Fleiri fréttir

Agent Fresco fékk hálfa milljón í styrk

Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur tilkynnt um stuðning við tíu ný tónlistarverkefni sem fara fram í Hörpu á árinu og nemur upphæðin 4,5 milljónum króna.

Hlustaðu á nýja lagið hans Eiríks Fjalars

Tónlistarmaðurinn Eiríkur Fjalar sendir frá sér plötu sem inniheldur öll lögin sem hafa komið út með honum. Hann kallar plötuna "The very best off". Á plötunni er einnig að finna nýja hljóðritun á lagi Eyjólfs Kristjánssonar, Draumur um Nínu, en lagið hefur notið fádæma vinsælda frá því það keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 1991. Platan kemur út næsta föstudag 5. apríl og verður fáanleg á tonlist.is sem og í öllum verslunum sem vildu taka við henni. Eiríkur hefur verið karakter á vegum Ladda í um þrjátíu ár en Eiríkur segist vera þreyttur á að vera bara "dreginn fram á tyllidögum og geymdur í kassa þess á milli“. Eiríkur ákvað því að ráðast í gerð þessarar safnplötu, eða ferilsplötu réttara sagt þar sem hún inniheldur allt hans efni, til að mótmæla því að hann og hinir karakterarnir hans Ladda fá ekki að vera með í nýju sýningunni hans Ladda. Umrædd sýning, Laddi lengir lífið, verður frumsýnd í Hörpu á föstudaginn sama dag og platan kemur út. "Ég vona að enginn fari á þessa heimskulegu sýningu hans Ladda, ég veit ekki hvað hann ætlar að gera án okkar. Það hefur engin áhuga á Ladda í eigin persónu. Hann er ekkert án mín!“ segir Eiríkur á facebook síðunni sinni um sýningu skapara síns. Útgefandi plötunnar, Sena, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að um einstaka útgáfu sé að ræða og að ekki verði um fleiri ný lög frá Eiríki Fjalar á þeirra vegum. Þrátt fyrir að Eiríkur Fjalar kynni að halda því fram að gerður hafi verið útgáfusamningur um fimm plötur á jafnmörgum árum, þá eiga slíkir órar Eiríks sér enga stoð í raunveruleikanum.

Varð ólétt eftir 8 vikna ástarsamband

Það verður seint sagt að leikkonan Kate Hudson eldist ekki vel en hún prýðir forsíðu breska ELLE í maí. Kate varð ófrísk aðeins átta vikum eftir að hún kynntst Matt, söngvara Muse og er ánægð með hvernig sambandið hefur þróast en allir fjölskyldumeðlimirnir blómstra. "Þegar ég varð ólétt þá breyttist allt; ég sjálf og líkami minn. Allt varð ein stór ákvörðun. Þetta var engin tilviljun og núna þremur árum seinna er allt ennþá dásamlegt," segir Kate.

Apar eftir Pretty Woman-kjólnum

Leikkonan Emma Watson hefur sannað það að hún er ekkert barn lengur og vill ólm losna við Harry Potter-ímyndina. Hún er heldur betur reffileg á síðum breska GQ.

Ég fíla stelpur sem borða

Sjarmörinn Kit Harrington er búinn að bræða mörg hjörtu sem Jon Snow í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Í nýjasta hefti Glamour talar hann um sína draumakonu.

Selur Range Rover-inn á Twitter

Auðæfi glamúrmódelsins Katie Price eru metin á tæpan átta og hálfan milljarð króna en hún fer samt afar hefðbundnar leiðir þegar hún reynir að losa sig við góss. Hún auglýsti til dæmis bílinn sinn til sölu á Twitter.

Fær módelráð frá mömmu

Stjörnubarnið Ireland Baldwin er rísandi stjarna í módelbransanum en hún er dóttir leikkonunnar Kim Basinger og leikarans Alec Baldwin.

Innlit í villu Biebers

Það virðist vera nóg um að vera hjá poppprinsinum Justin Bieber en hann reynir að finna tíma til að slaka á á heimili sínu í Calabasas í Kaliforníu.

Vinsæll í fimmtán ár

Justin Timberlake hefur heldur betur komið sterkur til baka á tónlistarsviðið eftir sjö ára fjarveru. Þriðja sólóplata hans, The 20/20 Experience, fór beint á toppinn bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hún seldist í rétt tæpri einni milljón eintaka vestanhafs á aðeins einni viku.

Fulltrúi Metal Hammer dæmir

Sex erlendir blaðamenn frá mörgum af virtustu þungarokkstímaritum heims verða gestir á hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle sem verður haldin í Eldborg í Hörpu á laugardagskvöld.

Berry öskraði á ljósmyndara

Halle Berry og Olivier Martinez voru allt annað en sátt við fjölda papparassa-ljósmyndara sem biðu eftir leikaraparinu á flugvellinum í Los Angeles þegar það lenti eftir afslappandi frí á Havaí á mánudag.

Nemur við virtan tónlistarháskóla

Úlfur Hansson mun hefja meistaranám við hinn virta skóla Mills College í ágúst. Hann fær afslátt af skólagjöldunum gegn því að kenna yngri nemendum.

