Fleiri fréttir

Ask the Slave með nýja plötu

Önnur breiðskífa rokkhljómsveitarinnar Ask the Slave kemur í verslanir á morgun. Platan nefnist The Order of Things og einkennist af ringulreið sem endar með einræðu Ólafs Darra Ólafssonar, leikara.

Rokkari og poppkóngur sameinast

Eurovision-lagahöfundurinn Örlygur Smári fetar heldur ótroðnar slóðir í nýju lagi fyrir stúlknasveitina Elektru.

Cher gefur út nýja plötu

Söngkonan Cher hefur tilkynnt að hún sé nú með nýja plötu á byrjunarstigi. Hún vinnur með lagahöfundinum Diane Warr­en sem samdi einnig eitt af lögunum, You Haven"t Seen The Last Of Me, í kvikmyndinni Burl­esque sem væntanleg er í vetur.

Heimsókn frá Þýskalandi

Undanfarið ár hefur staðið yfir undirbúningur fyrir komu stúlknakórs frá Berlín sem ber nafnið „Mädchenchor der Sing-Akademie zu Berlin“ í heimsókn til Stúlknakórs Reykjavíkur. Stúlkurnar í báðum kórum eru á aldrinum 11 til 19 ára og munu þær syngja saman á tónleikum í Grensáskirkju á laugardag, þann 21. ágúst, klukkan 15.00.

Skrásetur lífsgleði á filmu

Ljósmyndarinn og grafíski hönnuðurinn Jóhannes Kjartansson gefur út ljósmyndabók. Í bókinni er að finna 500 myndir en Jói, eins og hann er kallaður, hefur verið að skrásetja lífið á filmu síðan árið 2005. Bókin ber nafnið Joi de vivre; orðaleikur úr franska orðtakinu Joie de vivre eða Lífsgleði á íslensku.

Nokkuð fyrirsjáanlegt leikaraval

Leikarahópurinn í kringum fyrstu myndina um Lisbeth Salander og Mik­ael Blomkvist er smám saman að skýrast. Fjölmiðlar vestra greindu frá því í gær að viðræður við sænska stórleikarann Max von Sydow væru hafnar en hann ætti að leika Henrik Vanger, höfuð Vanger-fjölskyldunnar sem leitar að týndri frænku sinni.

Hjaltalín fær fimm stjörnur í Noregi

Fjallað er um plötu sveitarinnar Hjaltalín, Terminal, á netmiðli Bergens Avisen en platan er nýkomin út í Skandinavíu. Gagnrýnandi ba.no gefur plötunni 5 af 6 í svokölluðu teningakasti og kallar Hjaltalín stórsveit innan indie-tónlistarstefnunnar.

Sögulegur menningarviðburður

The Expendables hefur vakið gríðarlega lukku meðal karlmanna sem hafa lengi þráð að sjá testósterónið flæða unnvörpum. Kvikmyndin virðist hafa uppfyllt allar þær óskir því The Expendables hefur fengið frábæra dóma og ótrúlega aðsókn.

Erfitt að vera mamma

Leikkonan Emma Thompson, 51 árs, segir að móðurhlutverkið sé erfitt og að það fari gjörsamlega með hana að reyna að ala upp dóttur sína, Gaia, sem er tíu ára gömul. „Guð það er hræðilegt að vera foreldri," lét Emma hafa eftir sér. Þegar ég verð reið á ég erfitt með að fyrirgefa mér viðbröðg mín. Mér finnst eins og mér hafi mistekist þegar ég missi stjórn á skapi mínu," sagði Emma.

Langar að opna hótelkeðju

Paris Hilton, 29 ára, sem hefur tekist á við ýmislegt í gegnum tíðina eins og sjónvarpsþáttagerð, söng, ilmvatnsframleiðslu og leiklist hefur áhuga á að demba sér út í hótelrekstur líkt og fjölskylda hennar. Paris segir að kominn sé tími á að hún fræðist um hótelrekstur eftir að hafa gert það gott í skemmtanabransanum. „Ég er búin að takast á við nánast allt sem ég get hugsað mér að gera. Næsta verkefni mitt er að demba mér út í viðskipti og hóteliðnað. Næsta skref er að opna mína eigin hótelkeðju," sagði Paris Ekki er vitað hvort Paris fái leyfi til að nota Hilton nafnið en á meðan hún undirbýr hótelreksturinn horfir hún á sjónvarpsþættinua True Blood. „Ég hef ekki mikinn tíma til að horfa á sjónvarp af því að ég hef svo mikið að gera og er alltaf á ferðinni en það er einn þáttur sem ég elska og það er True Blood. Kannski fæ ég að leika vampíru einhvern tíman. Það væri frábært," sagði hún.

