Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FBI rannsakar dómara í NBA deildinni NBA deildin titrar nú eftir að New York Post greindi frá því fyrir helgina að FBI væri að rannsaka meint tengsl dómara í deildinni við mafíuna. Dómarinn heitir Tim Donaghy og hefur hann þegar sagt starfi sínu lausu, en hann á að hafa beitt sér fyrir að hagræða úrslitum í leikjum á síðustu tveimur árum.. Hann hefur enn ekki verið fundinn sekur, en verði svo, yrði það gríðarlegur álitshnekkur fyrir deildina. 21.7.2007 13:06
Samdi við þýskt úrvalsdeildarlið Körfuknattleiksmaðurinn Jeb Ivey hefur samið við þýska félagið Goettingen. Félagið er nýliði í úrvalsdeildinni þar í landi. Ivey hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár en hann hafði þegar ákveðið að fara frá Njarðvík. 21.7.2007 00:15
Oberto framlengir við meistarana Argentínski miðherjinn Fabricio Oberto hefur framlengt samning sinn við NBA meistara San Antonio Spurs. Ekki hefur verið gefið upp hve langur samningurinn er, en Oberto var í byrjunarliði Spurs í 12 af 20 leikjum liðsins í úrslitakeppninni í vor. Hann setti félagsmet í nóvember á síðasta ári þegar hann hitti úr öllum 11 skotum sínum utan af velli í leik gegn Phoenix Suns og skoraði 22 stig. 18.7.2007 19:30
Marbury ætlar að feta í fótspor David Beckham Leikstjórnandinn Stephon Marbury hjá New York Knicks í NBA deildinni segist ætla að feta í fótspor David Beckham þegar samningur hans við New York rennur út eftir tvö ár. Hann segist vera búinn að ákveða að reyna þá fyrir sér á Ítalíu þar sem hann ætlar að setjast að með fjölskyldu sinni. 18.7.2007 16:39
Durant neitaði fjögurra milljarða tilboði Adidas Framherjinn Kevin Durant hjá Seattle Supersonics neitaði á dögunum rúmlega fjögurra milljarða samningstilboði frá íþróttavöruframleiðandanum Adidas og ákvað að halda sig við Nike. Þar fær hann "aðeins" 3,6 milljarða samning fyrir að leika í skóm frá fyrirtækinu næstu sjö árin og þar af fær hann rúmar 600 milljónir beint í vasann við undirritun. Durant var valinn númer tvö í nýliðavalinu í NBA á dögunum. 18.7.2007 16:15
Yao Ming gagnrýndur harðlega í Kína Íþróttaráðið í Kína gagnrýnir miðherjann Yao Ming harðlega í nýjustu útgáfu China Sports Daily sem er málgagn ráðsins í landinu. Ming er gagnrýndur fyrir að koma seint til æfinga með landsliðinu og þar setja menn stórt spurningamerki við það hve miklum tíma hann eyðir í að sinna einkalífinu. Þetta þykir ekki bera vott um hollustu við þjóðina. 18.7.2007 14:14
Garnett fer ekki frá Minnesota Líklega hefur enginn leikmaður í NBA deildinni verið meira í slúðrinu í sumar en framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota, en talið var nánast öruggt að honum yrði skipt frá félaginu í kring um nýliðavalið á dögunum. Þetta hefur nú verið slegið út af borðinu af eiganda Minnesota, sem segir að Garnett vilji vera áfram með liði Timberwolves. 17.7.2007 14:51
Yi fær ekki að spila með Milwaukee Kínverski framherjinn Yi Jianlian mun ekki fá að spila með liði Milwaukee Bucks í NBA deildinni ef maka má nýjustu fréttir frá Kína. Jianlian var valinn númer sex af Milwaukee í nýliðavalinu á dögunum en hefur enn ekki skrifað undir samning við félagið vegna þrýstings frá heimalandi sínu. Málið er að verða hið vandræðalegasta og stefnir í að David Stern forseti NBA deildarinnar þurfi nú að skerast í leikinn. 17.7.2007 13:54
Jackson og Artest fá sjö leikja bann Fyrrum samherjarnir Stephen Jackson hjá Golden State og Ron Artest hjá Sacramento í NBA deildinni, voru á dögunum dæmdir í sjö leikja bann af deildinni fyrir að komast í kast við lögin utan vallar. Leikmannasamtökin íhuga nú að áfrýja þessum dómi, en Ron Artest er mjög upptekinn við að laga ímynd sína þessa dagana. 17.7.2007 13:42
