Fleiri fréttir

The Bronx á Airwaves

Bandaríska hljómsveitin The Bronx hefur boðað komu sína á Iceland Airwaves-hátíðina í haust ásamt frönsku plötusnúðunum Fluokids og Brodinsky og þýsku dansboltunum Moonbotica og Patrick Chardronnet.

Endurútgefa Hlemm

Hljómsveitin Sigur Rós hefur endurútgefið tónlist sína við heimildarmyndina Hlemmur eftir Ólaf Sveinsson. Plata með tónlistinni kom upphaflega út árið 2003 á vegum útgáfu sveitarinnar, Krúnk, rétt eins og í þetta sinn.

50 cent hótar að hætta að gefa út sólóplötur

Rappgölturinn 50 cent hefur hótað því að binda enda á einleikaraferill sinn ef geislaskífa rapparans Kanye West selst betur en hans eigin, en báðar eru þær væntanlegar þann 11. september næstkomandi. 50 cent hyggst þó ekki láta af tónlistarstörfum ef svo illa fer, heldur einungis starfa með öðrum tónlistarmönnum.

Metnaðarfullt sjálfstraust

Vinasveitirnar Hjaltalín og Sprengjuhöllin vinna nú um stundir að frumburðum sínum. Steinþór Helgi Arnsteinsson kíkti í heimsókn til sveitanna þar sem upptökur voru í fullum gangi.

Selt á Franz

Miðasala á tónleika skosku hljóm­sveitarinnar Franz Ferdinand hinn 14. september nk. hefst í dag í verslunum Skífunnar, BT á landsbyggðinni og á vefsíðunni Midi.is. Tónleikarnir fara fram á Nasa og í tilkynningu segir að miðaframboð á tónleikana sé takmarkað.

Revíusýning hjá Slátrinu

Á laugardagskvöldið kl. 20 verður S.L.Á.T.U.R. með sýningu í aðalstöðvum sínum að Hverfisgötu 32 á revíunni ALLT GOTT. Þar með tekur þetta gamla form á sig nýtt sköpulag í faðmi raftónlistarmanna.

Sumarkvöld í Hömrum

Á sunnudagskvöld kl. 20 halda þær Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Sigríður Ragnarsdóttir píanóleikari tónleika í Hömrum, og eru það sjöttu tónleikarnir í sumartónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar, Sumar í Hömrum.

Semur í göngutúrum

Hljómsveitin Vetiver heldur tónleika á Organ í kvöld. Andy Cabric, forsprakki sveitarinnar, er spenntur fyrir tónleikunum.

Reykjavík! í 12 Tónum

Hin kröftuga hljómsveit Reykjavík! leikur í 12 Tónum í dag ásamt áströlsku sveitinni Because of Ghosts. Sú síðarnefnda er allþekkt í heimalandinu og er komin hingað til að freista þess að kynnast lifnaðarháttum Íslendinga.

Miðasala á Franz Ferdinand hefst á morgun

Skoska gítarpoppsveitin Franz Ferdinand heldur tónleika á NASA föstudaginn 14. september og hefst miðasala á tónleikana á morgun, föstudag í verslunum Skífunnar, BT og á Midi.is.

Astrópía - Tónlistin úr kvikmyndinni - þrjár stjörnur

Það er sitt lítið af hverju á Astrópíu-kvikmyndaplötunni. Nokkur ný popplög tekin upp sérstaklega fyrir plötuna, ný og nýleg lög af útkomnum eða væntanlegum plötum og kvikmyndatónlistin sjálf sem Þorvaldur Bjarni samdi og sem hljóðrituð var af Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu.

Söngskólinn skorar á kóra

Söngskólinn í Reykjavík og menningarnótt hyggjast efna til söngveislu á menningardaginn 18. ágúst, undir yfirskriftinni Syngjum saman við Söngskólann! Stefnt er að því að samfelld söngdagskrá verði í gangi við hús Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, frá 15 til 18.

Leaves á Organ

Hljómsveitin Leaves spilar á nýja tónleikastaðnum Organ við Hafnarstræti í kvöld.

Leaves spila á Organ

Hljómsveitirnar Leaves og Shadow Parade blása til tónleika á Organ, nýjum tónleikastað í Hafnarstræti. Tónleikarnir fara fram annað kvöld og hefjast kl. 21.

Söng fyrir uppáhaldsliðið sitt

Óperusöngvarinn Garðar Thor Cortes hafði sérstaklega gaman af því að syngja fyrir vináttuleik Manchester United og Inter Milan á Old Trafford á dögunum vegna þess að hann hefur verið aðdáandi United síðan hann var lítill polli.

Latir blaðamenn

Jack White, annar helmingur rokkdúettsins The White Stripes, segir að blaðamenn séu latir og nenni ekki að hafa staðreyndirnar á hreinu áður en þeir taki við sig viðtöl.

Wonder í tónleikaferð

Goðsögnin Stevie Wonder er á leið í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin í rúman áratug. Wonder, sem er 57 ára, byrjar ferðalagið í San Diego 23. ágúst og lýkur því í Boston 20. september.

Lokatónleikar "Tónaregns í Reykjavík"

Í kvöld verða haldnir tónleikar í Dómkirkjunni til styrktar minningarsjóði um Susie Rut Einarsdóttur. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda dúóið Para-Dís og hafa í sumar unnið hjá Hinu húsinu í Reykjavík að verkefni sem þau nefna "Tónaregn í Reykjavík" og eru tónleikarnir í kvöld lokahluti verkefnisins.

Innipúkar gleðjast

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um helgina eins og undanfarin ár. Í þetta skiptið fer hátíðin fram á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti sem opnar þá með pompi og pragt.

Nýtt lag frá Millunum

Milljónamæringarnir hafa sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Við elskum þig nú samt“. Lagið er eftir Karl Olgeirsson en textinn er eftir Stefán Hilmarsson.

Rétti tíminn runninn upp

Birgitta Haukdal ætlar að gefa út sína fyrstu sólóplötu fyrir næstu jól. Er hún nýbúin að undirrita útgáfusamning við Senu þess efnis.

Ragga Gröndal snýr aftur

Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal, sem er komin heim eftir söng- og píanónám í Bandaríkjunum, heldur tónleika á Domo í kvöld ásamt hljómsveitinni Black Coffee. Sveitina skipa gítarleikararnir Ásgeir Ásgeirsson og Eðvarð Lárusson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari og trommarinn Erik Quick.

Hita upp fyrir Eyjar

Rokkstjörnurnar Magni Ásgeirsson og hinn ástralski Toby Rand halda tónleika á Gauki á Stöng í kvöld ásamt hljómsveitinni Á móti sól. Um er að ræða nokkurs konar upphitun fyrir þjóðhátíð í Eyjum, þar sem Á móti sól ætlar að spila um verslunarmannahelgina.

Rignir niður plötum

Tónlistarmaðurinn Rigning heldur útgáfutónleika á Barnum í kvöld í tilefni af útkomu sinnar fimmtu sólóplötu, Askja Pandóru. Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir síðan síðasta sólóplata kappans kom út, þannig að afköst hans eru í miklu hámarki um þessar mundir.

Sjá næstu 50 fréttir