Matur

Ómótstæðileg hnetusteik

Kertaskreytingakonan Ragnhildur Eiríksdóttir hefur nú hafist handa við að undirbúa jólin, föndra og hanna jólakortin sem eiginmaðurinn og rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson sér svo um að skrifa á. Lífið spjallaði við Ragnhildi og fékk uppskrift að hollum og góðum jólamat.



Starf:

Merkilegasta starfið sem ég hef unnið og einnig það mikilvægasta er að vera móðir! Ég starfa við það að leitast við að gera betur í dag en ég gerði í gær, stundum tekst það svaka vel en aðra daga eitthvað síður. Börnin er líklega bestu kennarar sem við fáum á lífsleiðinni!

Hvenær byrjaðir þú á kertagerðinni?

Það eru rúm tvö ár síðan ég byrjaði að skreyta kerti. Seldi þetta fyrst á markaði sem starfsfólki Icelandair var með á Hótel Hilton.

Hvar er hægt að nálgast kertin þín?

Hægt er að nálgast þau á fésbókarsíðu sem heitir Vanilla Palace en kertin eru einnig til sölu á veitingastaðnum Happi.

Ertu mikið jólabarn?

Mér finnst jólin mjög skemmtilegur tími og ég fæ mikla ánægju út úr því að finna eitthvað skemmtilegt í jólapakkann fyrir mína nánustu, nú eða búa það til.

Hvenær hefst jólaundirbúningurinn hjá þér?

Ég byrja oft snemma að hugsa um það að hefja jólaundirbúning en svo endar það líklega oftar með því að vera nokkuð sein. Eiginmaðurinn skrifar jólakortin á heimilinu en ég sé um að búa þau til. Ég er nokkuð ánægð með þau skipti. Hann hefur hins vegar kvartað yfir því að fá þau frekar seint. Spurning hvort þremur dögum fyrir jól er of seint til að skrifa 75 jólakort?

Eru einhverjar sérstakar jólahefðir sem þið endurtakið á hverju ári fjölskyldan?

Við erum þeirrar blessunar aðnjótandi að Kertasníkir kemur með eitthvað fallegt í skóinn handa okkur öllum á aðfangadagsmorgun. Eftir að allir eru búnir að opna pakkann sinn förum við öll saman í jólabaðið í einhverri af þessum frábærum sundlaugum sem við eigum hér í Reykjavík og nágrenni.

Hvað borðar fjölskyldan á aðfangadagskvöld?

Hnetusteik, hún er með því betra sem ég fæ að borða og er alltaf á boðstólum á aðfangadagskvöld. Einnig erum við með kalkún.

Hnetusteik - Uppskrift

5 dl soðin hrísgrjón

1 stór sellerírót rifin

1 rauðlaukur saxaður smátt

1 lítið chili, ég nota kjarnann líka

1 1/2 dl þurrkaðar apríkósur saxaðar og soðnar

3-4 msk. kreólakrydd PG

1 tsk. Maldon-salt

200 g heslihnetur ristaðar og saxaðar

Rasp

Sesamfræ

Laukur og sellerírót mýkt á pönnu, kryddi bætt út í, svo apríkósum og hnetum. Hrísgrjónin eru hökkuð og ég nota hnífinn á matvinnsluvélinni. Þessu er öllu hnoðað saman annað hvort með hrærivél eða í höndunum. Svo er hægt að móta þetta í hleif og strá sesamfræjum yfir og bakað í ofni á 200° í ca 40 mín. Einnig er hægt að kæla deigið og móta svo buff sem er velt upp úr sesamfræjum og steikt á pönnu.

Sæt kartöflumús

2 sætar kartöflur soðnar

góður slatti af íslensku smjöri

Kartöflurnar settar í hrærivél með smjörinu. Ég notaði líklega 50 g en því meira smjör, þeim mun betra.

Salat

1/2 l AB mjólk

3 msk. sinnep

1/2 tsk. wasabi

5 msk. hunang

AB mjólk sett í kaffisíu og látið leka af henni í 1-2 klst. Með þessu verður hún sætari. Öllu hrært saman við AB mjólkina.

2 epli, ég notaði græn

100 g valhnetur

Eplið skorið í smáa bita og valhnetur saxaðar. Allt sett saman við AB mjólkina. Ég ætlaði að setja granatepli en gleymdi því.

Sósa

sveppir eftir smekk

1 stk. grænmetiskraftur Rapunzel

2 msk kreólakrydd PG

2-3 msk. kalkúnakrydd PG

1 dós kókosmjólk Rapunzel

3 msk. sulta, t.d. hindberja. Ég notaði heimalagað rifsberjahlaup með chili.

Sveppir steiktir, öllu bætt út í nema sultu, sósan þykkt. Ég nota spelt og vatn, að lokum er sósan smökkuð til með sultunni.
 
 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×