Fleiri fréttir

Ósáttir við að vera á lista styrktarsjóðsins Kraums

Ultra Mega Technobandið Stefán er ósátt við að vera á lista Kraums yfir hljómsveitir sem hafa hlotið styrk frá sjóðnum. Ekkert mál að taka hljómsveitina af listanum, segir fráfarandi framkvæmdastjóri Kraums.

Hreimur: Við erum í nettu losti með þetta allt saman

Við höfðum samband við Hreim Örn Heimisson, einn af vinum Sjonna í Dusseldorf, til að forvitnast hvað þýska söngkonan Lena, sigurvegari Eurovision í fyrra, eldaði fyrir okkar menn. "Lena eldaði kartöflusalat með pylsum," svaraði Hreimur og sagði spurður út í líðan hans og félaganna eftir að þeir komust óvænt áfram í keppninni. "Við erum í nettu losti með þetta allt saman." "Dagurinn í dag var undirlagður af fjölmiðlaviðtölum. Átta tíma vakt takk fyrir," sagði Heimur glaður í bragði eins og honum er von og vísa spurður út í viðburði dagsins.

Vampíruleikari á nýjum slóðum

Flestar táningsstúlkur og mæður þeirra þekkja Robert Pattinson eða vampírupersónuna hans, Edward Cullen, úr Twilight-myndunum. En um helgina gefst fólki tækifæri til að sjá þennan mikla hjartaknúsara 21. aldarinnar í nýju hlutverki í ástarmyndinni Water for Elephants.

Spears í myndasögu

Líf Britney Spears mun brátt birtast í myndasöguformi. Það er myndasögufyrirtækið Bluewater sem stendur fyrir því en það hefur áður gert sér mat úr hrakfallasögu Lindsay Lohan, velgengni Lady Gaga og ástarsambandi Twilight-stjarnanna Robert Pattinson og Kristen Stewart.

Angelina útskýrir nýja húðflúrið

Leikararnir Angelina Jolie og Jack Black spjalla í meðfylgjandi myndskeiði um nýju teiknimyndina Kung Fu Panda 2, á kvikmyndahátíðinni í Cannes en þau ljá aðalsöguhetjunum raddir sínar. Það sem merkilegra þykir er þegar Angelina, í umræddu viðtali, útskýrir hvað nýjasta húðflúrið sem hefur bæst við fæðingarstaði barna sem hún hefur látið húðflúra á handlegginn á sér merkir. Svarið er fæðingarstaður unnusta hennar, leikarans Brad Pitt.

Ólétt með truflaða útgeislun

Leikkonan Jessica Alba, 30 ára, sólar sig ásamt dóttur sinni, Honor Marie, í Mexíkó þessa dagana. Eins og sjá má á myndunum er Jessica barnshafandi og þetta líka glæsileg. Þá má einnig sjá Jessicu í Ralph Lauren síðkjól með Neil Lane hring ásamt eiginmanni sínum, Cash Warren í New York 2. maí síðastliðinn.

Lúxuslíf Will Smith á tökustað

Bandaríski leikarinn Will Smith vill hafa það gott á tökustað, ef marka má nýlegar fréttir New York Post, því hann hefur leigt sér tveggja hæða færanlegan íbúðarvagn til að geta slakað á milli takna. Smith er nú staddur í New York þar sem tökur á MIB 3 eða Menn í svörtu 3 standa yfir og hefur komið íbúðarvagninum sínum fyrir í miðju SoHo-hverfinu.

Margrét skrifar ævisögu Ellýjar

Margrét Blöndal, útvarpskonan góðkunna af Rás 2, hefur síðastliðna tvo mánuði unnið að gerð ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands.

Killers vinnur að nýju efni

Las Vegas-hljómsveitin The Killers hefst handa við að semja nýtt efni í næstu viku, samkvæmt trommaranum Ronnie Vannucci. Vannucci lýsti því yfir í viðtali á útvarpsstöðinni XFM í London að meðlimir The Killers ættu hrúgu af hugmyndum að lögum sem þeir vilji leyfa hver öðrum að heyra. Þá bætti hann við að þeir væru búnir að ákveða að hittast þriðjudaginn 17. maí. „Við ætlum að koma saman og byrja að vinna," sagði hann.

