Fleiri fréttir

Þökkuðu fyrir stuðninginn á Patró

Á annan veg var forsýnd á Patró um helgina í hinu rómaða Skjaldborgarbíói. Stór hluti tökuliðs og leikara lagði leið sína vestur og skemmtu sér konunglega ásamt heimafólki, en aðstandendur myndarinnar nutu ómælds stuðnings frá heimafólki við tökurnar í fyrra.

Hreindís Ylva heldur tónleika

Leikkonan Hreindís Ylva Garðarsdóttir, sem lék eftirminnilega Stellu í kvikmyndinni Órói, heldur tónleika ásamt hljómsveit í Salnum í Kópavogi næsta sunnudag, 4. september. Markmiðið er að heiðra söngkonuna Erlu Þorsteinsdóttur með því að syngja þekkt dægurlög sem Erla söng. Þá má nefna lögin Þrek og tár, Draumur fangans, Litli tónlistarmaðurinn og Bergmálsharpan. Sjá Hreindísi, sem vinnur í Griffli, segja frá tónleikunum í meðfylgjandi myndskeiði.

Úff þetta er greinilega sársaukafullt

Söngkonan Mel B, 36 ára, kvaldist greinilega í miðjum hríðum þegar hún var leidd á spítala í Los Angeles í morgun. Eiginmaður hennar, Stephen Belafonte, og lífverður aðstoðuðu Mel, eins og sjá má. Um er að ræða þriðja barn söngkonunnar.

Golíat á hvíta tjaldið

Hollywood heldur áfram að koma á óvart ef marka má nýjustu fréttir frá kvikmyndaborginni. Til stendur að gera kvikmynd um sögufrægan bardaga Davíðs og Golíats sem getið er um í Gamla testamentinu. Og þá kynnu sumir að halda að hringt yrði í „vandaða“ leikara. Alls ekki. Því þeir sem hafa verið orðaðir við hlutverkin teljast seint til þess hóps. Orðrómur er á kreiki um að Dwayne Johnson, eða The Rock, hafi tekið að sér hlutverk Golíats en Taylor Lautner verði sjálfur Davíð Ísraelskonungur. Það er Scott Derrickson sem mun leikstýra myndinni.

Mundi frestar bambustískusýningu

Tískuhönnuðurinn Mundi Vondi hefur frestað tískusýningu sem hann ætlaði að halda í Gamla bíói á föstudagskvöld. Ástæðan er sú að hann er upptekinn við búningahönnun fyrir leikritið Axlar-Björn auk þess sem Airwaves-tónlistar-hátíðin er á næsta leiti.

Hamfarasálmar

Svik, harmur og dauði er stórkostleg plata á svo margan hátt að það er erfitt að útskýra það. Ég ætla samt að reyna. Fyrir utan að vera stórskemmtileg í þungarokklegu tilliti er svo margt við plötuna sem kemur spánskt fyrir sjónir að ég get eiginlega ekki beðið eftir að koma því í orð.

Íbúar fastir í lofthjúpi

Fyrirtæki Stevens Spielberg, DreamWorks Television, ætlar að framleiða nýja sjónvarpsþáttaröð byggða á vísindaskáldsögu Stephens King, Under the Dome. King sjálfur tekur þátt í framleiðslunni. Þættirnir fjalla um íbúa smábæjarins Chester’s Mill í Maine sem festast inni í einhvers konar lofthjúpi sem ekkert kemst í gegnum, þar á meðal flugvélar. Enginn skilur hvernig þessi hjúpur varð til eða hvaðan hann kom. Dale Barbara, fyrrverandi hermaður í Írak, og aðrir hugrakkir bæjarbúa gera hvað þeir geta til að losa sig við hjúpinn áður en það verður of seint.

