Fleiri fréttir Tilnefnt til Óskarsverðlauna Myndin Brokeback Mountain í leikstjórn Ang Lee hlýtur flestar tilnefningar eða átta alls til Óskarsverðlaunanna þetta árið. Myndirnar Goodnight and Good Luck í leikstjórn leikarans George Clooney og Crash eftir Paul Haggis, sem samdi einmitt handritið af bestu mynd síðasta árs, Million Dollar Baby, hljóta sex tilnefningar hvor. 31.1.2006 16:54 Tilnefnt fyrir það versta Eins og flestir þeir sem fygljast með kvikmyndaheiminum vita þá er nú tímabil verðlaunaafhendinga fyrir bestu myndir og framistöðu í kvikmyndum á nýliðnu ári. En það er ekki einungis verðlaunað fyrir góða framistöðu heldur einnig veitt hin sívinsælu Hindberjaverðlaun, sem eru skammarverðlaun fyrir það allraversta í kvikmyndaheiminum 30.1.2006 14:51 Kínversku nýári verður fagnað hérlendis Kínverjar á Íslandi munu fagna nýári þann 28. janúar með viðeigandi hætti. Þá verður efnt til drekadans niður Laugaveginn en haldið verður frá Hlemmi klukkan tvö síðdegis. Þá gengur í garð „ár rauða hundsins". 25.1.2006 10:50 Björk á leið til Aceh Björk Guðmundsdóttir er á leið til Aceh-héraðs í Indónesíu til að sjá uppbyggingarstarf þar á vegum UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 25.1.2006 10:29 Leikarinn Chris Penn látinn Leikarinn Chris Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. 25.1.2006 07:55 Veðbanki – Vinsælasti flytjandinn Landsbankinn, Icelandair og Fréttablaðið eru styrktaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 25. janúar 2006. Í samvinnu við þessi fyrirtæki stendur Vísir nú fyrir veðbanka á vísir.is þar sem almenningi getur giskað á hver vinnur í hverjum flokki og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem er getspakastur og nær flestum réttum. Einnig er hægt að taka þátt í kosningu um vinsælasta flytjanda Íslands í netkosningu á visir.is og verða sérstök verðlaun veitt í þessum flokki á hátíðinni. 23.1.2006 14:23 Opið aðra hvora helgi í vetur Ákveðið hefur verið að hafa opið í Kerlingarfjöllum aðra hvora helgi í vetur til að mæta eftirspurn frá vélsleða- og jeppamönnum. Þetta hefur mælst vel fyrir og nú þegar liggja fyrir margar bókanir. 20.1.2006 10:19 Wilson Pickett látinn Sálarsöngvarinn Wilson Pickett er látinn. Hann lést af hjartaslagi á heimili sínu í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Pickett var sennilega þekktastur fyrir lög sín Mustang Sally og In the Midnight Hour. 20.1.2006 08:49 Deildarstjórinn lagði talsmann neytenda Stefán Már Halldórsson deildarstjóri starfskjaradeildar hjá Landsvirkjun lagði Gísla Tryggvasyni talsmann neytenda í spurningaþættinum Meistaranum sem fram fór á Stöð 2 í kvöld. 19.1.2006 22:41 Talsmaður neytenda mætir deildarstjóranum Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum, sem sýndur verður á Stöð 2 kvöld mætast þeir Stefán Már Halldórsson deidlarstjóri starfskjaradeildar Landsvirkjunar og Gísli Tryggvason talsmaður neytenda. 19.1.2006 16:00 Brokeback Mountain sló í gegn Brokeback, kvikmynd um samkynhneigða kúreka, var valin besta dramatíska myndin á Golden Globe verðlaunahátíðinni í nótt og leikstjóri hennar, Ang Lee, fékk verðlaunin fyrir bestu leikstjórn auk þess sem myndin fékk verðlaun fyrir besta handrit. 17.1.2006 06:16 Viltu vita eitthvað um Fuglaflensuna? Fuglaflensan verður til umfjöllunar í Kompási í næstu viku. Fréttir af útbreiðslu hennar vekja kannski fleiri spurningar en svör. Kompás gefur fólki kost á að senda inn spurningar um fuglaflensuna sem þátturinn leitast svo við að svara. 16.1.2006 11:03 Mugison - Murr Murr 13.1.2006 17:35 Afhent í 12. sinn 25. janúar Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu þann 25. janúar nk. 13.1.2006 17:27 Aðjúnktinn lagði alþingismanninn Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands lagði Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann í æsispennandi viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur var á Stöð 2 fyrr í kvöld. 