Fleiri fréttir

Umhverfis jörðina á 80 dögum á Vísi

Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbandið frá ferðalagi Sighvats Bjarnasonar, sem ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann lagði af stað í gær frá Keflavík og sendi myndbandið frá Höfðaborg í dag.

Ástarátthyrningur í Búðardal

Kvikmyndin Kurteist fólk verður frumsýnd í lok marsmánuðar og eru Ólafur Jóhannesson leikstjóri og hans fólk í Poppoli Pictures nú í óðaönn að leggja lokahönd á verkið.

Mikið rétt það voru fleiri partý í gangi

Fleiri en Hildur Líf og Linda Ýr héldu partý um helgina. Á laugardaginn var bærinn stútfullur af fólki að skemmta sér. Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á skemmtistöðunum Hvíta Perlan, Risið og Hressó á laugardagskvöldið.

Tilnefndur til Emmy-verðlauna

Hermann Hermannsson klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Knicks Poetry Slam. Verðlaunin eru systurverðlaun hinna þekktu Emmy-verðlauna og hafa verið veitt árlega frá árinu 1955.

Stafræn tónleikaferð

Hljómsveitin Stafrænn Hákon er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 22. apríl. Um kynningarferð er að ræða vegna sjöttu plötu hennar, Sanitas, sem kom út síðasta vor.

Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock

"Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima," segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore Reykjavík. Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðalhlutverkum.

Beastie Boys snýr aftur

Rappsveitin Beastie Boys hefur loksins ákveðið útgáfudag á nýjustu plötu sinni, Hot Sauce Comittee Pt 2. Hún kemur út 19. apríl og bíða hennar margir með mikilli eftirvæntingu. Gripurinn átti upphaflega að heita Hot Sauce Commiettee Pt 1 og útgáfudagur átti að vera í september 2009.

Glæný tónlistarhátíð

Tónlistarhátíðin Bergen-Reykjavík-Nuuk fór fram í leikhúsinu Norðurpólnum á fimmtudag og föstudagskvöld. Fjöldi tónlistarmanna steig þar á svið og lét ljós sitt skína.

Óvissa um Eagles-ferð til Hamborgar

Á sama tíma og Sena auglýsir tónleika með hljómsveitinni Eagles í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní auglýsir Icelandair pakkaferð á Eagles-tónleika í Hamborg tæpum þremur vikum síðar, eða 28. júní, sem kostar á annað hundrað þúsund krónur.

Það leiddist engum á Replay

Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Replay í gærkvöldi þar sem gleðskapur á vegum Hildar Líf og Lindu Ýr fór fram með látum. Stúlkurnar mættu í hvítri limmósínu og gáfu sér tíma til að pósa fyrir utan staðinn þrátt fyrir kuldann. Sigríður Klingenberg stjórnaði veislunni en hún fékk gesti meðal annars til að dilla sér saman í takt við lagið Sex bomb í flutningi Tom Jones og það vakti mikla lukku. Eins og myndirnar sýna leiddist engum þetta kvöld.

Þetta lið bókstaflega veinaði

Frumsýningargestir, sem skoða má á meðfylgjandi myndum, veinuðu af hlátri á frumsýningu gamanleiksins Nei, ráðherra í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leik- húsfjalir þar sem það er flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Eins og sjá má voru leikhúsgestir í hátíðarskapi.

Verzlunarskóladama valin ungfrú Reykjavík

Verzlunarskóladaman Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir var valin ungfrú Reykjavík á veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Eyrún Anna Tryggvadóttir landaði öðru sæti og Hjördís Hjörleifsdóttir því þriðja. Meðfylgjandi má sjá myndir frá keppninni en gríðarlega góð stemning var á þéttsetnu veitingahúsinu eins og myndirnar sýna greinilega. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan í hópnum og Lilja Ragna Róbertsdóttir sigraði símakosninguna.

Skálmöld í Tjarnarbíói

Hljómsveitin Skálmöld hélt útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöld. Margt var um manninn á tónleikunum sem mæltust einstaklega vel fyrir.

Ný tónlistarhátíð haldin í vor

„Það vantar bara partí,“ segir Kristján Freyr Halldórsson hjá Kimi Records. Útgáfufyrirtækið skipuleggur í fyrsta sinn tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin dagana 16. og 17. apríl.

Lifa bóhemlífi í München

„Ég seldi fyrirtækið áður en kreppan skall á en var samt enn fullur af fjöri. Ég rak auðvitað gallerí í tuttugu ár og núna fæ ég útrás fyrir sköpunargleðina fyrir framan strigann,“ segir Sævar Karl Ólason, fyrrum kaupmaður.

