Fleiri fréttir

Konur á breytingaskeiði

Um einn fjórði kvenna sem hættu að taka inn hormóna eftir að rannsóknir sýndu að þeir gætu valdið aukinni hættu á hjartasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameins, eru aftur farnar að taka þá inn.

"Feiti maðurinn"

Líkami og sál. Guðjón Bergmann, jógakennari og rithöfundur, skrifar um andlega og líkamlega heilsu.

Flensan ekki komin

Byrjað var um síðustu mánaðamót að bólusetja fólk gegn inflúensu hér á landi og eru þær aðgerðir í fullum gangi. Enda þótt fréttir berist um hörgul á bóluefni í Bandaríkjunum og víðar, vegna mistaka í framleiðslu þess hjá stóru lyfjafyrirtæki í Bretlandi, mun skorts ekki gæta hér á landi.

Pastellitanámskeið hjá Mími

Námskeið í pastellitamálun er að hefjast hjá Mími símenntun og það er nýjung þar á bæ. Kennari er Birgir Rafn Friðriksson myndlistamaður sem er aðdáandi pastellita en segir þá hafa goldið þess síðustu ár að vera ekki í tísku.

Opnir tímar í tréskurði

Tréskurður tilheyrir bæði tómstundagamni og nytjalist og þá kúnst er hægt að læra á Vesturgötu 7 í Reykjavík. Leiðbeinandi er Sigmundur Hansen og hann segir alla velkomna í tíma, á hvaða aldri sem þeir eru.

Námskeið framundan

Íslendingar eru þekktir fyrir mikinn áhuga á ættfræði. Þorgrímur Gestsson virkjar þann áhuga í námskeiði sem hann kennir í Námsflokkum Reykjavíkur og kallast Ritun ættarsögu.

Keypti íbúð með rétta fílinginn

"Ég myndi segja að uppáhaldshúsið mitt væri það sem ég er að fara að flytja inn í á næstunni," segir Vignir Snær Vigfússon, gítarleikari hljómsveitarinnar Írafár. Reyndar segist Vignir ekki hafa mikið álit á húsunum í Reykjavík þar sem hann sé algjör sveitastrákur.

Plássið nýtt til fullnustu

Margir búa við þröngan húsakost og þá er gott að vera útsjónarsamur til þess að nýta plássið sem best. Það eru ýmis ráð til að nýta vel lítil rými og það er óvitlaust að glugga í bækur þess efnis, sé maður á þeim buxunum að taka í gegn lítið herbergi eða íbúð.

Haustlaukar blómstra upp úr snjó

Tími haustlaukanna er kominn en tímabilið hefst í september og lýkur í nóvember. Október virðist vera aðaltíminn til að setja niður laukana og sá tími sem flestir nota til verksins.

Auðveld tepphreinsun

Teppin safna oft miklu ryki og skít og því virðist stundum sem það sé verkið ómögulega að þrífa þau. Það er samt ekki eins mikið mál og það sýnist og því er um að gera að taka sér tíma og ráðast í teppahreinsun upp á eigin spýtur.

Reeve látinn

Súpermanstjarnan og leikarinn Christopher Reeve lést í gær í kjölfar hjartaáfalls en hann var 52 ára að aldri. Reeve varð frægur á áttunda og níunda áratugnum fyrir hlutverk sitt sem Súperman. Hann lamaðist þegar hann féll af hestbaki fyrir níu árum og var bundinn við hjólastól síðan.

Íbúðalánasjóður hækkar hámarkslán

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hafa hækkað bæði fyrir kaup á notuðum og nýjum íbúðum. Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur ákveðið að hámarkslán á notuðum íbúðum fari úr 9,2 milljónum og nýjum íbúðum úr 9,7 milljónum upp í 11,5 milljónir. Þá fer hámarksfjárhæð viðbótarlána upp í þrettán milljónir.

Auglýst eftir styrkumsóknum

Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsti um helgina eftir umsóknum til Húsafriðunarsjóðs 2005. Hægt er að sækja um styrki vegna endurbóta á friðuðum eða varðveisluverðum húsum.

Fylgdarþjónusta Handlagins

"Fylgdarþjónustan er hugsuð fyrir þá sem standa í íbúðarkaupum og vilja fá hlutlausan fagmann með sér til að meta fasteignina áður en kauptilboð er gert," segja Ýmir Björgvin Arthúrsson og Sæmundur H. Sæmundsson, eigendur fyrirtækisins Handlaginn sem sérhæfir sig í þjónustu og ráðgjöf fyrir fasteignaeigendur.

Ný, tölvuvædd fasteignasala

"Sérstaða okkar á markaðinum er að við auglýsum eiginlega alfarið á netinu. Einnig erum við með verðvernd þannig að við tryggjum að vera alltaf með lægstu söluþóknun á Íslandi. Fasta þóknunin okkar er 99.900 krónur eða 124.375 krónur með virðisaukaskatti," segir Jóhann Baldursson lögmaður, löggildur fasteignasali og eigandi fasteignasölunnar Neteign sem hóf starfsemi í síðustu viku.

