Fleiri fréttir

Saman í baði

Leikararnir Jon Hamm og Daniel Radcliffe fara saman í bað í sjónvarpsseríunni A Young Doctor's Notebook.

Umtöluð og eitursvöl

Twilight-stjarnan Kristen Stewart stal aldeilis senunni þegar hún var viðstödd sýningu á nýjustu mynd sinni On the Road í Hollywood um helgina.

Dívan er sko mætt á svæðið

Jennifer Lopez, 43 ára, og unnusti hennar Casper Smart voru kappklædd eins og sjá má á myndunum þegar þau gengu um götur Kaupmannahafnar um helgina. Parið verslaði og kom við á veitingahúsi í borginni þar sem Jennifer hélt tónleika sem þótti mjög vel heppnaðir að mati Íslendinganna sem sáu þá. Söngkonan þakkaði fyrir jákvæða orku og góðan tíma í Danmörku á Twitter síðunni sinni en næsta stopp dívunnar er Svíþjóð.

Tíminn fyrir smokey förðun

Veturinn er svo sannarlega genginn í garð og þá er tilvalið að leyfa sér að breyta aðeins um stíl í förðun hári og fatnaði.

Loksins í lágbotna skóm

Victoria Beckham, 38 ára, var á lágbotna skóm í gær sunnudag. Það þykir fréttnæmt því hún lætur aðeins sjá sig á himináum hælaskóm þegar hún er á ferðinni. Í gær var hún með börnunum sínum Brooklyn, Romeo, Cruz, og Harper.

Sexý í svörtu

Söngkonan og X Factor dómarinn Nicole Scherzinger breytti ekkert út af vananum eftir úrslitaþátt helgarinnar og lyfti sér hressilega upp með samstarfsfélögum sínum.

Katrín geislar með tvíburana

Meðfylgjandi myndir voru teknar á laugardaginn var þegar Katrín Júlíusdóttir bauð uppá vöfflur og kaffi í kosningamiðstöð sinni að Nýbýlavegi 24. Tilefnið var flokksval Samfylkingarinnar sem verður 9.-10.nóvember næstkomandi en Katrín sækist eftir 1.sæti á lista flokksins í suðvesturkjördæmi. Eins og sjá má mætti fjöldi manns og Katrín var í essinu sínu, geislandi með eiginmanninum Bjarna og tvíburunum þeirra.

Fræg í fjölskyldufíling

Sarah Jessica Parker, 47 ára, og eiginmaður hennar Matthew Broderick voru mynduð á götum New York borgar á föstudaginn var með tvíburana þeirra Marion og Tabithu. Fjölskyldan var klædd eftir veðri og stúlkurnar yndislegar eins og ávallt.

Glæsilegustu kjólar vikunnar

Jennifer Lopez, Emily Blunt, Taylor Swift, Rosie Huntington-Whiteley og Karolina Kurkovak áttu það allar sameiginlegt í vikunni að klæðast glæsilegum glamúr kjólum og komast á listann yfir best klæddu konur vikunnar.

Engum leiddist þarna

Sálin hans Jóns míns gerði allt vitlaust á Spot um helgina. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að engum leiddist á þessum tónleikum.

Erótíska bylgjan heldur áfram

Sylvia Day hefur gefið út þrjár bækur í Crossfire-þríleiknum, sem eiga það sameiginlegt með 50 gráum skuggum að fjalla um samskipti hrjáðs auðmanns og fagurrar konu.

Um minni og gleymsku

Sagan gerist á nokkrum tímasviðum, en sögukona rifjar upp ævi sína frá því að hún er lítil stúlka þar til hún eignast mann og börn og lesendur fá að fylgjast með því hvernig líf hennar hefur þróast.

Sá hann í sláturhúsinu - vissi þá að hann yrði maðurinn minn

Saga Reykjavíkurstúlkunnnar sem fór eftir Verslunarskólanám til Vopnafjarðar til að vinna sem kennari um skamma hríð, en ílengdist og er nú oddviti héraðsins, var efni þáttarins "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi. Þórunn Egilsdóttir býr á Hauksstöðum, innsta bænum í Vesturárdal í Vopnafirði, ásamt eiginmanni sínum, Friðbirni Hauki Guðmundssyni og þremur börnum þeirra. Þau kynntust í kennaraverkfallinu haustið 1984 en Þórunn var þá nýkomin á Vopnafjörð og þekkti ekkert til. Vegna verkfallsins var hún peningalaus og fékk sér vinnu sláturhúsinu og þar sá hún Hauk í fyrsta sinn.