Mourning ætlar að spila eitt ár í viðbót Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat í NBA deildinni hefur tilkynnt að hann ætli að spila eitt ár til viðbótar með liðinu. Mourning hafð legið undir feldi í allt sumar en sagði ljótt tap liðsins gegn Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í vor vera helstu ástæðu þess að hann hafi ekki geta lagt skóna á hilluna. 17.7.2007 13:35
Vince Carter gerir nýjan samning við Nets New Jersey Nets samdi í dag við bakvörðinn Vince Carter. Samningurinn nær til að minnsta kosti fjögurra tímabila í viðbót. Carter fær sem nemur tæpum 3,6 milljörðum íslenskra króna fyrir sinn snúð. 13.7.2007 20:16
Orlando fjárfestir fyrir 12 milljarða Forráðamenn NBA liðsins Orlando Magic hafa ekki setið auðum höndum undanfarna daga og fjárfesta nú grimmt. Í dag skrifaði miðherjinn Dwight Howard undir nýjan samning við félagið sem sagður er vera til fimm ára og upp á um 85 milljónir dollara. 12.7.2007 19:33
Oden spilar ekki meira í sumardeildinni Miðherjinn Greg Oden getur ekki spilað meira í sumardeildinni í NBA því hann þarf að fara í aðgerð til að láta taka úr sér hálskirtlana. Oden var valinn númer eitt af Portland í nýliðavalinu á dögunum og þykir mikið efni. Hann hefur alls ekki náð sér á strik í sumardeildinni til þessa og kennir veikindum sínum um úthaldsleysi sitt. 11.7.2007 17:06
Francis keyptur út hjá Portland Fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina frá því í morgun að bakvörðurinn Steve Francis muni verða keyptur út úr samningi sínum hjá Portland Trailblazers fyrir um 30 milljónir dollara. Francis var skipt til Portland frá New York á dögunum, en félagið hefur ekki í hyggju að nota leikstjórnandann. 11.7.2007 15:15
Komin aftur í KR Landsliðskonan Hildur Sigurðardóttir hefur ákveðið að spila með nýliðum KR í Iceland Express-deild kvenna næsta vetur en hún hefur spilað með Grindavík undanfarin tvö tímabil. 11.7.2007 09:30
Keflvíkingar semja við Úkraínumann Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við 21 árs gamlan Úkraínumann að nafni Denis Ikovlev um að leika með liðinu í Express deildinni næsta vetur. Ikovlev lék með liði Nevada-Reno í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í fyrra og ku vera góður skotmaður. Þetta kemur fram á vef Keflavíkur í dag. 10.7.2007 16:58
Vopnaðir menn rændu Antoine Walker Framherjinn Antoine Walker hjá Miami Heat í NBA deildinni lenti í óskemmtilegri reynslu í gærkvöldi þegar vopnaðir ræningjar stálu öllu steini léttara í íbúð hans í Chicago. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Walker er rændur á ferli sínum í NBA. 10.7.2007 16:45
Fjölnir og ÍBH Landsmótsmeistarar í körfubolta Karlalið Fjölnis og kvennalið ÍBH urðu í dag Landsmótsmeistarar í körfubolta í fyrsta skipti eftir sigra í úrslitaleikjum gegn liðum Keflavíkur. Kvennalið ÍBH vann öruggan sigur í sínum úrslitaleik, en framlengja þurfti karlaleikinn. 8.7.2007 18:45
Wilkens hættur hjá Seattle Fyrrum körfuboltaþjálfarinn Lenny Wilkens hefur sagt af sér varastjórnarformennsku hjá Seattle Supersonics í NBA deildinni, daginn eftir að P.J. Carlesimo var ráðinn sem þjálfari liðsins. Wilkens á að baki fleiri sigra en nokkur annar þjálfari í sögu NBA deildarinnar, en hefur verið á skrifstofunni undanfarin ár. Gríðarleg uppstokkun hefur verið í gangi í Seattle á síðustu vikum, en almennt er álitið að liðið fari frá borginni eftir komandi leiktíð í NBA. 7.7.2007 20:45