Engir megrunarkúrar í fríinu

Leikkonan Eva Longoria Parker, 35 ára, upplýsti í viðtali við tímaritið OK á dögunum hvernig hún heldur sér í góðu líkamlegu formi. Desperate Housewives stjarnan þarf að hafa fyrir því að halda sér í góðu formi. Hún mætir í líkamsræktina fjórum sinnum í viku og borðar nákvæmlega það sem þjálfarinn hennar segir henni að borða. „Þegar ég er í Los Angeles þá hitti ég einkaþjálfarann minn fjórum sinnum í viku. Mér líður vel eftir æfingarnar og þess vegna er ég að þessu. Ég er ekki stöðugt að hugsa: Oh ég vil vera grindhoruð. Vellíðan er málið fyrir mig," sagði Eva. Þrátt fyrir að hugsa vel um líkama sínn leyfir Eva sér að borða allt sem hana langar í án þess að fá samviskubit en aðeins þegar hún fer í sumarfrí. „Þegar ég er í fríi geri ég allt sem ég leyfi mér ekki annars. Ég borða hvað sem er hvenær sem er."

Hera eftirsótt í Evrópu

Við heyrðum í Heru Björk söngkonu og Eurovisionfara til að forvitnast hvað hún tekst á við þessa dagana eftir ævintýrið í Noregi. Hera hefur nóg að gera og segir Evrópu vera komna á bragðið enda er söngkona fullbókuð næstu misseri. „Ég get víst ekki kvartað yfir verkefnaleysi eftir Eurovision ævintýrið þó svo að þau séu nú flest erlendis næstu misserin. Ég var búin að búa mig undir „lægðina" hér heima sem að óhjákvæmilega fylgir alltaf Eurovision þar sem að landinn þarf smá hvíld eftir endalausar fréttir frá Eurovisionlandinu," svarar Hera og heldur áfram:

Unnustinn hjálpaði að sigra krabbameinið

Leikkonan Christina Applegate, 38 ára, sem á von á sínu fyrsta barni með unnustanum, Martyn Lenoble, 41 árs, sem hún trúlofaðist á þessu ári, stillti sér upp á rauða dreglinum fyrir frumsýningufjölskyldumyndarinnar Hundar og Kettir 2 í 3D sem er framhald af einni af vinsælli barnamyndum síðari ára. Leikkonan greindist með krabbamein í brjósti sumarið 2008 og þakkar hún Martyn fyrir stuðninginn þegar hún tókst á við veikindin. „Ég er svo þakklát Martyn fyrir að birtast í lífi mínu á þessum tímapunkti því hann var kletturinn minn. Hann gaf mér ástæðu til að brosa og viljann til að lifa áfram."

Kærir sig ekki um líkamshár

Kim Kardashian, 29 ára, er með líkamshár á heilanum að eigin sögn. Hún hefur undanfarin ár eytt fjármúgu í að láta fjarlægja líkamshár á líkama sínum sem hún telur óæskileg með hjálp leisertækninnar. Í dag segir hún húðina vera mjúka og hárlausa. Ég er ættuð frá Armeninu þannig að auðvitað er ég með leisertæknina á heilanum þegar kemur að líkamshárum. Undir höndum, bikíniröndin, fæturnir og líkami minn eins og hann leggur sig er hárlaus," lét Kim hafa eftir sér í tímaritinu Allure. Einnig ræddi Kim þegar hún sat fyrir í Playboy árið 2007. Hún segist ekki sjá eftir að hafa setið fyrir nakin heldur hefði hún viljað vera í betra formi þá. Já ég sé eftir að hafa setið fyrir í Playboy þá. Ekki það að hafa setið fyrir í umræddu blaði heldur á þessum tímapunkti var ég ekki í besta formi lífs míns," sagði Kim spurð út í fyrirsætustarfið og hvor það sé nokkur eftirsjá. Je minn eini ég var svo þung þá. Síðan þá hef ég misst 8 kíló. Andlitið á mér er grennra og líkami minn líka, maginn á mér er sléttur líka," sagði Kim.

