Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljósanæturlagið umdeilt í Reykjanesbæ Lag Ljósanætur í ár er umdeilt í Reykjanesbæ ef marka má vefinn mannlif.is. Lagið, sem heitir Ó, Keflavík og er eftir Jóhann Helgason þykir hefja Keflavík upp til skýjanna og gagnrýnt er að sveitarfélögin sem mynda Reykjanesbæ ásamt Bítlabænum komi hvergi við sögu. 29.8.2007 07:30
Benni og Lekman í hljóðver Tónlistarmennirnir Benedikt Hermann Hermannsson og hinn sænski Jens Lekman fóru í hljóðver um síðustu helgi og tóku upp nokkur lög saman. Ekki hefur verið ákveðið hvenær lögin koma út. 29.8.2007 07:00
Ölvis: Bravado - þrjár stjörnur Ölvis er einmenningssveit Örlygs Þórs Örlygssonar en hann kom mjög á óvart með annarri breiðskífu sinni, The Blue Sound, sem kom út seint á árinu 2005. Bravado er því þriðja breiðskífa Ölvisar og er hún gefin út af Resonant í Bretlandi. 12 Tónar sjá hins vegar um dreifingu hér heima. Bravado inniheldur margt af því góða sem finna mátti á The Blue Sound. 28.8.2007 09:30
Yndislegur metnaður Hljómsveitin Skátar fær góðan dóma fyrir fyrstu plötu sína, Ghost of the Bollock to Come, í enska tónlistartímaritinu Plan B Magazine. Þar segir að platan sé aldeilis frábær þar sem ýmsum tónlistarstefnum sé blandað saman. 28.8.2007 09:00
Tónleikaferð lokið Hljómsveitin The Rolling Stones hefur lokið "A Bigger Bang"-tónleikaferð sinni um heiminn sem hefur staðið yfir í tvö ár. Orðrómur hefur verið á kreiki um að þetta sé síðasta tónleikaferð sveitarinnar, enda Jagger, Richards og félagar komnir vel á sjötugsaldurinn. 28.8.2007 08:30
Hjaltalín og Magnet - fjórar stjörnur Norræna menningarhátíðin Reyfi er eitt stórt metnaðarfullt fyrirbæri sem hefur ekki fengið nærri nógu mikla umfjöllun. Menningaratburðir af þessu tagi hefur vantað í íslenskt þjóðlíf. Sérstakur glerskáli hefur verið fluttur til landsins til þess að hýsa aðalatburði hátíðarinnar og sómaði hann sig vel á lóðinni fyrir utan Norræna húsið. 28.8.2007 08:00
Í Höllinni í október Tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson heldur stórtónleika í Laugardalshöll 27. október. Þar mun Rúnar, ásamt stórri hljómsveit, flytja mörg sín bestu lög af löngum ferli, auk laga af nýjustu plötu sinni, Snákar í garðinum. 28.8.2007 07:30
Fyrsta plata Eagles í 28 ár Sveitarokksveitin The Eagles gefur þann 31. október út sína fyrstu hljóðversplötu með nýju efni í 28 ár. Platan heitir Long Road Out Of Eden og nefnist fyrsta smáskífulagið How Long. 28.8.2007 07:00
Feðgin sungu með Sniglabandinu Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson steig óvænt á svið með Sniglabandinu er þeir útvörpuðu beint frá Hveragerði síðastliðinn sunnudag. "Ég var bara staddur þarna og þeir kölluðu mig upp," segir Magnús Þór, sem söng með þeim lag sitt "Jörðin sem ég ann". 28.8.2007 06:30
Hljómsveit öfganna Ein sérstæðasta hljómsveit nútímans, Liars, fagnar þessa dagana útkomu nýrrar breiðskífu. Steinþór Helgi Arnsteinsson lagði við hlustir og grúskaðist fyrir um sveitina. 24.8.2007 08:00
Iceland Airwaves á iTunes Icelandic Music Export, í samstarfi við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, mun gefa út sérstakan safndisk í tilefni hátíðarinnar sem fáanlegur verður á iTunes í Bandaríkjunum. 24.8.2007 07:45
