Fleiri fréttir

Dagur vonar stendur uppúr

Dagur vonar, Killer Joe, Leg, Mr. Skallagrímsson og Ófagra veröld eru tilnefndar sem bestu sýningar leikársins 2007. Athygli vekur að Benedikt Erlingsson leikstýrir tveimur sýninganna.

Mæta með hljómsveit

Miðasala hefst í dag á tónleika frönsku hljómsveitarinnar Air sem verða í Laugardalshöll 19. júní. Hljómsveitin er þekkt fyrir að leggja mikinn metnað í tónleika sína, leika af fingrum fram og koma áheyrendum á óvart. Þótt eiginlegir meðlimir Air séu tveir koma þeir með heila hljómsveit með sér hingað til lands.

14 ára drengur stingur önd

14 ára drengur er grunaður um að hafa stungið kvenkyns önd á Huntington Beach í Kaliforníu í síðustu viku. Öndin sást fyrst á fimmtudaginn í síðustu viku þar sem hún vappaði um bæinn með vasahníf í bakinu.

Paris Hilton er hætt að borða

Paris Hilton, sem þykir nokkuð spengileg fyrir, er nú hætt að borða vegna álagsins sem fylgir því að vera á leið í fangelsi. Hilton hefur afplánun á 23 daga fangelsisvist á þriðjudaginn. Hún var upphaflega dæmd til 45 daga fangelsisvistar fyrir að brjóta skilorð þegar hún keyrði drukkin, en dómurinn var mildaður.

Bosnísk kýr drukknar í fjöldagröf

Bóndi í Bosníu stendur í harðvítugum deilum við yfirvöld vegna dauða kýrinnar sinnar sem hann segir hafa drukknað í fjöldagröf. Í fyrra voru jarðneskar leifar 50 Bosníu-múslima grafnar upp úr fjöldagröfinni, sem var frá árunum 1992 til 1995, og segir bóndinn að stjórnvöld hafi ekki gætt að því að fylla aftur upp í hana að því loknu.

Hvernig var Rúdí ?

Þýski múrarinn Werner Brenner þoldi ekki Rúdí, naggrísinn sem kærastan hans hún Lara Hochner var alltaf að kela við. Þau Lara voru búin að vera saman í þrjú ár og rifrildum þeirra um Rúdí fjölgaði stöðugt. Werner fannst Lara sýna Rúdí miklu meiri ást og umhyggju en sjálfum sér. Loks var svo illa komið að það stefndi í sambandsslit.

Cowell öskrar eigið nafn í rúminu

Idol-dómarinn Paula Abdul gerir kollega sínum Simon Cowell stóran grikk í heimildarþætti um þann síðarnefnda sem sýndur verður í Bretlandi um helgina. Brot úr þættinum hafa lekið út til fjölmiðla og talar Abdul þar meðal annars um hið margfræga sjálfsálit Cowell og hvernig það endurspeglast í kynlífi kappans.

Verk Svavars á uppboðum

Bæði stóru uppboðshúsin, Sothebys og Christies, auglýstu snemma í vor uppboð sem helguð væru myndlist og listmunum frá Skandinavíu. Á uppboði Christies hinn 26. júní er til kaups stórt olíumálverk eftir Svavar Guðnason frá 1949.

Íslenskur ferskleiki í Loftkastalanum í kvöld

Tískuviðburðurinn Made in Iceland fer fram í Loftkastalanum í kvöld en þar munu alls sex ungir og upprennandi fatahönnuðir sýna hönnun sína. Það eru fyrirtækin Eskimo og Basecamp sem standa fyrir kvöldinu.

Latibær á ferð og flugi

Latibær er á miklu flugi og ekki sér fyrir endann á velgengni þessa fyrirtækis. Heilbrigðismálayfirvöld í þremur löndum eru áhugasöm um að taka þátt í að fá krakka heimsins til að hreyfa sig.

Hæfileikaríkur hrokagikkur

Noel Gallagher, aðallagahöfundur bresku sveitarinnar Oasis, varð fertugur síðastliðinn þriðjudag. Fréttablaðið skoðaði litríkan feril kappans. Noel Gallagher fæddist í Manchester á Englandi árið 1967. Hann átti fremur erfiða æsku og var oft laminn af drykkfelldum föður sínum. Þrettán ára byrjaði hann að læra sjálfur á gítar með því að herma eftir gítarfrösum í uppáhaldslögunum sínum.

