Fleiri fréttir

Bjartmar leikur spilltan yfirlækni

Spilltur yfirlæknir vill rífa bæjarleikhús til að byggja lúxus sjúkrahótel í kvikmyndinni L7 - Hrafnar, Sóleyjar og Myrra en tökur á henni hefjast í sumar. .

Kardashian-systur gefa góð ráð í bók

Systurnar Kim, Kourtney og Khloe Kardashian vinna nú saman að bók. Í bókinni verður kafað djúpt ofan í óþrjótandi viskubrunna systranna ásamt því að fjölmargar myndir af þeim munu gleðja augu lesenda.

Kelar við Cruise - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá leikarahjónin Tom Cruise og Katie Holmes knúsa hvort annað á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar Knight and Day í Sevilla á Spáni í gær. Þá má einnig sjá mótleikkonu Tom í myndinni, Cameron Diaz.

David Spade með ofurskutlu

Ein skrýtnasta pörun í sögu Hollywood átti sér stað á dögunum. Þá sást gríngosinn smávaxni, David Spade, ásamt ofurskutlunni og matargyðjunni Padma Lakshimi.

Snýst um að halda lífi í Kvosinni

„Þetta snýst um að halda lífi í Kvosinni og gefa ungum og upprennandi tónlistarmönnum tækifæri til að koma fram,“ segir Teitur Björgvinsson, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Músmos.

Yrsa sögð ein af af arftökum Larsons

„Í þessu rosalega bókaflóði finnst mér mikil ánægja að fá að stinga höfðinu aðeins upp úr, þótt það sé ekki meira,“ segir rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir.

Magga Maack á kápunni í tveimur heimsálfum

„Myndir eftir mig hafa áður birst í erlendum bókum og tímaritum og ég geri ráð fyrir því að bókaútgáfan hafi fundið mig annað hvort í gegnum það eða heimasíðuna mína," segir grafíski hönnuðurinn Ólöf Erla Einarsdóttir, sem mun hanna kápur þriggja bóka í bókaflokknum Creature Court.

Baráttutónleikar TÞM

Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá stendur til að bera starfsemi Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) úti á Granda út vegna fjárhagsvandræða. TÞM hýsir fjölmarga tónlistarmenn og hefur gert síðustu ár.

Stelpurnar hans Steinda í stuði - myndir

Hin árlega uppskeruhátíð leiklistarinnar, Gríman, var haldin hátíðleg í Þjóðleikhúsinu í gær. Eins og myndirnar sem teknar voru í gær sýna voru gestir í spariskapi og þá sér í lagi stelpurnar hans Steinda sem mættu spariklæddar með bros á vör.

Katy og Russell með alveg eins tattú

Skötuhjúin Russell Brand og Katy Perry hafa nú fengið sér alveg eins húðflúr. Skemmtikrafturinn og tónlistarkonan munu ganga í það heilaga í haust og búist er við stjörnumprýddum gestalista. Setningin „Gakktu meðfram straumnum" á hinu helga indverska tungumáli sanskrít, prýðir nú handleggi beggja. Russell Brand sást fyrst skarta húðflúrinu á forsíðu síðasta tölublaðs Rolling Stones og svo var Perry mynduð með alveg eins tattú nú í vikunni.

Besta gítargripsíða heims endurnýjuð

„Við sáum rifu á markaðnum fyrir svona síðu. Fólk í kringum okkur var alltaf að sanka að sér nótum og gripum frá mismunandi stöðum og okkur datt í hug að safna þessu saman á sömu síðuna. Við teljum okkur vera með bestu gítargripvefsíðu í heiminum í dag,“ segir Kjartan Sverrisson.

Með of litlar hendur

Bomban Megan Fox lenti í miklum erfiðleikum í nýjustu mynd sinni Jonah Hex. Þrátt fyrir að hafa haft ánægju af að leika í spennuatriðunum í myndinni átti hún í mestu vandræðum með gripið á skotvopnunum.

Heiðra Ómar með barnaplötu

Félagarnir Gunni og Felix gefa út barnaplötu til heiðurs Ómari Ragnarssyni í tilefni af stórafmæli hans. Platan samanstendur af þrettán lögum Ómars sem félögunum fannst nauðsynlegt að kynna fyrir nýrri kynslóð.

