Fleiri fréttir

Ofsalega flókin saga

Fjallað verður um hvarf Valgeirs Víðissonar í næsta þætti af Mannshvörfum á Íslandi á Stöð 2 á sunnudagskvöld.

Syngur í brúðkaupinu

Popparinn Robbie Williams ætlar að syngja í brúðkaupi föður síns, Pete Conway. Hann gengur að eiga suður-afríska unnustu sína, hina 38 ára Melanie Mills, á næstunni. Hinn 64 ára Conway bar upp bónorðið í Möltu á síðasta ári eftir tveggja ára samband.

Vill ekki fá Stewart í heimsókn

Leikarinn Robert Pattinson hefur tjáð kærustu sinni, Kristen Stewart, að hafa ekki fyrir því að heimsækja sig til Ástralíu. Þar er Pattinson staddur við tökur á myndinni The Rover en samkvæmt blaðinu Star Magazine ku Pattinson vera að skemmta sér vel milli taka.

Engar fiðlur, takk

Myrkir músíkdagar fóru vel af stað, sumt var óneitanlega magnað.

Þessi stúlka hefur alltaf borið nafn sitt með reisn

Daginn sem Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Stúlka Bjarkardóttir Rúnarsdóttir fær að heita Blær fagnaði hún ásamt vinum og fjölskyldu. Björk Eiðsdóttir móðir Blævar gaf okkur leyfi til að skyggnast í fjölskyldualbúmið. "Okkur líður alveg ótrúlega vel, brosið verður ekki þurrkað af okkur mæðgum. Blær hefur aldrei heitið annað en Blær en nú fékk hún vissa uppreisn æru og hefur rutt brautina fyrir framtíðar Blævum," segir Björk áður en hún flettur með okkur í gegnum Instagram myndirnar sem hún tók það sem eftir lifði af þessum eftirminnilega degi.

Kynnir haustlínuna á tískuvikunni í Kaupmannahöfn

Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir fatahönnuður tekur nú þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í þriðja sinn með vörumerki sitt, GuSt. Á vörusýningu í tengslum við tískuvikuna kynnir GuSt fatalínu sína fyrir næskomandi haust og vetur. Vörur GuSt hafa hlotið góðar viðtökur, nú þegar hefur ný verslun bæst við sölustaðina í Danmörku, auk þess sem GuSt hefur verið boðið að vera með vörur í dönsku vefversluninni Miinto. Á þessu ári eru 10 ár síðan GuSt ehf var stofnað og 16 ár síðan Guðrún Kristín hóf fyrst sölu á fatnaði undir vörumerkinu GuSt. "Af því tilefni er ýmislegt á döfinni um þessar mundir. Logoið hefur verið endurhannað, ný heimasíða er í þróun sem og ýmis konar frekari kynning á vörumerkinu, bæði hér heima og erlendis," segir Guðrún í samtali við Lífið. Á myndunum má sjá brot úr haustlínu GuSt. Edit Ómars sá um myndatöku. Fyrirsæta er Helena Ríkey frá Elite.

Sigga Lund situr fyrir nakin

"Ég var frekar stressuð að byrja. Hef aldrei gert þetta áður," svarar Sigga Lund fjölmiðlakona spurð hvernig henni leið að sitja fyrir kviknakin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eða öllu heldur auglýsingu örnámskeiðs á hennar vegum sem ber yfirskriftina "Sjálfstraust óháð likamsþyngd. Líkamsvirðing - sjálfsvirðing; Frá átökum og öfgum yfir í vellíðan, virðingu og sátt". "En svo var þetta bara allt í lagi. Það hjálpaði að ljósmyndarinn er kærasti minn. Aðstoðarkonan og hann sköpuðu afslappað andrúmsloft svo ég slakaði á. Þetta var ekkert mál fyrir rest," segir hún spennt en örnámskeiðið sem Sigga vinnur í samvinnu við sálfræðinga og fagaðila fer fram í Salnum í Kópavogi 19. febrúar næstkomandi.

Hvað er eiginlega Primer?

Erna Hrund, förðunarfræðingur og tískubloggari á Trendnet fjallar ítarlega um þessa snyrtivöru sem allir verða að eiga í snyrtibuddunni. Margar konur hafa eflaust velt því fyrir sér hvað Primer eiginlega er? Erna Hrund er með svarið við því.

Notar krem sem sléttir og mýkir

"Þetta eru krem sem koma í veg fyrir ójöfnur í húðinni, bólur ásamt því að taka bóluör. Rosalega fersk og næringarík krem. Ég er búin að nota þessi krem í einhvern tíma núna. Mér finnst húðin mín alveg ótrúlega slétt og mjúk. Gott að nota á sumrin og á veturna. Svo finnst mér ekki skemma hvað það er góð lykt af því."

Þennan er hægt að leigja!

Sjónvarpskonan Ali Fedotowsky og þúsundþjalasmiðurinn Stacy Keibler eru heldur betur hagsýnar.

Missti fóstur

Söngkonan Beyone á dótturina Blue Ivy Carter sem er næstum því þrettán mánaða. Færri vita að Beyonce fór í gegnum þá sáru reynslu að missa fóstur áður en Blue Ivy varð til.

Súpermódel selur sjúka íbúð

Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr er búin að selja íbúðina sína í New York á 1,3 milljónir dollara, rúmar 165 milljónir króna.

Allt stress farið úr líkamanum

"Við æfðum reyndar meira fyrir síðasta laugardag en nú er rútínan komin. Við erum miklu afslappaðri að koma fram í Hörpu á morgun," segir Unnur Eggertsdóttir sem flytur lagið Ég syng í Hörpu annað kvöld...