Gufubaðið heillagripur strákanna

„Þeir eru í gufu. Þetta er í annað sinn í dag. Ég fór reyndar með þeim í morgun. Þeir eru farnir að líta á gufubaðið sem einhvers konar heillagrip,“ segir Þorbjörg Sif Þorsteinsdóttir, eiginkona Hreims Arnar Heimissonar.

Eggjum kastað í hústökuhúsið

„Við vorum búin að vera hérna um helgina að gera fínt í kringum húsið og svona. Það var mjög leiðinlegt að koma að húsinu og sjá að það var búið að kasta eggjum í framhurðina," sagði Sandra Hlíf Ocares.

Kastaði upp á tónleikum

Það er ekki tekið út með sældinni að vera vinsælasta táningsstjarna heims. Og á því meðali fékk Justin Bieber að bragða á tónleikum sínum á Filippseyjum á þriðjudagskvöld.

Harrelson í hasar

Woody Harrelson hefur samþykkt að leika í hasar/drama-kvikmyndinni The Hunger Games eftir leikstjóra Seabiscuit, Gary Ross. Myndin er byggð á samnefndri bók Suzanne Collins sem notið hefur mikilla vinsælda og segir frá ansi blóðugri keppni þar sem verðlaunin eru lífið sjálft.

Gaga hjálpar til við góðgerðarmál

Lady Gaga, söngkonan vinsæla, tróð upp á góðgerðartónleikum í New York á mánudagskvöld og aðstoðaði við að safna 47 milljónum dollara til styrktar góðu málefni.

Sjálfbært draumahús

Þetta nútímalega hús á hitabeltiseyjunni Sentosa í Singapore er sérstaklega hannað fyrir þá sem vilja njóta loftslagsins með opið útsýni til sjávar úr öllum rýmum hússins. Opin færa íbúunum ekki bara útsýni til allra átta heldur skapa náttúrulega loftkælingu þar sem golunni frá hafinu er beint í gegnum allt húsið með verkfræðilegri hugmyndafræði náttúrunnar sem sér til þess að þarna verði aldrei og of heitt eða kalt. Hugmyndin á bakvið þessa hönnun gengur út á það að skapa hús í nánum samskiptum við náttúruna. Þetta er meðal annars er gert með því að nota sundlaugina til að tengja húsið og hafið með sjónrænum áhrifum. Bogadregið þakið endurspeglar öldur hafsins og nálægð byggingarinnar við sjóinn. Klæðningin á þakinu dregur í sig sólarljósið sem íbúarnir nota til þess að framleiða allt það rafmagn sem þeir þurfa. Hönnuðir hússins er arkítektarnir hjá Guz Architects en þeir vildu með þessu verki skapa hús sem gæfi eigendunum tækifæri til þess að búa með öllum nútímaþægindum í einstakri nálægð og sátt við náttúruna. Þeir kalla það Fiskihúsið.

Vinir Sjonna virka slakir yfir þessu öllu saman

Meðfylgjandi myndir voru teknar af vinum Sjonna og fylgdarliði fagna því að þeir komust með lagið Aftur heim upp úr undanúrslitunum á þriðjudagskvöldið. Þá má sjá norska söngvarann Alexander Rybak taka viðtal við strákana fyrir NRK sjónvarpsstöðina í Noregi og þýsku söngkonuna Lenu, sem vann keppnina í fyrra og keppir aftur í ár, færa þeim þýskar pylsur en hún útbjó sjálf mat sérstaklega fyrir strákana.

Myndskreyttir Buffalo-skór

Hönnun danska tískumerkisins Moon Spoon Saloon þykir ólík annarri skandinavískri hönnun. Flíkurnar eru ýktar, litríkar og framandi. Sara Sachs er aðalhönnuður fatamerkisins en listamaðurinn Tal R sér um að glæða flíkurnar lífi með lit. Aðrir meðlimir Moon Spoon Saloon gengisins eru ljósmyndarinn Noam Giegst og stílistinn Melanie Buchhave.

