Fleiri fréttir

„Tilvalið tækifæri fyrir íslenskt kvikmyndafólk“
Sprettfiskur er stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar þar sem markmiðið er að vekja athygli á upprennandi íslensku kvikmyndagerðarfólki.

Aldrei fór ég suður fer fram í ár
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, sem haldin er um páskana á Ísafirði, verður haldin þetta árið. Hátíðinni hefur verið slegið af síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins.

Hallgrímur tók þrennuna
Hallgrímur Helgason hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í þriðja sinn nú í kvöld. Þórunn Rakel Gylfadóttir og Sigrún Helgadóttir hlutu einnig verðlaunin.

Hálfur milljarður í menningargeirann
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun um hálfs milljarðs króna framlag til menningargeirans vegna áhrifa sem hann hefur orðið fyrir vegna Covid-19 faraldursins.

Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur
Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis.

„Skemmtileg pörun á bréfalúgu og glannalegri staðhæfingu“
Listamaðurinn Baldvin Einarsson var viðmælandi í síðasta þætti af KÚNST.

Sigurjón Sighvats opnar byltingarkennda ljósmyndasýningu
Sigurjón Sighvatsson hefur opnað þríviddar aðgang ađ ljósmyndasýningu sinni Horft um öxl við Hafnartorg.

Stjörnur tískuheimsins minnast André Leon Talley
Tísku goðsögnin og brautryðjandinn André Leon Talley féll frá fyrr í vikunni, 73 ára gamall.

Íslensk öfgasamtök svipta af sér hulunni
Leikarinn Aron Már Ólafsson kom áhorfendum verulega á óvart þegar hann birtist sem leiðtogi vinstri samtakanna The Nebulae í Youtube myndbandi á dögunum.

Sköpunargleði og mannréttindi sameinast í listaverkavefuppboði
List og góðgerðarstarfsemi sameinast í eitt dagana 22. janúar - 3. febrúar næstkomandi þegar Amnesty International og Gallerí Fold sameina krafta sína í vefuppboði á íslenskri list frá íslensku samtíma listafólki.

„Einhvers konar op milli hugans og raunveruleikans“
„Húsið er oft myndlíking fyrir manneskjuna eða hugann og hvað verður þá bréfalúgan í tengslum við það?

Gríski myndlistarmaðurinn Alekos Fassianos er látinn
Gríski myndlistarmaðurinn Alekos Fassianos er látinn 86 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu fyrir utan Aþenu í gær.

Þessi fá listamannalaun 2022
Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2022 hefur verði úthlutað og fengu umsækjendur bréf frá Stjórn listamannalauna nú í morgun hvort þeir fengu eða ekki. Kætast þá margir eða eru svekktir eftir atvikum. Nú rétt í þessu var gefin út tilkynning um hverjir fá og má sjá lista yfir þá hér neðar.

Þuríður Helga hættir hjá Menningarfélagi Akureyrar
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar, hefur sagt starfi sínu lausu. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins í sex ár.

Flestir sem fá listamannalaun eru á fimmtugs- og sextugsaldri
Rannís er um þessar mundir að senda út bréf til umsækjenda um starfslaun listamanna. Og bíða væntanlega margir þess spenntir að sjá hvað kemur á daginn í þeim efnum.

Ljósmynd Kaldals af Ástu slegin á 400 þúsund krónur
Ljósmynd Jóns Kaldals af Ástu Sigurðardóttur skáldkonu hefur verið sleginn hæstbjóðanda á 400.000 krónur.

Bóksölulisti uppgjör: Glæpasagnadrottningin Yrsa hrifsar til sín krúnuna
Fyrir liggur uppgjör um bóksölu á síðasta ári. Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir er á toppi lista.

360 gráðu heimsókn á ljósmyndasýningu RAX í München
Í München stendur nú yfir sýning Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Vísis. Sýningin hefur yfirskriftina Where the World is Melting. Sýningarstjóri er Einar Geir Ingvarsson en um er að ræða viðamestu yfirlitssýningu á verkum RAX.