12.1.2006 23:00 Aðjúnktinn mætir alþingismanninum Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur verður á Stöð2 í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. janúar mætast þeir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður og Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands. Útsending hefst klukkan 20:00 12.1.2006 15:31 Birgit Nilsson látin Hin heimsfræga sænska óperusöngkona Birgit Nilsson er látin, 87 ára að aldri. Útför hennar fór fram í kyrrþey í Suður-Svíþjóð í dag. Nilsson er ein frægasta sópransöngkona síðustu aldar og starfaði meðal annars við Óperuhúsið í Bayreuth, Metropolitan-óperuna, Scala og Óperuna í Vín. 11.1.2006 16:26 Þrír nýir þættir hefja göngu sína á morgun Dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sirkus verður nú betri og ferskari með hverjum deginum sem líður. Á morgun, miðvikudaginn 11. janúar, hefja göngu sína þrír nýir þættir sem sjónvarpsstöðvar hafa slegist um, enda með vinsælustu þáttum sem sýndir eru í sjónvarpi í Bandaríkjunum og reyndar víðar, nú um mundir. 10.1.2006 10:29 Björk valin sérvitrasta dægurstjarna heims Breskt blað hefur valið íslensku söngkonuna Björk Guðmundsdóttur sérvitrustu dægurstjörnu heims. Það var breska blaðið Homes and antiques sem veitir björk þennan titil en blaðið er í eigu breska ríkisútvarpsins, BBC. Það voru tæplega sex þúsund lesendur blaðsins sem greiddu atkvæði. 10.1.2006 07:45 Björn Hlynur valinn sem "Shooting Star" Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson hefur verið vainn sem "Shooting Star" árið 2006. Hann er meðal þeirra 20 ungra evrópskra leikara sem kynntir verða á kvikmyndahátíðinni í Berlín verður haldin dagana 11.-13. febrúar næstkomandi. Þetta er í níunda skiptið sem European Film Promotion stendur fyrir vali á efnilegum leikurum til kynninga á hátíðinni. 10.1.2006 06:43 Þjóðaríkon Íslendingar eru líka eyþjóð sem er sífellt að spá í sjálfri sér. Hver eru okkar þjóðaríkon? Grettir sterki, hákarl, glíma, álfar, lóan? Ætli við myndum ekki reyna að telja túristum trú um það. En þetta virkar ekkert voða sannfærandi.... 9.1.2006 22:05 Eyrarrósin afhent á Bessastöðum á föstudag 9.1.2006 12:30 Velja kynþokkafyllstu konu landsins Tímaritið Sirkus hefur sett af stað kosningu um kynþokkafyllstu konu landsins undir þrítugu. Hundruðir ráðgjafa Sirkuss hafa tilnefnt 53 stúlkur sem berjast um titilinn. Kosning fer fram hér á Vísi. 6.1.2006 23:53 Steinþór lagði Erling Steinþór H. Arnsteinsson blaðamaður og fyrrum sigurvegari í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur með Borgarholtsskóla lagði í kvöld Erling Hansson framhaldsskólakennara í annarri viðureign spurningaþáttarins Meistarinn á Stöð 2. 5.1.2006 21:30 Æfingar hafnar á Öskubusku Æfingar eru hafnar á óperunni Öskubusku eftir Rossini sem er aðalverkefni Íslensku óperunnar á vormisseri 2006. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Öskubuska verður frumsýnd í Óperunni 5. febrúar 2006 og alls verða 10 sýningar. 4.1.2006 13:43 Nýárskveðjan send með SMS 221 þúsund SMS skeyti voru send frá viðskiptavinum Og Vodafone frá klukkan 21 á gamlársdag til klukkan 9 daginn eftir, nýársdag. Það er nokkur aukning frá því árið á undan. Ef tekið er mið af fyrsta sólarhring ársins voru send 287 þúsund SMS skeyti. Þetta er talsvert meira en á hefðbundnum degi, en jafnan eru send í kringum 180 þúsund SMS skeyti á sólarhring úr GSM kerfi Og Vodafone. 4.1.2006 11:00 Karlakór Reykjavíkur áttræður í dag Karlakór Reykjavíkur fagnar í dag 80 ára afmæli sínu. Af því tilefni söfunuðust ungir og gamlir kórfélagar saman í Fossvogskirkjugarði þar sem lagður var blómsveigur að leiði Sigurðar Þórðarsonar tónskálds sem var einn af aðalhvatmönnum að stofnun kórsins og stjórnandi hans frá stofnun og allt til ársins 1962 að einu ári undanskildu. 3.1.2006 09:02 Eiríkur Hauksson syngur með Pops Ein þekktasta sveit ´68 kynslóðarinnar Pops verður með tónleika á Kringlukránni um helgina og hafa fengið til liðs við sig stórrokkarann Eirík Hauksson. Það verður að teljast hvalreki, því Eiríkur Hauksson hefur um árabil verið einn fremsti söngvari þjóðarinnar. 2.1.2006 16:00 Sjá næstu 50 fréttir
