Fleiri fréttir

Frægir í fíling - myndir

Eins og meðfylgjandi myndir sem teknar voru á glænýjum skemmtistað, Hvíta perlan, sem er á þremur hæðum við Austurvöll sem ber heitið skemmtu gestir sér konunglega.

Sálin tekur upp með Stórsveit Reykjavíkur

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns gefur út sína fyrstu hljóðversplötu í fjögur ár fyrir næstu jól. Platan verður unnin með Stórsveit Reykjavíkur og mun Samúel Jón Samúelsson, sem hefur spilað töluvert með Sálinni, annast útsetningar. Upptökur hefjast í júlí.

Ísland í bandarískri unglingasápu

Ísland hefur enn og aftur áhrif á bandarískt sjónvarpsefni. Að þessu sinni er það unglingasápan Pretty Little Liars sem fjölmiðlungar þar vestra spá að muni verða svipað æði og Aðþrengdar eiginkonur.

Api spilar með P. Diddy

Matt Helders, trommari bresku hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, lék með hljómsveit rapparans P. Diddy í sjónvarpsþætti sem var sendur út í gær. Eins furðulega og það hljómar, þá heitir hljómsveit P. Diddy Dirty Monkey, þannig að Matt hefur spilað með tveimur apahljómsveitum á skömmum tíma.

Sandra í hasar með unnusta Scarlett

Það vakti mikla athygli þegar Sandra Bullock og Scarlett Johansson kysstust á MTV-hátíðinni um daginn. Nú ætlar Sandra einnig að leika í hasarmynd með unnusta hennar.

Jodie Foster réðst á aðdáanda

Samkvæmt vefmiðlinum RadarOnline á leikkonan Jodie Foster að hafa ráðist á ungan pilt fyrir utan kvikmyndahús í lok maí síðastliðins. Að sögn föður piltsins, sem er sautján ára gamall, hlaut hann skrámur og marbletti á handlegg við árásina. „Sonur minn var á leið í bíó ásamt kærustu sinni þegar hann sá Jodie. Hann er mikill aðdáandi hennar og gekk í áttina að henni og tók nokkrar myndir. Hún elti hann, potaði í hann og sagði: „Átt þú einu sinni móður, viðbjóðurinn þinn?“ Sonur minn svaraði ekki fyrir sig heldur bað hana afsökunar og var í raun mjög hræddur við hana,“ sagði faðirinn, sem vildi ekki greina frá nafni sínu. Fórnarlamb árásinnar fór því næst upp á lögreglustöð ásamt föður sínum og lagði fram kæru.

Treystir á gott veður í ár

Listahátíðin LungA hefur verið haldin árlega við góðar undirtektir á Seyðisfirði undanfarin ár. Hátíðin verður tíu ára í sumar og að sögn Öllu Borgþórsdóttur, framkvæmdastjóra LungA, verður haldið upp á afmælið með pompi og prakt.

Feðgar til Flórens

Raftónlistardúóið Stereo Hypno­sis, sem samanstendur af feðgunum Óskari og Pan Thorarensen, spilar á þrennum tónleikum í Flórens á Ítalíu dagana 13., 15. og 19. júní. Þeir spila á menningar­hátíðinni La Cité Cultural Festival, í Villa Strozzi og á útitónleikunum Parcosud. Þeir feðgar eru einnig að undirbúa stóra raftónlistarhátíð á Snæfellsnesinu helgina 6. til 8. ágúst. Meðal þeirra sem stíga þar á svið verða Reptil­icus, Biogen, Yagya, Ruxpin, Futuregrapher og Xerxes frá Noregi.

Vilja ættleiða barn

Leikararnir Scarlett Johansson og Ryan Reynolds eru að sögn Star Magazine að íhuga að ættleiða barn annaðhvort frá Eþíópíu eða Líbíu. Hjónakornin eiga að hafa átt fund með starfsmanni ættleiðingarskrifstofu fyrir skemmstu, en móðir Johansson ættleiddi nýlega litla stúlku frá Eþíópíu. Reynolds á einnig ættleiddan bróður og er þetta því parinu hjartans mál.

Nýja Karate Kid slær í gegn

Nýja myndin um Karate Kid, með syni Will Smith og Jackie Chan í aðalhlutverkum, er vinsælasta myndin í Bandaríkjunum.

Krúttlegur hryllingur

Listakonan Patricia Waller heklar einstaka blöndu af krúttskap og hryllingi sem vekur mismunandi viðbrögð. Hún tekur þátt í prjónalistahátíð í Norræna húsinu.