Sheen gefur út lagið Winning

Charlie Sheen hefur gefið út lagið Winning á iTunes. Meðal þeirra sem koma við sögu í laginu eru Snoop Dogg og gítarleikari Korn, Rob Patterson. Þetta kemur fram í bandaríska blaðinu Los Angeles Times.

Fjársjóður frá Hollywood

Fjársjóðsleit stórmyndaframleiðandans Jerry Bruckheimer skilaði sér þegar hann ákvað að gera mynd um sjóræningja. Fjórða myndin um Jack Sparrow var frumsýnd á Cannes í gær.

Þjófnaðarbálkur Eiríks

Út er komið ritið Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl; safn ritgerða um höfundarétt, þjófnað og framtíðina í ótal hlutum, eins og segir í tilkynningu frá Perspired by Iceland sem gefur ritið út.

Ungt fólk drekkur Þórberg í sig

Í ritinu Að finna undraljós má finna safn greina um Þórberg Þórðarson. Bergljót Kristjánsdóttir, annar ritstjóra verksins, segir að enn sé stöðugt verið að gera nýjar uppgötvanir á höfundarverki Þórbergs.

Þjóðarímynd og goðsagnadýr

Niðurstaða: Klassískt og alþýðlegt viðfangsefni, brýnt á fyrri hluta síðustu aldar en síður eftir 1950. Fyrir þann tíma var myndefnið hluti af orðræðu samtímans og sköpun þjóðarímyndar en staða þess innan samtímalista er önnur. Mikill fjöldi frábærra verka sem ekki eru sýnileg alla jafna. Fín sýning fyrir alla fjölskylduna.

Veitingastaður opnar í Hörpunni

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi í tónlistarhúsinu Hörpu þegar nýr glæsilegur veitingastaður, Kolabrautin, í eigu Leifs Kolbeinssonar og Jóhannesar Stefánssonar opnaði. Hjarta Kolabrautarinnar er sjálft eldhúsið sem slær inni í miðjum salnum, sem tekur allt að 180 manns í sæti, og þar tekur eldofn á móti gestum. Eins og myndirnar sýna var mikið stuð í opnuninni.

Ásgerður flytur sönglög Bjarkar

Ásgerður Júníusdóttir messósópran syngur lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Björk Guðmundsdóttur og Magnús Blöndal Jóhannsson á hljómdisknum Langt fyrir utan ystu skóga, sem nýkomin er út.

Fögnuðu Sjálfstæðri þjóð

Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson á dögunum til að fagna nýrri bók stjórnmálafræðingsins Eiríks Bergmanns, Sjálfstæð þjóð. Í bókinni fjallar Eiríkur um þau áhrif sem hugmyndir um þjóðina og fullveldið hafa á stjórnmálaumhverfið.

Pacino til liðs við Gotti

Óskarsverðlaunahafinn Al Pacino hefur bæst í ört stækkandi leikhóp mafíumyndarinnar Gotti: Three Generations samkvæmt bandaríska stórblaðinu Washington Post. Myndin fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um Gotti-mafíufjölskylduna sem öllu réð í undirheimum New York í lok síðustu aldar. Pacino mun leika Neil Dellacroce, glæpahöfðingja og lærimeistara John Gotti eldri sem leikinn verður af John Travolta.

Spilar víða um Evrópu

Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir ætlar að spila á tónlistarhátíðum í Þýskalandi, Ungverjalandi, Póllandi og víðar í júlí og ágúst. Áður en sveitin fer út ætlar hún að loka sig af í hljóðveri ásamt upptökustjórunum Ólafi Arnalds og Styrmi Haukssyni og vinna að næstu plötu sinni, sem er væntanleg með haustinu.

Græja sem grennir

Halldóra Ástrún Jónasdóttir starfsmaður hjá Trimform Berglindar og Hulda Lind Kristindóttir fyrirsæta útskýra í meðfylgjandi myndskeiði hvað trimform-græja gerir en um er að ræða blöðkur sem eru settar upp við þau svæði á líkamanum sem eru slöpp. Þá fræða Unnur Kristín Óladóttir Íslandsmeistari í módelfitness 2011 og Kristbjörg Jónasdóttir sem varð í örðu sæti í sömu keppni okkur hvað þær fá út úr þessari græju.

