarðarson skrifar Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur á bankaþingum lofað markaðsherferð Ergo í bak og fyrir. Verst er að hún skuli ekki á sama tíma halda þeirri skoðun á lofti að markaðsherferðin eigi rætur sínar að rekja til stolinnar hugmyndavinnu. Nefnilega hugmyndavinnu sem undirritaður lagði bankanum til fyrir nokkrum árum – hugmyndavinnu sem Birna rannsakaði ofan í kjölinn ásamt sínu nánasta samstarfsfólki. 28.9.2012 06:00 Rétt meðhöndlun gaskúta tryggir öryggi Jón Viðar Matthíasson skrifar Í ljósi umfjöllunar síðustu daga um hættuna sem stafað getur af gaskútum langar mig til að benda á þá staðreynd að þrátt fyrir mikla fjölgun gaseldavéla á heimilum landsmanna eru afar fá dæmi um að hættuástand skapist vegna gass. Þar er rétt meðhöndlun á gasi lykilatriði og sem betur fer fara flestir þá leið að fá fagmenn til að setja slíkan eldunarbúnað upp og tengja. Til eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í uppsetningu og þjónustu við gas og tryggja þannig réttan frágang á leiðslum og öðrum nauðsynlegum öryggisbúnaði. 28.9.2012 06:00 Gjald er ekki refsing Pawel Bartoszek skrifar Mér er ekki sérstaklega illa við að borga fyrir hluti. Þess vegna fer það í taugarnar á mér þegar menn geta ekki rætt um eðlilega verðlagningu á þjónustu öðruvísi en á þeim forsendum að verið sé að "refsa fólki“. Ég vil ekki "refsa fólki“ fyrir að leggja bílnum niðri í miðbæ, ég vil bara að fólk borgi fyrir það. Ég vil heldur ekki "refsa fólki“ fyrir að taka strætó, þótt ég vildi ég gjarnan sjá fólk borga meira fyrir það. Ég er raunar sannfærður um að það myndi gera strætó betri. 28.9.2012 06:00 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Teitur Guðmundsson skrifar Ég ætla að nota tækifærið og lofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, af því enginn annar virðist gera það, og þá sér í lagi forsvarsmenn hennar sem hafa hreinlega ekki sést svo mánuðum skiptir opinberlega. Hvað þá að fagfólkið stígi fram og verjist þeirri ádeilu sem er nær stöðug á þjónustu heilsugæslunnar eða á fyrirkomulagi hennar. Þeir sem mig þekkja vita að ég er eindreginn stuðningsmaður einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu þar sem ég starfa og tel að þar liggi stærstu sóknarfærin í framtíðinni. Þrátt fyrir það þykir mér sorglegt hið neikvæða umtal um þessa grunnstoð í heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hver fréttin á fætur annarri um langan biðtíma, lélegan aðbúnað, atgervisflótta lækna og yfirvofandi hættuástand auk rifrildis fagstétta um það hverjum beri að skrifa út pilluna eða ekki er það sem birtist okkur í fjölmiðlum. 28.9.2012 06:00 Vinnum saman Katrín Jakobsdóttir og Guðbjartur Hannesson skrifar Atvinnuleysi er eitt versta mein sem samfélög komast í tæri við. Langvarandi atvinnuleysi getur hoggið djúp skörð í heilu kynslóðirnar. Því miður var óumflýjanlegt að atvinnuleysi yrði umtalsvert í þeirri efnahagskreppu sem íslenskt samfélag hefur tekist á við undanfarin ár. Um síðastliðin mánaðamót voru 8.346 á atvinnuleysisskrá þó þeim hafi, sem betur fer, farið fækkandi. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að allir leggist á eitt við að kveða niður atvinnuleysið og að lágmarka neikvæð áhrif þess. 28.9.2012 06:00 Halldór 27.09.2012 27.9.2012 16:00 Íslenskur veruleiki Þórður Snær júlíusson skrifar Þegar íslensku bankarnir hrundu voru gjaldþrotin á meðal þeirra stærstu sem átt höfðu sér stað í heiminum. Þrot Kaupþings var það fimmta stærsta í sögunni, Landsbankinn komst í níunda sætið og Glitnir í það tíunda. Kröfur í bú þeirra allra námu þúsundum milljarða króna og ljóst að margir höfðu tapað miklum peningum á íslenska ævintýrinu. 27.9.2012 06:00 Þjóðareignina í stjórnarskrána Ég og allir Færeyingar höfum þá ósk til handa Íslendingum að ferlið að nýrri stjórnarskrá verði bæði réttlátt og heppilegt. Miklu máli skiptir að ótvírætt samkomulag um náttúruauðlindir landsins fái sinn verðuga sess í stjórnarskránni. 27.9.2012 06:00 Frelsi og sjálfræði – eða bergmál frá miðöldum Undir lok átjándu aldar gerðu bandarískir þrælar uppreisn gegn kúgurum sínum og vildu frelsi. Kúgararnir vildu reyndar líka frelsi, frelsi frá alríkinu bandaríska til að halda þræla. Þess vegna var þetta réttnefnt frelsisstríð. Uppreisninni lauk með sigri þrælanna og annarra sem skildu frelsishugsjónina þeirra skilningi. Þetta var vorið í Norður-Ameríku. Þessir vindar bárust einnig til Frakklands og þar var gerð bylting undir yfirskriftinni „frelsi, jafnrétti og bræðralag“. Vorið var komið til Evrópu. Það gerði reyndar hret, mörg hret og frelsið reyndist síður en svo auðfengið. 