Smart í svörtu

Svo óvenjulega vill til að svartur virðist ætla að verða litur sumarsins í ár. En svart þarf ekki endilega að vera óspennandi, það er um að gera að vera frumleg og leika sér með samsetningarnar. Við skulum fá hugmyndir hjá nokkrum svartklæddum stjörnum.

Nú er farið að sjá á henni

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sýndi vaxandi óléttubumbuna í vikunni þegar hún skellti sér í ræktina seint um kvöld.

Japanskur kjúklingaréttur að hætti Önnu Eiríksdóttur

Anna Eiríksdóttir, líkamsræktarþjálfari með meiru, vinnur langa daga í líkamsræktarstöðinni Hreyfingu. Hún leggur að sjálfsögðu mikið upp úr góðum og hollum mat og hér má sjá einn af hennar uppáhaldsréttum.

Svona hefnir maður sín á fyrrverandi

Fáar konur hafa toppað aðferðina sem Liberty Ross, 34 ára, notar til að hefna sín á eiginmanni sínum og barnsföður Rupert Sanders eftir að upp komst að hann hélt fram hjá með leikkonunni Kristen Stewart svo mánuðum skipti við gerð myndarinnar Snow White and the Huntsman. Eins og sjá má situr Liberty eða öllu heldur liggur fyrir án klæða í tímaritinu LOVE eins og sjá má.

Sex and the City snýr aftur

Margir urðu sorgmæddir þegar hinir geysivinsælu sjónvarpsþættir Sex and the City runnu sitt skeið á enda árið 2004. Í kjölfarið komu svo út tvær bíómyndir sem nutu mismikilla vinsælda. Það var svo greint frá því að sjónvarpsþættir þar sem handritshöfundur SATC , Candace Bushnell, myndi skrifa um ævintýri Carrie á sínum yngri árum væru í bígerð.

Lagerfeld ekki hrifin

Það hafa fáar klippingar fengið jafn mikla athygli og þegar forsetafrú Bandaríkjana, Michelle Obama, lét klippa á sig topp fyrir stuttu. Toppurinn hefur verið mikið á milli tannanna á helstu tískumiðlum, en yfirhönnuður Chanel og tískugoðið Karl Lagerfeld lét nýlega hafa eftir sér í viðtali við franska sjónvarpsstöð að honum þætti toppurinn hafa verið mjög slæm hugmynd.

Hápunktar tískuvikunnar í Stokkhólmi

Tískuvikan í Stokkhólmi stóð yfir frá mánudegi til miðvikudags í vikunni. Þar sýndu helstu fatahönnuðir Svía haust – og vetrarlínur sínar, en Svíar eru þekktir fyrir að standa mjög framarlega á sviði hönnunar og tísku.

Sagði upp komin sjö mánuði á leið

Anna Kristín Magnúsdóttir er mikill fagurkeri og opnaði verslunina Kjólar & Konfekt á Laugavegi fyrir stuttu. Hún sjálf getur ekki lifað án kjóla né súkkulaðimola og býður viðskiptavinum upp á huggulegt andrúmsloft í hjarta Reykjavíkur.

Kynlíf er mín líkamsrækt

Leikarinn Jason Momoa hefur vakið verðskuldaða athygli í sjónvarpsseríunni Game of Thrones þar sem hann er yfirleitt ber að ofan.

Klæðir frægustu fyrirsætur heims

Ásdís Ágústsdóttir fluttist til Parísar fyrir einu og hálfu ári og hóf fatahönnunarnám í Paris American Academy, litlum en virtum skóla. Þar er hluti af náminu að vinna baksviðs á tískuvikunum í hátískuborginni til að fá reynslu og innsýn í bransann. Ásdís hefur unnið baksviðs hjá virtum hönnuðum og klætt þar margar af frægustu fyrirsætum heims. Í tilefni þess að stóru tískuvikurnar fara að bresta á spurði Lífið spurði Ásdísi út í þessa reynslu.

Veldu bestu plötuna

Almenningur getur þessa dagana greitt atkvæði vegna Norrænu tónlistarverðlaunanna.

DMX kemur á stóra hátíð í Keflavík

"Það verða tíu erlend atriði á hátíðinni og ég get staðfest að DMX er eitt þeirra, en hann er ekki það stærsta. Auk þess verður þarna rjóminn af íslensku tónlistarsenunni,“ segir umboðsmaðurinn Ólafur Geir Jónsson.

Heilluð af fangelsum

"Ég hef alltaf verið mjög heilluð af fangelsum,“ segir Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs lífs og umsjónarmaður útvarpsþáttanna Inni ásamt myndlistarmanninum Arnari Ásgeirssyni.

Líta á tónlistina sem trúarbrögð

"Þetta er stór dagur í íslenskri tónlistarsögu,“ segir Magni Ásgeirsson.Hann er aðalsöngvari Kiss-heiðurshljómsveitarinnar Meik sem spilar á sínum fyrstu tónleikum á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Næstu tónleikar verða á Spot í Kópavogi 8. febrúar.

Rússnesku áhrifin

Tískutáknið Ulyana Sergeenko sýndi hönnun sína á tískuvikunni í París að viðstöddu margmenni. Á fremsta bekk mátti sjá tískuspekinga á borð við Carine Roitfeld, Grace Coddington, Önnu Dello Russo og Miroslövu Duma.

Sjá næstu 50 fréttir