BB og Blake í leitirnar „Samstarfið byrjaði þegar ég fékk Magga til að semja tónlist fyrir stuttmyndina mína, Monsieur Hyde,“ segir BB, eða Vera Sölvadóttir, annar helmingur hljómsveitarinnar BB and Blake. Stuttmynd þessi verður sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í haust. 24.8.2007 07:00
Sigga hátíðleg á væntanlegri sólóplötu „Það var kominn tími á að drífa sig í gang. Ég er búin að liggja allt of lengi í leti,“ segir söngkonan Sigríður Beinteinsdóttir, en hún er að hefjast handa við að búa til sína fyrstu sólóplötu í fjögur ár. Upptökur á plötunni hefjast strax eftir helgi og mun Sigríður meðal annars njóta aðstoðar sinfóníuhljómsveitar Búlgaríu við gerð hennar. 24.8.2007 06:45
Fyrsta plata Pink Floyd endurútgefin Fyrsta plata Pink Floyd, The Piper at the Gates of Dawn, verður endurútgefin á þremur diskum hinn 3. september í tilefni af fjörutíu ára afmæli hljómsveitarinnar. 24.8.2007 06:30
Ólöf Arnalds með síðdegistónleika Ólöf Arnalds heldur síðdegistónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg á morgun. Þar mun hún leika lög af plötunni Við og Við sem kom út hjá 12 Tónum í vor og kemur út í Evrópu í næsta mánuði. 23.8.2007 11:38
Stuðmenn í Mosó Hljómsveitirnar Stuðmenn og Gildran spila á útitónleikum á íþróttavellinum að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Tilefnið er bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, sem er nú haldin í þriðja sinn dagana 23. til 26. ágúst. Bærinn er tuttugu ára og verður dagskráin því sérlega vegleg í þetta sinn. 23.8.2007 09:45
Jónas með tónleika Jónas Ingimundarson píanóleikari verður með tvenna tónleika á næstunni utan höfuðborgarinnar. Á föstudagskvöld spilar hann í kirkjunni í Borgarnesi. Þeir tónleikar hefjast kl. 20, og annan fimmtudag verður hann með tónleika á Sögusetrinu á Hvolsvelli, kl. 21. 23.8.2007 09:30
Í Höllinni 13. október Megas og Senuþjófarnir halda tónleika í Laugardalshöll laugardaginn 13. október. Eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu ætlar Megas að spila í Höllinni í tilefni af útgáfu plötunnar Frágangur. Hefur platan selst í um þrjú þúsund eintökum og er fjórða söluhæsta plata Megasar frá upphafi. 23.8.2007 08:45
Frumsamið R&B á Gauknum Hljómsveitin Soul 7 heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Leikin verða frumsamin lög eftir söngkonuna Katrínu Ýr Óskarsdóttur og Katherine Dawes, samnemanda Katrínar í tónlistarskóla í London. Einnig verða leikin þekkt R&B lög með blús-, fönk- og gospelívafi. 23.8.2007 07:00
Syngja til heiðurs George Michael Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða aðalnúmerin á skemmtisýningu á Broadway til heiðurs George Michael og hljómsveitinni Wham! Sýningin hefst þann 27. október og verður öllu tjaldað til. „Þetta verður flottasta „sjóvið“ sem hefur verið sett þarna upp,“ segir Friðrik Ómar, sem er mikill aðdáandi George Michael. 23.8.2007 06:45
Endurnærðir Papar snúa aftur Paparnir ætla að dusta rykið af hljóðfærunum eftir gott frí og spila á nokkrum vel völdum stöðum frá 24. ágúst til 19. október. Þeir hafa ekkert komið fram síðan 18. apríl og eru því orðnir verulega endurnærðir. 23.8.2007 06:45
Viljum að fólk hristi búkinn Fjórða hljóðversplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake it good, kom út um helgina. Vignir Guðjónsson ræddi við Samúel J. Samúelsson um gripinn. Hljómsveitin Jagúar fagnaði níu ára afmæli sínu með pomp og prakt um helgina og hélt vel heppnaða afmælis- og útgáfutónleika á Organ á laugardagskvöld. 23.8.2007 06:30