Heiðursmaður kveður

Paul Newman tilkynnti fyrr í þessum mánuði að hann væri hættur að leika. Þar með er einum merkasta kafla í sögu Hollywood lokið. Newman hafði gefið það út fyrir um ári síðan að hann hygðist hætta afskiptum af kvikmyndaleik þegar hann næði 82 ára aldri. Hinn 25. maí rann sú stund upp.

Stemning á 90s-kvöldi

90s-kvöld verður haldið á Nasa næstkomandi föstudagskvöld á vegum Curvers og Kiki-Ow. Mikil stemning hefur verið á 90s-kvöldunum til þessa og er ólíklegt að nokkur breyting verði þar á.

Justin með plötuútgáfu

Justin Timberlake virðist hafa ágætt viðskiptavit en hann hefur nú ákveðið að setja á fót sitt eigið útgáfufyrirtæki. Tennman Records heitir fyrirtækið en höfuðstöðvar þess verða í Los Angeles og mun Timberlake gegna hlutverki stjórnarformanns og framkvæmdastjóra þess.

Heimsendir í nánd

Kvikmyndin 28 weeks later var frumsýnd í Háskólabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri í gær en hún er sjálfstætt framhald hryllingsmyndarinnar 28 Days Later. Með aðalhlutverkið fara þau Robert Carlyle og Catherine McCormack en leikstjóri er hinn spænski Juan Carlos Fresnadillo.

Sannur sigurvegari

Heimildarkvikmynd Þorsteins Jónssonar um Ástþór Skúlason verður sýnd í Háskólabíói á morgun klukkan sex. Myndin hefur vakið mikla athygli og var meðal annars sýnd á heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fór um helgina.

Stórar tilfinningar hjá Myst

Dúettinn Myst hefur gefið út sína fyrstu plötu, Take Me With You, með aðstoð Smekkleysu. Myst, sem er skipuð hjónunum Kolbrúnu Evu Viktorsdóttur og Haraldi G. Ásmundssyni, hefur verið starfandi í um það bil fjögur ár og hefur platan verið í vinnslu nánast frá þeim tíma. Spilar sveitin rólegheita popp undir ýmiss konar áhrifum, meðal annars frá Bítlunum, Emilíönu Torrini og Evu Cassidy.

Kærasti Lindsay í kókaíni

Kvennabósinn Calum Best er háður kókaíni og stundar hópkynlíf með vændiskonum. Þetta kom fram í breska dagblaðinu The Sun í gær en blaðið birti myndir af Best í félagsskap vændiskvenna þar sem hann neytti kókaíns. Best, sem er sonur knattspyrnuhetjunnar George Best heitins, komst nýverið í fréttirnar fyrir að slá sér upp með leikkonunni Lindsay Lohan.

Þjóðarrétturinn eldist vel

Anna Bergljót Thorarensen hefur lítinn tíma til eldamennsku þessa dagana. Þegar tími gefst til er þjóðarréttur fjölskyldunnar þó í uppáhaldi. „Þetta er þjóðarréttur okkar í Bakkahjalla 10, fjölskyldumaturinn,“ sagði Anna Bergljót, sem iðulega er kölluð Anna Begga, um uppskriftina sem hún deilir með lesendum Fréttablaðsins í dag. „Ég man eftir mér mjög lítilli að borða þennan mat. Við erum öll jafnhrifin af þessu, fjölskyldan,“ sagði hún.

Hátíðarveisla fyrir fiskunnendur

Hátíð hafsins gengur í garð um helgina og við Reykjavíkurhöfn verður mikið um að vera. Í tilefni af hátíðinni verða tíu veitingastaðir í miðborginni með sérstaka matseðla helgaða fiskiveislu. Þeir eru Við Tjörnina, Hornið, Apótekið, Einar Ben, Salt, Þrír frakkar, Fjalakötturinn, Tveir fiskar, Vín og skel og DOMO. Allir matseðlar eru undir 5.000 krónum.

Leikið öfganna á milli

Sinfóníuhljómsveit Íslands slær botninn í Sjostakovitsj-maraþon sitt á tónleikum í kvöld og frumflytur nýtt verk eftir Þórð Magnússon. Fyrir fimm árum ýtti aðalhljómsveitarstjórinn Rumon Gamba því metnaðarfulla verkefni úr vör að sveitin flytti allar sinfóníur rússneska tónskáldsins Dímítríj Sjostakovitsj.

Í nafni málarans Matisse

Myndlistartvíæringa er ekki eingöngu að finna í Feneyjum. Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir myndlistarmaður, sem leggur stund á meistaranám við listaháskólann Villa Arson í Frakklandi, tekur nú þátt í tvíæringnum Nouvelle Biennale í Nice í Frakklandi.

Flaming Lips á Hróarskeldu

Hin bandaríska Flaming Lips bættist í gær í hóp þeirra hljómsveita sem ætla að troða upp á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar en tuttugu ár eru síðan hljómsveitin spilaði fyrst á hátíðinni.

Innréttingarnar lifna við

Formleg opnun á starfsemi í nýendurbyggðu Húsi Innréttinganna og viðbyggingu í Aðalstræti 10 verður kl. 17 í dag en í gamla húsinu á neðri hæðinni verður Reykjavíkurborg með sýningu í Fógetastofum.

Innlent efni aukið

Heimasíðan kvikmynd.is, sem nýtur sívaxandi vinsælda, hefur aukið til muna áherslu sína á íslenska þætti. „Við sendum út bréf á dögunum og auglýstum eftir þáttum og þáttagerðarfólki og fengum fín viðbrögð. Þetta er allt í raun hluti af þeim viðbrögðum,“ segir Þóroddur Bjarnason, annar eigenda kvikmynd.is.

Britney Spears rænulaus á karlaklósetti

Britney Spears sletti vel úr klaufunum síðastliðið sunnudagskvöld. Eftir eingöngu klukkutíma dvöl á Sky Bar Mondrian hótelsins í Los Angeles fannst poppstjarnan nánast rænulaus inni á karlaklósettinu, þar sem hún kastaði viðstöðulaust upp.

Ráðherra sló ritarann fyrir álfi

„Þetta telst eitt af mínum allra fyrstu embættisverkum. Og það geri ég með mjög glöðu geði,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Í gær keypti Guðlaugur fyrsta álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ sem nú fer fram í 18. sinn.

Smakkveisla Svía

Fyrir þá sem eru á leið til Norðurlanda eða eru búsettir á þeim slóðum er ekki úr vegi að sækja Stokkhólm heim á næstu dögum. Frá 1. til 6. júní stendur þar yfir viðamikil matarveisla sem um hálf milljón gesta sækir heim á ári hverju. Matarveislan kallast Smaka på Stockholm, eða Bragðaðu á Stokkhólmi, og fer fram í almenningsgarðinum Kungsträdgården.

Dúopp-lag í loftið

Grallararnir í Baggalúti hafa gefið út lagið Sof þú mér hjá. Lagið er tileinkað íslenskum táningum og er ætlað sem innlegg í þá fábreytnu unglingamenningu sem þrífst hérlendis.

Konungskomu 1907 minnst

Í sumar verða hundrað ár liðin frá því að Friðrik áttundi konungur sótti Íslendinga heim en af því tilefni verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni í dag.

Bollur Bubba í Mat og lífsstíl

Þáttaröðin Matur og lífsstíll, í umsjón Valgerðar Matthíasdóttur, hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þar sækir Vala þekkta Íslendinga heim og fær þá til að elda uppáhaldsréttina sína fyrir áhorfendur. Þættirnir verða á dagskrá á fimmtudagskvöldum í sumar klukkan 20.05 og munu uppskriftir úr þeim birtast á síðum Fréttablaðsins. Það er tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Morthens sem ríður á vaðið.

Reykingar kvaddar með stæl

Forráðamenn veitinga- og skemmtistaða landsins munu margir hverjir eyða deginum í að syrgja reykingar, en sem kunnugt er verða þær bannaðar á slíkum vettvangi frá og með morgundeginum. Margir staðir keppast því við að tæma sígarettulagerinn og hafa sumir þeirra tekið upp á því að vera með eins konar reykingaþema í dag.

Getur þú hjálpað Hillary Clinton með kosningalag?

Öldungardeildarþingmaðurinn Hillary Clinton biðlar nú til almennings að hjálpa sér að velja kosningalag. Clinton, sem sækist eftir því að verða forsetaefni Demókrata í Bandaríkjunum auglýsir á vefsíðunni YouTube eftir hugmyndum að kosningalagi. Fleiri en 130 þúsund manns hafa kosið frá því kosningin hófst um miðjan maí og er niðurstöðu að vænta fljótlega.