Hundrað vilja í Stundina okkar

„Við fengum fullt af spennandi umsóknum frá spennandi fólki,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Almúgapartý á Gullöldinni í kvöld

„Þetta partý verður hreint út sagt frábært og verða heimatilbúin skemmtiatriði eins og við gerum best hérna á Gullöldinni," segir Davíð Þór Rúnarsson hjá Gullöldinni í Grafarvogi. Í kvöld verður „Almúgapartý" á Gullöldinni en hugmyndin kom eftir að grein birtist á vefnum bleikt.is um VIP-partý á Replay.

Hræðileg æskuár

Spjallþáttadrottningin Oprah birti nýverið langt og ítarlegt sjónvarpsviðtal við leikarann David Arquette þar sem hann ræðir meðal annars um erfiða æsku sína. Systur hans tvær, leikkonurnar Rosanna og Patricia Arquette, komu einnig fram í viðtalinu og lýstu erfiðri æsku sinni.

Eltihrellir handtekinn

Nálgunarbann hefur verið sett á brjálaðan aðdáanda leikkonunnar Sharon Stone. Maðurinn má ekki koma nær húsi leikkonunnar og þriggja barna hennar en eitt hundrað metra. Hann sást á lóð hennar fyrr í mánuðinum og í framhaldinu var hann handtekinn af lögreglu og fluttur á geðdeild.

Björk og Emilíana í stelpumynd

Íslensku söngkonurnar Björk Guðmundsdóttir og Emilíana Torrini eiga báðar lag í bandarísku stelpuhasarmyndinni Sucker Punch.

Dusta rykið af týndu plötunni með Fídel

Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega efnileg á sínum tíma og sendi frá sér magnaða plötu, áður en hún hætti skyndilega. Nú hafa meðlimir hljómsveitarinnar dustað rykið af týndum upptökum.

Hermir eftir strákunum og rakar á sig hanakamb

Gunnar Helgason leikstjóri leikstýrir Herranótt Menntaskólans í Reykjavík þetta árið. Eins og komið hefur fram er það Draumur á Jónsmessunótt sem varð fyrir valinu og er frumsýning í kvöld.

Götutískan í Kaupmannahöfn

Kaupmannahafnarbúar hafa ávallt þótt vera með puttann á tískupúlsinum. Föstudagur Fréttablaðsins ákvað að nýta tækifærið og fara á stúfana með ljósmyndaranum Hildi Maríu Valgarðsdóttur og mynda smekklega borgarbúa meðan á tískuvikunni í Kaupmannahöfn stóð. Hér má sjá afraksturinn af því.

Strákarnir látnir strippa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona viðurkennir meðal annars í myndskeiðinu að karlleikarar þáttanna sýndu hold en ekki kvenkynsleikararnir en þar verða áhorfendur að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni.

Oprah með íslenska hönnun um sig miðja

Unnur Friðriksdóttir hönnuður gerir það gott í Los Angeles þar sem hún rekur fyrirtækið UNNURWEAR. Ýmsar stjórstjörnur eru í hópi viðskiptavina Unnar og nýverið bættist sjálf spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey við.

Kvöddu látinn félaga

Meðfylgjandi myndir voru teknar á miðvikudaginn á tónleikum sem haldnir voru á vegum Extreme Chill og Weirdcore á veitingahúsinu Kaffibarnum fyrir tónlistarmanninn Bjössa Biogen, eða Sigurbjörn Þorgrímsson, en hann féll frá 8. febrúar síðastliðinn. Bjössi var vel þekktur hér á landi sem einn af frumkvöðlum í íslensku dans og raftónlistar senunni og naut mikillar virðingar sem tónlistarmaður bæði hérlendis og erlendis. Listamenn á borð við Ruxpin, Yagya, Futurergrapher, Beatmakin Troopa , AnDre, Skurken, Tanya Pollock, Frank Murder, Krummi Björgvinsson, Steve Sampling og fleiri spiluðu tónlist þetta kvöld til heiðurs Bjössa.

Hannaði hlébarðasamfestinginn sjálf

"Ég vissi á fimmtudeginum fyrir Edduverðlaunahátíðina að ég myndi mæta og hugsaði að þyrfti ég að fara upp á svið yrði ég hvort sem er allt öðruvísi en aðrir í salnum, svo ég ákvað að gera þetta bara á minn hátt," segir Bjarnheiður Hannesdóttir, sem vakið hefur athygli fyrir þröngan samfesting með hlébarðamynstri sem hún klæddist á hátíðinni.

Gert að laga hreiminn

Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleikaþáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum.