Tilnefnt til Óskarsverðlauna Myndin Brokeback Mountain í leikstjórn Ang Lee hlýtur flestar tilnefningar eða átta alls til Óskarsverðlaunanna þetta árið. Myndirnar Goodnight and Good Luck í leikstjórn leikarans George Clooney og Crash eftir Paul Haggis, sem samdi einmitt handritið af bestu mynd síðasta árs, Million Dollar Baby, hljóta sex tilnefningar hvor. 31.1.2006 16:54
Tilnefnt fyrir það versta Eins og flestir þeir sem fygljast með kvikmyndaheiminum vita þá er nú tímabil verðlaunaafhendinga fyrir bestu myndir og framistöðu í kvikmyndum á nýliðnu ári. En það er ekki einungis verðlaunað fyrir góða framistöðu heldur einnig veitt hin sívinsælu Hindberjaverðlaun, sem eru skammarverðlaun fyrir það allraversta í kvikmyndaheiminum 30.1.2006 14:51
Kínversku nýári verður fagnað hérlendis Kínverjar á Íslandi munu fagna nýári þann 28. janúar með viðeigandi hætti. Þá verður efnt til drekadans niður Laugaveginn en haldið verður frá Hlemmi klukkan tvö síðdegis. Þá gengur í garð „ár rauða hundsins". 25.1.2006 10:50
Björk á leið til Aceh Björk Guðmundsdóttir er á leið til Aceh-héraðs í Indónesíu til að sjá uppbyggingarstarf þar á vegum UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 25.1.2006 10:29
Leikarinn Chris Penn látinn Leikarinn Chris Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. 25.1.2006 07:55
Veðbanki – Vinsælasti flytjandinn Landsbankinn, Icelandair og Fréttablaðið eru styrktaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 25. janúar 2006. Í samvinnu við þessi fyrirtæki stendur Vísir nú fyrir veðbanka á vísir.is þar sem almenningi getur giskað á hver vinnur í hverjum flokki og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem er getspakastur og nær flestum réttum. Einnig er hægt að taka þátt í kosningu um vinsælasta flytjanda Íslands í netkosningu á visir.is og verða sérstök verðlaun veitt í þessum flokki á hátíðinni. 23.1.2006 14:23
Opið aðra hvora helgi í vetur Ákveðið hefur verið að hafa opið í Kerlingarfjöllum aðra hvora helgi í vetur til að mæta eftirspurn frá vélsleða- og jeppamönnum. Þetta hefur mælst vel fyrir og nú þegar liggja fyrir margar bókanir. 20.1.2006 10:19
Wilson Pickett látinn Sálarsöngvarinn Wilson Pickett er látinn. Hann lést af hjartaslagi á heimili sínu í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Pickett var sennilega þekktastur fyrir lög sín Mustang Sally og In the Midnight Hour. 20.1.2006 08:49
Deildarstjórinn lagði talsmann neytenda Stefán Már Halldórsson deildarstjóri starfskjaradeildar hjá Landsvirkjun lagði Gísla Tryggvasyni talsmann neytenda í spurningaþættinum Meistaranum sem fram fór á Stöð 2 í kvöld. 19.1.2006 22:41
Talsmaður neytenda mætir deildarstjóranum Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum, sem sýndur verður á Stöð 2 kvöld mætast þeir Stefán Már Halldórsson deidlarstjóri starfskjaradeildar Landsvirkjunar og Gísli Tryggvason talsmaður neytenda. 19.1.2006 16:00
Brokeback Mountain sló í gegn Brokeback, kvikmynd um samkynhneigða kúreka, var valin besta dramatíska myndin á Golden Globe verðlaunahátíðinni í nótt og leikstjóri hennar, Ang Lee, fékk verðlaunin fyrir bestu leikstjórn auk þess sem myndin fékk verðlaun fyrir besta handrit. 17.1.2006 06:16
Viltu vita eitthvað um Fuglaflensuna? Fuglaflensan verður til umfjöllunar í Kompási í næstu viku. Fréttir af útbreiðslu hennar vekja kannski fleiri spurningar en svör. Kompás gefur fólki kost á að senda inn spurningar um fuglaflensuna sem þátturinn leitast svo við að svara. 16.1.2006 11:03
Afhent í 12. sinn 25. janúar Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu þann 25. janúar nk. 13.1.2006 17:27
Aðjúnktinn lagði alþingismanninn Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands lagði Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann í æsispennandi viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur var á Stöð 2 fyrr í kvöld. 12.1.2006 23:00