Listin tekin af stallinum

Endemi nefnist nýtt tímarit helgað samtímalist íslenskra kvenna. Ritið kemur út þrisvar á ári og er ætlað að brúa bilið milli myndlistar og almennings og jafna hlut kynjanna í listaumfjöllun. Fyrsta tölublað menningarritsins Endemi kom út fyrir helgi. Stefna blaðsins er að beina sjónum að samtímalist íslenskra kvenna en að tímaritinu standa níu konur, flestar nýútskrifaðar úr Listaháskóla Íslands. Lilja Birgisdóttir er þeirra á meðal. „Okkur fannst vanta meiri umfjöllun um myndlist, ekki síst eftir konur," segir Lilja. „En í staðinn fyrir að kvarta yfir því ákváðum við að leggja eitthvað af mörkum og búa til nýjan vettvang."

Viltu vinna miða á Jon Lajoie? Einn miði eftir hver 100 "læk"

Grínistinn Jon Lajoie kemur fram í Háskólabíói á morgun og geta lesendur Vísis orðið sér úti um ókeypis miða á fjörið. Það eina sem þarf að gera er að gera "læk" við þetta skemmtilega viðtal við Lajoie hér að neðan og senda fullt nafn til IceGigg Entertainment.

Stjórnandinn spáir Rúnari velgengni á Cannes

Frédéric Boyer, listrænn stjórnandi Directors Fortnight-flokknum á Cannes, segir að Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, sé í alveg sérstöku dálæti hjá sér en þetta kemur fram í viðtali við hann í fagtímaritinu Cineuropa.

Auður Ava verðlaunuð í Quebec

Skáldsagan Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttir hlaut á mánudag Bóksalaverðlaunin í Quebec í Kanada – Prix des libraires de Quebec. Veitt voru verðlaun fyrir skáldskap frá Quebec og erlend skáldrit. Auk Auðar voru meðal annars Michel Houellebecq og Sofi Oksanen tilnefnd.

Töff hús fyrir töffara

Þetta mínímalíska 500 fermetra 6 herbergja einbýlishús var byggt fyrir fjölskyldu í Tel Aviv í Ísrael fyrir tveimum árum. Það var arkítektinn Axelrod sem hannaði þetta nútímalega töffarahús sem hann kallar eHouse. Húsið er hannað út frá hugsjónum mínimalistans um að ekkert óþarfa skreyti eigi rétt á sér og allar hugmyndir þurfi að hafa notagildi en ekki bara fagurfræðilegan tilgang. Húsið er sjónsteypt með stórum gluggum sem hafa búnað sem gera það að verkum að hægt er að renna þeim til hliðar þannig að sú hlið sem snýr að garðinum opnast að mestu. Þannig getur stofan orðið sameiginlegur hluti af garðinu í einu opnu rými. Sumum kann að þykja mikil notkun glers og hrárrar steypu í innri rýmum hússins vera kuldaleg. Upplifunin er þó líklega önnur á þessum slóðum þar sem veðrið er oftast stöðugt og gott.

Óperukór í Hafnarborg

Óperukór Hafnarfjarðar heldur sína árlegu vortónleika í Hafnarborg í kvöld klukkan 20. Sungin verða nokkur kórverk úr heimi óperubókmenntanna með einsöngvurum sem allir koma úr röðum kórfélaga. Einnig verða fluttir sviðsettir kaflar úr óperettunni Leðurblökunni eftir Jóhann Strauss undir leikstjórn Ingunnar Jensdóttur, sem einnig syngur með kórnum.

Gerir góðverk í gegnsæju

Dómari í Los Angeles skikkaði Lindsay Lohan til að sinna samfélagsþjónustu fyrir ekki svo löngu. Lohan, sem var líka dæmd í 120 daga fangelsisvist og svo þarf hún að vinna í 480 klukkustundir í þágu samfélagsins. Lindsay er byrjuð að kenna heimilislausum konum að leika. Á meðfylgjandi myndum yfirgefur hún leiklistarnámskeiðið í gegnsæjum bol.