Hathaway í Vesalinga Hoopers

Tom Hooper, sem síðast gerði The King‘s Speech, er nú að safna liði fyrir sína mynd. Hooper ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því hann hyggst gera mynd eftir söngleiknum Vesalingunum sem er byggður á skáldsögu Victors Hugo. Hooper hefur auðvitað ótakmarkaðan aðgang að fjármagni eftir velgengni The King‘s Speech og hefur fengið Anne Hathaway til að leika aðalkvenhlutverkið. Hathaway hefur haft í nægu að snúast eftir að hafa staðið sig með stakri prýði sem kynnir Óskarsverðlaunanna, en hún mun meðal annars leika kattarkonuna í The Dark Knight Rises, síðustu Batman-mynd Christopher Nolan.

Framleiðir mynd með Hollywood-stjörnum

„Við virðumst hafa hitt naglann með þessu hlutverkavali og höfum verið með puttann á púlsinum. Svartur á leik er alvöru,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson kvikmyndaframleiðandi.

Reyktu ösku Tupac Shakur

Meðlimir rappsveitarinnar Outlawz sem Tupac Shakur stofnaði segjast hafa reykt ösku rapparans sáluga. Þetta gerðist á minningarathöfn um Tupac, sem var skotinn til bana í Las Vegas 1996. „Við héldum litla minningar-athöfn fyrir hann með mömmu hans og fjölskyldu hans. Við fórum á ströndina með alls konar dót sem hann fílaði, eins og gras, kjúklingavængi og appelsín,“ sagði rapparinn Young Noble. Það var svo rapparinn EDI Mean sem ákvað að aska Tupac yrði reykt. Hugmyndina fékk hann úr laginu Black Jesus, þar sem Tupac biður félaga sína um að reykja ösku sína þegar hann deyr.

Litríkur hljóðheimur Beirut

Þriðja breiðskífa Beirut, The Rip Tide, er komin út. Sterk áhrif frá Balkanskaganum, Frakklandi og Mexíkó eru sem fyrr til staðar.

Þetta kunna konur að meta

Kris Humphries sá til þess að ekkert færi fram hjá eiginkonu sinni, Kim Kardashian, 30 ára, í gær þegar 500 manns fögnuðu formlega komu þeirra til New York. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hélt Kris á Kim, sem var klædd í síðan glæsilegan Victoriu Beckham kjól. Þá má einnig sjá systir Kim, Kourtney, í myndasafni.

Skandínavar sjúkir í ljósblátt sjónvarpsefni

Skandínavískir sjónvarpsþættir hafa alltaf notið mikilla vinsælda hér á landi og margir eru eflaust þeirrar skoðunar að Norðmenn, Svíar og Danir ættu að vera fyrirmyndir íslenskra sjónvarpsstöðva. Þeir eiga sér hins vegar sínar dökku hliðar.

Sólarljósið nýtt að fullu

Bóndabýli í Michigan í Bandaríkjunum var breytt í hlýlegt heimili þar sem sólarbirtan er nýtt að fullu og sömuleiðis mikil lofthæð hússins. Íbúarnir, fimm manna fjölskylda, lögðu sérstaka áherslu á að bærinn rammaði inn notalega hlýju þar sem sólarljósið fengi að njóta sín. Eins og sjá má á myndunum tókst það svo sannarlega.

Slapp með skrekkinn

Popparinn Justin Bieber slapp með skrekkinn þegar hann lenti í árekstri í Los Angeles. Atvikið átti sér stað í bílastæðahúsi neðanjarðar þegar ökumaður Hondu-bifreiðar ók lítillega utan í svarta Ferrari-glæsikerru Biebers. Enginn slasaðist og hvorugur bíllinn skemmdist. Atvikið átti sér stað innan við tveimur sólarhringum eftir að Bieber hlaut MTV-verðlaun fyrir myndband sitt við lagið U Smile. Popparinn, sem var uppgötvaður af söngvaranum Usher, er um þessari mundir að fylgja eftir sinni fyrstu plötu, My World, sem kom út í fyrra.

Smile lítur dagsins ljós

Hinar „týndu“ Smile-upptökur The Beach Boys frá árunum 1966-67 líta loksins dagsins ljós 31. október.