Skipti um starfsvettvang

Ari Matthíasson var einn af okkar vinsælli leikurum til langs tíma og átti góðan feril í leiklistinni frá því hann útskrifaðist þangað til hann ákvað að söðla um og snúa sér að allt öðru um áramótin 2002. Nú hefur Ari lokið MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík og vinnur hjá fyrirtækinu Argus sem sinnir alhliða markaðsþjónustu.

Jackson ætlar í mál við Eminem

Stórpopparinn Michael Jackson hyggst kæra rapparann Eminem vegna nýjasta tónlistarmyndbands þess síðarnefnda, þar sem gefið er í skyn að Jackson misnoti lítil börn. Í myndbandinu gerir Eminem einnig óspart grín að lítaaðgerðum Jacksons og meintum pempíuskap hans.

Reykingavarnir góðar á Íslandi

Íslendingar fá hrós fyrir baráttu gegn reykingum í nýrri evrópskri rannsókn og standa sig betur en nokkuð annað Evrópuríki.

Fyrsta leikstjórnarverkefni Maríu

Nýtt íslenskt leikverk, <em>Úlfhams saga</em>, verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld. Leikstjóri er María Ellingsen en þetta er jafnframt hennar fyrsta leikstjórnarverkefni.

Hr. Ibrahim og blóm Kóransins

Þetta er saga sem er einföld í stíl og framsetningu, en hún hefur að geyma ýmsar laglegar vangaveltur um umburðarlyndi, náungakærleik og tilgang jarðvistarinar. Bókinn er stutt og auðveld aflestrar, fjallar um indæl samskipti ráðvillts gyðingadrengs og smákaupmans sem er arabi

Heimsfrægðin handan við hornið?

Gísli, íslenskur popptónlistarmaður sem býr í Ósló, er að gera það gott og það virðist sem heimsfrægðin sé rétt handan við hornið.

Áfengisskattur hæstur á Íslandi

Áfengisgjald, sérstakur skattur íslenska ríkisins af áfengi, er með því hæsta sem gerist í Evrópu samkvæmt úttekt <em>Neytendablaðsins</em>. Það er helst að áfengisgjald í Noregi sé svipað því sem hér þekkist.

Bólusett í búðinni

Bólusetningar hófust í Lyfju í Smáralind í gær, en Lyfja er fyrst lyfjabúða á Íslandi með slíka þjónustu. "Við höfum fengið mjög sterk viðbrögð. Það biðu tíu manns við dyrnar hjá okkur þegar við opnuðum," segir Þórbergur Egilsson lyfjafræðingur, sem er yfirmaður lyfjasviðs Lyfju.

Sushi í hvert mál

"Það er ekkert mál fyrir mig að segja hver uppáhaldsmaturinn minn er," segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman, leikkona og leikskáld, aðspurð um besta mat í heimi. "Ég er ástfangin upp fyrir haus af sushi. Ég gæti borðað það í hvert mál."

Sætar kartöflur

Sætar kartöflur eru upprunnar í Suður-Ameríku og er getið í perúvískum heimildum frá 750 fyrir Krist. Þær eru ólíkar venjulegum kartöflum í útliti og minna meira á ofvaxnar brúnar gulrætur en nokkuð annað.

Eftirréttur Ólympíufaranna

Kokkalandsliðið er á leið til Þýskalands að taka þátt í Ólympíuleikum í matreiðslu. Þessi dýrðlegi desert verður hluti af framlagi þess. Uppskriftin er miðuð við 10 manns.

Staðreyndir um túnfisk

Fyrir 25 árum keypti fólk ekki túnfisk nema handa kettinum sínum. Þá kostaði hálft kíló nokkra aura. Nú borgar fólk 4.000 krónur fyrir hálft kíló af túnfiski og engum dytti lengur í hug að kaupa hann handa kettinum.

Úrsmiður keyrir um á krílí

"Bíllinn minn var valinn einungis út af hagræði. Hann eyðir litlu og engir listar eru á hliðunum þannig að auðvelt verður að merkja hann versluninni minni, þegar ég rolast til þess," segir Rúnar I. Hannah, úrsmiður, eigandi verslunarinnar Úr að ofan og meðlimur í gleðisveitinni Breiðbandinu.

Dísilvélar umhverfisvænn kostur

Í framtíðinni á að vera hægt að keyra dísilvélar án útblástursmengunar. Margar dísilvélar menga nú þegar afar lítið og stefnt er að því að draga enn frekar úr menguninni.

