Fleiri fréttir

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilgreindri framtíð. Norður-Ameríka heitir nú Panem og er skipt niður í 12 fylki. Einu sinni á ári leggur hvert fylki til strák og stelpu (á aldursbilinu 12-18 ára) sem send eru í óhuggulega útsláttarkeppni þar sem 24 ungmenni berjast um sigur, en aðeins eitt þeirra mun lifa keppnina af.

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að kitla ferðataugar hvers þess sem hefur sótt Manhattan heim. Lítið merkilegt en ekki leiðinlegt.

Rík af andrúmslofti og tilfinningu

Víkartindur er þemaplata sem fjallar um strand samnefnds fraktskips á Suðurlandi vorið 1997. Verkinu er skipti í 10 kafla, en tónlistin er tilraunakennd og flæðandi spunatónlist, án orða en rík af andrúmslofti, litbrigðum og tilfinningu. Klukkutími af flæðandi spuna.

Fínt popp úr verksmiðjunni

Lana Del Rey vakti heimsathygli í fyrra með laginu Video Games, sem var eitt af lögum ársins hjá mörgum tónlistarmiðlum, og platan hennar Born to Die fór beint í fyrsta sæti sölulista í sjö löndum, þ.ám. Bretlandi. Lana Del Rey er listamannsnafn Elisabeth Woolridge Grant, 25 ára stelpu frá New York sem hóf söngferilinn sem Lizzy Grant fyrir þremur árum.

Orðheppinn götustrákur

Skemmtileg bók en þýðingin er hins vegar afspyrnu léleg og ættu þeir sem tök hafa á að nálgast bókina á frummálinu.

Fallbyssufóður óskast

Alvöru hermenn leika aðalhlutverkin í þessari hörmulegu hasarmynd, sem virðist gerð til þess eins að hvetja amerísk ungmenni til að grípa til vopna fyrir ættjörðina. Herinn þarf ávallt meira fallbyssufóður og auðtrúa unglingar, aldir upp á skotleikjum og þjóðrembingi, eru móttækilegastir fyrir boðskapnum.

Fjörugt og fyndið en líka tragískt

Sérlega skemmtileg uppfærsla þar sem saman fer fagur söngur og skemmtileg leikstjórn. Á vissan hátt er hún tímamótaviðburður í tónlistarlífinu. Þetta er í fyrsta sinn sem maður sér alvöru óperusýningu á Íslandi. Í húsi með réttum hljómburði fyrir slíka sýningu og á sæmilega stóru sviði. Í samanburðinum var Töfraflautan í haust bara upphitun. Ég held að við getum öll verið stolt af árangrinum.

Góða veizlu gjöra skal

Þrír unglingspiltar ákveða að halda partý þegar foreldrar eins þeirra eru að heiman, en veislan er fljót að fara úr böndunum. Hressilegt partý en fremur misheppnuð mynd. Project X inniheldur enga brandara, engar spaugilegar kringumstæður og ekki eina einustu aðlaðandi persónu. Stuðið er til staðar en það dugir ekki til.

Gjörningar sem ganga undrum næst

Rúrí á stórglæsilegan feril að baki. Skilaboð verkanna eru einföld og stundum er þeim lamið ofan í listunnandann með öllum tiltækum ráðum án þess þó að ganga of nærri honum.

Hæg og angurvær

Á heildina litið er Kveldúlfur mjög fín plata. Fyrsta ómissandi íslenska poppplatan á árinu 2012.

Ofsafengin hópatriði

Vesalingarnir eftir Alain Boublil og Claude-Micher Schönberg. Sýnt í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri: Selma Björnsdóttir, tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, leikmynd: Finnur Arnar Arnarson, búningar: María Th. Ólafsdóttir, lýsing: Lárus Björnsson og Ólafur Ágúst Stefánsson. Leikarar: Þór Breiðfjörð, Valgerður Guðnadóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Egill Ólafsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson og fleiri.

Smá djók

Umfjöllunarefni dansverksins Úps! er grín í víðri merkingu. Sýningin sjálf er líka partur af umfjöllunarefninu að því leyti að hún er uppfull af sviðsettum klaufaskap, mistökum og vandræðagangi sýnendanna. Ofan á allt þetta er æfingaferlið og undirbúningur sýningarinnar partur af gríninu.

Harry Potter og pissupásan

Þessi vel heppnaði hryllingur hélt mér í heljargreipum þar til um miðbik myndar, en þá ákvað sýningarstjórinn að kominn væri tími á pissupásu og dembdi autotjúnuðu partýpoppi yfir skelfda áhorfendur þar til seinasti hrollurinn var farinn úr liðinu. Ég átti verulega erfitt með að komast inn í myndina að þessu loknu og lít svo á að þarna hafi verið framið listrænt skemmdarverk.

Áfram kristmenn krossmenn

Óvenjuleg mynd sem fer vel af stað en tapar áttum. Butler nær þó að ýta skrjóðnum langleiðina heim.

Raunverulegur sýndarheimur

Svartur á leik húðar viðfangsefni sitt ekki í sykur. Gríðarlegt magn af eiturlyfjum hverfur upp í nasir aðalpersónanna og ofbeldið er á köflum yfirgengilegt. En svona er þetta. Þetta er raunveruleiki sem fullt af fólki býr við og kjánaleg samtöl um kóla og kúlur eiga fullkomlega við. Óskar og félagar sýna raunverulega mynd af sýndarheiminum í frábærri spennumynd.

Villtur æskublómi

Það mikilvægasta af öllu er að varðveita barnið sem í listamanninum býr og það hafa þær systur Sara og Svanhildur svo sannarlega gert og sverja sig þannig í ætt við íslenskar hefðir.

Ljúft og fagurt þjóðlagapopp

Tónlist Blágresis er ljúft þjóðlagapopp. Tinna Marína hefur mjög bjarta og fallega söngrödd sem nýtur sín vel í þessari tónlist, bæði þegar hún syngur ein og þegar hún raddar með strákunum. Platan er mjög vel unnin, hljómurinn er góður og útsetningarnar eru smekklegar, fiðlan kemur t.d. mjög vel út.

Sjá næstu 50 fréttir