27.9.2012 06:00 Ferðaþjónusta snýst um fleira en peninga! Ásbjörn Björgvinsson skrifar Það eru yfirleitt tvær aðferðir sem menn nota þegar verið er að leggja af stað i fjárfestingu í ferðaþjónustu. Önnur leiðin, sem alloft er notuð, er að hella sér bara af stað með frábæra hugmynd, keyra verkefnið af stað með hugsjónina eina að vopni og trúa á að finna fjármuni til að verkefnið gangi upp, þ.e. að þetta reddist bara og vissulega gerist það stundum. Hin aðferðin, oftar notuð, er að leggjast í alvöru undirbúningsvinnu, rannsóknir og viðskiptaáætlun til að sjá hvort það sé yfirleitt eitthvert vit í hugmyndinni góðu. En þrátt fyrir góðan undirbúning fara þau áform stundum algjörlega í vaskinn og þá sitja margir sárir eftir. 27.9.2012 06:00 Vilt þú að atkvæði kjósenda vegi jafnt? Þorkell Helgason skrifar Fimmta spurningin sem lögð verður fyrir þjóðina 20. október nk. um nýja stjórnarskrá fjallar um fyrirkomulag þingkosninga; rétt eins og sú fjórða. Sú spurning sem hér er til umræðu hljóðar svo í heild sinni: "Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt?“ 27.9.2012 06:00 Hagstjórnarmistök að lækka skuldir? Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Í liðinni viku komst leiðarahöfundur Fréttablaðsins svo skemmtilega að orði að það væru hagstjórnarmistök að lækka skuldir íslenskra heimila. Þá hélt hann því einnig fram að slík aðgerð kostaði ríkissjóð alltof mikið án þess að leggja fram nokkra útreikninga fyrir þeirri fullyrðingu. 27.9.2012 06:00 Já en – við þjóðkirkjuákvæði Hjalti Hugason skrifar Með grein hér í Fréttablaðinu fyrir nokkru (18. sept.) mælti ég með að kjósendur í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu svöruðu spurningunni "vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“ með já-i. 27.9.2012 06:00 LSH með bestu sérfræðinga heims í talnalækningum? Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum, heimilislækningum og heilbrigðisstjórnun, ritaði fróðlega grein um það hvernig laun forstjóra hans endurspegla hlutverk eins af lykilstjórnendum heilbrigðiskerfisins. Lesendum er bent á að meta mikilvægi áhrifaríkrar stjórnunar í heilbrigðiskerfinu í samhengi við þróun heilbrigðismála í framtíðinni og í framhaldi af því endurskipulagningu heilbrigðisþjónustu erlendis. Það sem kemur ekki fram í grein Ófeigs eru breytingar sem gerðar hafa verið á heilbrigðisþjónustu landsmanna. Þessar breytingar fela í sér að aðlaga heilbrigðiskerfið að starfsemi háskólasjúkrahúss. 27.9.2012 06:00 Fræðsla fyrir alla Oft höfum við ásatrúarfólk fengið skömm í hattinn hjá nýjum félögum um leið og þeir ganga í félagið. Þeir setjast gjarna fyrir framan okkur með alvöruþunga í svipnum og spyrja hvernig í ósköpunum standi á því að þeir hafi aldrei verið fræddir um heiðinn sið og félagið, eða boðið að vera með. 27.9.2012 06:00 Þriðja heimsstyrjöldin Það hefur vart farið fram hjá neinum að úfar eru með þjóðum um allan heim, ýmist vegna viðskiptahagsmuna, landamerkja eða hugmyndafræði. Engum dylst heift og misklíð milli trúarhópa. Áhugi þjóða á norðurheimskautasvæðinu er umtalsverður bæði vegna siglinga og auðæfa sem leynast kunna á hafsbotni. Kínverjar reyna að hasla sér völl á Grænlandi og þar hefur þeim orðið nokkuð ágengt. Áhugi Kínverja á Íslandi er öllum augljós. 27.9.2012 06:00 "Látið í ykkur heyra“ Arnfríður Gísladóttir skrifar Fyrirsögnin að ofan eru lokaorð pistils Björns Zoëga, forstjóra Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH), þann 14. sept sl. Stofnanasamningur LSH við hjúkrunarfræðinga er enn ófrágenginn. Umboð spítalans til að ganga frá samningnum ætti ekki að draga í efa þó enn sé óljóst hve miklu fé verður varið til þessa málaflokks. Kröfur hjúkrunarfræðinga um endurröðun í starfaflokka eru raunhæfar í ljósi launaþróunar hjá hinu opinbera. Kostnaðurinn við að uppfylla þær kröfur er ekki nema brot af þeim upphæðum sem búið er að spara, eða 32 milljarða á sl. 5 árum, m.a. með launalækkunum hjúkrunarfræðinga. 27.9.2012 06:00 Leiftursókn frá raunveruleikanum Nú þegar styttist í alþingiskosningar er ekki laust við að greina megi ákveðna örvæntingu meðal þeirra sem ekki fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum. Nýlega töldu oddvitar ríkisstjórnarinnar sig knúna til að taka það sérstaklega fram að þeim hugnaðist ekki stefna Sjálfstæðisflokksins. Var þeim yfirlýsingum almennt vel tekið meðal sjálfstæðismanna. 27.9.2012 06:00 Við eigum rétt á að vita hvers við neytum Í janúar á þessu ári tók gildi reglugerð sem krefst merkingar á matvælum sem innihalda erfðabreytt efni. Núverandi ríkisstjórn á þakkir skyldar fyrir að setja þessar löngu tímabæru reglur. Þær tryggja valfrelsi neytenda en takmarka á engan hátt fjölbreytni matvæla sem innflytjendur geta boðið upp á. 27.9.2012 06:00 Forsetinn sem fékk flugu í höfuðið Jón Þór Ólafsson skrifar Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera óhefðbundinn. Fyrir að fara bókstaflega eftir stjórnarskránni frekar en að fylgja hefðum og venjum við beitingu forsetavaldsins. Margir fræðimenn hafa gert sitjandi forseta upp einræðishvatir. En hvað ef forseti Íslands fengi, t.d. við heilablóðfall, þá flugu í höfuðið að taka sér eins mikil völd og hann kæmist upp með? Hve langt gæti hann gengið samkvæmt gildandi stjórnarskrá? 27.9.2012 06:00 Baráttan gegn atvinnuleysi er flókið samspil Atvinnuleysi hefur góðu heilli farið ört lækkandi síðustu mánuði og raunar hraðar en útlit var fyrir í byrjun ársins. Atvinnuleysið varð mest árin 2009 og 2010, 8-8,1% en fór niður í 7,4% árið 2011. Í ár 2012 stefnir í að hlutfallið verði nálægt 5,7% en talsverð óvissa er með þróun atvinnuleysis næstu ár. Þar ræður þróun efnahagsmála vitaskuld mestu og hvernig uppbyggingu atvinnulífsins verður hagað. Bjartsýnar spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi muni lækka áfram og verði að öllum líkindum nálægt 4% á árunum 2013 og 2014. 27.9.2012 06:00 Friedman og niðurgreiðslur Guðmundur Edgarsson skrifar Ýmsir hafa hnýtt í mig vegna greinar minnar um Milton Friedman sem birtist í Fréttablaðinu fyrir stuttu. Því vil ég útskýra nánar um hvað sú grein snerist. Í greininni lýsti ég í megindráttum hvernig Friedman greindi ráðstöfun peninga í eftirfarandi fjórar leiðir: (1) að eyða eigin peningum í sjálfan sig, (2) eigin peningum í aðra, (3) annarra peningum í sjálfan sig og (4) annarra peningum í aðra. 27.9.2012 06:00 Frábært að geta hjálpað öðrum Christina Barruel skrifar Andleg og líkamleg vanlíðan nemenda sem lagðir eru í einelti hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla á Íslandi að undanförnu. Sama hefur verið uppi á teningnum á Nýja-Sjálandi, en þar hefur mál móður sem greip inn í þegar ráðist var á dóttur hennar sérstaklega verið til umræðu. Móðirin á nú yfir höfði sér ákæru vegna þessa máls. Hin sálrænu mein sem hljótast af slíkum atburðum rista djúpt og geta varað allt lífið. Ný lög í Nýja-Sjálandi gegn árásum á netinu munu hjálpa til við að sporna gegn einelti en einnig er þrýstingur á skólayfirvöld að þau taki fastar á þessum málum. 27.9.2012 06:00 Siðbót á Alþingi Mörður Árnason skrifar Í frumvarpi sem við Valgerður Bjarnadóttir og níu aðrir þingmenn höfum lagt fram á þinginu er gert ráð fyrir að alþingismenn hætti með öllu að skammta sér laun. Þetta er í þriðja sinn sem við Valgerður flytjum frumvarp um kjör þingmanna, og nú er von til að eitthvað gerist – vegna þess að margir þingmenn hafa undanfarið tekið undir gagnrýni í samfélaginu á ýmsar sporslur sem úthlutað er á þinginu. Nú síðast um gleraugu, heyrnartæki, líkamsrækt og svo framvegis aftan í sakleysislegu þingskapafrumvarpi núna í vor. 27.9.2012 06:00 Fagurbókmenntir eða pabbaklám Eftir að hafa unnið með fimmtán breskum rithöfundum í sex mánuði að verkum þeirra er mér orðin ljós öll sú flóra áhyggjuefna sem sækir á höfunda er þeir strengja saman orð í setningar. Um er að ræða áhyggjur á borð við: 27.9.2012 06:00 Halldór 26.09.2012 26.9.2012 16:00 Hver ráðstafar tekjunum þínum? Þórey Vilhjálmsdóttir skrifar Eins og allir launþegar finn ég töluvert fyrir því hversu stóran skerf ríkið tekur af launum mínum mánaðarlega og er því afar umhugað hvernig þeirri upphæð er ráðstafað. Af þessum sökum undrast ég þegar ég heyri talað um áhugaleysi á stjórnmálum, hvað þá að einhverjir ætli ekki að nýta kosningarétt sinn. Hvernig má það vera að fólk vilji ekki hafa áhrif á það hvernig stórum hluta tekna þeirra í hverjum mánuði er ráðstafað? 26.9.2012 06:00 Sendiboðaskyttirí Ólafur Þ. Stephensen skrifar Það er vinsæl íþrótt að skjóta boðbera vondra tíðinda, fremur en að horfast í augu við fréttirnar sem þeir flytja. Ríkisendurskoðun tekur fullan þátt í þessum leik með viðbrögðum sínum við umfjöllun Kastljóss Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld. 26.9.2012 06:00 Staðreyndavillur í skýrslu Seðlabanka Íslands Manuel Hinds og Heiðar Már Guðjónsson skrifar Seðlabanki Íslands gaf í síðustu viku út skýrsluna, Valkostir í gengis- og gjaldmiðlamálum. Það er mikilvægt að ekki sé kastað til höndunum, við gerð skýrslna, ekki síst þegar útgefandinn er seðlabanki, og í þessu tilfelli er ekki hægt að kenna ónógum tíma um gæði verksins. 26.9.2012 06:00 Himinn og haf kveður… Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar … og þakkar frábærar viðtökur íbúa á höfuðborgarsvæðinu þau tvö sumur sem útikaffihúsið hefur verið starfrækt við Arnarnesvog. 26.9.2012 06:00 Helvíti á jörð Svavar Hávarðsson skrifar Þetta var einhvern tímann stuttu eftir að ég byrjaði nám í háskóla. Ég leigði litla kjallarakompu í vesturbænum ásamt vini. Eins og lög gera ráð fyrir var lítið sem ekkert lesið en því meira var lífsblómið vökvað. Kjallarakompan góða var oft lokapunkturinn á svallinu. Einn morguninn vaknaði ég svo við að ákveðið var knúið dyra og reyndist það vera nágranni minn að biðja mig um að ganga varlegar um gleðinnar dyr næst þegar ég fengi gesti. Þessu lofaði ég manninum, sem var hinn vinalegasti. 26.9.2012 06:00 Fjármál sveitarfélaga Halldór Halldórsson skrifar Árlega stendur Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir Fjármálaráðstefnu þar sem stjórnendur sveitarfélaga, bæði embættismenn og kjörnir fulltrúar, koma saman og ræða með faglegum hætti rekstrarmál sveitarfélaganna. 26.9.2012 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Tími Jóhönnu Ólafur Stephensen skrifar Með boðuðu brotthvarfi Jóhönnu Sigurðardóttur úr stjórnmálum næsta vor lýkur merkilegum pólitískum ferli. Jóhanna hefur setið á þingi í 34 ár og á meira en fjörutíu ár að baki í stjórnmálum og starfi stéttarfélaga. 29.9.2012 06:00
Ástand löggæslumála á Suðurlandi Stjórn Lögreglufélags Suðurlands kom saman á fundi þann 19. september sl. til þess að ræða grafalvarlegt og versnandi ástand löggæslumála á Suðurlandi sem orsakast af áralöngu fjársvelti. Er svo komið að íbúum og lögreglumönnum er hætta búin vegna fækkunar lögreglumanna við embættin. Þá er samdráttar- og niðurskurðarkrafa innan lögreglu orðin svo að lögreglumenn geta vart sinnt eiðsvörnu og lögbundnu hlutverki sínu. 29.9.2012 06:00
Frelsi til að valda þjáningum og dauða? Eyjólfur Þorkelsson skrifar Dóttir mín er á leikskóla. Þaðan hefur hún komið heim með pestir. Þó er hún á góðum leikskóla, mjög góðum. Það breytir því ekki að hann, eins og allir aðrir leikskólar, er staður þar sem margt fólk finnst á litlu svæði og pestir smitast auðveldlega. Sama gildir um skóla, flugstöðvar, íþróttamiðstöðvar, jafnvel sjúkrahús. Væri rökrétt eða skynsamlegt að neita dóttur minni um menntun, ferðalög, líkamsrækt eða innlögn af ótta við að hún gæti fengið minniháttar pest? Eflaust hefði fólk áhyggjur (með réttu) af uppeldi barnsins. En af hverju mætum við þá af slíkri léttúð því þegar fólk neitar börnum sínum um bólusetningar af ótta við afar, afar óljósa áhættu? 29.9.2012 06:00
Íslendingar eru klikk Árið er fjögur eftir hrun. Öll Evrópa er komin undir einn hatt…, æ, afsakið öll. Ein lítil eyja á hjara veraldar unir enn farsæl, fróð og frjáls við ysta haf. Eyjarskeggjar eru eins misjafnir og þeir eru margir, eins og gerist með þjóðir en þeir búa yfir leynivopni sem gerir þá alveg ósigrandi. Þeir eru nefnilega klikk! 29.9.2012 06:00
Um rangfærslur Inga Sigrún Atladóttir skrifar Í Fréttablaðinu 21. september sl. birtist grein eftir Einar Þ. Magnússon, formann atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar. Þar telur Einar sig vera að hrekja það sem hann kallar rangfærslur af minni hálfu í grein sem birtist í Fréttablaðinu tveimur dögum fyrr. Inntak greinarinnar er spurningin um það hvort Reykjanesskaginn í núverandi mynd sé sjálfsagður og nauðsynlegur fórnarkostnaður fyrir álver í Helguvík. Einar segir það rangfærslur að tala um 8-16 jarðhitavirkjanir á Reykjanesskaga og að þeim fylgi brennisteinsmengun, borstæði, hitaveiturör, vegir, lón með affallsvatni og tvöföld röð af 30 metra háum stálmöstrum eftir endilöngum Reykjanesskaga ásamt tengivirkjum. 29.9.2012 06:00