Draumabíll útvarpsmannsins

Þegar Andri Viðarsson, eða Freysi eins og flestir þekkja hann, útvarpsmaður á X-inu 97.7 er spurður um draumabílinn sinn þá er það aðeins einn bíll sem kemur upp í hugann.

Litlir, sætir og sexí aukahlutir

Aukahlutir í bíla er alltaf eitthvað sem tengt hefur verið við bílaáhugamenn, og þá yfirleitt stráka. Eitthvað eins og spoilerar, brjálaðar græjur og jafnvel glasahaldarar. Allt á þetta það sameiginlegt að vera voðalega flott og gerir bílinn að sannkölluðu tryllitæki en það vantar samt fínu litina og pjattið sem gera bílinn heimilislegan.

Óheppinn ökumaður

Tæplega þrítugur Frakki varð á dögunum fyrir þeirri martraðarkenndu reynslu að hraðastillirinn (cruiscontrolið) í bílnum hans festist á 190 km hraða.

Bíll ársins í Danmörku

Félag danskra bílablaðamanna hefur valið Mitsubishi Colt bíl ársins í Danmörku árið 2005.

Outkast með 5 tilnefningar

Rappdúettinn Outkast hlaut fimm tilnefningar til tónlistarverðlauna MTV-sjónvarpsstöðvarinnar í Evrópu, meðal annars sem besta hljómsveitin og fyrir besta lagið. 7 tónlistarmenn eða hljómsveitir eru tilnefnd til þriggja verðlauna á hátíðinni, meðal annars Britney Spears, Beyonce Knowles og Franz Ferdinand.

Giftist í 53. sinn

72 ára gamall maður frá Malasíu kvæntist í vikunni í 53. skiptið. Hann þvertekur fyrir að vera glaumgosi, þótt sum þessara hjónabanda hafi aðeins varað í nokkra daga. Önnur vörðu þó í meira en áratug. Nýjasta eiginkona hans er ennfremur sú fyrsta. Hann kvæntist aftur konunni sem hann gekk fyrst með í hjónaband, fyrir 46 árum.

Hawking vinsælli en Beckham

Eðlisfræðingurinn og rithöfundurinn Stephen Hawking er vinsælli fyrirmynd en David Beckham, samkvæmt nýrri könnun meðal ungra drengja í Bretlandi. Hawking var í öðru sæti á eftir fyrirliða enska landsliðsins í Rugby, en Beckham var í þriðja sæti.

Fótbolti í morgunsárið

Þeir eru glaðbeittir í morgunsárið guðsmennirnir sem spila fótbolta í KR heimilinu milli klukkan 8 og 9 á fimmtudagsmorgnum. Spurðir hvort þeim finnist þetta ekki ókristilegur tími fyrir iðkun fótbolta svara þeir því galvaskir neitandi og einn bætir við að boltinn sé góður með morgunbæninni.

Fækkar aðgerðum vegna æxla í húð

Nýtt lyf sem upprætir vissar tegundir húðkrabbameins hefur verið flutt hingað til lands og samþykkt af yfirvöldum. Það heitir Metvix og er þróað og framleitt í Noregi. Lyfið hefur gagnast vel á húðæxli af flöguþekju-uppruna og fækkað skurðaðgerðum vegna þeirra.

Gufaðist um tækjasalinn

"Ég er nýbúin að fá mér árskort í Laugum," segir Þrúður Vilhjálmsdóttir leikkona með stolti þegar hún er spurð hvaða líkamsrækt hún stundi. "Tækjasalurinn er minn staður þessa stundina og er ég nýbúin að læra á hann, en fram að því gufaðist ég bara um tækjasalinn," segir Þrúður

Gúrú

Ég skrifa þessa stuttu útskýringu á hugtakinu gúrú vegna ofnotkunar og misnotkunar þess í fjölmiðlum síðastliðin ár og mánuði. Orðið gúrú er upphaflega úr sanskrít og þýðir sá sem ryður burt myrkri með ljósi eða sá sem ryður burt þoku

Reykingar kvenna minnka

Reykingar íslenskra kvenna hafa dregist saman um 10% á 13 árum. Þetta kemur fram í fréttapistli heilbrigðisráðuneytisins. Fjórðungur íslenskra karlmanna reykti daglega árið 2003 á móti 19% íslenskra kvenna samkvæmt samnorrænni rannsókn á reykingum Norðurlandabúa.

Yoko vill friðarsúlu í Reykjavík

Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns Lennons, hefur áhuga á að setja upp friðarsúlu í Reykjavík. Borgaryfirvöld hafa tekið vel í hugmyndina. 

Gistinóttum fjölgaði um 2%

Gistinóttum á íslenskum hótelum fjölgaði um tæp tvö prósent í ágústmánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Þær voru tæplega 136 þúsund í þarsíðasta mánuði en 133 þúsund í ágúst í fyrra. Gistinóttum fjölgaði mest á Austurlandi, eða um 12,5 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir