Fleiri fréttir

Sögulegt þegar þessar koma saman

Þær skemmtu sér vel saman á frumsýningu söngleiksins Viva Forever í London í gær, þær Scary, Ginger, Baby og Sporty Spice. .

Mamma Drew Barrymore

Leikkonan Drew Barrymore, 37 ára, heldur á dóttur sinni Olive á forsíðu People tímaritsins eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. "Ég gat hvorki borðað né sofið í tvær vikur ég var svo stressuð," segir Drew um móðurhlutverkið sem er alveg nýtt fyrir henni í umræddu blaði. Drew segir eiginmann sinn koma frá þéttri og samhentri fjölskyldu og þannig vill hún einmitt hafa það.

Kelerí í Hollywood

Leikkonan Renee Zellweger, 43 ára, hætti í mars á þessu ári með leikaranum Bradley Cooper og hefur ekki fundið ástina síðan en nú eru kaflaskil hjá leikkonunni því hún virðist vera ástfangin upp fyrir haus af Doyle Bramhall sem hún kyssti og knúsaði á LAX flugvellinum í gær.

Nakin í auglýsingaherferð

Ofurfyrirsætan Bar Rafaeli, 27 ára, sem átti í ástarsambandi við Leonardo DiCaprio vill að konur tengist líkama sínum í nýrri undirfata auglýsingaherferð sem gengur ekki út á að lyfta og stækka brjóstin heldur líða vel í eigin skinni.

Unglingar til varnar

Kvikmyndin Red Dawn segir frá hópi unglinga sem snýst til varnar og berst gegn her Norður-Kóreumanna sem hefur gert innrás í heimabæ þeirra.

Héldu vöku fyrir Bieber

Æstir aðdáendur hjartaknúsarans Justins Bieber héldu nýlega fyrir honum vöku er hann gisti á Hard Day‘s Night-hótelinu í Liverpool. Hundruð aðdáenda höfðu safnast saman fyrir utan hótelið. Lögreglan ráðlagði honum að fara ekki út á svalir hótelherbergisins vegna ótta við það að óeirðir gætu brotist út. Justin bað aðdáendur sína í gegnum samskiptavefinn Twitter um að hafa lægra og leyfa sér að hvílast fyrir tónleikana sama kvöld. - hh

Lönsj í bikiníi

Hótelerfinginn Paris Hilton er búinn að spóka sig í Miami upp á síðkastið. Hún fór í hádegismat með kærasta sínum, karlfyrirsætunni River Viiperi, í vikunni og var óhrædd við að sína smá hold.

Reynir of mikið að vera sexí

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hylur ekki mikið í nýjasta hefti franska tímaritsins Factice. Kim situr fyrir í ýmsum stellingum og klæðist aðeins nærfatnaði.

Þyngdist um 27 kíló á fimm mánuðum

Leikarinn Chris Pratt lagði ýmislegt á sig til að leika lögfræðing í gamanmyndinni Starbuck sem er væntanleg í kvikmyndahús. Chris þurfti að þyngjast ansi mikið til að fá hlutverkið.

Epískur trúlofunarhringur frá Playboy-kóngi

Playboy-módelið Crystal Harris var ekki feimin við að monta sig af trúlofunarhringnum sínum á Twitter í vikunni. Hringurinn er frá sjálfum Playboy-kónginum Hugh Hefner en samband þeirra hefur verið stormasamt.

Glamúrmódel á snepplunum

Glamúrmódelið Chantelle Houghton ákvað að skella sér ærlega á lífið um helgina með vinum sínum. Hún drakk nóg af kampavíni og káfaði á vinkonum sínum.

Sérstakt líf raunveruleikastjarna

Raunveruleikastjörnurnar Kourtney Kardashian og Scott Disick héldu upp á þriggja ára afmæli sonarins um helgina með því að fara í bátsferð.