Britney vill eignast barn

Britney Spears er sögð vilja eignast barn með kærasta sínum Jason Trawick. Söngkonan á fyrir tvo syni, hinn fimm ára Sean Preston og hinn fjögurra ára Jayden James, með fyrrverandi eiginmanni sínum Kevin Federline. Fregnir herma að Spears vilji reyna að búa til systkini handa þeim eftir að tónleikaferð hennar um heiminn lýkur í lok ársins. „Hún hefur alltaf viljað eignast stóra fjölskyldu en vill líka sanna fyrir sjálfri sér og fjölskyldu sinni að hún sé góð móðir. Hún vill annað tækifæri til að sýna hvað í henni býr,“ sagði heimildarmaður.

Hættulegar konur syngja

Söngkonurnar Bryndís Guðnadóttir, Steingerður Þorkelsdóttir og Elín Halldórsdóttir skipa sönghópinn Femmes Fatales...

Brjálaðir bankaræningjar

Jesse Eisenberg leikur aðalhlutverkið í gamanhasarmyndinni 30 Minutes or Less sem frumsýnd verður um helgina. Eisenberg sló auðvitað fyrst í gegn í kvikmyndinni Zombieland og fylgdi þeirri velgengni eftir með hinni frábæru The Social Network.

Sumir eru skælbrosandi á lausu

George Clooney, 50 ára, stillti sér upp með Evan Rachel Wood, Marisu Tomei og fleiri stjörnum sem leika í kvikmyndinni The Ides of March. George hætti með ítölsku sjónvarpsstjörnunni Elisabettu Canalis eftir tæplega tveggja ára samband í júní á þessu ári og það aðeins tveimur vikum eftir að Elisabetta lét hafa eftir sér í viðtali að hún væri að springa úr hamingju með George. Það kom því töluvert á óvart þegar parið gaf út yfirlýsinguna um sambandsslitin. Síðan þá hefur brosið ekki horfið af vörum George en hann lét hafa eftir sér að hann kærði sig ekki um hjónaband síðan hann skildi við leikkonuna Taliu Basam árið 1993. Evan Rachel var klædd í Dolce&Gabbana.

The Vaccines hætt við Airwaves

„Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir hjá Iceland Airwaves. Breska rokksveitin The Vaccines, með Íslendinginn Árna Hjörvar Árnason á bassanum, er hætt við að koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem fer fram í Reykjavík í október. Ástæðan er hálsaðgerð sem söngvarinn Justin Young þarf að gangast undir, sú þriðja á þessu ári. Fyrir vikið hefur sveitin aflýst fyrirhuguðum tónleikum sínum víða um heim í september og fram til 26. október, skömmu eftir að Airwaves-hátíðinni lýkur.

Toppurinn á ferlinum

Tónlistarmaðurinn Lou Reed segir að samstarf hans við rokkarana í Metallica sé toppurinn á hans ferli. „Við spiluðum saman og þá vissi ég það strax,“ sagði hann. „Þetta var algjör draumur.“ Reed og Metallica hófu óvænt samstarf og tóku upp plötuna Lulu sem kemur út 31. október.

Svakaleg óvissuferð kvikmyndaáhugafólks

„Ég get lofað því að þetta verður svakalegasta bíóupplifun sem fólk hefur séð á landinu. Ég held að það komist ekkert í hálfkvisti við þetta,“ segir Sigurður Kjartan Kristinsson.

Tónleikar í Hörpu til eflingar geðheilsu

Forvarna- og fræðslusjóðurinn Þú getur!, sem Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir stofnaði, hélt stórtónleika í Hörpu síðasta laugardag til eflingar geðheilsu. Margir helstu tónlistarmenn landsins gáfu starfskrafta sína án endurgjalds nú sem áður. Fram komu: Karlakór Reykjavíkur, Diddú og Egill Ólafsson ásamt Jónasi Þóri. Kristján Jóhannsson, Gissur Páll Gissurarson, Geir Ólafs, Margrét Eir, Thin Jim og Fabula. Jón Jónsson, Júpiters og Jassbandið með Don Randi. Kynnir kvöldsins var Edda Björgvinsdóttir. Það var frábær stemming á tónleikunum og troðfullt út úr dyrum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Heiðursgestur og verndari tónleikanna var frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands. Markmið Forvarna- og fræðslusjóðsins ÞÚ GETUR! eru að vekja fólk til meðvitundar um mikilvægi góðrar geðheilsu og eflingu hennar. Þar að auki eru verkefni sjóðsins að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða, að efla þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og að auka umræðu til þess að draga úr fordómum gegn geðsjúkdómum.