Hitar upp fyrir ferðalag

Hljómsveitin Hjaltalín hitar upp fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Evrópu með tvennum tónleikum á Rosenberg í kvöld og annað kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar Hjaltalín hér á landi í þrjá mánuði.

Bodyguard endurgerð

Til stendur að endurgera kvikmyndina The Bodyguard, sem kom út árið 1992 með Kevin Costner og Whitney Houston í aðalhlutverkum.

Ferðast um Evrópu

Rokksveitin Agent Fresco er að skipuleggja tónleikaferð um Evrópu í júní og júlí. Þetta verður fyrsti alvöru túr sveitarinnar um Evrópu en hingað til hefur hún verið úti í mesta lagi fimm daga í einu.

Stillimyndin hverfur af skjánum

„Ég vona að þjóðin sé sammála mér um það að við séum búin að hafa stillimyndina of lengi,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins.

Vaxandi vinsældir fjárhundsins í Ameríku

„Við fáum fjölmargar fyrirspurnir um íslenska fjárhundinn – eiginlega of margar, þar sem við teljum að hundurinn sé ekki fyrir alla,“ segir Maggy Pease, forsvarsmaður ræktunarsambands íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum.

Vill ekki predika yfir fólki

Áttunda plata ensku söngkonunnar PJ Harvey, Let England Shake, er nýkomin út. Í textunum leitar hún í fyrsta sinn út á við í stað þess að kafa ofan í eigið tilfinningalíf.

Syngur ekki Oasis-lög

Liam Gallagher ætlar ekki að syngja lög með fyrrverandi hljómsveit sinni Oasis á væntanlegri tónleikaferð sinni um Evrópu með nýja bandinu Beady Eye. Í viðtali við BBC sagði hann að um leið og hann myndi syngja eitt Oasis-lag yrðu mörg að fylgja í kjölfarið.

Stelur fötum af dótturinni

Madonna er farin að færa sig upp á skaftið í samskiptum við dóttur sína með því að fá lánuð föt af henni án þess að biðja um leyfi.

Óskar fellur fyrir kóngi

Á sunnudagskvöldið er komið að því að kvenkynsstjörnur Hollywood eyði milljónum í útlit sitt og karlarnir troði jafnvel bótoxi í ennið sitt. Það er nefnilega Óskarskvöld, mesta glamúrveisla ársins þar sem tár, gremja og gleði ráða ríkjum.

Neeson á toppinn

Hver hefði trúað því að Liam Neeson ætti eftir að verða næsta ofurstjarna í Hollywood á sextugsaldri? Sennilega Liam Neeson en nýjasta kvikmynd hans, Unknown, settist makindalega í toppsætið í Bandaríkjunum um helgina. Neeson, sem áður fékk einungis hlutverk lífsleiðra manna eða nasistaforingja, hefur náð augum og eyrum Hollywood-framleiðenda og verður að teljast heitasta „gamalmenna“-hetjan um þessar mundir. Hefur allavega skotið Harrison Ford ref fyrir rass.

Kröftugir tónleikar

Rokksveitin Agent Freso hélt útgáfutónleika á dögunum í tilefni fyrstu plötu sinnar, A Long Time Listening, sem kom út fyrir síðustu jól.

Kiefer undirbýr nýja sjónvarpsseríu

Kiefer Sutherland og Charlie Sheen eiga tvennt sameiginlegt. Þeim tókst báðum næstum að rústa ferli sínum með eiturlyfjaneyslu og brennívini og var báðum bjargað af sjónvarpi. Sutherland blés miklu lífi í sinn feril sem Jack Bauer í 24 og Charlie Sheen á fyrir sínum reikningum með þáttaröðinni Two and a Half Men.

John Grant á Airwaves

Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant kemur fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í október. Grant náði athygli tónlistarunnenda með plötunni The Queen of Denmark á síðasta ári og var hún valin plata ársins hjá breska tónlistartímaritinu Mojo.

Hefner í það heilaga

Hugh Hefner hefur tilkynnt að hann hyggist kvænast hinni brjóstgóðu Crystal Harris hinn 18. júní. Athöfnin fer að sjálfsögðu fram á Playboy-setrinu. Þetta kom fram í spjallþætti Piers Morgan á CNN.

Fjörug frumsýningarhelgi

Íslenskir kvikmyndahúsagestir þurfa ekki að kvarta undan skorti á fjölbreytileika í íslenskum kvikmyndahúsum. Háskólabíó sýnir gamlar og góðar á mánudögum, í Bíó Paradís er hægt að sjá klassíkina á hvíta tjaldinu og stóru kvikmyndahúsin frumsýna fjórar en ákaflega ólíkar kvikmyndir um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir