Lífið

Jolie og Pitt slógu í gegn á rauða dreglinum

Myndir/CoverMedia
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt gekk inn rauða dregilinn á Óskarsverðlaunahátíðinni í Kodak leikhúsinu í Kaliforníu fyrr í kvöld.

Parið var upp á sitt allra besta, Jolie klæddist stórglæsilegum svörtum Versace kjól með klauf, bar rauðan varalit og var með íburðarmikið hár á meðan Pitt klæddist smóking frá Tom Ford.



Það lá vel á parinu og það gaf sér góðan tíma til að stilla sér upp fyrir ljósmyndara og slá á létta strengi fyrir aðdáendur.



Gwyneth Paltrow vakti einnig mikla athygli í hvítumTom Ford kjól en ljósir litir voru áberandi í kjólavali stjarnanna.



Í meðfylgjandi myndasafni má sjá fleiri stórstjörnur á rauða dreglinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×