Ísköld og drullug upp fyrir haus

"Ég var með þessa hugmynd um að mynda stelpu í drullupolli. Hera vinkona mín var svo ákkurat sú sem ég var að leita að fyrir þessa myndatöku svo ég spurði hana og hún var svo góð að segja já. Ég farðaði hana og valdi fötin og svona og svo keyrðum við á staðinn hjá Örfyrisey. Þar var drullan miklu dýpri en mig minnti svo fætur okkar sukku djúpt ofan í drulluna." "Við vorum báðar í skóm og sokkum sem finnast aldei aftur. Þetta var rosalega gaman samt. Við héldum báðar áfram að segja að þetta væri það flippaðasta sem við höfðum gert. Mér leið samt illa á tímabili því Heru varð orðið skítkalt og ég hét áfram að henda á hana drullu. Að komast upp í bílinn allar í drullu var samt það sem við hugsuðum ekki alveg út í áður en við lögðum af stað en einhvern veginn virkaði þetta. "Ég er rosalega glöð með útkomuna á myndunum en ég er líka búin að læra mína lexíu að það er ekki sniðugt að taka myndavél með sér í drullu. Ég er viss um að ég mun aldrei geta hætt að gera það sem ég er að gera núna." "Ég er að eyða miklum í þetta áhugamál og ég vil aldrei stoppa. Nú skil ég hvað orðið ástríða virkilega þýðir. Í framtíðinni vil ég fara í nám til útlanda og spreyta mig þar og svo bara sjá hvert þetta leiðir mig," segir þessi hæfileikaríka unga stúlka. Sjá myndirnar hér. Bloggið hennar Antoníu hér.

Glænýtt plakat fyrir glæpamyndina Borgríki

Vísir hefur fengið í hendurnar glænýtt plakat fyrir glæpamyndina Borgríki, sem kemur út þann 14.október næstkomandi úr smiðju Poppoli kvikmyndafélags í leikstjórn Ólafs de Fleur.

Friðrik V hættur á Kexinu

„Það er engin dramatík í kringum þetta, við ætluðum alltaf að hafa þetta samstarf svona,“ segir Pétur Hafliði Marteinsson, einn eigenda veitinga- og gistihússins KEX.

Áfengislaus tónleikaröð Arnars

Kaffi, kökur & rokk & ról nefnist ný tónleikaröð sem hefst í Vonar-húsi SÁÁ þriðjudaginn 6. september. Fram koma Benni Hemm Hemm og Prins Póló.

Gengið og prjónað

Hélène Magnússon var að koma úr prjónaferð á Fimmvörðuhálsi og afrekaði það að prjóna heila peysu á leiðinni. Uppskriftin verður birt í bandarísku prjónabókinni Sweaters From Around the World á næsta ári.

Madonna tekur ærlega á því

Madonna, 53 ára, fer óhefðbundnar leiðir þegar kemur að líkamsrækt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni í suður Frakklandi í gær. Sjá má Madonnu á æfingu með þjálfaranum sínum þar sem hún heldur á bolta og gerir sérstakar æfingar á hlaupahjóli. Þá slakaði söngkonan á með börnum sínum Rocco John, David Banda Ritchie og Mercy James eftir púlið.

Hvernig ferðu að því að líta svona vel út (46 ára)?

Sarah Jessica Parker, 46 ára, var klædd í kjól eftir Prabal Gurung, þegar hún kynnti nýjustu kvikmyndina sína, I Don't Know How She Does It, í Moskvu í Rússlandi í gær. Ég reyni að dæma ekki aðra. Ef þér líður vel með það sem þú tekst á við skaltu halda þig við það, lét Sarah Jessica hafa eftir sér. Þá mætti leikkonan einnig í rauðum Giambattista Valli kjól með hárið tekið aftur á fjölmiðlafund deginum áður. Þá má skoða myndir af henni fyrir utan heimili sitt í New York ásamt öðrum tvíburanum og aðstoðarfólki.