Klæðist einum kjól í mánuð

Indía Salvör Menuez er hálfíslensk stúlka sem hefur tekið að sér að klæðast sama kjólnum daglega í heilan mánuð til góðgerðarstarfa. Verkefnið nefnist The uniform project og er upphafsmaður þess stúlka að nafni Sheena sem ákvað árið 2009 að klæðast sama kjólnum í heilt ár til styrktar skólabörnum á Indlandi.

Magnað maður, magnað

Þrátt fyrir úreldingu merkimiða verður þessari mynd ekki lýst betur en sem „strákamynd" og slíkar myndir verða tæpast mikið betri en The Expendables. Hún býður upp á allt fyrir okkur sem fílum svona en ekkert fyrir hina. Góða skemmtun!

Hver er þessi Rooney Mara?

Leikkonan Rooney Mara hefur landað einu af eftirsóknarverðustu kvenhlutverkum í kvikmyndaheiminum í dag, sjálfri Lisbeth Salander, tölvuhakkaranum og pönkaranum úr þríleik Stiegs Larsson. En hver er þessi óþekkta leikkona sem á eftir að skjótast hratt upp frægðarstigann í Hollywood?

Skarð Spaugstofunnar ófyllt

„Ég er ekki að fara vinna með RÚV, allavega ekki laugardagsþáttinn. Ég er bara á fullu að gera Gauragang. Hún verður frumsýnd um jólin og ég er bundinn í þeirri vinnu þangað til,“ segir Gunnar Björn Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV, lýsti því yfir í samtali við Fréttablaðið fyrir viku að hún hefði hug á því að falast eftir kröftum Gunnars til að stjórna þætti á þeim dagskrártíma sem áður hýsti Spaugstofuna. En hún er, eins og flestum ætti að vera kunnugt um, hætt í Efstaleitinu.

Jolie spennt fyrir framhaldi

Leikkonan Angelina Jolie segist spennt fyrir því að kanna persónu sína úr kvikmyndinni Salt betur.

Vesturport hellir sér útí gamanleik og farsa

„Það var kominn tími til að reyna sig við gamanleik, eftir að hafa verið í svona „léttmeti" eins og Hamskiptunum og Fást," segir Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Vesturport í samstarfi við Borgarleikhúsið hyggst setja upp sýningu sem verður í eilítið öðruvísi dúr en aðrar sýningar hópsins. Um er að ræða farsakenndan gamanleik um húsmóðurshlutverkið á Íslandi. Verkið er glænýtt, skrifað af þeim Víkingi Kristjánssyni, Birni Hlyni Haraldssyni, Nínu Dögg, Jóhanni Níels og Gísla Erni.

Vill minni brjóst

Bandaríska söngkonan Jessica Simpson segist almennt ánægð með vöxt sinn en viðurkennir að hún vildi gjarnan vera með eilítið minni barm og aðeins stærri bakhluta. „Ég er með lítinn rass. Ég mundi gjarnan minnka brjóstin og bæta á rassinn ef ég gæti."

Ástfangin af umbanum

Leikkonan Hilary Swank, 36 ára, vill bíða með að eignast börn. Hún getur hugsað sér að fjölga mannkyninu þegar rétti tíminn kemur. Hún hefur verið á föstu með umboðsmanninum sínum, John Campisi, í nærri fjögur ár og segist vera ánægð í sambandinu.

Höfundur Makalaus byrjuð með Kalla í Baggalút

„Jú ég get staðfest það. Við erum að hittast,“ svarar Þorbjörg Marinósdóttir (26), betur þekkt sem Tobba, spurð hvort hún og Karl Sigurðarson (34) borgarfulltrúi Besta flokksins og söngvari hljómsveitarinnar Baggalúts séu par.