Vigtin segir ekki alla söguna

Þegar þú byrjar að hreyfa þig þá er gríðarlega mikilvægt að fylgjast með framförum hjá þér. Margir detta í þá gryfju að horfa bara á vigtina þegar markmiðið er að grenna sig. Jú það er nú alltaf gaman að sjá töluna fara niður á við í stað þess að þjóta upp úr öllu valdi. En vigtin segir þér ekki alla söguna, það má í rauninni segja það að ef þú ætlar bara að fylgjast með henni þá getur þú alveg átt von á því að verða pirruð og jafnvel gefst upp á því að hreyfa þig.  Hvað er ég að alhæfa núna? Jú þegar þú byrjar að hreyfa þig í fyrsta sinn eftir langa pásu þá fær líkaminn ákveðið sjokk. Þú keyrir þig út á hverri æfingunni á eftir annari og færð harðsperrur í hvert skipti. Þú ert alveg viss um að þú ert sko að rífa af þér kílóin. Þú ert búin að ákveða að vigta þig á 4 vikna fresti og það er komið að mælingadegi búmm þú stekkur á vigtina og sérð að þú ert kílói þyngri en fyrir 4 vikum síðan. Hvað gerðist eiginlega… ég sem var svo dugleg, búin að pína mig í heilan mánuð og það er enginn árangur? Þegar þú byrjar að æfa þá taka vöðvarnir við sér, þeir stækka, styrkjast, fá aukið þol og í flestum tilfellum þá líður þér betur og hefur meiri orku í gegnum daginn þó svo að við bölvum í hljóði þessum bévítans harðsperrum. Fyrsta mánuðinn þá er alls ekkert óalgengt að við byrjum á því að þyngjast örlítið. En þú munt sjá árangur erfiðisins ef þú gætir verulega að mataræðinu þínu og æfir reglulega.  Þannig í raun ertu búin að bæta þig gríðarlega. Kílóatalan á vigtinni þinni segir ekki alla söguna.  Horfðu í spegilin, hann hjálpar þér að meta hvort þú sért að ná árangri. Svo er alltaf gott að ummálsmæla sig 1x í mánuði og ekki verra að taka eins og eitt þol test á mánuði. Vertu með æfingadagbók. Skráðu niður þyngdir sem þú tekur af lóðum, endurtekningar, hversu mörg sett, klukkan hvað þú æfir. Með því að fylgast svona með þá hjálpar það þér að sjá árangurinn betur og á sama tíma skráðu niður hvernig þér líður eftir hverja æfingu.  Ég hef fulla trú á þér, en það sem skiptir mestu máli. Hefur þú trú á þér? 

Eftirsóttasta kona veraldar

Stjarnan úr bíómyndinni The Hunger Games, lleikkonan Jennifer Lawrence, 22 ára, er eftirsóttasta kona veraldar samkvænt vefritinu AskMen.com en hún hlaut hvorki meira né minna en 2,4 milljónir atkvæða. Næst á eftir Jennifer í kosningunni voru leikkonan Mila Kunis, fyrirsætan Kate Upton, poppdrottningin Rihanna og leikkonan Emma Stone.

Glamúr á kántrýhátíð

Það vantaði svo sannarlega ekki glamúrinn þegar Amerísku kántrýverðlaunin voru afhent í vikunni.

Sonur Jacksons æfir karate

Stjörnubarnið Blanket Jackson gerði vel við sig eftir karateæfingu vestan hafs og fékk sér ís eftir púlið. Blanket er sem kunnugt er sonur poppkóngsins sáluga Michaels Jacksons.

Tíska.is lítur dagsins ljós

"Markmiðið er að gefa lesendanum 360 gráðu sýn á það sem er að gerast í tísku og hönnun hérlendis og erlendis...

Brjóstin mín eru verðlaunagripir

Glee-stjarnan Lea Michele er mjög svo glæsileg á forsíðu janúarheftis tímaritsins Marie Claire. Þessi 26 ára fjölhæfa stúlka deilir ýmsu með tímaritinu.

Síbreytilegt Hyldýpi

Hópurinn Sublimi frumsýnir sviðsverkið Hyldýpi eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í Gamla bíó á föstudag. Verkið er síbreytilegt og lagar sig að aðstæðum.

Heldur áfram að sjokkera

Elsku stelpan hún Rihanna virðist þrífast á því að hneyksla heiminn með hegðun sinni um þessar mundir.

Nýtt andlit Mango

Velgengni ofurfyrirsætunnuar Miranda Kerr virðist engan endi ætla að taka en tilkynnt var í gær í Madrid á Spáni, að Kerr væri nýtt andlit fatakeðjunnar, Mango.

Öðruvísi að vera í kuldanum á Íslandi

Stjórnandi Sónar-hátíðarinnar hlakkar mikið til að heimsækja Ísland í fyrsta sinn. Hann vonast til að hátíðin festi sig í sessi og verði árlegur viðburður.

Nýir tímar fram undan

Nicolas Ghesquiere er hættur hjá Balenciaga og Alexander Wang er tekinn við sem yfirhönnuður.