Með fjölskyldu á heilanum

Leikkonan Rachel Bilson er í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði bandaríska Cosmopolitan. Þar talar hún opinskátt um samband sitt við leikarann Hayden Christensen en parið hefur verið saman síðan árið 2007.

Jethro Tull kemur í sumar

Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík sunnudaginn 9. júní. Íslenskir tónlistarmenn koma jafnframt við sögu á tónleikum Tull í sumar. Jethro Tull kom líka til landsins í fyrra og hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu í júní.

Fjórða serían af Game of Thrones

HBO sjónvarpsstöðin hefur ákveðið að ráðast í gerð fjórðu þáttaraðarinnar um Game of Thrones. Fyrsti þátturinn í þriðju þáttaröðinni var sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn og horfðu 4,4 milljónir manna á hann.

Björgólfi hafnað af föður sínum

Björgólfur Takefusa lýsir því í viðtali hvernig faðir hans, Kenichi Takefusa, hefur alfarið snúið við honum bakinu. Að baki glæstri ímynd hans sé heilmikill sársauki og brostnar vonir.

Dásamlegt dömuboð í Bankastræti

Í tilefni af því að GuSt, Gammur og Búðin sameinuðust í eina verslun að Bankastræti 11 héldu var haldið dásamlegt dömuboð í tilefni sameiningarinnar.

Vill taka lyfin sín í meðferð

Búið er að dæma söng- og leikkonuna Lindsay Lohan í níutíu daga meðferð en pían er með vissar kröfur varðandi vistina sem á að fara fram á lokaðri stofnun.

Ryan Gosling missir stjórn á skapi sínu

Leikaraparið Ryan Gosling og Eva Mendes höfðu það huggulegt á Bowery-hótelinu í New York um helgina en athugasemdir ljósmyndara á staðnum fóru gífurlega mikið í taugarnar á Ryan.

Farinn í meðferð – kærastan stolt

Glee-stjarnan Cory Monteith er farin í meðferð en strákurinn hefur átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða síðustu ár. Kærasta hans, leikkonan Lea Michele, styður þessa ákvörðun hans.

Ég ætla aldrei að slá hana aftur

Tónlistarmaðurinn Chris Brown fer mikinn þessa dagana og vill ólmur sanna fyrir heiminum að hann sjái eftir að hafa gengið í skrokk á kærustu sinni Rihönnu í febrúar árið 2009.

Páskar á Playboy-setrinu

Partípían Paris Hilton fagnaði páskunum á Playboy-setrinu í Los Angeles með Playboy-kónginum sjálfum, Hugh Hefner. Paris klæddi sig í sinn besta kanínubúning og tók þátt í páskaeggjaleit með íbúum setursins og öðrum gestum.

Brasilísk klassík í Vatnsmýrinni

Gustavo Tavares og Nelson Faria frá Brasilíu halda tónleika í Norræna húsinu í kvöld. Þeir leika á gítar og selló sem er heldur óvenjuleg samsetning.

Tekur upp nýja mynd á Vestfjörðum í sumar

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri Á annan veg, er nú í óða önn að undirbúa tökur á nýrri mynd þar sem Björn Thors og Helgi Björnsson fara með aðalhlutverkin. Tökur hefjast í lok maí á Vestfjörðum. Verið er að klára fjármögnun á myndinni sem enn geng

Formúlukappi á Austur

Enn bætist í stjörnufansinn sem eyddi páskahátíðinni á Íslandi en írski ökuþórinn Eddie Irvine sást á vappi um miðbæ Reykjavíkur á föstudagskvöldið.

Lindsay Lohan ófrísk

Leikkonan Lindsey Lohan á von á sínu fyrsta barni, ef marka má færslu á Twitter-síðu leikkonunnar í nótt.

Að leggja ólétta konu í einelti er rangt!

Ofurfyrirsætan Helena Christensen tekur hanskann upp fyrir raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Holdafar Kim er vinsælt umfjöllunarefni, sérstaklega núna þar sem hún gengur með sitt fyrsta barn.

Flippuð fyrirsæta

Fyrirsætan Cara Delevingne er án efa eitt heitasta nafnið í tískuheiminum um þessar mundir. Hún fagnaði páskunum með stæl ef marka má myndir á Twitter-síðu hennar.

Beckham-hjónin selja höllina

Ofurhjónin David og Victoria Beckham eru búin að setja heimili sitt í Hertfordshire á sölu. Heimilið er kallað Beckingham-höllin í daglegu tali.

Ferill hans fer í ruslið eftir þrjú ár

Það líður varla sá dagur sem poppprinsinn Justin Bieber skandaliserar ekki einhvers staðar í heiminum. Umboðsmaðurinn Peter Mensch segist myndu rassskella Bieber ef hann sæi um hans mál.

Adele er feit og ætti að grenna sig

Spéfuglinn Joan Rivers liggur ekki á skoðunum sínum. Hún mætti í viðtalsþátt Davids Letterman fyrir stuttu og sagði nákvæmlega það sem henni finnst um verðlaunasöngkonuna Adele.

Sjá næstu 50 fréttir