Evru-horn Björns Þröstur Ólafsson skrifar Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, ritar greinarkorn í horni Fréttablaðsins 26.9.2012. Þar er hann að svara utanríkisráherra og andmæla þeirri fásinnu Össurar að honum hafi nokkurn tíma dottið í hug að evran gæti verið dugandi gjaldmiðill fyrir Ísland. 29.9.2012 06:00
Gamalt hafnarsvæði. Nýtt skipulag Hjálmar Sveinsson skrifar Á ljósmyndum sést að miðborg Reykjavíkur var hafnarborg lengst af á 20. öldinni. Þar áður hafnlaust sjávarpláss. Götur og sund teygja sig alveg að sjónum og húsin standa á hafnarbakkanum. Landfyllingar, plássfrek hafnsækin starfsemi og hönnun Geirsgötu sem hraðbrautar rufu þessi tengsl borgar og hafnar. 29.9.2012 06:00
Lokast báðar leiðir? Þorsteinn Pálsson skrifar Í stjórnmálum þurfa menn að hafa snotrar hugsjónir og kunna list hins mögulega. Fram undan eru ákvarðanir þar sem reynir á þessa jafnvægislist. Í húfi er val á leiðum úr efnahagskreppunni. 29.9.2012 06:00
Sextíu gráður og þeytivinda, takk Steinunn Stefánsdóttir skrifar Talið er að um þriðjungur þeirra um það bil 6.000 tungumála sem nú eru töluð í heiminum muni hverfa á næstu áratugum. Önnur tungumál munu áfram verða notuð að einhverju leyti til heimabrúks en ekki til dæmis í vísindum eða viðskiptum. 28.9.2012 16:13
Samband við Samband úr sambandi Ingibjörg Kristleifsdóttir og Haraldur F Gíslason skrifar Félag leikskólakennara, foreldrasamfélagið og aðrir velunnarar leikskólans fögnuðu þann 1. júlí 2008 þegar ný lög um leikskóla og lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum tóku gildi. Áfanga var náð. Samfélagið var búið að staðfesta það með enn skýrari hætti en áður að leikskólinn væri hluti af menntakerfinu og að sömu kröfur skyldi gera til kennara á öllum skólastigum. Leikskólinn, vagga lýðræðisins, var viðurkenndur sem undirstaða skólakerfisins. 28.9.2012 13:45
230 lítrar af ógn Stígur Helgason skrifar Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evrópusambandið. Mér er alveg sama um myntsamstarf og álitaefni sem varða sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo spenntur að fylgjast með fólki rogast með sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurnar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpokunum í handfarangursrýminu á leið yfir hafið. 28.9.2012 06:00
Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Ég var að lesa grein þína sem birtist í dagblaði eiginkonu þinnar þann 1. september sl. Þar tekur þú undir þau sjónarmið Víglundar Þorsteinssonar að Arion banki hafi sett saman "aftökulista“. Af einhverjum ástæðum hafi bankinn ákveðið að "taka“ af þér og fjölskyldu þinni Haga-verslunarveldið og mismunað ykkur herfilega þar sem þið áttuð hæsta tilboð, eins og þú fullyrðir, og þið hafið verið algerlega sniðgengin. 28.9.2012 06:00
Íslandsbanki illa flæktur í hugmyndastuld? Jón Þorvarðarson skrifar Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur á bankaþingum lofað markaðsherferð Ergo í bak og fyrir. Verst er að hún skuli ekki á sama tíma halda þeirri skoðun á lofti að markaðsherferðin eigi rætur sínar að rekja til stolinnar hugmyndavinnu. Nefnilega hugmyndavinnu sem undirritaður lagði bankanum til fyrir nokkrum árum – hugmyndavinnu sem Birna rannsakaði ofan í kjölinn ásamt sínu nánasta samstarfsfólki. 28.9.2012 06:00
Rétt meðhöndlun gaskúta tryggir öryggi Jón Viðar Matthíasson skrifar Í ljósi umfjöllunar síðustu daga um hættuna sem stafað getur af gaskútum langar mig til að benda á þá staðreynd að þrátt fyrir mikla fjölgun gaseldavéla á heimilum landsmanna eru afar fá dæmi um að hættuástand skapist vegna gass. Þar er rétt meðhöndlun á gasi lykilatriði og sem betur fer fara flestir þá leið að fá fagmenn til að setja slíkan eldunarbúnað upp og tengja. Til eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í uppsetningu og þjónustu við gas og tryggja þannig réttan frágang á leiðslum og öðrum nauðsynlegum öryggisbúnaði. 28.9.2012 06:00
Gjald er ekki refsing Pawel Bartoszek skrifar Mér er ekki sérstaklega illa við að borga fyrir hluti. Þess vegna fer það í taugarnar á mér þegar menn geta ekki rætt um eðlilega verðlagningu á þjónustu öðruvísi en á þeim forsendum að verið sé að "refsa fólki“. Ég vil ekki "refsa fólki“ fyrir að leggja bílnum niðri í miðbæ, ég vil bara að fólk borgi fyrir það. Ég vil heldur ekki "refsa fólki“ fyrir að taka strætó, þótt ég vildi ég gjarnan sjá fólk borga meira fyrir það. Ég er raunar sannfærður um að það myndi gera strætó betri. 28.9.2012 06:00
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Teitur Guðmundsson skrifar Ég ætla að nota tækifærið og lofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, af því enginn annar virðist gera það, og þá sér í lagi forsvarsmenn hennar sem hafa hreinlega ekki sést svo mánuðum skiptir opinberlega. Hvað þá að fagfólkið stígi fram og verjist þeirri ádeilu sem er nær stöðug á þjónustu heilsugæslunnar eða á fyrirkomulagi hennar. Þeir sem mig þekkja vita að ég er eindreginn stuðningsmaður einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu þar sem ég starfa og tel að þar liggi stærstu sóknarfærin í framtíðinni. Þrátt fyrir það þykir mér sorglegt hið neikvæða umtal um þessa grunnstoð í heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hver fréttin á fætur annarri um langan biðtíma, lélegan aðbúnað, atgervisflótta lækna og yfirvofandi hættuástand auk rifrildis fagstétta um það hverjum beri að skrifa út pilluna eða ekki er það sem birtist okkur í fjölmiðlum. 28.9.2012 06:00
Vinnum saman Katrín Jakobsdóttir og Guðbjartur Hannesson skrifar Atvinnuleysi er eitt versta mein sem samfélög komast í tæri við. Langvarandi atvinnuleysi getur hoggið djúp skörð í heilu kynslóðirnar. Því miður var óumflýjanlegt að atvinnuleysi yrði umtalsvert í þeirri efnahagskreppu sem íslenskt samfélag hefur tekist á við undanfarin ár. Um síðastliðin mánaðamót voru 8.346 á atvinnuleysisskrá þó þeim hafi, sem betur fer, farið fækkandi. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að allir leggist á eitt við að kveða niður atvinnuleysið og að lágmarka neikvæð áhrif þess. 28.9.2012 06:00
Íslenskur veruleiki Þórður Snær júlíusson skrifar Þegar íslensku bankarnir hrundu voru gjaldþrotin á meðal þeirra stærstu sem átt höfðu sér stað í heiminum. Þrot Kaupþings var það fimmta stærsta í sögunni, Landsbankinn komst í níunda sætið og Glitnir í það tíunda. Kröfur í bú þeirra allra námu þúsundum milljarða króna og ljóst að margir höfðu tapað miklum peningum á íslenska ævintýrinu. 27.9.2012 06:00
Þjóðareignina í stjórnarskrána Ég og allir Færeyingar höfum þá ósk til handa Íslendingum að ferlið að nýrri stjórnarskrá verði bæði réttlátt og heppilegt. Miklu máli skiptir að ótvírætt samkomulag um náttúruauðlindir landsins fái sinn verðuga sess í stjórnarskránni. 27.9.2012 06:00
Frelsi og sjálfræði – eða bergmál frá miðöldum Undir lok átjándu aldar gerðu bandarískir þrælar uppreisn gegn kúgurum sínum og vildu frelsi. Kúgararnir vildu reyndar líka frelsi, frelsi frá alríkinu bandaríska til að halda þræla. Þess vegna var þetta réttnefnt frelsisstríð. Uppreisninni lauk með sigri þrælanna og annarra sem skildu frelsishugsjónina þeirra skilningi. Þetta var vorið í Norður-Ameríku. Þessir vindar bárust einnig til Frakklands og þar var gerð bylting undir yfirskriftinni „frelsi, jafnrétti og bræðralag“. Vorið var komið til Evrópu. Það gerði reyndar hret, mörg hret og frelsið reyndist síður en svo auðfengið. 27.9.2012 06:00
Ferðaþjónusta snýst um fleira en peninga! Ásbjörn Björgvinsson skrifar Það eru yfirleitt tvær aðferðir sem menn nota þegar verið er að leggja af stað i fjárfestingu í ferðaþjónustu. Önnur leiðin, sem alloft er notuð, er að hella sér bara af stað með frábæra hugmynd, keyra verkefnið af stað með hugsjónina eina að vopni og trúa á að finna fjármuni til að verkefnið gangi upp, þ.e. að þetta reddist bara og vissulega gerist það stundum. Hin aðferðin, oftar notuð, er að leggjast í alvöru undirbúningsvinnu, rannsóknir og viðskiptaáætlun til að sjá hvort það sé yfirleitt eitthvert vit í hugmyndinni góðu. En þrátt fyrir góðan undirbúning fara þau áform stundum algjörlega í vaskinn og þá sitja margir sárir eftir. 27.9.2012 06:00
Vilt þú að atkvæði kjósenda vegi jafnt? Þorkell Helgason skrifar Fimmta spurningin sem lögð verður fyrir þjóðina 20. október nk. um nýja stjórnarskrá fjallar um fyrirkomulag þingkosninga; rétt eins og sú fjórða. Sú spurning sem hér er til umræðu hljóðar svo í heild sinni: "Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt?“ 27.9.2012 06:00
Hagstjórnarmistök að lækka skuldir? Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Í liðinni viku komst leiðarahöfundur Fréttablaðsins svo skemmtilega að orði að það væru hagstjórnarmistök að lækka skuldir íslenskra heimila. Þá hélt hann því einnig fram að slík aðgerð kostaði ríkissjóð alltof mikið án þess að leggja fram nokkra útreikninga fyrir þeirri fullyrðingu. 27.9.2012 06:00