Ósigrandi minnipokamenn

The Losers er hrá, sveitt og á köflum alveg hreint ferlega töff hasarmynd. Gallalaus er hún þó ekki og líður einna helst fyrir lapþunnt handrit, frekar slappa og klisjukennda sögu og leikarahóp sem er vægast sagt misgóður. Myndin rís hins vegar undir göllunum, aðallega vegna þess að hún tekur sig aldrei alvarlega og þykist ekki vera neitt annað en það sem hún nákvæmlega er. Spennumynd með sprengingum, byssubardögum og slagsmálum og þeir sem fara sjálfviljugir á myndir eins og The Losers eru að sækjast eftir einmitt þessu án þess að hafa of miklar áhyggjur af umgjörðinni eða vitrænni framvindu sögunnar.

Dikta bjargar ímynd landsins

„Mér finnst þetta skemmtilegt framtak - og sniðugt að ætla að hamra járnið á meðan það er heitt og nýta neikvæðu kynninguna sem Ísland hefur vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og láta koma eitthvað jákvætt í staðinn," segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari hljómsveitarinnar Dikta.

Úr fótbolta í flugfreyjuna

Eggert Stefánsson, fyrrverandi leikmaður Fram í fótbolta, hefur algjörlega söðlað um starfsvettvang og er farinn að skenkja kaffi í háloftunum. Eggert er kominn úr mikilli íþróttafjölskyldu en bræður hans eru Ólafur Stefánsson handboltakappi og Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður.

Pierce vill ekki Bond aftur

„Ég naut þess að leika Bond á sínum tíma en ég sakna hans ekki. ég hef engan áhuga á að taka að mér hlutverk einkaspæjarans aftur,“ segir leikarinn Pierce Brosnan. Þrátt fyrir þetta bætir Brosnan við að hugsanlega hafi hann ekki líkamsstyrkinn sem til þarf en leikarinn er að nálgast sextugsaldurinn.

Baksviðs á Grímunni - myndband

Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Grímunnar leyfði okkur að kíkja örstutt baksviðs í Þjóðleikhúsinu þar sem undirbúningur fyrir Grímuna stendur yfir. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt og sjáðu hvað liðið er afslappað og í góðum gír.

Klikkuð orka og örfáir miðar - myndband

„Það er einhver orka sem myndast hérna. Þetta er bara töfrastund og eina málið er að það eru bara tuttugu miðar eftur núna,“ sagði Páll Óskar þegar við hittum hann fyrir utan Café Flóru í Laugardalnum í dag þar sem hann og Monika munu halda tónleika 20. Júní næstkomandi. „Hún er svo klár hún Monika maður hún varð 66 ára um daginn. Hún lítur nú ekki út fyrir það beint.“

Fær lánuð föt á Grímuna - myndband

„Heyrðu ég hugsa að ég fari niður í bæ á eftir og bara svona.. ef ég sé eitthvað sem mér líst á, hitti einhvern sem er í flottum fötum, reyni ég að fá það lánað,“ svaraði Björn Ingi.

Tónlist.is græjar sig fyrir iPad

iPad-væðingin er hafin út um allan heim og svo virðist sem Ísland verði þar engin undantekning. Þessi byltingakennda tölva frá Apple verður fáanleg hérlendis í haust en veffyrirtæki landsins eru þegar byrjuð að undirbúa komu hennar.

Brilljant að brenna kaloríum svona - myndband

„Þetta er ganga með sérhannaða stafi og við náum umtalsverðri brennslu með stafgöngunni,“ sagði Guðný Aradóttir leiðbeinandi hjá Stafganga.is þegar við ræddum við hana í Laugardalnum í gær. „Við náum 20 % meiri brennslu heldur en í venjulegri göngu. Vegna þess að þú ert að nota efri hluta líkamann mikið meir með því að beita stöfunum." Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Guðný sýna hvernig stafirnir eru notaðir.

Ekki borðið þið herðatré? - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá Selfyssinga fagna tveggja ára afmæli 800 Bar sem staðsettur er á Selfossi. „Að sjálfsögðu voru strákarnir úr Skímó fengnir til að spila," sagði Eiður Birgisson eigandi þegar við spurðum hann út í afmælispartýið. „Þegar Skímó spila á heimavelli þá er bara eitthvað sem gerist á Selfossi. Það er erfitt að lýsa því en það mæta gjörsamlega allir á ball og allir líta út eins og þeir hafi borðað herðatré. „Það brosa allir svo mikið og eina leiðin til að fá strákana til að hætta spila er að slá út rafmagnið í húsinu," sagði Eiður.

