Fleiri fréttir

Erpur fjallar um Laxness

Í vetur verður ungt fólk í aðalhlutverki í stofunni á Gljúfrasteini og rýnir í verk Halldórs Laxness. Sunnudaginn 26. október kl. 16.00 mun Erpur Eyvindason, Rottweiler hundur og rappari, fjalla um pólitísku skáldsöguna Atómstöðina eftir Halldór Laxness.

Sony býst við minni hagnaði

Japanski hátækniframleiðandinn Sony reiknar með rúmlega helmingi minni hagnaði á árinu en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Sterkt jen, samdráttur og verðstríð við helstu keppinauta skýra niðurfærsluna.

Kvikmyndaver selt

Eitt elsta og frægasta kvikmyndaver Evrópu, Cinecetta í Róm, er nú á tímamótum þegar ríkisstjórn Ítalíu hefur ákveðið að selja tæplega fjórðungshlut sinn í verinu. Kvikmyndaborgin var sett á stofn af Benito Mussolini 1937 til að styrkja þjóðlega og ítalska kvikmyndagerð og hefur allar götur síðan verið stærst evrópskra kvikmyndavera þótt það hafi keppt lengi við Bavaria-verið þýska og bresku verin, Pinewood og eldri svæði.

Háu hælana úr umferðinni

Rúmlega 11 og hálf milljón breskra kvenna leggur sjálfa sig og aðra í bráða lífshættu með akstri í háhælaskóm um götur Bretlands.

Saga eftir Palahniuk í bíó

Þær fregnir bárust nýverið frá draumaverksmiðjunni í Hollywood að til stæði að kvikmynda enn eina af sögum rithöfundarins Chuck Palahniuk, en hann er þekktastur á meðal kvikmynda-áhugafólks fyrir að hafa skrifað söguna sem kvikmyndin Fight Club var gerð eftir.

FM Belfast fær góða dóma

Hljómsveitin FM Belfast fær góða dóma á heimasíðu breska tímaritsins NME fyrir tónleika sína á Iceland Airwaves-hátíðinni á laugardagskvöld. „Það var lítið sem gat heillað mann eftir að hafa horft gapandi á stóra fossa, heita hveri og grófgerða dalina. Þess vegna má þakka guði fyrir elektrópopparana í FM Belfast sem hrifu mann með kraftmikilli framkomu á myrkum tíma í sögu þjóðar sinnar," sagði í dómnum.

Loksins plata frá Skapta Ólafs

Skapti Ólafsson var í fyrsta árgangi þeirra sem kynnti íslenskri æsku fyrir rokkinu og gaf út vinsæl lög eins og „Allt á floti alls staðar“ og „Syngjum hátt og dönsum“. Nú er fyrsta plata Skapta í „fullri lengd“ loksins komin út og heitir einfaldlega Skapti.

Minning Göggu

Söngkonan Engel Lund, eða Gagga eins og hún var gjarnan kölluð hérlendis, verður heiðruð með margvíslegum hætti í Íslensku óperunni á sunnudagskvöldið.

Upplestraröð að hefjast

Nú eru að hefjast upplestrar á vegum bókaforlaganna. Í kvöld kl. 20 ríður Forlagið á vaðið. Upplestrar munu fara fram á Te & kaffi á annarri hæð bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg (áður Súfistinn) hvert fimmtudagskvöld fram í miðjan desember.

Rourke og Statham í 13

Mickey Rourke, Jason Statham og rapparinn 50 Cent hafa tekið að sér hlutverk í spennumyndinni 13 sem Frakkinn Gela Babluani leikstýrir. Áður hafði Sam Riley verið ráðinn í hlutverk í myndinni, sem er endurgerð 13 Tzameti sem Babluani leikstýrði einnig.

Sólargeisli frá honum KK

Nýjasta plata hins ástsæla tónlistarmanns KK – Svona eru menn – er komin út. Þjófstartað var á Kaffi Rosenberg á mánudag. Til útgáfuteitis KK var ýmsum vinum og velunnurum, ásamt þeim sem komu að gerð plötunnar, boðið.

Á flótta undan réttvísinni

Frumsýnd verður hér á landi um helgina kvikmyndin Eagle Eye, sem skartar þeim Shia LaBeouf og Michelle Monaghan í aðalhlutverkum. Í myndinni Eagle Eye kynnast áhorfendur letingjanum Jerry sem verður fyrir því óláni að missa tvíburabróður sinn í bílslysi.

Íslenskar hljómsveitir í bandarískum auglýsingum

Miklar líkur eru á því að lög með íslenskum hljómsveitum verði notuð í bandarískum auglýsingum í náinni framtíð. Þetta segir hin bandaríska Lanette Phillips, einn virtasti framleiðandi tónlistarmyndbanda í heiminum, sem nýverið sat ráðstefnuna You Are In Control í Reykjavík.

Gáttaþefur og sálir tvær

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson á laugardag í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur í Kassanum. Fjögur hlutverk eru í verkinu sem þau Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Eggert Þorleifsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir fara með. Leikmynd og búninga annast Grétar Reynisson.