Já en – við þjóðkirkjuákvæði Hjalti Hugason skrifar Með grein hér í Fréttablaðinu fyrir nokkru (18. sept.) mælti ég með að kjósendur í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu svöruðu spurningunni "vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“ með já-i. 27.9.2012 06:00
LSH með bestu sérfræðinga heims í talnalækningum? Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum, heimilislækningum og heilbrigðisstjórnun, ritaði fróðlega grein um það hvernig laun forstjóra hans endurspegla hlutverk eins af lykilstjórnendum heilbrigðiskerfisins. Lesendum er bent á að meta mikilvægi áhrifaríkrar stjórnunar í heilbrigðiskerfinu í samhengi við þróun heilbrigðismála í framtíðinni og í framhaldi af því endurskipulagningu heilbrigðisþjónustu erlendis. Það sem kemur ekki fram í grein Ófeigs eru breytingar sem gerðar hafa verið á heilbrigðisþjónustu landsmanna. Þessar breytingar fela í sér að aðlaga heilbrigðiskerfið að starfsemi háskólasjúkrahúss. 27.9.2012 06:00
Fræðsla fyrir alla Oft höfum við ásatrúarfólk fengið skömm í hattinn hjá nýjum félögum um leið og þeir ganga í félagið. Þeir setjast gjarna fyrir framan okkur með alvöruþunga í svipnum og spyrja hvernig í ósköpunum standi á því að þeir hafi aldrei verið fræddir um heiðinn sið og félagið, eða boðið að vera með. 27.9.2012 06:00
Þriðja heimsstyrjöldin Það hefur vart farið fram hjá neinum að úfar eru með þjóðum um allan heim, ýmist vegna viðskiptahagsmuna, landamerkja eða hugmyndafræði. Engum dylst heift og misklíð milli trúarhópa. Áhugi þjóða á norðurheimskautasvæðinu er umtalsverður bæði vegna siglinga og auðæfa sem leynast kunna á hafsbotni. Kínverjar reyna að hasla sér völl á Grænlandi og þar hefur þeim orðið nokkuð ágengt. Áhugi Kínverja á Íslandi er öllum augljós. 27.9.2012 06:00
"Látið í ykkur heyra“ Arnfríður Gísladóttir skrifar Fyrirsögnin að ofan eru lokaorð pistils Björns Zoëga, forstjóra Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH), þann 14. sept sl. Stofnanasamningur LSH við hjúkrunarfræðinga er enn ófrágenginn. Umboð spítalans til að ganga frá samningnum ætti ekki að draga í efa þó enn sé óljóst hve miklu fé verður varið til þessa málaflokks. Kröfur hjúkrunarfræðinga um endurröðun í starfaflokka eru raunhæfar í ljósi launaþróunar hjá hinu opinbera. Kostnaðurinn við að uppfylla þær kröfur er ekki nema brot af þeim upphæðum sem búið er að spara, eða 32 milljarða á sl. 5 árum, m.a. með launalækkunum hjúkrunarfræðinga. 27.9.2012 06:00
Leiftursókn frá raunveruleikanum Nú þegar styttist í alþingiskosningar er ekki laust við að greina megi ákveðna örvæntingu meðal þeirra sem ekki fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum. Nýlega töldu oddvitar ríkisstjórnarinnar sig knúna til að taka það sérstaklega fram að þeim hugnaðist ekki stefna Sjálfstæðisflokksins. Var þeim yfirlýsingum almennt vel tekið meðal sjálfstæðismanna. 27.9.2012 06:00
Við eigum rétt á að vita hvers við neytum Í janúar á þessu ári tók gildi reglugerð sem krefst merkingar á matvælum sem innihalda erfðabreytt efni. Núverandi ríkisstjórn á þakkir skyldar fyrir að setja þessar löngu tímabæru reglur. Þær tryggja valfrelsi neytenda en takmarka á engan hátt fjölbreytni matvæla sem innflytjendur geta boðið upp á. 27.9.2012 06:00
Forsetinn sem fékk flugu í höfuðið Jón Þór Ólafsson skrifar Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera óhefðbundinn. Fyrir að fara bókstaflega eftir stjórnarskránni frekar en að fylgja hefðum og venjum við beitingu forsetavaldsins. Margir fræðimenn hafa gert sitjandi forseta upp einræðishvatir. En hvað ef forseti Íslands fengi, t.d. við heilablóðfall, þá flugu í höfuðið að taka sér eins mikil völd og hann kæmist upp með? Hve langt gæti hann gengið samkvæmt gildandi stjórnarskrá? 27.9.2012 06:00
Baráttan gegn atvinnuleysi er flókið samspil Atvinnuleysi hefur góðu heilli farið ört lækkandi síðustu mánuði og raunar hraðar en útlit var fyrir í byrjun ársins. Atvinnuleysið varð mest árin 2009 og 2010, 8-8,1% en fór niður í 7,4% árið 2011. Í ár 2012 stefnir í að hlutfallið verði nálægt 5,7% en talsverð óvissa er með þróun atvinnuleysis næstu ár. Þar ræður þróun efnahagsmála vitaskuld mestu og hvernig uppbyggingu atvinnulífsins verður hagað. Bjartsýnar spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi muni lækka áfram og verði að öllum líkindum nálægt 4% á árunum 2013 og 2014. 27.9.2012 06:00