Friðrik Dór og Erpur keyra þetta í gang - myndband

Rappararnir Henrik Biering og Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem Blaz Roca, hafa gefið út lag saman. Lagið heitir Keyrumettígang, sem er einhvers konar stytting á Keyrum þetta í gang. Þeir hafa fengið engan annan en Friðrik Dór til liðs við sig en hann syngur viðlagið.

Það var lagið Eli Roth - myndband

„Ég var þar fyrst þegar ég var 19 ára,“ segir Eli Roth leikari og leikstjóri meðal annars um Ísland í myndskeiði í átaki ferðaþjónustunnar „Inspired by Iceland". Eli hefur heimsótt Ísland undanfarin 20 ár og reynir að heimsækja landið eins oft og hann getur til að hlaða batteríin eins og hann segir sjálfur. Sjá Eli Roth hér.

SATC: Til í að ættleiða

„Við erum komin yfir það að eignast börn saman en að ættleiða barn er hinsvegar allt annar handleggur," sagði John.

Var nett stressaður - myndir

„Ég veit ekki alveg hvort ég sé týpan í módelbransann en ef það er til að styrkja gott málefni þá er ég alltaf til. Ég tók reyndar þátt í tískusýningum með mömmu þegar ég var svona 8 ára. Ætli ég búi ekki af þeirri reynslu", segir Sjonni og hlær.

Efast um Vinamynd

Leikkonan Courteney Cox hefur litla trú á að kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum Friends verði gerð. Hin 45 ára Cox, sem lék Monicu Geller í tíu þáttaröðum, er til í leika í slíkri mynd en efast um að hún verði að veruleika. „Það þarf margt að ganga upp til að hún fari af stað. En við höfum látið okkur dreyma um hana," sagði Cox.

Myndir af gosinu í Ósló

„Þetta er sýning um gosið í Eyjafjallajökli. Við erum að setja þetta upp með það í huga að fólk sjái að hægt er að ferðast hingað þrátt fyrir liðna atburði," segir Anna María Sigurjónsdóttir.

Heigl lítur upp til Bullock

Leikkonan Katherine Heigl lítur mjög upp til Söndru Bullock og telur að hún hafi breytt lífi sínu. Heigl finnst Bullock hafa staðið sig einkar vel í stykkinu eftir að framhjáhald eiginmanns hennar Jesse James komst upp, aðeins nokkrum vikum eftir að þau ættleiddu ungan dreng.

Fengu heiðursverðlaun og hittu Page

„Þetta var alveg frábært og mikill heiður," segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar. Hljómsveitin var heiðruð fyrir framúrskarandi framlag sitt til tónlistarheimsins á verðlaunahátíð hins virta breska tónlistartímarits Mojo sem var haldin í London á fimmtudagskvöld.

Blóta og drekka frían bjór - myndir/myndband

„Við erum að drekka bjór núna og hann var ókeypis og þið misstuð af honum... oh andskotinn!" sagði Frank Arthur blöndahl Cassata einn af meðlimum hljómsveitarinnar Nóra sem hélt útgáfutónleika á Íslenska barnum í gær.

Myndin um Les Grossman jarðar Citizen Kane

Með nýju myndinni ætlar hann að láta Citizen Kane líta út fyrir að vera ömurleg mynd, segir leikarinn Ben Stiller, sem verður einn af framleiðendum myndar um hinn hrikalega Les Grossman.

Þórarinn spreytir sig á Shakespeare

Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn er að þýða Shakespeare-verkið Lér konungur sem verður jólasýning Þjóðleikhússins. Þetta er í fyrsta sinn sem hann spreytir sig á Shakespeare.

Fær ráðgjöf hjá miðli

Miðillinn Ron Bard segir að leikarinn Brad Pitt komi í heimsókn til sín til að fá ráðgjöf þegar hann eigi við vandamál að stríða.

Jóhanna Guðrún með nýja kærastanum á FM-hátíð

Hlustendaverðlaun FM 957 voru haldin á Nasa á fimmtudagskvöld. Fjölmörg kunn andlit létu sjá sig á hátíðinni, þar á meðal söngkonan Jóhanna Guðrún sem mætti með nýjan kærasta upp á arminn. Dikta var sigurvegari kvöldsins með fern verðlaun.

Selja íslenskar plötur á Hljómalindarreitnum

Félagarnir Halli og Halldór verða með útimarkað í dag og morgun á Hljómlindarreitnum þar sem eingöngu íslensk tónlist verður til sölu. Ef vel gengur verður markaðurinn í allt sumar.

Leitað að fórnarlömbum

„Um er að ræða sýningu um svokallað nígeríusvindl sem sett verður á svið. Okkur vantar því fórnarlömb alþjóðlegra svikastarfsemi sem geta miðlað að reynslu sinni og þar af leiðandi veitt innsýn í heim fórnarlambanna," segir Friðgeir Einarsson hjá sviðslistahópnum Sextán elskendum.