Aðjúnktinn mætir alþingismanninum Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur verður á Stöð2 í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. janúar mætast þeir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður og Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands. Útsending hefst klukkan 20:00 12.1.2006 15:31
Birgit Nilsson látin Hin heimsfræga sænska óperusöngkona Birgit Nilsson er látin, 87 ára að aldri. Útför hennar fór fram í kyrrþey í Suður-Svíþjóð í dag. Nilsson er ein frægasta sópransöngkona síðustu aldar og starfaði meðal annars við Óperuhúsið í Bayreuth, Metropolitan-óperuna, Scala og Óperuna í Vín. 11.1.2006 16:26
Þrír nýir þættir hefja göngu sína á morgun Dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sirkus verður nú betri og ferskari með hverjum deginum sem líður. Á morgun, miðvikudaginn 11. janúar, hefja göngu sína þrír nýir þættir sem sjónvarpsstöðvar hafa slegist um, enda með vinsælustu þáttum sem sýndir eru í sjónvarpi í Bandaríkjunum og reyndar víðar, nú um mundir. 10.1.2006 10:29
Björk valin sérvitrasta dægurstjarna heims Breskt blað hefur valið íslensku söngkonuna Björk Guðmundsdóttur sérvitrustu dægurstjörnu heims. Það var breska blaðið Homes and antiques sem veitir björk þennan titil en blaðið er í eigu breska ríkisútvarpsins, BBC. Það voru tæplega sex þúsund lesendur blaðsins sem greiddu atkvæði. 10.1.2006 07:45
Björn Hlynur valinn sem "Shooting Star" Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson hefur verið vainn sem "Shooting Star" árið 2006. Hann er meðal þeirra 20 ungra evrópskra leikara sem kynntir verða á kvikmyndahátíðinni í Berlín verður haldin dagana 11.-13. febrúar næstkomandi. Þetta er í níunda skiptið sem European Film Promotion stendur fyrir vali á efnilegum leikurum til kynninga á hátíðinni. 10.1.2006 06:43
Þjóðaríkon Íslendingar eru líka eyþjóð sem er sífellt að spá í sjálfri sér. Hver eru okkar þjóðaríkon? Grettir sterki, hákarl, glíma, álfar, lóan? Ætli við myndum ekki reyna að telja túristum trú um það. En þetta virkar ekkert voða sannfærandi.... 9.1.2006 22:05
Velja kynþokkafyllstu konu landsins Tímaritið Sirkus hefur sett af stað kosningu um kynþokkafyllstu konu landsins undir þrítugu. Hundruðir ráðgjafa Sirkuss hafa tilnefnt 53 stúlkur sem berjast um titilinn. Kosning fer fram hér á Vísi. 6.1.2006 23:53
Steinþór lagði Erling Steinþór H. Arnsteinsson blaðamaður og fyrrum sigurvegari í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur með Borgarholtsskóla lagði í kvöld Erling Hansson framhaldsskólakennara í annarri viðureign spurningaþáttarins Meistarinn á Stöð 2. 5.1.2006 21:30
Æfingar hafnar á Öskubusku Æfingar eru hafnar á óperunni Öskubusku eftir Rossini sem er aðalverkefni Íslensku óperunnar á vormisseri 2006. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Öskubuska verður frumsýnd í Óperunni 5. febrúar 2006 og alls verða 10 sýningar. 4.1.2006 13:43
Nýárskveðjan send með SMS 221 þúsund SMS skeyti voru send frá viðskiptavinum Og Vodafone frá klukkan 21 á gamlársdag til klukkan 9 daginn eftir, nýársdag. Það er nokkur aukning frá því árið á undan. Ef tekið er mið af fyrsta sólarhring ársins voru send 287 þúsund SMS skeyti. Þetta er talsvert meira en á hefðbundnum degi, en jafnan eru send í kringum 180 þúsund SMS skeyti á sólarhring úr GSM kerfi Og Vodafone. 4.1.2006 11:00
Karlakór Reykjavíkur áttræður í dag Karlakór Reykjavíkur fagnar í dag 80 ára afmæli sínu. Af því tilefni söfunuðust ungir og gamlir kórfélagar saman í Fossvogskirkjugarði þar sem lagður var blómsveigur að leiði Sigurðar Þórðarsonar tónskálds sem var einn af aðalhvatmönnum að stofnun kórsins og stjórnandi hans frá stofnun og allt til ársins 1962 að einu ári undanskildu. 3.1.2006 09:02
Eiríkur Hauksson syngur með Pops Ein þekktasta sveit ´68 kynslóðarinnar Pops verður með tónleika á Kringlukránni um helgina og hafa fengið til liðs við sig stórrokkarann Eirík Hauksson. Það verður að teljast hvalreki, því Eiríkur Hauksson hefur um árabil verið einn fremsti söngvari þjóðarinnar. 2.1.2006 16:00