Friedman og niðurgreiðslur Guðmundur Edgarsson skrifar Ýmsir hafa hnýtt í mig vegna greinar minnar um Milton Friedman sem birtist í Fréttablaðinu fyrir stuttu. Því vil ég útskýra nánar um hvað sú grein snerist. Í greininni lýsti ég í megindráttum hvernig Friedman greindi ráðstöfun peninga í eftirfarandi fjórar leiðir: (1) að eyða eigin peningum í sjálfan sig, (2) eigin peningum í aðra, (3) annarra peningum í sjálfan sig og (4) annarra peningum í aðra. 27.9.2012 06:00
Frábært að geta hjálpað öðrum Christina Barruel skrifar Andleg og líkamleg vanlíðan nemenda sem lagðir eru í einelti hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla á Íslandi að undanförnu. Sama hefur verið uppi á teningnum á Nýja-Sjálandi, en þar hefur mál móður sem greip inn í þegar ráðist var á dóttur hennar sérstaklega verið til umræðu. Móðirin á nú yfir höfði sér ákæru vegna þessa máls. Hin sálrænu mein sem hljótast af slíkum atburðum rista djúpt og geta varað allt lífið. Ný lög í Nýja-Sjálandi gegn árásum á netinu munu hjálpa til við að sporna gegn einelti en einnig er þrýstingur á skólayfirvöld að þau taki fastar á þessum málum. 27.9.2012 06:00
Siðbót á Alþingi Mörður Árnason skrifar Í frumvarpi sem við Valgerður Bjarnadóttir og níu aðrir þingmenn höfum lagt fram á þinginu er gert ráð fyrir að alþingismenn hætti með öllu að skammta sér laun. Þetta er í þriðja sinn sem við Valgerður flytjum frumvarp um kjör þingmanna, og nú er von til að eitthvað gerist – vegna þess að margir þingmenn hafa undanfarið tekið undir gagnrýni í samfélaginu á ýmsar sporslur sem úthlutað er á þinginu. Nú síðast um gleraugu, heyrnartæki, líkamsrækt og svo framvegis aftan í sakleysislegu þingskapafrumvarpi núna í vor. 27.9.2012 06:00
Fagurbókmenntir eða pabbaklám Eftir að hafa unnið með fimmtán breskum rithöfundum í sex mánuði að verkum þeirra er mér orðin ljós öll sú flóra áhyggjuefna sem sækir á höfunda er þeir strengja saman orð í setningar. Um er að ræða áhyggjur á borð við: 27.9.2012 06:00
Hver ráðstafar tekjunum þínum? Þórey Vilhjálmsdóttir skrifar Eins og allir launþegar finn ég töluvert fyrir því hversu stóran skerf ríkið tekur af launum mínum mánaðarlega og er því afar umhugað hvernig þeirri upphæð er ráðstafað. Af þessum sökum undrast ég þegar ég heyri talað um áhugaleysi á stjórnmálum, hvað þá að einhverjir ætli ekki að nýta kosningarétt sinn. Hvernig má það vera að fólk vilji ekki hafa áhrif á það hvernig stórum hluta tekna þeirra í hverjum mánuði er ráðstafað? 26.9.2012 06:00
Sendiboðaskyttirí Ólafur Þ. Stephensen skrifar Það er vinsæl íþrótt að skjóta boðbera vondra tíðinda, fremur en að horfast í augu við fréttirnar sem þeir flytja. Ríkisendurskoðun tekur fullan þátt í þessum leik með viðbrögðum sínum við umfjöllun Kastljóss Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld. 26.9.2012 06:00
Staðreyndavillur í skýrslu Seðlabanka Íslands Manuel Hinds og Heiðar Már Guðjónsson skrifar Seðlabanki Íslands gaf í síðustu viku út skýrsluna, Valkostir í gengis- og gjaldmiðlamálum. Það er mikilvægt að ekki sé kastað til höndunum, við gerð skýrslna, ekki síst þegar útgefandinn er seðlabanki, og í þessu tilfelli er ekki hægt að kenna ónógum tíma um gæði verksins. 26.9.2012 06:00
Himinn og haf kveður… Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar … og þakkar frábærar viðtökur íbúa á höfuðborgarsvæðinu þau tvö sumur sem útikaffihúsið hefur verið starfrækt við Arnarnesvog. 26.9.2012 06:00
Helvíti á jörð Svavar Hávarðsson skrifar Þetta var einhvern tímann stuttu eftir að ég byrjaði nám í háskóla. Ég leigði litla kjallarakompu í vesturbænum ásamt vini. Eins og lög gera ráð fyrir var lítið sem ekkert lesið en því meira var lífsblómið vökvað. Kjallarakompan góða var oft lokapunkturinn á svallinu. Einn morguninn vaknaði ég svo við að ákveðið var knúið dyra og reyndist það vera nágranni minn að biðja mig um að ganga varlegar um gleðinnar dyr næst þegar ég fengi gesti. Þessu lofaði ég manninum, sem var hinn vinalegasti. 26.9.2012 06:00
Fjármál sveitarfélaga Halldór Halldórsson skrifar Árlega stendur Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir Fjármálaráðstefnu þar sem stjórnendur sveitarfélaga, bæði embættismenn og kjörnir fulltrúar, koma saman og ræða með faglegum hætti rekstrarmál sveitarfélaganna. 26.9.2012 06:00
Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir Skoðun
Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson Skoðun