Matur

Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsingar á sinn einstaka hátt. Kíkið síðan á uppskriftirnar og spreytið ykkur sjálf.

Gulrótarbollur

2 dl hnetur, helst kasjúhnetur, saxaðar frekar smátt

3-4 gulrætur, rifnar fínt

2 hvítlaukrif, marin

1 laukur, saxaður smátt

1 dl vorlaukur eða graslaukur, saxaður smátt

1 sellerístilkur, saxaður smátt

1-2 tsk. kumminfræ eða steytt kummin

1 egg

1-2 dl brauðrasp (má nota hveiti, spelt eða annað mjöl í staðinn)

salt og grófmalaður pipar

Öllu hráefni blandað saman í stórri skál, þar til blandan er orðin hæfileg viðkomu til að gott sé að móta úr henni bollur. Gott er að nota matskeið til að móta bollurnar. Steikið í örlítilli olíu á pönnu, t.d. vínberjasteina- eða sólblómaolíu, (má líka nota ólífuolíu) á pönnu við miðlungshita, í um 3 mínútur á hvorri hlið.

Kryddjurtasósa

Í kryddjurtasósu sem þessa má nota hvaða kryddjurtir sem er en gott er að nota klettasalat sem uppistöðuhráefni, en það gefur mjög ákveðið bragð og má oft nota í svipuðum tilgangi og kryddjurtir.

2 handfylli klettasalat

1 handfylli fersk steinselja og/eða aðrar kryddjurtir

2 hvítlaukusrif, marin

nokkrir dropar ólífuolía

2 - 3 msk. grísk jógúrt eða sýrður rjómi

Blandið saman í matvinnsluvél öllu nema jógúrtinni eða sýrða rjómanum. Setjið síðan í skál og blandið jógúrt/sýrða rjómanum saman við. Þessi sósa er afar ljúffeng og hentar með ýmsum mat, og einnig sem ídýfa t.d. fyrir niðurskorið grænmeti.

Rauðrófurísottó

f. fjóra

2-3 rauðrófur, skrældar og skornar í fernt

1 lítri vatn

2 msk. smjör

1 msk. ólífuolía

1 laukur, smátt saxaður

1 rauðlaukur, smátt saxaður

2 hvítlauksrif, marin

4 dl rísottó-grjón (arborio) eða önnur stutt hrísgrjón

fetaostur, að smekk

fersk basilíka, að smekk

salt og grófmalaður pipar

Galdurinn við gott rísottó er að gefa sér tíma við matreiðsluna, bæta vökvanum saman við í hæfilegum skömmtum, láta grjónin drekka hann í sig og hræra í á milli. Þannig verður útkoman sem skyldi og grjónin mjúk og rjómakennd.

Byrjið á því að sjóða rauðbeðurnar í vatninu í um 30 mínútur. Takið síðan rauðbeðurnar upp úr pottinum og geymið í skál. Rauðbeðusoðið er síðan notað til að elda hrísgrjónin upp úr.

Hitið ólífuolíu ásamt smjöri á stórri pönnu eða í potti. Mýkið lauk, rauðlauk og hvítlauk þar í. Bætið síðan hrísgrjónunum út á og veltið þeim vel upp úr olíunni og smjörinu. Bætið þá rauðrófusoðinu saman við í smáum skömmtum og hrærið vel í.

Látið grjónin drekka í sig soðið á milli þess sem meiri vökva er bætt út í. Þetta tekur um 20 mínútur. Kryddið með salti og pipar.

Rífið eða smásaxið rauðbeður saman við, bætið við osti og basilíku og berið fram. Auðvitað má bæta fleiru út í þennan rétt og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín í þeim efnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×