Lífið

Angelina útskýrir nýja húðflúrið

Leikararnir Angelina Jolie og Jack Black spjalla í meðfylgjandi myndskeiði um nýju teiknimyndina Kung Fu Panda 2, á kvikmyndahátíðinni í Cannes en þau ljá aðalsöguhetjunum raddir sínar.

Það sem merkilegra þykir er þegar Angelina, í umræddu viðtali, útskýrir hvað nýjasta húðflúrið sem hefur bæst við fæðingarstaði barnanna hennar sex*, sem hún hefur látið húðflúra á handlegginn á sér merkir. Svarið er fæðingarstaður unnusta hennar, leikarans Brad Pitt.

* Maddox ættleiddur frá Kambodiu, Pax ættleiddur frá Vietnam, Zahara ættleidd frá Eþíópíu, Shiloh fæddist í Namibíu, Vivienne og Knox fæddust í Frakklandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×