Sabine Weiss látin
Ljósmyndarinn Sabine Weiss lést nýverið á heimili sínu í París, 97 ára að aldri. Hún er af mörgum talin vera frumkvöðull á sviði ljósmyndunar og var síðasti eftirlifandi ljósmyndarinn sem tilheyrði frönsku húmanistastefnunni.

Bjarni fór í Ásmundarsal á Þorláksmessu og keypti sjálfan sig
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra brá ekki út af venjunni á Þorláksmessu í ár og heimsótti árlega listasýningu í Ásmundarsal í miðbæ Reykjavíkur. Þar mun að þessu sinni hafa sést til ráðherrans um eftirmiðdaginn, sem hlýtur að teljast heppilegri tími til listaverkakaupa en á síðkvöldum, eins og dæmin sanna.

Bubbi óttast ekki neitt: „Ég er bara gleðigjafi“
Bubbi Morthens hélt árlegu Þorláksmessutónleika sína í Eldborg í Hörpu fyrr í kvöld. Eldborgarsalurinn tekur um fimmtán hundruð manns í sæti en uppselt var á tónleikana. Tónleikarnir voru sem sagt fjölmennir en óvissa ríkti um tónleikahaldið þegar kynntar voru hertar takmarkanir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins fyrr í vikunni. Nokkrir tónleikahaldarar fengu sérstaka undanþágu frá gildandi sóttvarnareglum, Bubbi þar með talinn.

Glænýr bóksölulisti: Fuglar og Máni með mikinn lokasprett
Vísir birtir hér með glænýjan bóksölulista frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Hér er um mikilvægasta lista ársins því hann tekur til bóksölu á flestum útsölustöðum landsins á tímabilinu 14. til 20. desember.

„Listin er speglun á mínum innri talandi rafmagnaða helli“
Listin og lífið dansa saman skemmtilegan dans og sumir halda því fram að listina sé að finna allt í kringum okkur.

Metverð fékkst fyrir verk eftir Kjarval
Metverð fékkst fyrir olíuverkið Fjölnismenn eftir Jóhannes S. Kjarval á uppboði hjá Gallerí Fold í kvöld en málverkið seldist á 10,8 milljónir króna.

Bergsveinn hlýtur Gens de mer-verðlaunin
Bergsveinn Birgisson hlaut á dögunum frönsku bókmenntaverðlaunin Gens de mer fyrir skáldsögu sína Landslag er aldrei asnalegt, sem kom út á íslensku árið 2003.

Bók seðlabankastjóra uppseld hjá útgefanda
Jónas Sigurgeirsson forleggjari hjá Almenna bókafélaginu er ánægður með ganginn í sölu á bók Dr. Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, Eyjunni hans Ingólfs.

Skorar á Alþingi að veita Magga Eiríks heiðurslaun listamanna
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, þrýstir á allsherjar- og menntamálanefnd að veita Magnúsi Eiríkssyni heiðurslaun listamanna.

Ásta Kaldals boðin upp
Afkomendur ljósmyndarans Jón Kaldals hafa ákveðið að bjóða afrit af einhverri frægustu ljósmynd þjóðarinnar upp til styrktar Mæðrastyrksnefnd.

Alþingi í klípu vegna Megasarmála
Meðal dagskrárliða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar (amen) í gær og aftur í dag eru heiðurslaun listamanna.

Glænýr bóksölulisti: Drottningin veltir kónginum úr sessi
Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir lagði sjálfan Arnald Indriðason, konung glæpasögunar sem ríkt hefur á toppi bóksölulista mörg undanfarin ár, þessa vikuna í keppninni miklu um mest seldu bókina.

Ólasveinar BDSM-samtakanna vekja lukku: „Hlekkjastaur kom fyrstur“
Félagar í BDSM á Íslandi hafa lagað jólasveinaniðurtalningu að smekk sínum og hefur það vakið mikla lukku í þeim ranni.