Kaupendur danssýninga skoða verk Margrétar Söru

Margrét Sara Guðjónsdóttir sýnir verk sitt, Soft Target, á kaupstefnu fyrir norræna danslist, sem hefst í Helsinki í dag. Um 300 kaupendur danssýninga hvaðanæva úr heiminum hafa boðað komu sína.

Byggt á hljóðmúrsgrunni

Dream Central Station geta verið stolt af þessari frumraun, þó tónlistin sé væntanlega ekki allra. Platan er þægileg í hlustun, og minnir um margt á rólegri plötur Jesus & Mary Chain, sem er í fínu lagi.

Eminem spilar á Reading

Eminem hefur verið bókaður á tónlistarhátíðirnar í Reading og Leeds á næsta ári. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar á hátíðunum í rúman áratug, eða síðan 2001. Þá endaði hann tónleikana sína með því að syngja dúett með rokkaranum ófrýnilega, Marilyn Manson.

Ljómur í Garðakirkju

Tríóið Ljómur heldur jólatónleika í Garðakirkju næstkomandi sunnudag klukkan fimm. Á efnisskránni eru fjölbreytt klassísk jólalög, íslenskrar og erlendar Ave-Maríur og verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson

Lífið við endalok heimsins

Steinskrípin er stórskemmtileg, spennandi, frumleg og hrollvekjandi saga sem vekur upp siðferðislegar spurningar um tengsl mannsins við náttúruna.

Blindfullur og gifsblandan misheppnuð

Rokkabillíkóngurinn Smutty Smiff, útvarpsmaður á X-inu, leyfði goðsagnakenndu grúppíunni Cynthiu Plaster Caster að taka gifsafsteypu af getnaðarlim sínum.

Þessari missti Leo af

Fyrirsætan Erin Heatherton sýndi flottan bikinílíkamann á ströndinni á St. Barts í myndatöku. Hún klæddist tveimur mismunandi bikiníum og sundbol í þessum morguntökum.

Lifandi Barbie-dúkkur

Úkraínska Valeria Lukyanova, 21 árs, sem er kölluð lifandi Barbie-dúkkan, hefur loksins hitt jafningja sinn í Úkraínu seml lifir einnig fyrir að líta út eins og Barbie-dúkka. Nýja vinkona hennar heitir Olga Oleynik, 24 ára, sem er líka óvenjuleg í útliti og vexti eftir fjjölda lýtaaðgerða eins og Valeria.vinkonurnar kynntust fyrir fimm árum og hafa verið góðar vinkonur síðan. Þær líta á sig sem andlegar systur með sama áhugamál.

Gjörbreytt Linda P

"Þetta er dáltið öðruvísi en vanalega en mér finnst gaman að breyta til," svarar Linda Pétursdóttir spurð út í myndirnar sem voru teknar af henni í gær þegar hún sat fyrir í myndatöku stórglæsileg að vanda.

Ómáluð og nývöknuð

Leikkonan Sienna Miller dúðaði sig í kósífatnað er hún fór út með dóttur sína Marlowe að ganga í garði í London á sunnudaginn.

Bleikt.is 2 ára

"Það hefur gengið vonum framar og vefurinn verið einn vinsælasti vefur landsins síðan hann var stofnaður," segir Hlín Einarsdóttir ritstjóri Bleikt.is sem er tveggja ára.

Ólétt sjónvarpsstjarna

Cougar Town stjarnan, Busy Philipps tilkynnti heiminum það á Twitter í vikunni að hún ætti von á öðru barni.

Ómótstæðileg hnetusteik

Kertaskreytingakonan Ragnhildur Eiríksdóttir hefur nú hafist handa við að undirbúa jólin, föndra og hanna jólakortin sem eiginmaðurinn og rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson sér svo um að skrifa á. Lífið spjallaði við Ragnhildi og fékk uppskrift að hollum og góðum jólamat.

Geislandi eftir skilnaðinn

Það verður seint sagt að leikkonan Katie Holmes, 33 ára, líti illa út eftir skilnaðinn við Tom Cruise. Katie var stödd í galaveislu klædd í fjólubláan kjól í gærkvöldi. Hún var með slegið hárið og óaðfinnanlega förðuð. Skoða má myndir af henni í myndasafni þar sem geislar af henni.

Fögnuðu komu As We Grow í Mýrina

Barnafatamerkið As We Grow og Hring eftir Hring kynntu nýjar vörulínur sínar í splunkunýrri verslun Mýrarinnar að Geirsgötu á Sunnudag. Af því tilefni buðu þau fólki að fagna með sér og gæða sér á léttum veitingum. Margt var um manninn við höfnina eins og sjá má.

Sjá næstu 50 fréttir