Mættu hóflega seint

Enginn sem er maður með mönnum lét sig vanta á tónleikana og slíkur viðburður er að sjálfsögðu ekki fullkomnaður nema Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff láti sjá sig.

Voru ekki rekin

Um leið og Felix þakkaði góðar kveðjur á Facebook áréttaði hann að þau hefðu ekki verið rekin og ekki orðið þreytt á samstarfi hvort við annað.

Helmingur að troða upp

Jón er þó ekki eini borgarfulltrúinn sem tróð upp á hátíðinni í ár því bæði Einar Örn Benediktsson og Óttarr Proppé koma fram með sínum hljómsveitum, Einar með Ghostigital og Óttarr með Dr. Spock og Ham.

Hannar fyrir Hjálma

Fréttablaðið greindi frá því að Mundi hefði teiknað mynd fyrir kynningarplakat kvikmyndarinnar Falsks fugls og er hann því greinilega eftirsóttur um þessar mundir.

Airwaves seinni partur

Dómar um þá tónlistarmenn sem komu fram í Hörpu, Listasafni Reykjavíkur og Þýska barnum.

Airwaves fyrri partur

Margar hljómsveitir komu fram á föstudegi til laugardags, hér er hægt að lesa gagnrýni um þær.

Hverjum datt þetta í hug?

Ungstirnið Miley Cyrus nýtur þess að vera á milli tannanna á fólki og gerir í því að hneyksla í nýjasta tónlistarmyndbandi sínu við lagið Decisions.

Gyðja í gulu

Leikkonan Jessica Chastain skein skært eins og sólin þegar hún fagnaði frumsýningu nýjasta Broadway-leikrit síns, The Heiress.

Ómálaðar fyrir börnin

Stjörnurnar Louise Redknapp og Heidi Klum hafa startað herferð til að hvetja konur til að sleppa því að mála sig í einn dag.

Blúndur og pallíettur vinsælar í ár

"Við elskum glys og glamúr og það hlakkar alltaf í okkur þegar jól og áramót nálgast, því þá sjáum við meira af pallíettum, flaueli og blúndum," segja Ása og Jóna Ottesen...

Æfir hvar sem er, hvenær sem er

Það er ekkert leyndarmál að kryddpían Mel B elskar að halda sér í formi. Hún er nú í Sydney í Ástralíu þar sem hún er dómari í ástralska X Factor.

Sharon þarf nýjan stílista

Leikkonan Sharon Stone er ein glæsilegasta konan í Hollywood en henni brást aðeins bogalistin í partíi í síðustu viku á Beverly Wilshire-hótelinu í Beverly Hills.

Luca er byrjaður að skríða

Leik- og söngkonan Hilary Duff er dugleg á Twitter og deilir nýjustu fréttum af syni sínum Luca með aðdáendum sínum.

Dulbúin og ástfangin á ný

Twilight-stjörnurnar Robert Pattinson og Kristen Stewart mættu grímuklædd í hrekkjavökupartí í vikunni og héldust í hendur. Þau eru víst að reyna að laga samband sitt eftir að upp komst að Kristen hélt framhjá Robert með leikstjóranum Rubert Sanders.

Systurnar verja sína menn

Elskhugar Kardashian-systranna þurfa að þola sinn skerf af sögusögnum enda eru Kim, Khloe og Kourtney ansi frægar vestan hafs.

Berbrjósta í þynnkunni

Poppprinsessan Rihanna skemmti sér konunglega í hrekkjavökupartíi á dögunum og morguninn eftir hafðu hún það náðugt í rúminu.

Pallaball í Sjallanum fellur niður

Dansleikur í Sjallanum í kvöld, þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson átti að koma fram, fellur niður. Páll Óskar greinir sjálfur frá þessu á Facebook. Hann segist geta hugsað sér að halda diskóball þann 1. desember í staðinn og vera líka á Akureyri á gamlárskvöld.

Ég er enn tvíkynhneigð

Leikkonan Evan Rachel Wood og leikarinn Jamie Bell giftu sig nýverið í Kaliforníu. Aðdáendur hennar á Twitter eru forvitnir um hvort leikkonan sé enn tvíkynhneigð eins og hún hefur lýst yfir.

Kisur eru næstum fullkomnar

Björn Þór Björnsson stofnaði hóp á Facebook þar sem aðdáendur katta geta deilt myndum og myndböndum.

Giftu sig á þriðjudag

Evan Rachel Wood og Jamie Bell gengu í það heilaga á þriðjudag. Þetta staðfestir talsmaður parsins.

Þaulvanir þjófar stálu úlpum

„Þeir komu um tvöleytið í nótt, brutu gler í hurðinni, sem átti að vera óbrjótanlegt, hoppuðu inn og hlupu beint að dýrustu flíkunum í versluninni. Á myndbandsupptökum sjást þeir svo troða úlpunum í gegnum gatið á hurðinni og einhverjar hafa greinilega skemmst í leiðinni því það fannst loð af krögunum í gatinu,“ segir Dagný Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Cintamani. Þrjátíu úlpum var stolið úr verslun Cintamani við Austurhraun í Garðabæ aðfaranótt föstudags.

Spenntir leikhúsgestir

Leiksýningin Gullregn var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á fimmtudagskvöldið. Brosmildir frumsýningargestir fjölmenntu og virtust spenntir að berja þetta nýja verk eftir Ragnar Bragason augum. Með aðalhlutverk fara Halldóra Geirharðsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Brynhildur Guðjónsdóttir.

Hverjir voru hvar á Airwaves

Gestir tónlistarhátíðarinnar Airwaves létu veður og vind ekki á sig fá á fimmtudagskvöldið og fjölmenntu á hina ýmsu tónleikastaði miðbæjarins. Tónlistarkonan Björk var mætti á hipp hopp kvöld Þýska barsins þar sem hún meðal annars skemmti sér við rapp Gísla Pálma. Þar voru einnig borgarfulltrúinn Dagur B. Eggertsson ásamt Örnu konu sinni, Snorri Helgason og sjónvarpskonan Margrét Maack.

Foxx leikur illmenni

Jamie Foxx ætlar að taka að sér hlutverk illmennisins Electro í framhaldi The Amazing Spider-Man sem er væntanlegt 2014. Tíðindin hafa ekki verið gerð opinber en Foxx hefur sjálfur gefið í skyn að hann leiki í myndinni. „Ég klæddi mig upp sem Electro á hrekkjavökunni í gærkvöldi. Búningurinn fór mér vel,“ skrifaði hann á Twitter.

Stressaðir að spila loksins fyrir íslenska tónleikagesti

Sigur Rós spilar á sínum fyrstu tónleikum á Íslandi í fjögur ár annað kvöld. Þeir verða haldnir í Nýju Laugardalshöllinni fyrir framan um sjö þúsund manns og eru hluti af Iceland Airwaves-hátíðinni. Þetta verða jafnframt fyrstu tónleikar Sigur Rósar á hátíðinni í ellefu ár, eða síðan þeir spiluðu í Listasafni Reykjavíkur 2001.

Indísveitin Alt-J vann Mercury-verðlaunin

Enska indísveitin Alt-J hlaut hin eftirsóttu Mercury-verðlaun fyrir sína fyrstu plötu, An Awesome Wave. Veðbankar höfðu talið sveitina líklega til árangurs og það gekk eftir. Verðlaunaféð hljóðar upp á um fjórar milljónir króna.

Vel dúðaðir tónleikagestir

Þrátt fyrir veður og vind setja gestir tónlistarhátíðarinnar Airwaves svip sinn á Reykjavíkurborg þessa helgina. Margir hverjir reyna að klæðast sínu fínasta pússi á hátíðinni en í ár einkennist fatnaður tónleikagesta af hlýjum fötum.

Sjá næstu 50 fréttir