Er orðinn eftirsóttur hjá norrænum röppurum

Rapparinn Erpur Eyvindarson, eða Blazroca, hefur unnið mikið með norrænum röppurum upp á síðkastið. Stutt er síðan hann tók upp nýtt lag með Kaptein På Skuta frá Þrándheimi.

Heilsteypt steypa

Verði þér að góðu er mjög heilsteypt, sprenghlægileg og smart sýning! Sýningin er unnin af leikhópnum Ég og vinir mínir og þar eru svo sannarlega á ferðinni vinir sem veltast hver um annan og krefjast hver af öðrum um leið og þeir ögra hver öðrum og öllu því samskiptamynstri sem þeim dettur í hug að til sé millum vina.

XIII spilar plötuna Salt

Rokkhljómsveitin XIII leikur plötu sína Salt í heild sinni á tónleikum á Faktorý á föstudagskvöld. Sérstakir gestir verða In Memoriam og Hoffman. „Þetta er nú bæði vegna óska þeirra sem sýnt hafa XIII áhuga og okkur sjálfum til gamans," segir Hallur Ingólfsson, söngvari XIII. „Þetta verður ekki endurtekið. Þeir sem hafa verið að óska eftir lögum af Salt á tónleikum ættu því að grípa tækifærið núna."

Verslar í Wallmart

Leikaranum John Travolta þykir ekkert tiltöku mál að versla bæði gjafir og nauðsynjavörur í bandarísku verslunarkeðjunni Wallmart þó hann fljúgi um heiminn í einkaþotu. Samkvæmt innanbúðarmanni verslar Travolta reglulega í Wallmart og kaupir meðal annars fatnað sinn þar.

Sendu vinum Sjonna hvatningu

Frést hefur af góðri Eurovision-stemningu á stærri vinnustöðum í dag, enda á söngvakeppnin sér marga harða aðdáendur hér á landi. Ríflega 400 starfsmenn vinna hjá vodafone og hefur lagið Coming home með Vinum Sjonna verið spilað í botn í höfuðstöðvum fyrirtækisins í dag. Starfsmennirnir stilltu sér upp með íslenska fána og sendu íslensku þátttakendunum „Vinum Sjonna“ myndina ásamt baráttukveðjum fyrr í dag. Það eru þó ekki allir starfsmenn Vodafone sem geta verið í hópi vina og fjölskyldu þegar að útsendingin hefst í kvöld kl.19:00. Fyrirtækið er umsjónaraðili atkvæðagreiðslunnar hér á landi og átta starfsmenn fyrirtækisins verða á vakt í höfuðstöðvunum í kvöld. Aðstandendur keppninnar vilja forðast í lengstu lög að nokkuð svindl geti átt sér stað í símakosningunni og því þarf starfsfólkið að vera vel á varðbergi gagnvart grunsamlegu atferli. Íslendingar hafa ávallt verið duglegir að taka þátt í símakosningunni en í fyrra bárust rúmlega 240 þúsund atkvæði frá Íslendingum í alla hluta keppninar, bæði forkeppnirnar og úrslitin. Eins og undanfarin ár mun atkvæðakosningin hafa 50% vægi á móti niðurstöðu dómnefndar sem skipuð er í hverju landi fyrir sig.Um leið og fyrsti flytjandinn stígur á svið má byrja að kjósa og það má hringja allt að 20 sinnum úr hverju símanúmeri (eða senda sms) en ekki má kjósa eigið land. Hér eru símanúmer landanna sem flytja sín atriði í kvöld: 1. Pólland 900 9901 2. Noregur 900 9902 3. Albanía 900 9903 4. Armenía 900 9904 5. Tyrkland 900 9905 6. Serbía 900 9906 7. Rússland 900 9907 8. Sviss 900 9908 9.Georgía 900 9909 10.Finnland 900 9910 11.Malta 900 9911 12.San Marínó 900 9912 13.Króatía 900 9913 14.Ísland ---------- 15.Ungverjaland 900 9915 16.Portúgal 900 9916 17.Litháen 900 9917 18.Aserbaídsjan 900 9918 19.Grikkland 900 9919

Sjá næstu 50 fréttir