Mood með tónleika Bergþór Smári, sem vakti athygli í síðustu Eurovision-keppni með laginu Þú gafst mér allt, spilar með hljómsveit sinni Mood á Næsta bar í kvöld. Mood var stofnuð árið 2003 og er skipuð, auk Bergþórs, þeim Inga Skúlasyni, bassaleikara Jagúars, og trommaranum Friðriki Júlíussyni. 23.8.2007 05:00
Rammíslensk fiðla í rammíslensku safni Sunnudaginn 26. ágúst er komið að síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar. Á þeim munu þau Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Gerrit Schuil, píanóleikari flytja verk eftir Ludwig van Beethoven og Fritz Kreisler. Guðný mun auk þess vígja nýja fiðlu sem smíðuð var á Íslandi af Hans Jóhannssyni fiðlusmiði. 22.8.2007 14:36
Miðasala hefst á forhlustunartónleika Sprengjuhallarinnar Sprengjuhöllin heldur forhlustunartónleika á tónleikastaðnum ORGAN í Hafnarstræti laugardaginn 1. september í tilefni af því að upptökum er að ljúka á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar. 21.8.2007 10:53
Eivör Pálsdóttir á Ormsteiti Ormsteiti er tíu daga hátíð sem haldin er á Héraði, og hluti af þeirri hátíð er skógardagurinn, sem fór að sjálfsögðu fram í Hallormstaðaskógi. Þar söng Eivör Pálsdóttir, eins og henni einni er lagið, fyrir hátt í sexhundruð manns. 20.8.2007 20:19
Sigur Rós í mynd DiCaprio Hljómsveitin Sigur Rós á lag í heimildarmyndinni 11th Hour sem hjartaknúsarinn Leonardo DiCapro framleiðir og talar inn á. Á meðal fleiri sveita sem eiga lög í myndinni eru Coldplay og Cocteau Twins. 20.8.2007 05:45
Private Cinema - Slaraffenland - Fjórar stjörnur Danir hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu í tónlistinni eins og áður hefur kom fram hér í Fréttablaðinu og er sveitin Slaraffenland ein besta sönnun þess. 20.8.2007 05:00
Fjölhæfur Common Hiphop-tónlistarmaðurinn Common hefur gefið út nýja plötu að nafninu Finding Forever. Common lék einnig nýlega í myndinni Smokin‘ Aces ásamt Jeremy Piven, Aliciu Keys og Ben Affleck en hann er vel liðtækur í leiklistinni auk tónlistarinnar. 20.8.2007 03:15
Stemningin skipti öllu máli Fyrsta sólóplata Elízu Geirsdóttur Newman, Empire Fall, er komin út. Elíza, sem var áður í hljómsveitinni Kolrössu krókríðandi og Skandinavíu, gefur út plötuna hjá nýstofnuðu útgáfufyrirtæki sínu, Lavaland Records. 19.8.2007 08:00
Töfrar frá Springsteen Nýjasta plata Bruce Springsteens, Magic, kemur út 2. október næstkomandi. Þetta verður fyrsta plata Springsteens með hljómsveitinni E Street Band í fimm ár, eða síðan The Rising kom út við mjög góðar undirtektir. 19.8.2007 06:45
Spænskt þungarokk Spænska þungarokkstríóið Moho heldur tvenna tónleika á Íslandi í byrjun september. Hljómsveitin var stofnuð árið 2003 og síðan þá hefur hún gefið út tvær plötur og spilað víðs vegar um heiminn. 19.8.2007 03:00
Gummi - Stafrænn Hákon - Þrjár stjörnur Ég sá fyrst Stafrænan Hákon (eins manns verkefni Breiðhyltingsins Ólafs Josephssonar) þegar sveitin hitaði upp fyrir Godspeed You! Black Emperor. Fannst sveitin óttalegt mald í móinn og hún hitti ekki alveg í mark. 18.8.2007 08:00
Blása lífi í Presley Hljómsveitin Minä Rakastan Sinua hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, sem heitir Elvis, í höfuðið á konungi rokksins. Á plötunni, sem kemur út undir merkjum Smekkleysu, syngur hljómsveitin lög úr sarpi Elvis Presley með það að markmiði að blása lífi í þau á nýjan leik. 18.8.2007 06:45
Ný plata og tónleikar Nýjasta breiðskífa hljómsveitarinnar Jagúar, „Shake it good“ kemur út í dag – á sama degi og sveitin fagnar níu ára afmæli sínu. Til að fagna afmælinu og útgáfu nýju plötunnar býður sveitin í partí á tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti. 18.8.2007 03:45
Rokkveisla og pylsuát á Dillon Útvarpsstöðin Reykjavík FM ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í hátíðarhöldunum á menningarnótt og hefur ákveðið að blása til stórtónleika í bakgarði skemmtistaðarins Dillon á laugardag. 18.8.2007 03:30
Miklatún á menningarnótt Tónleikar Menningarnætur í ár verða á Miklatúni en þetta er í fjórða skipti sem þeir eru haldnir. Hingað til hafa þeir verið staðsettir á hafnarbakkanum en meðal annars í ljósi vel heppnaða tónleika Sigur Rósar á Miklatúni í fyrrasumar var ákveðið að færa þá þangað. 16.8.2007 16:40
Hljómsveitin Skriðurnar Hljómsveitin Grjóthrun í Bolungarvík hefur lengi talist fremsta sveit bæjarfélagsins. Meðlimir hafa æft í bílskúr einum góðum í ró og næði. En nú hefur orðið breyting þar á. Góður hópur kvenna hafði um nokkurt skeið hist í heimahúsi, ekki til að borða kökur og sauma út, heldur semja lög og texta og nú deila þær bílskúrnum með Grjóthruni. 15.8.2007 23:48
Myndin um Sigur Rós Sigur Rós - Heima - er nafn kvikmyndar um hljómsveitina Sigur Rós og tónleikaferð hennar um landið fyrir nokkrum misserum. Hljómsveitin lék þá á ólíklegustu stöðum og öll herlegheitin voru fest á filmu. Eftir rúman mánuð verður heimsfrumsýning á myndinni á kvikmyndahátíð í Reykjavík. 15.8.2007 23:43
Ný plata með Jagúar kemur út á menningarnótt Nýjasta hljómplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake It Good, kemur út laugardaginn 18. ágúst. Þetta er fjórða hlóðversplata sveitarinnar sem fagnar 9 ára afmæli sínu.Til að halda upp á útgáfu plötunnar býður Jagúar í útgáfu- og afmælispartý á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti. 15.8.2007 15:32
Kántrýdagar á Skagaströnd um helgina Kántrýdagar verða haldnir á Skagaströnd dagana 17.-19. ágúst næstkomandi þar sem fjölbreyttur hópur listamanna kemur fram. Meðal þess sem í boði verður má nefna kántrýtónlist, gospelsöng, íslenskt rokk og afrískan trumbuslátt. 15.8.2007 15:05
Óli Palli ánægður með tveggja daga tónlistarveislu Ólafur Páll Gunnarsson sem skipuleggur tónleika Rásar 2 á Menningarnótt í samstarfi við Landsbankann segir frábært að Íslendingum verði boðið upp á tveggja daga samfellda tónlistarveislu um helgina. Hann stendur fyrir tónleikum á Miklatúni á Menningarnótt og Kaupþing heldur afmælistónleika á Laugardalsvelli á föstudag. 15.8.2007 12:22
Krafturinn á Klais í kvöld Þeir sem til þekkja segja að Klais-orgelið í Hallgrímskirkju sé Rolls í heimi kirkjuorgela. Svo mikið er víst að Kirkjulistahátíð lofar flugeldasýningu í kirkjuskipinu á Skólavörðuholti í kvöld þegar breski orgelleikarinn Christopher Herrick flytur glæsileg verk á gripinn. 15.8.2007 05:45
Kolefnisjafnaðir rokkarar Hljómsveitin Jan Mayen hefur gefið út sína aðra breiðskífu sem nefnist So Much Better Than Your Normal Life. Freyr Bjarnason átti umhverfisvænt símaspjall við gítarleikarann Ágúst Bogason. 15.8.2007 04:00
Syngur 30 Presley-lög Tvennir minningartónleikar um Elvis Presley verða haldnir í Salnum í Kópavogi á morgun en þá verða þrjátíu ár liðin síðan hann lést. 15.8.2007 02:00