Langar að gefa út aðra plötu

„Það eru þrettán ár síðan ég gaf út jazzplötuna Koss með Tómasi R. Einarssyni og hef ekki verið að syngja með tríói síðan,“ segir leik- og söngkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Hún undirbýr nú dagskrá ásamt Ásgeiri Óskarssyni, Birni Thoroddsen og Gunnari Hrafnssyni sem þau munu fara með í grunnskóla og syngja.

Jónsi með einsöng

„Ég var í sveit á Kambsstöðum og þetta er fólkið sem ól mig upp. Mér var ljúft að bjóða fram aðstoð mína,“ segir Jónsi í Svörtum fötum, sem syngur einsöng með kórnum Sálubót úr Þingeyjarsveit í Fella- og Hólakirkju á laugardag.

Fjögur þúsund börn vilja leika í Söngvaseiði

Fullt var út úr dyrum í skráningu í Borgarleikhúsinu í dag þegar áheyrnarprufur fyrir Söngvaseið fóru fram. Fram kemur í fréttatilkynningu að um 4000 börn hafi látið skrá sig.

Steinar Ísfeld er ljúfmenni

„Mér fannst þetta svolítið fyndið að þetta nafn skyldi valið, af öllum," segir Steinar Ísfeld Ómarsson, áreiðanleikasérfræðingur í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Steinar er eini alnafni einnar siðspilltustu persónu íslenskrar sjónvarpssögu, Steinars Ísfeld í Svörtum englum.

Tvífarar: Bankastjórinn og borgarfulltrúinn

Borgarfulltrúinn og sjálfstæðismaðurinn Gísli Marteinn Baldursson á sér tvífara úr fjármálaheiminum. Joseph Yam seðlabankastjóri í Hong Kong er launahæsti seðlabankastjóri í heimi og er ekki ósvipaður borgarfulltrúanum sem nú stundar nám í Skotlandi.

Komu okkur á kortið sem hryðjuverkamönnum

„Þessar hetjur eru virkilega búnar að koma okkur á kortið sem stórglæsilegum hryðjuverkamönnum út um allan hinn stóra heim," segir Sverrir þegar Vísir spyr hann út í hans sýn á ástandið á Íslandi í dag og efnistökin í útvarpsþætti hans á Útvarpi Sögu sem ber heitið Miðjan.

Ný dönsk í kvennafangelsi

„Við leitum fanga víða,” segir Björn Jörundur tónlistarmaður. Hljómsveitin Ný dönsk hefur leitað til fanga í Kvennafangelsinu í Kópavogi með að fullgera boðsmiða á útgáfutónleika þeirra sem verða á Nasa á laugardagskvöldið.

Hraðskreiðar skutlur

Rafskutlur sjást orðið víða á götum bæjarins en þeir sem þær nota eru einkum eldri borgarar og fólk sem á erfitt með gang. H-Berg flytur inn rafskutlur af ýmsum stærðum og gerðum.

Gwyneth styður Madonnu

Leikkonan Gwyneth Paltrow segist styðja vinkonu sína Madonnu af heilshug í gegnum skilnað hennar við kvikmyndaleikstjórann Guy Ritchie. Madonna og Paltrow hafa að hennar sögn verið vinkonur í áraraðir en þær eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær eru báðar bandarískar en búa í Englandi og eru giftar Bretum. Þær elska líka báðar Jóga, að því er fram kemur í frétt á BBC.

Kvikmyndagerðarmenn keppa í kreppunni

,,Framtíðarsýnin er að Ljósvakaljóð verði vettvangur þar sem kvikmyndagerðarmenn stígi sín fyrstu skref og að verði nokkurs konar leiðarljós ungra og hæfileikraríkra kvikmyndagerðarmanna í átt að kvikmyndagerð," segir Garðar.

Íslendingar fyrstir til að sjá nýja seríu Klovn

Íslendingum gefst á morgun tækifæri til að hressa sig við í miðjum bölmóðnum og krepputalinu, þegar tveir þættir úr splunkunýrri 6. seríu Klovn verða sýndir hér á landi. Sýningar á þáttaröðinni eru ekki hafnar í Danmörku, og verða Íslendingar því langfyrstir til að sjá þessa nýju seríu.

Jessica Simpson beitir kynþokkanum - myndband

Söngkonan Jessica Simpson sem hefur fengið dræm viðbrögð við nýju kántríplötunni sem hefur kynnt undanfarið í Bandaríkjunum nýtt ilmvatn sem ber heitið Fancy.

Ókeypis á útgáfutónleika Nýdanskrar

Hljómsveitin Nýdönsk býður landsmönnum á útgáfutónleika sína í Nasa næstkomandi laugardag, 25. október. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og þurfa áhugasamir að vippa sér í Skífubúðirnar í Kringlunni eða Laugavegi til að nálgast boðsmiða á tónleikana.