Stökkbreyttar kýr framleiða léttmjólk

Vísindamenn líftæknifyrirtækisins ViaLactica reyna nú að rækta hjörð kúa sem framleiðir léttmjólk. Kýrin Marge uppgötvaðist árið 2001 við rannsóknir á Kúastofni á Nýja-Sjálandi. Stökkbreyttur litningur veldur því að mjólk hennar inniheldur aðeins 1 prósent fitu, en venjuleg mjólk er um 3.5 prósent feit.

Tíu þúsund ára fjárfesting

Fasteignakaup eru langtímafjárfesting. En á fáum stöðum jafn mikil og á Lo’ihi eldfjallinu á Havaí. Þarlend fasteignasala, Lo'ihi Development Co. ætlar á næstunni að hefja sölu á lóðum á Lo'ihi. Lóðirnar sem eru allar með glæsilegu sjávarútsýni eru á kynningartilboði og kosta um 2500 krónur. Áætluð afhending er þó ekki fyrr en eftir 10 þúsund ár hið minnstam en lóðirnar eru sem stendur um kílómetra undir sjávarmáli. Eigendur fyrirtækisins, Norm Nichols og Linda Kramer, segja þetta að mestu til gamans gert. Þau sjá fyrir sér samfélag eigenda á netinu þar sem væri rætt um allt frá götunöfnum til ríkisstjórnar eyjunnar. Þá vilja þau halda eigendafund 1. apríl ár hvert á báti yfir eldfjallinu. Vísindamenn vita ekki hvort, og þá hvenær, eldfjallið rís úr Kyrrahafinu. Margir þeirra reikna með því að það séu um tíuþúsund ár þangað til, þó það gæti verið mun lengur.

París, lemdu einhvern

París Hilton er á leið í fangelsi, eins og öll heimsbyggðin veit. Stúlkan ku kvíða því nokkuð og hefur leitað ráða um hvernig hún á að hegða sér. Leikarinn Ice-T sem meðal annars leikur í Law & Order sjónvarpsþáttunum gaf henni einfalt ráð. Hann sagði henni að lemja einhvern um leið og hún kæmi innfyrir múranna. Eftir það yrði hún sett í svokallaða verndurnarvist og gæti dúllað við að lakka á sér neglurnar þartil henni verður sleppt.

Papparassar bauluðu á Pamelu

Ljósmyndarar á kvikmyndahátíðinni í Cannes bauluðu á Pamelu Anderson þegar hún mætti of seint í myndatöku hjá þeim og stoppaði aðeins í nokkrar mínútur. Anderson var mætt til þess að kynna nýjustu mynd sína "Blond and Blonder." Það mun vera gamanmynd sem kynnt er sem "Dumb and Dumber" hitta "Legally blond."

Drottningin heiðrar House

Elísabet Englandsdrottning hefur heiðrað breska leikarann Hugh Laurie með því að veita honum OBE orðuna. OBE stendur fyrir Order of the Birtish Empire. Laurie hefur slegið í gegn í sjónvarpsþáttunum um doktor Gregory House; skapstirðan snilling í læknavísindum. Fyrir leik sinn í þeim þáttum hefur hann hlotið tvenn Golden Globe verðlaun.

Lohan ákærð fyrir að aka undir áhrifum

Ungstirnið Lindsey Lohan hefur fetað í fótspor vinkonu sinnar Parísar Hilton og verið ákærð fyrir að aka undir áhrifum. Hún lenti í óhappi á sportbílnum sínum á Sunset Boulevard Í Los Angeles og þegar lögregla kom á staðinn fannst efni í bíl hennar sem talið er vera kókaín.

36 pylsur á 12 mínútum

Bandaríkjamenn keppa í öllu á milli himins og jarðar og engum þarf að koma á óvart að þessi mikla matarþjóð gerir pylsuát að æsispennandi keppni. Helstu pylsuætur Fíladelfíu öttu kappi í gær og eftir mikið át stóð Sonya nokkur Thomas uppi sem sigurvegari.

Geimfari ástarþríhyrnings hættir hjá Nasa

William Oefelein geimfari hefur verið fluttur til í starfi og hættir hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna. Hann var flæktur í ástarþríhyrning sem leiddi til uppgjörs á milli tveggja kvenna. Oefelein mun hefja störf hjá sjóhernum þar sem hann gegndi áður stöðu. Lisa Nowak geimfari og ein tveggja kvenna sem Oefelein átti í ástarsambandi við, bíður nú réttarhalds vegna ákæru um mannrán og líkamsárás.

Sjá næstu 50 fréttir