Fleiri fréttir

Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsingar á sinn einstaka hátt. Kíkið síðan á uppskriftirnar og spreytið ykkur sjálf.

Tíminn í víðum skilningi

Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir sýnir í hinu virta Triennale hönnunarsafni í Mílanó á Ítalíu. Þar tekur hún, ásamt fjölda þekktra listamanna, þátt í samsýningunni O‘Clock þar sem tíminn er leiðarstefið.

Svínastían bar sigur úr býtum

Sænska kvikmyndin Svinalängorna, eða Svínastían, hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í gær. Heiðursformaður dómnefndar, breska leikkonan Helen Mirren, greindi frá þessu á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn.

Gibb ætlar ekki að svíkja Bó

„Maður hefur einhvern veginn lent í öllu og þetta fer alltaf á einhvern veginn og yfirleitt ekki á þann versta," segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu. Breski söngvarinn Robin Gibb var fluttur með hraði á sjúkrahús á fimmtudagskvöld en hann er meðal jólagesta Björgvins Halldórssonar. Í ljós kom að Gibb var með ristilbólgu en samkvæmt breska blaðinu The Sun var söngvarinn ákaflega þjáður þegar sjúkrabíllinn kom aðvífandi að glæsilegu heimili hans í Oxford-skíri.

Sumir eru að verða að engu

Leikkonan Demi Moore, 48 ára, verður grennri með hverjum deginum eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni á frumsýningu myndarinnar Margin Call..

Elding raskaði leiksýningum

„Sýningin var við það að byrja og þá allt í einu lækka ljósin og hljóðið dettur út,“ segir Tinna Hrafnsdóttir, leikkona í Hrekkjusvínunum, en sýningin raskaðist af völdum eldingar á föstudagskvöldið.

Heimili Donnu Karan

Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að íbúðin er stílhrein þar sem svart mætir hvítu. Hönnuðurinn er andlega þenkjandi með vellíðan og innra jafnvægi að leiðarljósi og þar kemur nuddbekkurinn, sem sjá má í myndasafni, eflaust að góðum notum...

Donna Karan vorlína 2012

Donna Karan fer nýjar leiðir í vor- og sumarlínu fyrir árið 2012 eins og sjá má í myndasafni.

Þessi er svakalega fleginn

Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, var mynduð á Four Seasons hótelinu í Beverly Hills klædd í silfraðan Kaufman Franco kjól sem var áberandi fleginn að framan og aftan eins og sjá má á myndunum...

15 milljóna frumsýningarhelgi

„Þetta er ótrúleg uppskera," segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags íslenskra kvikmyndagerðamanna.

Það er eitthvað við nýbakaðar mæður

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru um helgina af leikkonunni Jessicu Alba, 30 ára, ásamt eiginmanni sínum, Cash Warren, og dætrum þeirra Honor, 3 ára, og Haven, sem er aðeins 8 vikna gömul...

Ghostigital á Iceland Airwaves: Harðasta bandið

Tónleikar Ghostigital hafa verið einn af hápunktum Airwaves undanfarin ár og það varð engin breytng á því á árinu 2011. Þeir Einar Örn og Curver spiluðu klukkan níu á laugardagskvöldið á aðalsviðinu á Faktorý og staðurinn troðfylltist á meðan þeir voru að spila.

Tonik á Iceland Airwaves: Tónar og litir

Anton Kaldal Ágústsson er búinn að búa til raftónlist undir nafninu Tonik í nokkur ár. Hann var fyrsta atriðið á dagskránni á Faktorý á laugardagskvöldið. Þegar ég mætti á staðinn var hann í góðum fíling á sviðinu ásamt bassaleikara. Tónlist Toniks hljómaði mjög vel í þessu frábæra hljóðkerfi sem var á staðnum og henni fylgdi einföld, en vel útfærð ljósasýning, en eitt af því sem Tonik segist vera að vinna með er samband lita og tóna.

Bubbi og Megas fjarverandi á Airwaves

Til stóð að bæði Megas og Bubbi Morthens kæmu fram á Icelandic Airwaves. Það hefði verið jómfrúarferð Bubba á svið þessarar árlegu tónlistarhátíðar en hann ætlaði að syngja með tónlistarmanninum Berndsen. Hins vegar hitti svo illa á að Bubbi varð veikur og varð því afboða komu sína.

Samaris á Iceland Airwaves: Öruggari og þéttari

Það var ágæt mæting þegar tríóið Samaris spilaði á neðri hæðinni á Faktorý á laugardagskvöldið. Hljómsveitin er orðin mun þéttari og öruggari heldur en hún var þegar ég sá þau spila síðasta vor. Tónlistin þeirra er afbrigði af trip-hoppi tíunda áratugarins með áhrifum frá nýrri stefnum eins og dub step og svo einhverju sem kemur frá þeim sjálfum.