Haugadrukkin móðir Lohan

Það er helst að frétta úr heimi leikkonunnar Lindsay Lohan, 25 ára, að mamma hennar, Dina, 48 ára, gerði sér dagamun í Hollywood þegar hún snæddi á fínum veitingastað. Þá var Dina mynduð, eftir þriggja rétta máltíð sem hún skolaði væntanlega niður með áfengi, yfirgefa staðinn í fylgd lífvarða. Þá bað Lindsay söngvarann Chris Brown að hitta sig í gegnum Twitter eins og sjá má í myndasafni. Ekki er vitað hvort söngvarinn hafi slegið til og hitt leikkonuna.

Valinn maður í hverju rúmi

Sigurður Flosason saxófónleikari hefur verið afkastamikill í plötuútgáfu undanfarin ár og hefur ráðist í mjög ólík verkefni, m.a. spunakonserta með Sinfóníuhljómsveit Íslands, stórsveitartónlist og margs konar annan djass.

Sum stígvél eru hættulegri en önnur

Kim Kardashian var klædd í svört há leðurstígvél þegar hún mætti til New York í fylgd eiginmannsins Kris Humphries. Næstu daga fara fram tökur á nýjum raunveruleikaþætti Kim og systur hennar Kourtney sem yfirskriftina Kourtney and Kim Take New York.

Fúlt að vera frægur

Leikkonan Mila Kunis, 28 ára, huldi andlit sitt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni á Heathrow flugvelli í London í síðustu viku og í gær á LAX flugvellinum í Los Angeles þar sem hún hækkaði tónlistina í botn til að útilokað ljósmyndara sem mynduðu hvert fótspor sem hún tók. Þá má sjá Milu með mótleikara sínum, Mark Wahlberg, leika í brúðarsenu í nýrri gamanmynd sem ber heitið Ted.

Það á enginn einkaleyfi á nafninu Ísfólkið

"Ég athugaði með einkaleyfið hjá Einkaleyfisstofu og það á enginn einkaleyfið á þessu nafni. Ég var búin að ganga úr skugga um það,“ segir sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.

Ástin spyr ekki um hæð

Brasilíska ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio, 30 ára, og unnusti hennar, viðskiptamaðurinn Jamie Mazur, gerðu sér dagamun í Hollywood í gær. Eins og sjá má á myndunum er töluverður hæðamunur á parinu.

Jitney til Íslands

Norska rokkhljómsveitin Jitney er á leiðinni til Íslands í stutta tónleikaferð. Þetta verður í annað sinn sveitin kemur hingað til lands en síðast spilaði hún á hátíðinni Aldrei fór ég suður í fyrra.

Skvísukvöld í Vestmannaeyjum

Guðrún, Vera, Anika Rós og Sólveig tóku sig saman og skipulögðu skvísukvöld sem þær halda í Vestmannaeyjum næsta fimmtudag á veitingahúsinu Volcano. Stöllurnar, sem halda úti vefsíðunum Marlin.is, Tara.is og Skartgripaskrínið á Facebook, ákváðu að láta verða af því að fara til Eyja þar sem þær ætla að eiga góða kvöldstund með konum sem búa á eynni. Í meðfylgjandi myndskeiði segja þær nánar frá því hvað boðið verður upp á.

Jolie blæs á Gróusögur

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leikkonuna Angelinu Jolie, 36 ára, framan á forsíðu tímaritsins Vanity Fair í október. Spurð út í kjaftasögur og Gróu á Leiti svarar Angelina: Það er ekkert leynibrúðkaup framundan. Ég er ekki ófrísk og ég er ekki í ættleiðingarhugleiðingum.

Grillað partí hjá Óla Geir

Ljósanæturball Óla Geirs verður hans stærsta til þessa. Í boði verða reykvélar, blöðrur, svaka hljóðkerfi og sjálfur Páll Óskar.

Sjá næstu 50 fréttir