Fær hjónabandsráð hjá frú Beckham

Eva Longoria Parker hefur leitað til vinkonu sinnar Victoriu Beckham til að fá ráð varðandi hjónabandið því hana langar að hjónabandi hennar gangi jafn vel og hjónabandi Beckham-hjónanna.

Ekkert brúðkaup framundan

George Clooney, 49 ára, neyddist til að gefa út yfirlýsingu um að hann er ekki um það bil að ganga í heilagt hjónaband með unnustu sinni, Elisabettu Canalis, 31 árs. Mynd af Elisabettu birtist í ítölskum fjölmiðlum þar sem hún snæddi hádegisverð á veitingahúsi ásamt vinkonum sínum og sýndi þeim skælbrosandi risastóran hring. Í kjölfarið fór saga af stað um að brúðkaup væri í undirbúningi. Þetta var servíettuhringur, útskýrði fulltrúi George þegar hann var spurður út í væntanlegt brúðkaup og þennan umrædda hring. Parið byrjaði saman á síðasta ári og nú hefur fjölmiðlafulltrúi hans sent út tilkynningu þar sem segir að ekkert brúðkaup sé á dagskránni hjá honum.

Hatar megrunarkúra

Fyrirsætan Molly Sims, 37 ára, hatar megrunarkúra og lætur fara í taugarnar á sér hvernig söngkonan Britney Spears klæðir sig. Fyrirsætan Molly segir að það eina sem Britney þurfi á að halda sé allsherjar yfirferð á útliti söngkonunnar. „Ég myndi henda stígvélunum sem Britney gengur í og lika toppunum hennar," sagði Molly í septemberhefti tímaritsins Health. „Britney þarf virkilega á aðstoð að halda þegar kemur að heilarútlitinu," sagði hún. Molly hefur setið fyrir á forsíðu tímaritsins Sports Illustrated nokkrum sinnum í gegnum tíðina og í eitt skiptið klæddist hún engu nema 30 milljón dollara bikiní. Molly segir það vera full vinnu að halda líkamanum í góðu formi. Hún hugar vel að því hvað hún borðar en hún segist ekki þola megrunarkúra. „Ég var með útlitið á heilanum og prufaði alla megrunarkúra hérna áður fyrr en núna er ég í betra formi af því að ég vel af kostgæfni hvað ég set inn fyrir mínar varir. Ég þoli ekki megrunarkúra og svo er ég grennri og í betra formi í dag en þegar ég vann sem fyrirsæta," sagði Molly.

Tyra Banks biðst afsökunar

Ofurfyrirsætan og sjónvarpsstjarnan Tyra Banks baðst opinberlega afsökunar á því að hafa lofað þvengmjóa fyrirsætu í kynningarstúf fyrir raunveruleikaþáttinn America's Next Top Model. Eftir að þátturinn fór í loftið varð allt vitlaust vestan hafs sökum ummæla Tyru um ákjósanlegt vaxtarlag kvenna sem vilja verða fyrirsætur. Tyra heldur því fram að hún hafi alls ekki verið meðvituð um þann skaða sem hún kann að hafa ýtt undir hjá ungum stúlkum sem sumar kjósa að svelta sig til að komast í litlar fatastærðir. Af því að ég er talsmaður tísku, heilsu og vellíðan verð ég að viðurkenna að ég sé eftir því að hafa látið þessi orð falla. Mér þykir leitt að hafa valdið ruglingi og ýtt undir reiði og ótta hjá áhorfendum mínum," sagði Tyra. Allar konur ættu að vera stoltar af líkama sínum sama hvað þær eru mörg kíló að þyngd," sagð hún jafnframt.

Breyttist í partístelpu eftir skilnaðinn

Leikkonan Jenny McCarthy segist njóta þess að vera á lausu eftir að hún hætti með leikaranum Jim Carrey fyrr á árinu. Sagan segir að hún reyni allt hvað hún geti til að líta út fyrir að vera hamingjusöm. Jenny flutti nýverið til Las Vegas og skemmtir sér þar eins og enginn sé morgundagurinn. „Ég er byrjuð að ganga í fötum sem mig dreymdi ekki um að klæðast aftur, sagði Jenny á rauða dreglinum í einu af fjölmörgu teitum sem hún mætti í. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig Jenny hefur breytt um fatastíl síðan hún hætti með Jim.