Nett viðbót

Hugmyndin á bak við þessa nettu viðbót eftir X Architekten sem var hönnuð sem hluti af húsi í Austurríki gengur út á það að skapa nánari samskipti íbúa við náttúruna...

Rúnar vinnur enn ein verðlaunin

Rúnar Rúnarsson bætti enn einni rósinni í hnappagat sitt um helgina þegar kvikmynd hans fékk silfurverðlaun í New Directors Competition hjá kvikmyndahátíðinni í Chicago. Myndin hefur þegar hlotið tvenn verðlaun, Rúnar fékk leikstjóraverðlaunin í Transilvaníu og Theódór Júlíusson var valinn besti karlleikarinn á kvikmyndahátíðinni í Kasakstan.

Keppt í vondum lagasmíðum

Sérstök vondulagakeppni fer fram á skemmtistaðnum Bakkus þann 26. október næstkomandi. Það er söngkonan Rósa Birgitta Ísfeld sem stendur að baki keppninni, sem er nú haldin í annað sinn.

tUnE-yArDs á Iceland Airwaves: Brjáluð stemning

tUnE-yArDs er mjög skemmtileg á tónleikum. Hún leikur sjálf á trommur og syngur og hljóðritar bæði söng og takta og spilar þá jafnóðum (notar fótpedala til að stjórna aðgerðum !) og svo spilar hún á úkúleleið sitt. Með henni á Nasa var bassaleikari og tveir saxófónleikarar. Áhorfendur sungu með hástöfum í lögum eins og Gangsta og You Yes You en hápunkturinn var lagið Bizness.

Sinead O'Connor á Iceland Airwaves: Spilað á allan tilfinningaskalann

Það var mikil stemning í Fríkirkjunni þegar írska stjarnan Sinéad O'Connor spilaði þar á föstudagskvöldið með tveimur aðstoðarmönnum, gítarleikara og hljómborðsleikara. Sinéad var í fínu formi og náði mjög sterkum tengslum við tónleikagesti, sérstaklega þegar leið á tónleikana. Hún er frábær söngkona og textahöfundur og flutti lögin sín af mikilli tilfinningu sem kallaði marg oft fram gæsahúð hjá áhorfendum sem fylltu kirkjuna.

American Idol gaur giftist

Twilight leikkonan Nikki Reed, 23 ára, og American Idol keppandinn Paul McDonald, 27 ára, giftu sig í gær á búgarði í Malibu...

Eitt par á kvöldi

Ég var sex ára þegar ég lærði að prjóna hjá ömmu minni á Sauðárkróki og hef verið að dunda mér við handverk alla tíð síðan,“ segir Ragnheiður S. Jóhannsdóttir, handavinnu- og sérkennari. Hún hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að prjóna og þæfa litríka álfaskó sem vekja hvarvetna athygli.

Dungen á Iceland Airwaves: Vonbrigði

Lélegur hljómur Hafnarhússins eyðilagði lítið fyrir HAM, en fór illa með sænsku hipparokkarana í Dungen. Tónleikar hljómsveitarinnar byggðust mikið upp á spunakenndum hljóðfæraleik, en erfitt reyndist að greina tónlistina þar sem bassinn virtist hafa skitið yfir tónleikana. Svo lélegur var hljómurinn.

Esmerine á Iceland Airwaves: Hörpufjör í Hörpu

Montreal-bandið Esmerine hreif áhorfendur með sér um leið og sveitin hóf leik. Tónlist sveitarinnar er að mestu leikin á selló, hörpu og ýmis ásláttarhljóðfæri, til að mynda sílafón, og sver sig í ætt við ýmsar síðrokksveitir og indíbönd frá Kanada.

John Grant á Iceland Airwaves: Stórkostlegur sögumaður

John Grant var ekkert að klæða sig upp fyrir tónleika sína í Hörpu. Hann settist fyrir framan flygilinn með lopahúfu á hausnum og hamraði inn æðislegar melódíur í tæpan klukkutíma. Grant er frábær sögumaður og sýndi fimi sína milli laga. Sagði frá erfiðum uppvaxtarárum, en hann uppgvötaði mjög snemma að hann er hommi og taldi lengi að það væri synd.

Jennifer deitar einn sjóðheitan

Hollywoodstjörnurnar Jennifer Lopez, 42 ára, og Bradley Cooper, 36 ára, rúntuðu um í jeppa Bradley um helgina. Sjá myndir af jeppanum hér...