Pattinson tekst á við frægðina

Hjartaknúsarinn Robert Pattinson sat fyrir svörum hjá franska tímaritinu Premiere fyrir skemmstu og var hann meðal annars spurður út í fylgifiska frægðarinnar. „Eftir að ég varð frægur hef ég orðið svolítið vænisjúkur.

Fjölskyldur kaupa landsliðstreyjur

„Það er búin að vera mjög góð sala," segir Jón Ágúst Eggertsson hjá íþróttaversluninni Jóa útherja. HM í fótbolta er byrjað og hafa landsliðstreyjurnar í versluninni rokið út að undanförnu.

Mynd um Van Helsing

Hinn mexíkóski Guillermo del Toro ætlar að leikstýra og skrifa handrit nýrrar myndar um vampírubanann Abraham Van Helsing, höfuðandstæðing greifans Drakúla. Del Toro ákvað á dögunum að hætta við að leikstýra Hobbitanum vegna tafanna í kringum þá mynd og svo virðist sem Van Helsing verði næstur á dagskránni hjá honuum.

Brett vill stól Cowells

Brett Michaels, söngvari rokksveitarinnar Poison, hefur áhuga á að setjast í dómarasætið í American Idol-þáttunum í stað Simons Cowell, sem ætlar að snúa sér að X-Factor.

Stórsveit Samma í stuði

Platan Helvítis fokking funk með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar kemur út 17. júní.

Samningsvilji bjargar HM-sumri knattspyrnufíkilsins

Samningsvilji er allt sem þarf til að gera HM-veisluna bærilega fyrir alla fjölskylduna. Þetta segja tveir fjölskylduráðgjafar en heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst í dag með tilheyrandi beinum útsendingum frá kappleikjunum.

Shakira funheit á HM-tónleikunum

Söngkonan Shakira var í feiknamiklu stuði á risatónleikunum sem haldnir voru í Jóhannesarborg í gær. Lag hennar, Waka Waka er opinbert lag heimsmeistarakeppninnar og er komið í spilun út um allan heim.

Fergie hefur engan tíma fyrir barneignir

Þrálátur orðrómur um að söngkonan Fergie sé ólétt hefur verið hávær undanfarið en hún giftist leikaranum Josh Duhamel í janúar árið 2009. Fergie segist vera allt of upptekin með hljómsveitinni Black Eyed Peas til að eignast og ala upp barn. „Í dag gengur allt út á Black Eyed Peas hjá mér. Ég hef einfaldlega engan tima til að eignast barn," segir Fergie. „Jafnvel þó ég vilji verða ólétt þá er ekki séns að ég gæti verið ófrísk á sviði. Ég myndi fá rosalegt samviskubit.“ Fergie viðurkennir að hún og Josh hafa mikinn áhuga á að stofna fjölskyldu í framtíðinni. „Þegar ég eignast börn þá set ég þau í fyrsta sæti.“

Nóra gefur út plötu

Reykvíska hljómsveitin Nóra gefur út sína fyrstu plötu, Er einhver að hlusta?, í dag. Þar er að finna tíu lög sungin á íslensku, þar á meðal lagið Sjónskekkja sem sat á vinsældalista Rásar 2 í fimm vikur fyrir áramót. Nýjasta lag sveitarinnar í útvarpi nefnist Bólheiðafall.

Óður til lauganna

Kolbrún Vaka Helgadóttir elskar sundlaugar og opnar í dag sýningu með myndum frá náttúrulegum laugum á Íslandi.

Vala Grand: Hress eftir aðgerðina en borðar lítið

Við höfðum samband við Völu Grand símleiðis í gærkvöldi en hún er í þessum töluðu orðum stödd á Landspítalanum í Fossvogi þar sem hún jafnar sig eftir erfiða kynskiptiaðgerð sem hún gekkst undir síðasta sunnudag. Hvernig hefur þú það eftir aðgerðina? „Mér líður mjög vel. Ég er mjög hamingjusöm og mér finnst ég vera fullkomin,“ svarar Vala og segir: „Það er erfitt að ná sér eftir svona stóra aðgerð. Ég er að reyna að jafna mig.“ „Ég er búin að borða lítið... but im struggling. Ég hlakka til að fara í thong," segir hún hlæjandi áður en við kveðjum hana.

HM setur strik í Herminator-golfmótið

Hermann Hreiðarsson stendur fyrir árlegu Herminator-golfmóti í Eyjum 26. júní. Illa gengur að fá heimsfrægar knattspyrnustjörnur til að koma, enda er HM í knattspyrnu á sama tíma.

Sjá næstu 50 fréttir