Dýrkar Star Wars-myndirnar

Leikarinn Dominic Monaghan, sem lék meðal annars í Lord of The Rings og í sjónvarpsþættinum Lost, skartar nú stærðarinnar húðflúri á vinstri hendi. Húðflúrið er setning úr kvikmyndinni Star Wars og segir á ensku Luminous Beings Are We, Not This Crude Matter, setning sem hinn alvitri Yoda sagði eitt sinn.

The Office fer til Kína

Breski grínistinn Ricky Gervais segir að kínversk útgáfa af sjónvarpsþáttum sínum, The Office, sé í bígerð. Þættirnir slógu fyrst í gegn í Bretlandi með honum í aðalhlutverki. Síðan var gerð bandarísk útgáfa með Steve Carell í hlutverki skrifstofustjórans og núna er kínversk útgáfa í uppsiglingu.

Eltingarleikurinn að nóttu til skemmtilegastur

Victoria Ferell leikur aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd. Hinn tólf ára gamli nemandi í Melaskóla segist ganga með leikkonudrauminn í maganum. „Ég bjóst alls ekki við þessu en ég var rosalega glöð yfir því að fá hlutverkið. Nú bíð ég bara spennt eftir því að sjá myndina tilbúna,“ segir Victoria Ferrell, sem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra sem frumsýnd verður í byrjun næsta árs.

Skímó á eina sveitaballi ársins

Eina sveitaball ársins í Njálsbúð í Vestur-Landeyjum verður haldið á föstudagskvöld. Skítamórall, Friðrik Dór, DJ Atli og Stuðlabandið halda uppi stuðinu og feta þar í fótspor Sálarinnar sem spilaði þar á eina ballinu í fyrra

Daníel bað Ká Eff Bé afsökunar

Rapparinn Ká Eff Bé vill leiðrétta misskilning í tengslum við sitt nýjasta lag sem hann gerði með söngvaranum Daníel Óliver. Lagið heitir Skjóttu mig! og er að gera góða hluti á FM 957. Ká Eff Bé samdi lagið en þeir Daníel sömdu textann saman.

Hasarhetjur á toppinn

Harðhausamyndin The Expendables var frumsýnd vestanhafs um síðustu helgi og fór beint í efsta sætið yfir vinsælustu myndirnar. Myndin er stútfull af hasarmyndahetjum á borð við Sylvester Stallone, Bruce Willis, Jet Li, Jason Statham, Dolph Lundgren og Arnold Scwarzenegger og koma vinsældir hennar því ekki á óvart.

Kelsey Grammer faðir á ný

Gamanleikarinn Kelsey Grammer tilkynnti fyrir sex vikum að hann og eiginkona hans til þrettán ára ætluðu að skilja. Nú er ástæðan fyrir skilnaðinum komin fram, en svo virðist sem Grammer hafi átt í ástarsambandi við unga, breska flugfreyju að nafni Kayte Walsh.

Frost leysir frá skjóðunni

Breska leikkonan Sadie Frost gaf nýverið út sjálfsævisögu sína og fjallar meðal annars um hjónaband sitt og leikarans Jude Law. Frost var gift kona þegar hún kynntist Law við tökur á kvikmynd.

Til New Orleans í nóvember

Inhale, kvikmynd Baltasars Kormáks verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum þann 22. október. Margir hafa beðið spenntir eftir því að sjá frumraun Baltasars utan Íslands og nú virðist sá dagur loksins vera að renna upp. Baltasar mun síðan halda til Ameríku um leið og tökum á kvikmyndinni Djúpinu lýkur en þær hafa staðið yfir í Vestmannaeyjum í sumar.

Yrsa tilnefnd til verðlauna

Glæpasagan Sér grefur gröf eftir rithöfundinn Yrsu Sigurðardóttur er á meðal þeirra verka sem tilnefnd eru til Shamus-glæpasagnaverðlaunanna í ár. Verðlaunin eru veitt í Bandaríkjunum ár hvert og er verk Yrsu eina þýdda glæpasagan sem tilnefnd er til verðlaunanna í ár.