HAM á Iceland Airwaves: Díselvélin

Hljómurinn í Hafnarhúsinu á föstudagskvöld var lélegur. Það kom lítið niður á tónleikum HAM sem er einhvers konar þungarokkvél. Vélin hökktir lítið og keyrir áfram á díselolíu með tilheyrandi hávaða og látum. Lögin Dauð hóra, Mitt líf og Ingimar eru orðin klassík, þrátt fyrir að stutt sé síðan þau komu út á plötu og áhorfendur sungu með af lífsins sálar kröftum. Haldið til haga: Í gagnrýni Fréttablaðsins um tónleika HAM í Hafnarhúsinu á föstudaginn kom fram að hljómurinn hafi verið lélegur. Þetta er klaufalega orðað þar sem gagnrýnandi var ekki á svæðinu fyrri hluta kvölds og var því ekki dómbær á það sem fór þá fram.

Of Monsters and Men á Iceland Airwaves: Varla feilnóta

Of Monsters and Men sýndi í Norðurljósasalnum af hverju hún er vinsælasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Fullt var út úr dyrum eins og búast mátti við og stemningin var eftir því. Tíu manns voru á sviðinu og spilamennskan var þétt og hljómurinn einkar góður. Hið gríðarvinsæla Little Talks fékk bestu viðtökurnar en önnur lög voru ekki síðri.

Embætti stigavarðarins lagt niður í Gettu Betur

„Þetta var hugmynd sem kom fram á fundum í sumar, að hafa tvo dómara. Og þar með datt stigavörðurinn eiginlega út,“ segir Örn Úlfar Sævarsson, annar af spurningahöfundum og dómurum Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna.

Dad Rocks á Iceland Airwaves: Huggulegt

Snævar Njáll Albertsson býr í Danmörku og kallar sig Dad Rocks! Með honum á sviðinu í Kaldalónssalnum voru tveir fiðluleikarar, tveir trompetleikarar og einn sellóleikari en trommuleikarinn átti ekki heimagengt frá Danmörku

Clooney frumsýnir nýju kærustuna

Hjartaknúsarinn heimsfrægi, leikarinn George Clooney, 50 ára, kom í fyrsta sinn fram opinberlega með nýju kærustunni sinni, Stacy Keibler, á frumsýningu á nýju kvikmyndinni hans The Descendants í New York. Vel fór á með parinu eins og sjá má á myndunum. Stacy var glæsileg klædd í svartan Versace kjól.

Puzzle Muteson á Iceland Airwaves: Lágstemmt

Salurinn í Iðnó var troðfullur og með Puzzle á sviðinu voru sjö manns, þar á meðal píanóleikarinn Daníel Bjarnason. Sjálfur sat forsprakkinn fremst með kassagítarinn í hendi og söng með fallegri rödd sinni lágstemmd lögin.

Ólafur Arnalds á Iceland Airwaves: Upplifun

Flutningur Ólafs og hljómsveitar hans var frábær. Tónlistin er huljúf klassk en hann kryddar hana með smáum skömmtum af popp og raftónlist og það er sannarlega upplifun að sjá hann á tónleikum.

Svört snilld sem kostar lítið

Það er ótrúlegt hvað það breytir miklu að mála einn vegg svartan. Svarti veggurinn býr til ákveðna dramatík sem var kannski ekki fyrir, þegar allir veggir voru hvítir...

Árni með Sveppa til Ameríku

„Hann hefur tröllatrú á okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson. Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, ætlar að fara með Sveppa-myndirnar þrjár til Ameríku og kynna þær á AFM-söluhátíðinni eða American Film Market. Að sögn Sveppa er Árni þegar komin með einn áhugasaman sem vill gjarnan fá að sjá myndirnar. „Hann er búinn að gera alvöru plaköt og allt,“ bætir Sverrir við.

Virðuleg í Valentino

Leikkonan Anne Hathaway, 28 ára, var klædd í Valentino kjól á Scream verðlaunahátíðinni sem fram fór í Kaliforníu í gær ásamt Joseph Gordon-Levitt og Gary Oldman...

Þarna var greinilega stuð

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gleðskap sem haldinn var eftir frumsýningu á Borgríki í vikunn í Mjölniskastalanum...

Vorlína Valentino 2012

Blúndur, margbrotinn útsaumur og vandaður saumaskapur var áberandi á sýningu Valentino fyrir vor/sumar 2012...

Vel lökkuð Victoria

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Victoriu Beckham, 37 ára, ásamt dóttur sinni, Harper, og aðstoðarkonu, yfirgefa umboðsskrifstofu Victoriu í London í gær...

Púður óskast

Góður mannskapur nær ekki að bjarga losaralegu handritinu. Borgríki er því töluverð vonbrigði. Myndin er þó laus við töffarastælana og rembinginn sem einkenndi íslenskar spennumyndir allt of lengi, og því ber að hrósa.

Sjá næstu 50 fréttir