Tíu auka starfsmenn kallaðir út í leikhúsið vegna hraðprófa
Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri hefur óskað eftir því við fjárlaganefnd Alþingis að Leikfélagi Reykjavíkur verði tryggður fimmtíu milljóna króna stuðningur til að mæta tekjutapi og kostnaði á árinu sem er að líða af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru. Tíu auka starfsmenn eru kallaðir út á hverju sýningarkvöldi til að skanna hraðpróf.

Fyrst grafíkverk á öll strætóskýli og nú sýning á Hafnartorgi
Sigurjón Sighvatsson var að opna ljósmyndasýningu á Hafnartorgi í dag, þar sem bæði er sýnt frá ljósmyndum hans á Íslandi og vestanhafs frá síðustu áratugum.

Anne Rice er látin
Rithöfundurinn Anne Rice lést í gær, 80 ára að aldri. Hún var þekktust fyrir að hafa skrifað vinsæla sagnaflokkinn Vampire Chronicles.

RAX Augnablik: „Ég vann við það að vera leiðinlegur“
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað náttúruhamfarir, skipsströnd, bráðnun jökla og erfiðar aðstæður um allan heim. En hann er líka mikill húmoristi og hefur tekið margar bráðsniðugar myndir síðustu ár.

Vinnubrögð sem enginn ætti að sjá
Þórarinn Eldjárn er tvímælalaust einhver ástsælasti höfundur þjóðarinnar. Rithöfundarferill hans fer að teygja sig upp í fimmtíu árin og í ár, á fjörutíu ára afmæli fyrsta smásagnasafns hans, Ofsögum sagt, gefur hann út sitt áttunda smásagnasafn, Umfjöllun.

Bragi Páll og Guðmundur Andri í hár saman vegna „dráps“ á Arnaldi Indriðasyni
Bragi Páll, sem nýverið sendi frá sér bókina „Arnaldur Indriðason deyr“, hefur efnt til hálfgildings ritdeilu um bók sína við Guðmund Andra Thorsson rithöfund og ritstjóra á Forlaginu. En bókina hefur Guðmundur Andri ekki lesið og ætlar sér ekki að gera.

Glæpafélagið tilnefnir krimmahöfunda ársins
Fimm glæpasagnahöfundar hafa verið tilnefndir til Blóðdropans fyrir glæpasögur sínar en krimmarnir halda sínu meðal íslenskra lesenda.

Nýr bóksölulisti: Yrsa þjarmar að Arnaldi
Æsast nú heldur betur leikar í jólabókaflóðinu hvar salan er helsta mælistikan. Bóksölulisti vikunnar leiðir í ljós að Sigurverk Arnaldar heldur toppsætinu eins og var fyrir viku.

„Ef hjartað er á réttum stað þá bara gerast hlutirnir“
„Árið 2021 er búið að vera annasamasta árið okkar frá upphafi,“ segir leikkonan og leikstjórinn Agnes Wild einn stofnanda atvinnuleikhópsins Miðnættis.

Tuttugu og fimm íslenskir krimmar komu út í ár
Hið íslenska glæpafélag tilnefnir fimm glæpasögur til blóðdropans á fimmtudaginn.

Bjarni kominn aftur í Ásmundarsal
„Svona eru jólin“ er yfirskrift sölusýningar sem opnuð var í Ásmundarsal um helgina, þar sem um 600 verk yfir 180 listamanna eru til sýnis fram að jólum.

Listval opnaði sýningarrými í Hörpu
Listval opnaði sýningarrými í Hörpu á laugardag og var fullt í rýminu alla helgina. Rými Listvals er á fyrstu hæð og sjást því litrík og falleg listaverk vel út um gluggana framan á Hörpu.

Golli í Rikshaw og Kalli í Stuðkompaníinu senda frá sér nýtt jólalag
Tvær gamlar stórstjörnur úr poppheimum fyrri ára taka höndum saman og senda frá sér nýtt jólalag.

RAX Augnablik: Gos í Grímsvötnum og Gjálp
Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011.