Besta blogg Íslands

Álitsgjöfum okkar, lesendur Lífsins á Vísi, gefst kostur á að kjósa til klukkan 08:00 í fyrramálið besta bloggið á Íslandi. Nú þegar hefur Þorbjörg Marínósdóttir eða Tobba sem bloggar á DV verið nefnd, Pjattrófurnar og Egill Helgason sem blogga á Eyjunni ogg Sverrir Stormsker á Blog.is. Taktu þátt og nefndu uppáhaldsbloggið þitt hér.

Suri sjálfstæður krakki

Leikkonan Katie Holmes segir að dóttir hennar og Tom Cruise, Suri, sem er aðeins 4 ára gömul, sér um að hanna sín eigin föt. Suri litla er oftar en ekki lofuð fyrir að klæðast fallegum fötum í heimspressunni. Myndir af stúlkunni birtast iðulega þar sem hún klæðist merkjavöru. Móðir hennar, Katie Holmes, segir að dóttir hennar hafi sterkar skoðanir á því hverju hún klæðist, líkt og hún gerði sjálf þegar hún var krakki. Á mínum uppvaxtarárum var ég yngst af fimm systkinum og var ákveðin í hverju ég vildi ganga hverju sinni," sagði Katie. Suri fær að velja hverju hún gengur í. Hún er mjög sjálfstæð. Við erum byrjaðar að hanna föt á hana saman eða öllu heldur hún hannar fötin sem hana langar að vera í í samvinnu við mig." Síðan hún var eins og hálfs árs hefur hún ákveðið í hverju hún vill vera hverju sinni."

Christina Aguilera stolt móðir

Söngkonan Christina Aguilera, 29 ára, segir að tveggja ára sonur hennar, Max, ræði stanslaust um allt á milli himins og jarðar. Christina, sem á soninn með eiginmann sínum, Jordan Bratman elskar að vera móðir og trúir ekki hvað tíminn líður hratt. „Hann hættir ekki að tala og er alltaf að læra ný orð," sagði Christine. Söngkonan veit fátt skemmtilegra en að lesa fyrir Max sem sýgur bókstaflega allar upplýsingarnar sem móðir hans les fyrir hann úr bókunum eins og svampur. „Við hlustum líka oft á tónlist saman. Max elskar trommur. Ég held hann verði trommari þegar hann verður eldri," sagði stolt móðirin.

Breyttist eftir að hún eignaðist barn

Leikkonan Bridget Moynahan, 39 ára, segir að eftir að hún varð móðir hafi líf hennar breyst til hins betra. Bridget á tveggja ára son með fyrrverandi unnusta sínum, amerísku fótboltastjörnunni Tom Brady. Hún segir barnsföður sinn standa sig vel sem helgarpabba og að reynsla hennar með Tom hafi gert hana sterkari ef eitthvað er. Að vera móðir, hvort sem þú ert einstæð eða ekki, er alls ekkert auðvelt hlutverk. Ég er ekki að kvarta yfir neinu því líf mitt er frábært. Sonur minn er í góðu jafnvægi þrátt fyrir þá staðreynd að við, foreldrar hans erum ekki saman. Hans koma í heiminn hefur algjörlega breytt mér og lífi mínu til hins betra," sagði Bridget. Bridget áttaði sig á að hún var barnshafandi stuttu eftir að hún hætti með Tom en hann er í dag giftur brasilísku ofurfyrirsætunni Gisele Bundchen og á með henni 8 mánaða gamlan son, Benjamin.

Scarlett næsta Salander?

Leikkonan Scarlett Johansson kemur sterklega til greina í hlutverk tölvuhakkarans Lisbeth Salander fyrir bandarísku útgáfuna af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Nánast daglega berast fregnir af ungum Hollywood-stirnum sem keppast um að hreppa hnossið og nú ber nafn 25 ára leikkonunnar Scarlett á góma. Leikstjórinn þykir hrifinn af Scarlett og hennar frammistöðu í áheyrnarprófinu. Einnig fylgir sögunni að Scarlett er mjög spennt fyrir að takast á við karakterinn.

Sjá næstu 50 fréttir