Fleiri fréttir

Tekur þátt í hönnunarsamkeppni sænskrar tískukeðju

Tóta Jóhannesdóttir er á meðal þátttakenda í hönnunarsamkeppni á vegum sænsku verslunarkeðjunnar Sisters. Hún hefur verið búsett í Svíþjóð undanfarin tvö ár og starfar sem klippari samhliða því að hanna tískufatnað.

Hlý föt fyrir dansara

Lára Stefánsdóttir, dansari og skólastjóri Listdansskóla Íslands, blandar saman gömlu og nýju.

Vekur athygli tískuheimsins

Ari Helgason er stofnandi fyrirtækisins Fabricly sem er ætlað að aðstoða fatahönnuði við að koma fatalínu sinni markað. Ari er búsettur í New York og stofnaði Fabricly í byrjun síðasta árs. Móttökurnar hafa að hans sögn verið mjög góðar bæði meðal hönnuða og kaupenda enda fer fyrirtækið nýjar leiðir í framleiðslu og sölu á tískufatnaði.

66° í New York: Allsherjar landkynning

Fyrirtækið 66°Norður stóð fyrir umfangsmikilli sýningu á haust- og vetrarlínu sinni 2011 í New York á dögunum. Fjöldi blaðamanna mætti og birtust jákvæðar umsagnir um fatalínuna víða.

Arftaki Grace Kelly

Augu heimsbyggðarinnar eru á Ólympíusundstjörnunni Charlene Wittstock eftir að hún og Albert fursti af Mónakó opinberuðu trúlofun sína síðasta sumar.

Hlakka til að hitta nemendurna

Förðunarskólinn Beautyworld hefur verið settur á laggirnar og mun kenna á snyrtivörurnar frá Bobbi Brown. Hugmyndafræðin á bak við vörurnar er sú að hver kona geti litið út eins og hún sé með lýtalausa húð, noti hún réttan farða.

Fjaðrir og tjull

Tískuvikunni í París lýkur í dag en þar hafa tískuhúsin sýnt Haute Couture línur sínar fyrir vor 2011. Línurnar voru stórkostlegar og flíkurnar ýktar og mikilfenglegar að venju.

Golden Globe: Fölir litir og einföld snið

Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles á dögunum og að venju hefur mikið verið pælt í klæðnaði leikkvennanna. Pastellitir og fölir litatónar voru ríkjandi á rauða dreglinum í ár en inni á milli mátti sjá sterkari liti líkt og rauða kjóla January Jones og Christinu Hendricks.

Helicopter: Föt með notagildi

Hönnuðurinn Helga Lilja Magnúsdóttir hefur hannað undir heitinu Helicopter í nokkur ár en ný fatalína frá henni hefur slegið rækilega í gegn.

Nýir tískustraumar í vor

Kjólar við síðbuxur verður það heitasta í vor ef marka má tískuskríbenta en mikið hefur verið fjallað um þennan tískustraum á erlendum bloggsíðum. Tískuhús á borð við Dries Van Noten, Givenchy, Cerruti og Whyred sýndu meðal annars slíka samsetningu á tískupöllunum í haust en þó hugmyndin sé sú sama eru útfærslur tískuhúsanna ólíkar.

Besta og versta af Chloé Sevigny

Leikkonan Chloé Sevigny hefur lengi verið talin ein sú smekklegasta í bransanum. Hún fer ótroðnar slóðir við klæðaval og hefur oftar en ekki verið langt á undan straumnum. En þeir bestu geta einnig stigið feilspor og ef litið er yfir farinn veg má sjá að ungfrú Sevigny á sína góðu og slæmu daga.

Tískubloggari hannar fyrir H&M

Sænski tískurisinn H&M hefur hannað sérstaka fatalínu í samstarfi við sænska tískubloggarann Elinu Kling og verður línan aðeins fáanleg í verslunum H&M í Svíþjóð.

Topp 10: Þórhallur Sævarsson

Þórhallur Sævarsson auglýsingaleikstjóri sýnir okkur tíu hluti úr sínum fórum, allt frá forláta Persol-sólgleraugum til glænýrra gönguskóa.

Fyrirsæta í fimmtán ár

Þegar Telma Þormarsdóttir byrjaði að vinna sem fyrirsæta var ekkert internet og hún fékk kassettur með íslenskri tónlist sendar í pósti. Eftir 15 ár í bransanum lumar Telma á mörgum góðum sögum. Henni hefur verið bjargað af Naomi Campbell og orðið fyrir móðgun frá Miuccia Prada.

Doppur og rendur frá Westwood

Nú fer daginn að lengja og fólk getur farið að hlakka til sumarsins. Okkur er því óhætt að byrja að skoða vor- og sumarlínur tískuhúsanna og sjá hvað sumarið fram undan ber í skauti sér.

Nýtt íslenskt matarstell frá Aurum

Guðbjörg Ingvarsdóttir, skartgripahönnuður Aurum, hefur hannað fallegt matarstell í samstarfi við finnska hönnunarteymið Elinno. Stellið er framleitt úr hágæða postulíni og er þar af leiðandi sterkara og endingarbetra en venjulegt postulín.

Ekki bara ein flík

Ný vara frá hönnunarfyrirtækinu Björg í bú kom nýlega á markaðinn, fjölnota ullarflík sem hefur fengið nafnið Peysuleysi.

Vopnabúrið í hóp bestu verslana heims

Tímaritið Wallpaper hefur valið Vopnabúrið, hönnunarverslun í eigu vöruhönnuðarins Sruli Recht, á meðal tíu athyglisverðustu verslana heims árið 2010. Vopnabúrið er þar með komið í hóp verslana á borð við Hermès í New York.

Sléttunarmeðferð sem endist í nokkra mánuði

Krullhærðir vita að það getur farið illa með þurrt og hrokkið hár að slétta það. Natura Keratin er ný stofumeðferð sem sléttar hár án þess að taka hárböndin í sundur og endist í þrjá til fimm mánuði.

Fram undan í tískuheimi

Margir spá nú í tískuárið sem er fram undan. Tískutímaritið Elle hefur tekið saman það helsta sem mun verða vinsælt á árinu í tískuheiminum.

Ein af stjörnum morgundagsins

Brynjar Sigurðsson gerir janúarforsíðu Wallpaper. Hann stundar um þessar mundir nám í vöruhönnun við hinn virta svissneska skóla ECAL í Lausanne. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar þegar vakið mikla athygli.

Þyngra yfirbragð á árinu

Þung leðurhúsgögn, leðursófar og -stólar, brúnir, svartir og sinnepsgulir litatónar, stærri persneskar mottur, flónel og þyngri gardínur virðist vera það sem er í tískukortum heimilanna á næsta ári.

Sjá næstu 50 fréttir