Collin Russell spilar með Ultra Mega Technobandinu

Elektró-þjóðlagapopparinn Collin Russell er mættur til landsins og ætlar að spila með Ultra Mega Technobandinu Stefáni á nokkrum tónleikum á næstunni. „Við höfum alltaf verið að bíða eftir hinu fullkomna tækifæri til að fá hann til Íslands og nú er það komið,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason Olsen.

Búa saman í 500 fm glæsibýli í Edinborg

„Þetta er mjög fínt, en lítur sennilega betur út á blaði,“ segir Elsa Harðardóttir. Elsa og kærasti hennar, fótboltakappinn Eggert Gunnþór Jónsson, búa saman í Edinborg. Hann spilar þar með úrvalsdeildarliðinu Hearts og hefur verið þar síðastliðin fimm ár. Elsa flutti út til hans fyrir tveimur árum.

Nýr kærasti

Amy Winehouse er komin með nýjan mann, framleiðandann Reg Traviss, og er Winehouse svo ástfangin að hún ætlar að hætta að drekka. Hún drakk ótæpilega í síðustu viku og fór það illa í Traviss.

Bassaleikari í gítarsmíði í LA

Daníel Smári Hallgrímsson er einn af átta nemendum sem fengu inngöngu í hinn fræga Musicians Institut í Los Angeles. Daníel er nýútskrifaður frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og mun leggja stund á eins árs nám í gítarsmíði. Han er bassaleikari í hljómsveitinni í Mikado.

Vill hitta Muse

Leikkonan Kate Hudson og Matt Bellamy, söngvari hljómsveitarinnar Muse, sáust á vappi saman í New York í síðustu viku og eiga þau að hafa verið að hitta hvort annað á laun í heilan mánuð. Samkvæmt heimildarmönnum er komin nokkur alvara í sambandið og hyggst parið sækja Glastonbury-tónlistarhátíðina saman síðar í mánuðinum.

Börnin kunna ekki að ljúga - myndband

„Og ég bara... nei ókei það er allt í lagi og hann bara já hérna þau eru ekkert það leiðinleg," sagði Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leik- og söngkona meðal annars þegar við ræddum um viðbrögð íslenskra barna við nýja disknum hennar Bara plata sem hún gaf nýverið út. Lífið á Facebook (sjá Ísgerði syngja). Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Ísgerði. Bara plata á Facebook.

Nýtur kvenhylli eins og Tiger - myndband

„Ja... ég er hrikalega duglegur að lyfta, æfa og teygja og hlaupa...“ segir Sigurþór Jónsson golfari eða Sissó eins og hann er kallaður þegar við hittum hann í morgun. „Jú ég vill meina að hann sé næsti Tiger Woods Íslands," sagði Svavar Jóhansson sem er ráðgjafi Sissó. Svavar vill meina að kylfingar hafi í gegnum árin ekki viljað snerta lóð. Sissó spilar með gofklúbbi Keili í Hafnarfirði.

Herra Hinsegin með 2. stigs bruna - mynd

Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson skaðbrenndist í vinnunni í gær en hann er vaktstjóri á veitingastaðnum Domo. Við höfðum samband við Villa og spurðum hvað kom eiginlega fyrir? „Ég festi hendurnar í sjóðandi heitri strauvél í vinnunni. Þetta er tæki sem er notað til að strauja servíettur. Það lokaðist á hendurnar á mér," segir Villi og heldur áfram: „Ég er með annars stigs bruna á sex puttum. Ég er búinn að vera að deyja í fingrunum síðan í gær," segir hann greinilega kvalinn.

Maggi Mix er hvergi nærri hættur - myndband

Undanfarið hefur lítið farið fyrir Magnúsi Valdimarssyni, öðru nafni Magga Mix, sem sló í gegn á Netinu í byrjun sumars með skemmtilegum matreiðslumyndböndum. Við heimsóttum Magga á heimili hans í morgun bæði til að kanna hvernig hann hefði það og til að létta okkur lundina. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Magga taka nokkur vel valin dansspor meðal annars.

Sjá næstu 50 fréttir