Nýliðarnir ryðgaðir í byrjun Nýliðarnir Greg Oden hjá Portland og Kevin Durant hjá Seattle voru boðnir velkomnir í NBA deildina á dögunum þegar þeir spiluðu sína fyrstu leiki í sumardeildinni. Oden og Durant voru valdir númer 1 og 2 í nýliðavalinu um daginn og eru miklar vonir bundnar við þá á næstu árum. 7.7.2007 13:30
Nocioni gerir fimm ára samning við Bulls Argentínumaðurinn Andres Nocioni hjá Chicago Bulls hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið upp á um 38 milljónir dollara, en samningurinn verður ekki tilkynntur formlega fyrr en 11. júlí. Nocioni skoraði 14 stig og hirti 5,7 fráköst fyrir Chicago í vetur. Hann er 27 ára gamall framherji og spilar með landsliði Argentínu. 7.7.2007 13:18
Billups nær samningum við Detroit ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í nótt að leikstjórnandinn Chauncey Billups hafi náð samkomulagi við Detroit Pistons um að framlengja samning sinn við félagið um 5-6 ár og fái fyrir það 60 milljónir dollara. Umboðsmaður Billups hafði áður vísað svipuðum fréttum á bug. 7.7.2007 13:13
Kobe Bryant baðst afsökunar Stórstjarnan Kobe Bryant hjá LA Lakers segist hafa beðið framkvæmdastjóra félagsins afsökunar á ummælum sínum fyrir fimm vikum þegar hann heimtaði að fara frá félaginu. Bryant hefur ekki dregið ósk sína til baka, en segist hafa hlaupið aðeins á sig vegna óþolinmæði í garð forráðamanna félagsins. 7.7.2007 12:57
Grant Hill semur við Phoenix Framherjinn Grant Hill sem leikið hefur með Orlando Magic í NBA deildinni síðustu ár skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Phoenix Suns. Hill var með lausa samninga hjá Orlando en gengur nú til liðs við Steve Nash og félaga þar sem hann mun spila fyrir algjör lágmarkslaun næstu tvö árin. 5.7.2007 20:30
Stórskyttan Navarro á leið til Washington Spænska stórskyttan Juan Carlos Navarro hjá körfuboltaliði Barcelona hefur fengið sig lausan undan samningi við félagið og hefur ákveðið að ganga í raðir Washington Wizards í NBA deildinni. Washington átti réttinn á hinum 27 ára gamla Navarro sem segir það draum fyrir sig að fá að reyna sig meðal þeirra bestu. 4.7.2007 20:48
Carlesimo tekur við Seattle Supersonics Seattle Supersonics í NBA deildinni virðist nú loksins hafa tekist að ráða sér þjálfara ef marka má fréttir frá Bandaríkjunum. Félagið hefur enn á ný leitað í raðir NBA meistara San Antonio til að ná sér í mannskap því í nótt gengur það frá ráðningu PJ Carlesimo, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Spurs síðustu fimm ár. 4.7.2007 20:07
Grant Hill tekur ákvörðun í vikunni Framherjinn Grant Hill ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína í NBA deildinni fyrir helgi, en hann er með lausa samninga eftir að hafa leikið með Orlando undanfarin ár. Phoenix þykir líklegasta félagið til að landa Hill en Detroit, San Antonio, Miami og Dallas hafa einnig borið víurnar í þennan reynda kappa. 4.7.2007 20:01
Darko úti í kuldanum Umboðsmaður Darko Milicic hjá Orlando Magic er ekki sáttur við forráðamenn NBA-liðsins eftir að þeir drógu til baka fyrirhugað tilboð um framlengingu á samningi hans. Orlando hefur boðið Rashard Lewis svo háan samning að óvíst er hvort félagið nær að halda Milicic í kjölfarið. 4.7.2007 19:54
Rashard Lewis samþykkir að fara til Orlando Magic Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur tjáð forráðamönnum Orlando Magic að hann vilji skrifa undir samning við félagið. Lewis er með lausa samninga hjá Seattle í sumar eftir að hafa skorað yfir 22 stig að meðaltali fyrir Seattle síðasta vetur. 3.7.2007 12:44
Carter leysir sig undan samningi við Nets Rod Thorn, forseti New Jersey Nets, tilkynnti í gær að körfuboltakappinn Vince Carter hafi nýtt sér ákvæði í samning sínum og sé búinn að leysa sig undan samningi við liðið. 1.7.2007 14:48