Lífið

Voru ekki rekin

Borist hafa fallegar kveðjur til þeirra Felix Bergssonar og Margrétar Blöndal eftir að þau upplýstu í þætti sínum Bergsson og Blöndal í Útvarpinu um helgina að hann myndi hætta göngu sinni um áramót.

Um leið og Felix þakkaði góðar kveðjur á Facebook áréttaði hann að þau hefðu ekki verið rekin og ekki orðið þreytt á samstarfi hvort við annað. Sagði hann þau "hætta á toppnum" en bæði væru þó orðin þreytt á því að vera bundin yfir þættinum allar helgar. „Við Magga ætlum ekki að hætta að vinna saman og Gestir út um allt verða til dæmis í Hofi að minnsta kosti fram á vorið," skrifar Felix á síðu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×