Fær eina milljón sænskar

„Mér finnst þetta rosalega stór viðurkenning því þetta er í fyrsta skipti sem þeir veita þessi verðlaun fyrir fatahönnun,“ segir Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður sem hlýtur hin sænsku Söderbergs-verðlaun í ár. Steinunn hefur að sögn dómnefndar meðal annars fært Norðurlöndunum virtan fulltrúa á hinu alþjóðlega tískusviði með innblæstri frá íslenskri náttúru, en Söderbergs-verðlaunin eru ein stærstu hönnunarverðlaun heims, með 1.000.000 sænskar krónur í verðlaunafé.

Ráðstefnan komin til að vera

„Ráðstefnan gekk alveg vonum framar. Við erum syngjandi glöð sem stóðum að henni," segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útóns, sem skipulagði alþjóðlegu ráðstefnuna You Are in Control sem var haldin á Hótel Sögu.

Alþjóðleg dreifing

Samningar hafa náðst milli Reykjavík Films, sem framleiddi sjónvarpsþættina Mannaveiðar, og þýska fyrirtækisins Bavaria Film International um alþjóðlega dreifingu þáttanna.

Stórtónleikar í Slane Castle

Bresku rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi 20. júní á næsta ári. Pláss er fyrir allt að hundrað þúsund manns á tónleikunum, sem yrðu á meðal þeirra stærstu í sögu sveitarinnar.

Íkveikja frestar mynd

Framleiðslu hefur verið frestað á nýrri hasarmynd Johns Travolta, From Paris With Love, eftir að kveikt var í tíu bílum sem átti að nota í myndinni.

Long Blondes hættir

Breska rokksveitin The Long Blondes hefur lagt upp laupana. Gítarleikarinn Dorian Cox tilkynnti þetta á MySpace-síðu sveitarinnar í gærmorgun. Cox fékk hjartaáfall í júní og segir hann að ástæða þess að sveitin hætti sé sú að hann viti ekki hvenær hann verði búinn að ná sér að fullu.

McCain og Palin tengd við Nasista í Family Guy

Nýjasti Family Guy þátturinn sem sýndur var í gærkvöldi á sjónvarpsstöðinni Fox í Bandaríkjunum hefur valdið þónokkrum titringi. Höfundur þáttanna, Seth McFarlane er yfirlýstur stuðningsmaður Barack Obama og í gær voru Repúblikanarnir John McCain og Sarah Palin lauslega tengd við Þriðja ríkið og nasista.

Myndar íslenska hryðjuverkamenn

„Ég er að fara að mynda hryðjuverkamenn. Það er víst mikið af þeim hérna, en þeir virðast vera dulbúnir sem ungabörn og gamalmenni," segir ljósmyndarinn og „hryðjuverkamaðurinn" Þorkell Þorkelsson.

Þriðjudagtilboð í Sambíóin

Sambíóin muna á næstu vikum bjóða þjóðinni að mæta alla þriðjudaga í kvikmyndahús þar sem miðaverð verður 500 krónur á allar kvikmyndir og má því halda því fram að hvergi í heiminum sé hægt að fá lægra bíómiðaverð!

Melamínmengað kynlífskrem tekið úr sölu

Melamínmengaða mjólkurduftið sem olli veikindum barna í Kína á dögunum er nú að dúkka upp í ólíklegustu vörum. Nýjasta varan sem hefur þurft að innkalla er þó ekki ætluð ungabörnum.

Vefsíða fyrir soninn varð viðskiptatækifæri

„Upphaflega varð vefurinn til vegna þess að ég bjó til síðu fyrir litla strákinn minn," segir Stígur Þórhallsson forritari og eigandi ljósmyndavefsins 123.is sem er vefkerfi fyrir fólk sem kýs að halda úti vefsíðu með áherslu á að geyma myndir þegar Vísir forvitnast hvernig hugmyndin kviknaði.

Ásdís frægari í Búlgaríu en á Íslandi

Fyrirsætan Ásdís Rán situr ekki auðum höndum frekar en fyrri daginn. Vegur hennar í Búlgaríu hefur vaxið jafnt og þétt undanfarið og nú er svo komið að hún er við það slá rækilega í gegn þar í landi.

Á áttunda hundrað í friðarsiglingu út í Viðey

Í kjölfar þess að kveikt var á Friðarsúlunni Imagine Peace Tower í Viðey þann 9. október ákvað listakonan og friðarsinninn Yoko Ono að bjóða upp á fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í viku.

Sýna tvær nýjar myndir

Tvær nýjar heimildarmyndir um Sigur Rós verða sýndar í kvikmyndahúsinu Odeon í Covent Garden í London 10. nóvember. Sama dag kemur út í Bretlandi nýtt smáskífulag, Við spilum endalaust.

Magnað laugardagskvöld

Feitasta dagskráin á Airwaves-hátíðinni hefur yfirleitt verið á laugardagskvöldinu og árið í ár var þar engin undantekning og eins og oft áður var ljóst að nú þyrfti að velja og hafna.

Sjá næstu 50 fréttir